Dagur - 10.10.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 10. október 1990
Mér líður vel og
ég er hcimingjusamur
- Þorvaldur Örlygsson, atvinnumaður með Nottingham Forest, í viðtali
„Það þýðir ekkert að örvænta þótt ég sé ekki í lið-
inu þessa stundina. Það er iangur og strangur vetur
framundan og ég verð bara að bíta á jaxlinn, bölva
í hljóði og nýta tækifærið þegar það kemur.“ Það
er Þorvaldur Orlygsson knattspyrnumaður sem
mælir þessi orð en Dagur heimsótti hann í Notting-
ham á dögunum. Það kom nokkuð á óvart í fyrra
er Þorvaldur fór nánast beint inn í lið Forest á
meðan leikmenn eins og John Sheridan, David
Curry og Lee Chapman, sem voru keyptir á 60-80
milljónir, komust varla á bekkinn. „Jú, það kom
víst flestum á óvart hve fljótt ég komst inn í aðal-
liðið í fyrra. Hins vegar er Brian Clough fram-
kvæmdastjóri Forest þekktur fyrir að taka slíkar
ákvarðanir og þess vegna hefði þetta ekki átt að
koma svo á óvart. Það má segja að nú sé sama uppi
á teningnum hjá félaginu. Ungur 19 ára strákur
heldur mörgum eldri og reyndari leikmönnum fyrir
utan Iiðið,“ sagði Þorvaldur er hann var inntur eft-
ir þessum skjóta frama hjá félaginu.
Þorvaldur Örlygsson í búningi Nottingham Forest.
Clough myndi setja mig
á sölulista
En skjótt skipast veður í lofti og
eftir að hafa verið fastur maður í
öllum undirbúningsleikjum fyrir
núverandi keppnistímabil datt
Akureyringurinn skyndilega úr
hópnum. Hver var ástæðan?
Þorvaldur brosti og yppti
öxlum. „Til að vera hreinskilinn
þá hef ég ekki hugmynd um það.
Ég byrjaði inn á í öllum undir-
búningsleikjunum og skoraði
nánast í þeim öllum. En eitthvað
hefur Clough ekki verið sáttur
við og því hef ég ekki enn spilað
í deildinni í ár.“
Það er óhætt að fullyrða að
Brian Clough framkvæmdastjóri
Nottingham Forest sé einn litrík-
asti persónuleiki enskrar knatt-
spyrnu undanfarin 20 ár. Hann
var leikmaður með Middles-
brough og Sunderland en stjarna
hans fór fyrst að skína er hann
tók að sér að stjórna liðum.
Clough kom Derby County í
fremstu röð á fyrri hluta sjöunda
áratugarins, var síðan rekinn frá
Leeds eftir einungis þrjá daga hjá
félaginu en kom síðan til Forest
árið 1975. Þá var félagið slakt 2.
deildar Iið en á nokkrum árum
kom hann Nottinghamliðinu í
röð bestu félagsliða í Evrópu.
Þrátt fyrir þennan árangur er
Clough mjög umdeildur maður
og má segja að menn annaðhvort
dýrki hann eða hati. í hvorum
hópnum er Þorvaldur?
KA-maðurinn glotti og vék sér
fimlega undan því að svara
spurningunni beint. „Ég hef ekk-
ert upp á hann að klaga. Clough
hefur verið mjög liðlegur varð-
andi að fá frí í landsleiki og önn-
ur þau skipti sem ég hef skroppið
heim. Það er ekki spurning að
þetta er mjög klár karl og ég tel
mig heppinn að hafa komist und-
ir hans handleiðslu. Hins vegar er
því ekki að leyna að Clough er
mjög fjarlægur og maður veit
varla hvernig maður stendur
gagnvart honum. Það þýddi t.d.
ekkert fyrir mig að fara til hans
og spyrja af hverju ég sé ekki í
liðinu. Hann myndi að öllum h'k-
indum henda mér út úr skrifstof-
unni og setja mig á sölulista,“
sagði Þorvaldur og hló.
Kom á óvart að
detta úr landsliðinu
Þegar landsliðið gegn Tékkum
var valið var Þorvaldur ekki þar
inni í myndinni, þrátt fyrir að
hafa leikið bæði gegn Albönum
og Frökkum. Kom ákvörðun
landsliðsnefndar honum á óvart?
„Já, ég verð að viðurkenna að
það kom mér á óvart að detta út
úr hópnum. Ég viðurkenni alveg
fúslega að ég átti ekki góða leiki
gegn Frökkum og Albönum. Hins
vegar verður að taka tillit til þess
að íslenska landsliðið í heild lék
ekki vel í þessum tveimur leikj-
um. Það er mjög erfitt að sýna
eitthvað þegar maður fær fáa eða
enga bolta til að moða úr. Ég
verð þó að sætta mig við þessa
ákvörðun þjálfarans því ein-
hverra breytinga var þörf. Þegar
nýr þjálfari tekur við liði þá vill
hann auðvitað móta það eftir
sínu höfði og e.t.v. er ekki pláss
fyrir mig inni í þessum nýju hug-
myndum.“
- Ef sú staða kæmi upp að þú
yrðir valinn í hópinn fyrir næsta
leik, myndirðu gefa kost á þér?
