Dagur - 09.10.1990, Side 16

Dagur - 09.10.1990, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 9. október 1990 Ólafsflörður: Bam hjólaði á bil Sjö ára gamalt barn sem hafði fengið heilahristing var flutt frá Ólafsfirði á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri um miðjan dag á sunnudag eftir að það hafði hjólað á bifreið og fallið af hjólinu. Óhappið varð á mótum Ægis- götu og Bylgjubyggðar. Barnið hjólaði á eftir bifreiðinni en svo virðist sem það hafi ekki áttað sig á að þegar beygjuna nálgaðist hægði bifreiðin verulega á sér. Hjólið lenti því aftan á bílnum og við það kastaðist barnið í götuna. Barnið fékk heilahristing við höfuðhöggið og var flutt á sjúkra- hús á Akureyri. Að sögn lögregl- unnar í Ólafsfirði átti barnið að koma heim í gær eftir sjúkrahús- dvölina. JÓH ( Samtök jafnréttis og félagshyggju: Ákveðið að bjóða fram í ölhim kjördæmum Stefán Valgeirsson og sam herjar hans í Samtökum jafn- réttis og félagshyggju hafa ákveðið að bjóða fram í öllum kjördæmum undir merkjum Tjörnes: Þrír slösuðust er bíll valt Bíll valt á móts við bæinn Ytri- tungu á Tjörnesi síðdegis á föstudag. Þrír þeirra fimm sem í bílnum voru slösuðust en þó enginn mjög alvarlega. Tveir voru fluttir á sjúkrahúsið á Húsavík og einn á sjúkrahúsið á Akureyri. Hálka var á veginum er slysið átti sér stað en það var lítinn sendibíl á austurleið sem valt. Helgin var tíðindalaus að sögn lögreglunnar á Húsavík. IM Haustþing BKNE: Fjölmennt og gagnlegt Fjölmennu haustþingi Banda- lags kennara á Norðurlandi eystra lauk á Stórutjörnum um helgina. Jón Eyfjörð, fráfar- andi formaður BKNE, sagði í samtali við Dag að þingið hefði verið afar gagnlegt og mikil vinna innt þar af hendi. Haustþingið hófst á fimmtu- daginn og var sá dagur helgaður mati á skólastarfi. Fjórir fyrirles- arar fjölluðu um málið frá ýms- um sjónarhornum og síðan var kennurunum skipt upp í umræðu- hópa. Unnið verður úr niður- stöðunum og þær sendar í skól- ana. Á föstudaginn var verkefna- og námsgagnagerð í skólum tekin fyrir í formi fyrirlesturs og hóp- vinnu. Kennarar skiptu sér í hópa eftir kennslugreinum og unnu verkefni og sagði Jón að þau hefðu verið mjög misjöfn að umfangi. Þeir sem gátu ekki lok- ið við verkefnin þennan dag héldu áfram með þau á laugar- daginn. Á föstudag var einnig haldinn fundur skólastjóra og yfirkennara. Á laugardaginn voru haldnir fundir ýmissa sérhópa og má þar t.d. nefna tölvusamskiptahóp og fólk sem var á námskeiðum hjá BKNE um samþættingu náms- greina. SS samtnkanna í komandi alþing- iskosningum. Þetta var ákveð- ið á fundi sem Stefán og hans fólk hélt um helgina. Stefán er sem kunnugt er eini þingmaður Samtaka jafnréttis og félagshyggju og situr hann á þingi fyrir Norðurlandskjördæmi eystra. Á fundinum um helgina var hins vegar ákveðið að færa út kvíarnar og bjóða fram um allt land. Dagur hefur fyrir því heim- ildir að þreifingar séu byrjaðar með framboðsmál samtakanna í báðum kjördæmum hér norðan heiða. Stefán vill hins vegar ekki kveða upp úr um hvort hann verði áfram í slagnum. Það sé hans stuðningsfólks að segja til um það. óþh Laufskálarétt: Dregið, sungið og dansað Ein frægasta stóðrétt landsins var um helgina í Skagafirði, Laufskálarétt. Gott veður var meðan á réttinni stóð og fjöldi fólks mikill hvaðanæva af landinu. Nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Ármúla komu í rútu á réttina og Skagfirðingar fjölmenntu að sjálfsögðu. Hross voru dregin, fleygar viðraðir og í lokin sungu menn söngva sem hljómað hafa ár eftir ár í réttum norðan heiða. Ungir sem aldnir, menn og dýr, allir undu sér vel í skagfirskri hauststillu eins og hún ger- ist best. Um kvöldið var síðan farið á réttardansleik í Miðgarði þar sem Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar lék fyrir dansi 900 gesta og 1800 sveiflandi fóta. SBG Fundur byggðanefndar forsætisráðherra í Borgarnesi: Fiimn milljarða