Dagur - 09.10.1990, Síða 9
Þriðjudagur 9. október 1990 - DAGUR - 9
fþrótfir
Blak, 1. deild karla:
KA-menn með fullt
hús eftir tvo leiki
- sigruðu Prótt N. tvívegis um helgina
Karlalið KA hóf keppni á
Islandsmótinu í blaki með
tveimur sigrum á Þrótti Nes-
kaupstað um helgina. Fyrri
leikurinn fór fram í íþróttahúsi
Glerárskóla og lauk honum
með 3:0 sigri KA en sá seinni í
Iþróttahöllinni daginn eftir og
unnu KA-menn hann 3:1.
KA-menn höfðu allmikla yfir-
burði í leiknum á föstudag enda
lék sterkasti maður Próttara, Sig-
fús Viggósson, ekki með. KA-
menn unnu örugglega í þremur
hrinum, 15:11, 15:5 og 15:12. í
KA-liðið vantaði Hafstein Jakobs-
son, sem var einn besti maður
þess á síðasta keppnistímabili, en
það virtist ekki koma að sök.
Úr leikjum KA og Þróttar N. um helgina sem KA-menn unnu nokkuð örugglega.
Myndir: KL
Liðið lék reyndar ekkert sérstak-
lega vel en átti þokkalegar rispur
og varamennirnir fengu að
spreyta sig.
Leikurinn daginn eftir var á
svipuðum nótum en þó náðu
Þróttarar sigri í 2. hrinu og úrslit-
in urðu því 3:1. Úrslit í hrinunum
urðu 15:7, 9:15, 15:6 og 15:12.
„Við komum svona þokkalega
undirbúnir til leiks en það er erf-
itt að spá um hvert gengi okkar
verður út frá þessum tveimur
leikjum. Ég tel reyndar að Þrótt-
ararnir eigi eftir að verða sterkari
í vetur en þessir leikir segja til
um. Reykjavíkur-Þróttarar virð-
ast vera mjög sterkir og eiga að
mínu mati góða möguleika á titl-
inum en við erum harðákveðnir í
að koma honum hingað norður
aftur," sagði Haukur Valtýsson,
fyrirliði KA.
Blak, 1. deild kvenna:
KA lá fyrir Þrótti
Kvennalið KA hóf Islands-
mótið í blaki með ósigri um
helgina. Liðið mætti Þrótti frá
Neskaupstað í íþróttahúsi
Glerárskóla á föstudag og tap-
aði 3:1 eftir að hafa unnið
fyrstu hrinuna.
KA-stúlkurnar misstu einn
besta spilara sinn eftir síðasta
tímabil, Særúnu Jóhannsdóttur,
og hafa ekki náð að fylla í
skarðið. Þá mættu tvær úr liðinu í
leikinn æfingarlausar og-það sást á
lcik þess. Engu að síður byrjuðu
stúlkurnar vel, unnu fyrstu hrinu
15:11 en Þróttarar unnu þrjár
næstu, 15:8, 17:15 og 15:11.
„Leikurinn var jafn en þær
héldu haus- við ekki. Ég vona að
þetta séu bara byrjunarerfiðleik-
ar og leikur okkar eigi eftir að
lagast," sagði Hrefna Brynjólfs-
dóttir, leikmaður KA.
Blak, 1. deild kvenna:
Öruggt hjá Völsungi
gegn Þrótti Nes.
„Þetta var nú frekar rólegur
leikur. Við vorum ekkert of
hressar og lofum að bæta
okkur,“ sagði Ásdís Jónsdótt-
ir, leikmaður kvennaliðs
Völsungs í blaki, eftir að lið
hennar sigraði Þrótt frá Nes-
kaupstað 3:0 á Húsavík um
helgina.
Leikurinn var jafn til að byrja
með en Völsungar höfðu þó alltaf
frumkvæðið og unnu fyrstu hrinu
15:12. Þróttarar náðu nokkrum
sinnum að jafna í 2. og 3. hrinu
en komust þó aldrei yfir og
Völsungur sigraði 15:11 og 17:15.
Lið Þróttar er ungt og efnilegt
en náði ekki að fylgja eftir ágætum
sigri á Akureyri á föstudeginum.
Völsungsliðið virðist nokkuð
sterkt og vann öruggan sigur
þrátt fyrir að það ætti ekkert sér-
stakan leik.
Mn:
flHRT
apweeu
Ma|><<w*hm f
ÍBflflCHO) ce OTTTM-
HH B T03M M3H C fl»C
tohmm nonafleMMB, mo
oöuto wrpaTa «a MeroaHH
or6op «e aaaoaonw. (Ma Ma-
na aa KÉUl IICKA - „AKypeMpn '
3 fll
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
Óbreytt lið gegn
Spánveqmn á morgun
- U-21 árs liðið leikur í kvöld
Á morgun mæta íslendingar
Spánverjum í fjórða leik sínum
í Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu. Islendingar hafa
hlotið 2 stig úr fyrstu þremur
leikjunum, sigrað Albani en
tapað fyrir Frökkum og Tékk-
um. Þá mætast ísland og
Spánn einnig í Evrópukeppni
landsliða skipuðum 21 árs leik-
mönnum og yngri og fer sá
leikur fram í kvöld.
Ljóst er að róðurinn á morgun
verður erfiður, Spánverjar áttu
lið í úrslitakeppni síðustu Heims-
meistarakeppni í knattspyrnu og
eru af mörgum taldir líklegir sig-
urvegarar í sínum riðli í Evrópu-
keppninni.
Islenska liðið verður skipað
sömu leikmönnum og mættu
Tékkum ytra fyrir hálfum mán-
uði. Þeir eru:
Bjarni Sigurðsson Val
Birkir Kristinsson Fram
Atli Eðvaldsson KR
Pétur Pétursson KR
Sævar Jónsson Val
Þorgrímur Þráinsson Val
Antony Karl Gregory Val
Ólafur Þórðarson Brann
Pétur Ormslev Fram
Sigurður Grétarsson Grasshoppers
Guðni Bergsson Tottenham
Ragnar Margeirsson KR
Arnór Guðjohnsen Anderlecht
Rúnar Kristinsson KR
Sigurður Jónsson Arsenal
Kristján Jónsson Fram
Sjónvarpið mun sýna beint frá
leiknum og hefst útsendingin kl.
18.55.
íslenska U-21 árs liðið átti frá-
bæran leik gegn Frökkum fyrir
nokkru en mátti þó sætta sig við
tap. Það tapaði síðan stórt fyrir
Tékkum fyrir hálfum mánuði
eins og flestum er í fersku minni
og verður fróðlegt að sjá hvað
gerist í dag. Liðið er þannig
skipað:
w
Sævar Jónsson er í liðinu sem leikur á Spáni á morgun.
Ólafur Pétursson ÍBK Bjarni Benediktsson Stjörnunni
Kristján Finnbogason KR Valdimar Kristófersson Stjörnunni
Þormóður Egilsson KR Valgeir Baldursson Stjörnunni
Jóhann Lapaz KR Steinar Guðgeirsson Fram
Helgi Björgvinsson Víkingi Ríkharður Daðason Fram
Kristján Halldórsson ÍR Anton Markússon Fram
Steinar Adólfsson Val Gunnar Pétursson Fylki
Haraldur Ingólfsson ÍA Gunnlaugur Einarsson Grindavík