Dagur - 10.10.1990, Side 1
Salan á Hafþóri RE:
Dögun með lokafrest
í gær fékk Dögun hf. á Sauöár-
króki Iokafrest til að skila inn
bankaábyrgð vegna kauptil-
boðs í Hafþór RE, skip Haf-
rannsóknastofnunar. Gylfi
Gautur Pétursson, starfsmað-
ur sjávarútvegsráðuneytisins,
segir að frestur Dögunar til að
skila bankaábyrgð verði ekki
framlengdur frekar.
„Hér var mikið fundað og mál-
ið rætt. Dögunarmenn höfðu
ekki beðið um lengri frest hjá
Búnaðarbankanum, og við lent-
um í þeim vandræðum að hafa
enga tryggingu fyrir að svar
kæmi. Þeir vildu fá að skoða mál-
ið og vildu lengri frest. Við sög-
um að við ættum erfitt með það
vegna annarra sem biðu,“ sagði
Gylfi Gautur. Endirinn varð sá
að sjávarútvegsráðuneytið gaf
frest til klukkan 11.00 í dag.
Dögunarmenn munu leggja
þunga áherslu á að fá svör frá
bankanum fyrir þann tíma.
Fleiri aðilar hafa sýnt Hafþóri
áhuga, og gert tilboð. Ingimund-
ur hf. gerði tilboð upp á 250
milljónir króna, og Togara-
útgerðarfélag Vestfirðinga hf.
gerði jafnhátt tilboð. Fiskiðju-
samlag Húsavíkur og Eldey hf.
gerðu einnig tilboð sem eru
aðeins lægri.
Staða málsins mun því skýr-
ast í dag, en ráðuneytismenn
munu hefja viðræður við fulltrúa
Ingimundar hf. og Vestfirðing-
ana ef Dögun getur ekki lagt
fram fullnægjandi bankaábyrgð
fyrir 64 miljónum króna. EHB
Leikfélag Akureyrar:
Sigurður Hróarsson fer til
Leikfélags Reykjavíkur
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar,
hefur verið valinn úr hópi
umsækjenda um starf leikhús-
stjóra hjá Leikfélagi Reykja-
víkur.
í samtali við Dag sagði Sigurð-
ur að Hallmar Sigurðsson, núver-
andi leikhússtjóri L.R., muni
gegna stöðunni fram að 1. ágúst á
næsta ári. Hins vegar er ráðgert
að Sigurður Hróarsson komi fyrr
en seinna til starfa hjá L.R., við
hlið núverandi leikhússtjóra,
áður en hann tekur endanlega við
nýja starfinu.
„Ég þarf að ræða við stjórnir
leikfélaganna beggja um hvernig
þessu verður háttað, en vona að
mér gefist tóm til að fylgja þessu
leikári eftir sem allra lengst. En
fljótlega upp úr áramótum þarf
ég að taka þátt í starfinu fyrir
sunnan sem miðar að skipulagn-
ingu fyrir næsta leikár. Ég er
búinn að vera hjá L.A. í eitt og
hálft ár, þetta hefur verið mjög
góður tími. Það er ákaflega gott
að starfa hjá félaginu, og ég er
ekki að hverfa suður vegna þess
að mér líki ekki við Leikfélag
Akureyrar og Akureyri,“ segir
Sigurður Hróarsson. EHB
Húsavík:
Sveitarstjóraarmeim á námskeiði
í gær lauk tveggja daga nám-
skeiði á Hótel Húsavík og í
morgun hófst þar annað sams-
konar námskeið fyrir sveitar-
stjórnarmenn á Norðurlandi.
Það er Fjórðungssamband
Norðlendinga sem fyrir nám-
skeiðunum stendur en fyrirtæk-
ið Rekstur og ráðgjöf annast
kennslu á þeim. Alls sækja um
40 sveitarstjórnarmenn nám-
skeiöin en léiðbeinendur eru
Jón Gauti Jónsson og Hrafn
Sigurðsson. Námskeiðin á
Húsavík eru ætluð sveitar-
stjórnarmönnum í þéttbýli en
um miöjan nóvember verður
haldið námskeið á Blönduósi
sem ætlað er sveitarstjórnar-
mönnum í dreifbýli.
Dagur mun greina nánar frá
námskeiðunum síðar í vikunni.
IM
Bændum er nú gert að greiða Man virðisaukaskatt af heimateknu kjöti:
„Ég tel að þetta ýti undir
heimaslátrun og skattsvik“
- segir Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu í Staðarhreppi
Hnuplfaraldur í VMA
Töluvert hefur borið á að pen-
ingaveski með peningum í, föt
og töskur hafi horfið í Verk-
menntaskólanum á Akureyri
og síðastliðin vika var mjög
slæm, að sögn Hauks Jónsson-
ar, skólameistara.
„Málið er ekki komið til okkar
enn, en við höfum heyrt af þessu.
Þetta er slæmt mál og afar leiðin-
legt,“ sagði Daníel Snorrason,
rannsóknarlögreglumaður.