Eftir að hafa hugsað sig um í
smá tíma sagði Þorvaldur: „Það
hlýtur að vera metnaður hvers
knattspyrnumanns að leika fyrir
landslið. Ef hins vegar sú staða
kæmi upp að ég yrði að velja á
milli þess að leika með landslið-
inu eða Forestliðinu þá væri ég í
klemmu. Málið er að það er
miklu erfiðara að komast inn í
liðið hér en að detta út. Ef sá
leikmaður sem hugsanlega kæmi
í minn stað í Forestliðinu stæði
vel fyrir sínu þá gæti liðið langur
tími þar til ég kæmist inn aftur.
Það þýddi stressandi tíma á
bekknum fyrir utan mikið tekju-
tap. Ég yrði því að vega og meta
stöðuna hverju sinni og get því
ekki svarað þessari spurningu á
þessu augnabliki."
Fólk spáir mikið í
hvað ég hef í tekjur
- Þegar rætt er um atvinnuknatt-
spyrnu þá setja margir samasem-
merki þar á milli og mikilla pen-
inga. Er þetta raunin?
„Ég átti von á þessari spurn-
ingu,“ sagði Þorvaldur kíminn á
svip. „Það er ótrúlegt hvað fólk
spáir mikið í hve miklar tekjur ég
hef. Margir halda sjálfsagt að
atvinnuknattspyrnumenn vaði í
peningum. Staðreyndin er hins
vegar sú að launin eru jafn mis-
munandi eins og mennirnir eru
margir. Auðvitað hafa þeir bestu
það mjög gott en þegar niður í
neðri deildirnar er komið eru
menn nánast að lepja dauðann úr
skel. Ég þarf hins vegar ekkert að
kvarta enda hefði ég ekki farið út
í þetta nema að vera öruggur um
að bera eitthvað úr býtum.“
- Fer það í taugarnar á þér að
fólk er að spá í launin þín?
„Nei, alls ekki. Forvitni er
hluti af eðli okkar og fólk má
spekúlera eins og það vill um mín
fjármál. Mér líður vel og ég er
hamingjusamur og það hlýtur að
vera fyrir öllu.“
- Það þýðir greinilega ekkert
að reyna að pumpa þig um laun.
En hvað geturðu sagt okkur um
bónusa? Eru t.d. greiddir bónus-
ar fyrir mörk?
„Ja, ég hef ekki rætt nýlega við
Lineker,“ sagði Þorvaldur grafal-
varlegur á svip. Þegar hann sá
undrunarsvipinn á blaðamannin-
um skellti hann upp úr: „Nei,
taktu mig ekki alvarlega. Bónus-
ar eru stór hluti af launum okkar
og það er því mikilvægt að liðinu
gangi vel. Það eru hins vegar ein-
ungis þeir sem spila með aðallið-
inu sem fá bónus og því er það
svo mikilvægt að komast í liðið.
Ég hef ekki leyfi til að gefa upp
neinar tölur en get samt fullyrt að
t.d. ef Liverpool slær hið gamla
stigamet Tottenham þá munu
laun leikmanna liðsins í þessum
mánuði hækka um 100%. Hins
vegar held ég að ekki séu greiddir
bónusar fyrir mörk en eins og ég
sagði þá hef ég ekki rætt nýlega
við Lineker.“
Nottingham líkist Akureyri
Þorvaldur keypti sér einbýlishús í
rólegu hverfi Nottinghamborgar í
sumar og hefur smátt og smátt
verið að koma sér fyrir. Olöf Ell-
ertsdóttir, sambýliskona Þorvald-
ar, kom með honum til Notting-
ham eftir landsleikinn gegn
Frökkum en hún var að klára
hárgreiðslunám í Reykjavík í
fyrra og gat því ekki tekið þátt í
þessu nýja lífi fyrr en í sumar.
Harpa, systir Þorvaldar, var hjá
honum er blaðamaður Dags guð-
aði þar á glugga en hún hefur ver-
ið á mánaðar enskunámskeiði í
Nottingham auk þess að aðstoða
við að rífa veggfóður af íbúðinni!
Þorvaldur sagðist vera ánægð-
ur í Nottingham og kunna vel við
íbúa borgarinnar. „Ég held að ég
hafi verið heppinn að lenda í ekki
stærri borg en Nottingham til að
byrja með. Tempóið er mun af-
slappaðra hér en í London og svo
er borgin sjálf miklu hreinni en
t.d. Liverpool eða Manchester.
Það má á margan hátt líkja Nott-
ingham við Akureyri því hingað
koma margir Englendingar til að
eyða sumarleyfinu líkt og margir
Reykvíkingar eyða sínu fríi á
Akureyri,“ sagði hann.
Ekki kvaðst Þorvaldur verða
Þorvaldur ásamt félaga sínum hjá Forest, Steve Hodge, sem er cinn snjallasti leikmaður liðsins og á að baki fjölda landsleikja fyrir Englands hönd.