vantar til Byggðastoftiunar - segir Matthías Bjarnason formaður stofnunarinnar Þær hugmyndir sem fram hafa komið um eflingu atvinnulífs á landsbyggðinni eru markleysa ef ekki verður veitt verulegum fjármunum af almannafé til nýrra framkvæmda. Þetta var kjarninn í ræðu Matthíasar Bjarnasonar, formanns stjórn- ar Byggðastofnunar, á fundi byggðanefndar forsætisráö- herra í Hótel Borgarnesi í gær. Hann nefndi að fimm milljarða þyrfti til Byggðastofnunar í þessu sambandi. Matthías benti á að ekkert land á Vesturlöndum legði jafnlítið fé til byggðamálá og ísland. Hann tók sem dæmi að á Bretlandi væru fjárframlög til byggðamála miklu hærri en hér á landi. Hafþórsmálið: Bankinn vill samningsuppkast - Dögun fær Dögun hf. á Sauðárkróki fékk í gær framlengdan frest sinn í samningalotunni við sjávar- útvegsráðuneytið um Hafþór, skip Hafrannsóknastofnunar. Ástæðan var sú að bankinn sem veita átti 64 milljóna króna tryggingu fór fram á að sjá uppkast að samningi áður en ákvörðun yrði tekin. Dögun hafði frest til klukkan 16.00 í gær til að útvega sér bankatryggingu og uppfylla fleiri skilyrði ráðuneytisins. Bankinn fór aftur á móti fram á uppkast að samningi til að geta tekið ákvörðun. í gær gerðu forráðamenn aukinn frest Dögunar hf. og sjávarútvegs- ráðuneytið síðan uppkast að því hvernig samningurinn gæti litið út og með það í hafurteskinu fékk Dögun frest til klukkan 14.00 í dag til að útvega trygging- una. Gylfi Gautur Pétursson, í sjáv- arútvegsráðuneytinu, sagði að þetta uppkast væri án allrar ábyrgðar frá ráðuneytinu, en ef Dögunarmenn mættu með banka- trygginguna klukkan 14.00 í dag væri skipið þeirra því það væri aðal samningsatriðið. Ekki náðist í framkvæmda- stjóra Dögunar út af málinu í gær. SBG Matthías Bjarnason ræddi einnig um sjávarútveg og úrvinnslu sjávarafla, sem hann kvað vera að færast í sífellt ríkari mæli úr landi. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, ræddi nokkuð um uppbyggingu stóriðju á ráð- stefnunni. Hann sagði m.a. að hann efaðist ekki um að stóriðja á Keilisnesi hefði áhrif á þéttbýl- isþróun, og að e.t.v. væri nauð- synlegt að móta áætlun um hvar staðsetja ætti stærri fyrirtæki í framtíðinni, þar á meðal orku- frekan iðnað. Steingrímur sagði að stórefla þyrfti Byggðastofnun og að skoða yrði mörg ný tæki- færi í atvinnumálum á næstunni. Hann sagði að á næstunni þyrfti að huga sérstaklega á atvinnu- möguleikum sem byggja á þekk- ingu, og nefndi Háskóla íslands og Háskólann á Akureyri í því sambandi. Nýta þyrfti betur þá þekkingu sem þar væri þegar til staðar. Örn Friðriksson, varaforseti ASÍ, benti á að vaxtargrundvöll- ur væri í mörgum gömlum og grónum fyrirtækjum um landið, og því yrði að hlúa að þeim auk þess að efla nýsköpun. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands, sagði að Reykjavík hefði engan möguleika til að taka meirihlutann af landsbyggðinni til sín. „Það jaðrar við atvinnu- leysi nú þegar í Reykjavík fyrir þá sem þar búa,“ sagði hann. Þrjátíu og átta erindi voru flutt á ráðstefnunni, og byggðust þau að mestu leyti á svörum við þeirri spurningu sem byggðanefndin sendi til ýmissa aðila í þjóðfélag- inu um til hvaða ráða ætti að grípa í byggðamálum á næstunni. ÞI Bflslys á Árskógsströnd Síðdegis á föstudag varð bílslys við bæinn Selárbakka á Ár- skógsströnd þar sem tveir bflar lentu saman. Farþegi í öðrum bflnum var fluttur á sjúkrahús á Akureyri en fékk að fara heim eftir skoðun. Annar bíl- anna er talinn ónýtur. Slysið varð með þeim hætti að bílstjóri Coltbifreiðar missti stjórn á henni í krapi þegar hann var að taka fram úr Subarubif- reið. Bifreiðin kastaðist á fram- horn Subarubifreiðarinnar og við það fóru báðir bílarnir út fyrir veg og valt Coltbifreiðin. Einn farþegi í henni kastaðist út og var fluttur á sjúkrahús en fékk, eins og áður segir, að fara heim fljót- lega. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.