„Því miður hefur töluvert bor-
ið á hnupli í skólanum, þá sér-
staklega í síðustu viku. Eitt til
tvö peningaveski hurfu daglega
og peningar glötuðust. Skólayfir-
völd gerðu vissar ráðstafanir og
nemendur voru varaðir við
þessu, jafnframt sem lögreglunni
var tilkynnt um málið. Við höf-
um ekki orðið vör við hnupl
síðan, en trúlega er of snemmt að
meta árangur þessa aðgerða.
Okkur þótti þetta orðið all
svæsið, því faraldur sem þessi
hefur ekki þekkst í sögu
skólans,“ sagði Haukur Jónsson,
skólameistari. ój
Mikill kurr er meðal bænda
sökum þess að á þessu hausti
er í fyrsta skipti innheimtur
virðisaukaskattur af heima-
teknu kjöti úr siáturhúsi.
Bændur segja að með þessu
nýja ákvæði í skattalögum sé
vafamál að borgi sig fyrir þá að
taka kjöt úr sláturhúsi til
neyslu heima fyrir og líklegt að
það ýti mjög undir ólöglega
heimaslátrun, sem reynt hafi
verið að stemma stigu við á
undanförnum misserum.
Þetta mál bar á góma á fundi
Steingríms J. Sigfússonar, land-
búnaðarráðherra, Ragnars
Arnalds, alþingismanns og
Gunnlaugs Júlíussonar, hagfræð-
ings í landbúnaðarráðuneytinu,
með bændum í Miðfirði sl. sunnu-
dagskvöld. Ragnar Benedikts-
son, bóndi á Barkarstöðum í
Fremri-Torfustaðahreppi, vakti
máls á þessu og taldi að með
þessu væri iliilega komið aftan að
bændastéttinni og með þessu væri
henni einni gert að greiða fullan
virðisaukaskatt af lambakjötinu.
Heimaslátrun nyti ekki niður-
greiðslna úr ríkissjóði til jafns á
við kjöt út úr búð. „Þarna er allt
skattlagt, kjötið sem tekið er
heim, sláturkostnaður og frysting
á kjötinu ef um það er að ræða.
Það er á alla kanta klipið af kjöt-
Mjólkursamlag KEA:
Pökkun á smjörva flyst frá Reykjavík til Akureyrar
Mjólkursamlag KEA er um
það bil að hefja pökkun á
smjörva í neytendaumbúðir.
AHt frá upphafí hefur samlagið
framleitt allan smjörva sem
seldur er í landinu en honum
hefur verið pakkað í neytenda-
umbúðir hjá Osta- og smjörsöl-
unni í Reykjavík þar til nú.
Með kaupum KEA á smjörlík-
isgerðinni Akra fyrr á þessu ári
fylgdi pökkunarvél sem notuð
verður til að pakka smjörvan-
um.
Þórarinn E. Sveinsson, mjóík-
ursamlagsstjóri, segir að smjörv-
anujn hafi hingað til verið verið
pakkað í 25 kílóa pakkningar og
þær fluttar til Reykjavíkur. Þar
vora þessar pakkningar settar í
frysti en síðan var smjörvinn
þíddur upp og honum pakkað í
neytendaumbúðir eftir því sem
seldist á markaðinum. Hér eftir
verður smjörvanum hins vegar
pakkað jafnhliða framleiðslunni
og hann sendur beint á markað
en jafnframt fer hluti framleiðsl-
unnar á lager í frysti.
„Við komum til með að fram-
leiða um 55 tonn á mánuði en
suma mánuði meira og þá fer
smjörvinn í frysti. Með þessu fer
stærstur hluti framleiðslunnar
aldrei í frysti en við teljum engan
mun á þessari vöru þótt hún hafi
verið fryst áður en hún fer á
markað," segir Þórarinn.
Þessi pökkun krefst nokkurra
starfa en Þórarinn segir að þeir
sem áður hafi haft þann starfa að
setja smjörvann í stærri pakkn-
ingarnar muni nú vinna við pökk-
un í neytendaumbúðirnar. JÓH
inu til ríkisins,“ sagði Ragnar í
samtali við Dag.
Ragnar sagðist vera þess full-
viss að þessi nýi skattur kæmi
bændum í opna skjöldu og meiri-
hluti þeirra hefði ekki gert sér
grein fyrir hvernig í pottinn væri
búið. „Ég sagði landbúnaðarráð-
hcrra að mér þætti það hæpið í
meira lagi að ríkisstjórn, sem
hefur talið sig til lægri stétta,
hefði farið svo að ráði að leggja
virðisaukaskatt á heimatekið kjöt
bænda og raunar öll matvæli,“
sagði Ragnar.
Gunnar Sæmundsson, bóndi í
Hrútatungu í Staðarhreppi, sagði
við Dag að hér væri um mjög
stórt mál að ræða fyrir bændur.
„Við þurfum að borga virðis-
aukaskatt af sláturkostnaði og ef
við tökum kjötið heim þurfum
við einnig að borga virðisauka-
skatt af því. Ef við slátrum heima
og teljum það kjöt fram sem
heimanotaðar afurðir, verðum
við líka að borga af því virðis-
aukaskatt.
Ég tel að þetta ýti undir heima-
slátrun og hreinlega skattsvik,
því að þetta býður þeirri hættu
heim að fénu sé slátrað undir
vegg og það ekki talið fram. Það
er afleitt mál ef þetta verður ekki
leiðrétt," sagði Gunnar. óþh