Dagur - 10.10.1990, Side 15
íþróftir
Knattspyrna:
Þjálfar Ormarr KA?
Svo kann að fara að Ormarr
Örlygsson verði ráðinn þjálfari
1. deildarliðs KA í knatt-
spyrnu. Ormarr myndi þá að
öllum líkindum leika með lið-
inu samhliða þjálfuninni.
Ormarr sagði í samtali við Dag
í gær að þetta hefði verið nefnt
við sig en hann væri enn ekki
tilbúinn að gefa nein svör.
Stefán Gunnlaugsson, formað-
ur knattspyrnudeildar KA, sagði
að kannað hefði verið hvort
Ormarr hefði áhuga á þjálfara-
starfinu en hann hefði enn ekki
svarað. „Ef hann tekur jákvætt í
þetta verður gengið til viðræðna.
En lengra er þetta ekki komið,"
sagði Stefán.
„Það er rétt að þetta hefur ver-
ið nefnt við mig. En ég ákvað að
taka mér umhugsunarfrest og er
ekki tilbúinn að gefa neinar yfir-
lýsingar," sagði Ormarr Örlygs-
son.
Miðvikudagur 10. október 1990 - DAGUR - 15
Boðið upp á listhlaup
á skautum á Akureyri
í vetur standa vonir til að veru-
legt átak verði hægt að gera
fyrir þá sem hug hafa á að æfa
listhlaup á skautum á Akur-
eyri. Ung íslensk kona, sem
æfði listhlaup í Lúxemborg til
nokkurra ára, mun starfa sem
aðalþjálfari hjá listhlaupsdeild
Skautafélagsins í vetur og mun
félagið bjóða upp á fastar
æfingar, námskeið og einka-
tíma fyrir þá sem hug hafa á að
stunda íþróttina.
Pað sem boðið verður upp á
verða í fyrsta lagi fastar æfingar
þrisvar í viku fyrir þá sem lengst
eru komnir. Til að komast í þann
hóp er skilyrði að viðkomandi sé
búinn að ná nokkuð góðu valdi á
skautahlaupi.
í öðru lagi verða, til að byrja
með, um þriggja vikna námskeið
fyrir þá sem komnir eru með
nokkra reynslu af að vera á
skautum en eru samt ennþá
óöruggir á þeim.
í þriðja lagi verður boðið upp á
þriggja vikna námskeið fyrir
byrjendur.
í fjórða lagi eru möguleikar á
sértímum fyrir einstaklinga, einn
eða fleiri, eftir nánara samkomu-
lagi við þjálfarann.
Þeir sem hafa hug á að afla sér
nánari upplýsinga eða láta skrá
sig eða börn sín á þessi fyrstu
námskeið geta hringt í síma
21481 eða 24623 næstu kvöld. Ef
veður verða hagstæð er vonast til
að hægt verði að opna vélfrysta
skautasvæðið áður en langt um
líður en það verður nánar auglýst
þegar að því kemur.
Sovéska skautaparið sem sýndi listir sínar á Vetraríþróttahátíðinni. Akur-
eyringar fá tækifæri til að spreyta sig í vetur. Mynd: kl
Víðavangshlaup íslands:
UFA með tvö gull
Hugsanlegt er að Ormarr Örlygsson þjálfi KA á næsta keppnistímabili.
Frjálsíþróttafólk úr Ung-
mennafélagi Akureyrar náði
ágætum árangri í Víðavangs-
hlaupi Islands sem fram fór í
Keflavík sl. sunnudag. Sigurð-
ur P. Sigmundsson sigraði í
karlaflokki auk þess sem sveit
UFA sigraði í sveitakeppni
stráka, 12 ára og yngri.
Sigurður er ekki alveg ókunn-
ugur þessu hlaupi því þetta var í
4. sinn sem hann vinnur það.
Fyrst vann hann 1976, þá ’83, ’84
og nú. Hann hljóp 8 km á 29:06
mín., annar varð Jóhann Ingi-
bergsson, FH, á 29:23 og þriðji
Daníel Guðmundsson, USAH, á
29:30.
Krakkarnir hlupu í 5 manna
sveitum og hlaut fyrsti maður 1
stig, annar maður 2 stig o.s.frv.
Sveit UFA hlaut 40 stig en í öðru
sæti varð sveit FH með 59 stig.
Sveit UFA skipuðu Smári Stef-
ánsson, sem varð annar, Jóhann
Finnbogason, sjötti, Vilhelm
Firmakeppni GA:
Hilmar vann fyrir „Slippinn“
Jónsson, sjöundi, Róbert Kára-
son, tólfti, og Arnar Gunnars-
son, þrettándi. Þetta er í fyrsta
sinn sem UFA vinnur sveita-
keppni á íslandsmóti.
Sigurður P. vann hlaupið í 4. sinn.
Golfvertíðinni á Akureyri lauk
um síðustu helgi. Þá var leikið
til úrslita í Firmakeppni GA en
það var síðasta mótið á þessu
tímabili. Sigurvegari varð
Slippstöðin hf. en það var
Hilmar Gíslason sem lék fyrir
hana.
Alls tóku 60 kylfingar þátt í
keppninni og 105 fyrirtæki og var
leikinn höggleikur með forgjöf.
Hilmar lék geysilega gott golf og
sigraði með nokkrum yfirburð-
um, á 58 höggum nettó. Jöfn í 2,-
4. sæti á 64 höggum urðu Fast-
eignasalan, Brekkugötu 4 - Sævar
Jónatansson, Teiknistofa Karls
Þórleifssonar - Jón Þór Guðjóns- I bana hafnaði Fasteignasalan í 2.
son og Sérleyfisbílar Akureyrar- sæti, Teiknistofa Karls í 3. sæti
Núnti Friðriksson. Eftir bráða- og Sérleyfisbílar í 4. sæti.
Hilmar Gíslason, t.v., ásamt Gunnari Skarphéðinssyni starfsmannastjóra
Slippstöðvarinnar.
Handknattleikur:
Völsungur-Þór í kvöld
- KA mætir FH í Hafnarfirði
íslandsmótinu í handknattleik
verður haldið áfram í kvöld.
KA-menn halda til Hafnar-
fjarðar og mæta íslandsmeist-
urum FH í 1. deildinni og á
Húsavík mætast Völsungur og
Þór í 2. deildinni.
Leikur FH og KA átti að fara
fram í 1. umferð en var frestað
vegna erfiðleika KA-manna við
að komast heirn frá Ítalíu. KA-
menn byrjuðu íslandsmótið
ágætlega, unnu tvo fyrstu leiki
sína, en hafa nú tapað tveimur
leikjum í röð. íslandsmeistararn-
ir hafa enn ekki unnið leik á mót-
inu. Leikurinn hefst kl. 20.
Leikur Völsungs og Þórs hefst
kl. 21. Bæði liðin hafa leikið tvo
leiki og hafa Völsungar hlotið 2
stig en Þórsarar 3 og má búast við
hörkuleik á Húsavík í kvöld.