Dagur - 10.10.1990, Side 16
Bændur í Grýtubakkahreppi:
Fundu kindur í Fjörðum
Nítján kindur fundust í fyrra-
dag í Fjörðum, eða nálægt 20
kílómetrum frá byggð. Þá
fundust 6 kindur til viðbótar
nær byggð, sem ekki höfðu
áður verið heimtar af fjalli.
Stefán Kristjánsson, bóndi á
Grýtubakka í Grýtubakkahreppi,
sagði að kindanna hafi orðið vart
fyrir nokkrum dögum þegar kálf-
ar voru sóttir þar norður eftir.
Til að sækja féð var gerður út
flokkur manna á vélsleðum og
dráttarvélum. Stefán segir að
þrátt fyrir töluverðan snjó hafi
gengið vel að koma fénu til
þyggða, enda hafi það verið vel á
sig komið.
Veður liefur hamlað því að
hægt hafi verið að ganga aðrar
göngur á þessu svæði. Stefán seg-
ir að fyrir þær sakir hafi menn
skimað í kringum sig og reynt að
kemba það eftir mætti. Ólíklegt
sé að svæðið verði gengið aftur
skipulega, líklegra sé að farið
verði í styttri leitarferðir. óþh
Hlutabréf í Sæplasti:
Uppseld á aöeins 12 dögum
Sölu nýrra hlutabréfa í Sæplasti
hf. á Dalvík lauk síðastliöinn
föstudag og höfðu þá selst bréf
að nafnvirði 6 milljónir króna
á aðeins 12 dögum. Söluaðil-
arnir, Kaupþing hf. í Reykja-
vík og Kaupþing Norðurlands
á Akureyri, höfðu reiknað
með að selja þessi bréf á um
einum og hálfum mánuði.
„Það má segja að bréfin hafi
selst jafnt og þétt síðustu vik-
una,“ sagði Jón Hallur Péturssön
hjá Kaupþingi Norðurlands hf.
Hann segir að ekki hafi orðið
verulegur kippur í sölunni þegar
birtust tölur opinberlega um
afkomu Sæplasts á fyrstu átta
mánuðum ársins en þessar upp-
lýsingar hafi þó ýtt við mörgum
sem íhuguðu að fjárfesta í bréf-
um í fyrirtækinu.
Nú fer í hönd sá tími ársins
þegar hvað mest eftirspurn er eft-
ir hlutabréfum enda margir sem
kaupa hlutabréf fyrir áramót til
að nýta skattaafslátt sem kaup á
hlutabréfum veita. „Því má
reikna með að á næstu mánuðum
verði mjög mikil sala í hlutabréf-
um,“ segir Jón Hailur. JÓH
Margt er sér til gamans gert. Tilvonandi nýnemar eða busar í MA verða að taka þátt í undarlegustu uppákomum
sem og á myndinni hvar þeir eru boðnir upp til ýmissa verka. Mynd: Goiii
Alþingi verður sett í dag:
„Hef búið mig undir hressi-
legri umræðu en oft áður“
Skagafjörður:
Ekið á tólfta hrossið á árinu
- lögregla býst til aðgerða
- segir Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs þings
Ekið var á hross á Siglufjarðar-
vegi á móts við bæinn Kýrholt
í Viðvíkursveit að kvöldi mánu-
dags. Hrossið hljóp út í myrkr-
Þrír átta ára drengir
á Siglufirði:
ODu skemmdum
á verkstæði
Fyrir skömmu var farið inn í
verkstæðishús fyrirtækisins
Bergs hf. á Siglufirði og
skemmdir unnar á húsnæðinu.
Lögreglan á Siglufírði hefur
upplýst málið og voru þarna að
verki þrír átta ára drengir.
Erlingur Óskarsson, bæjarfógeti
á Siglufirði, segir að drengirnir
hafi farið inn um ólæstar dyr, tek-
ið skipamálningu á verkstæðinu
og málað gólf, klósett og gler sem
þarna var. Hér sé því um nokkurt
tjón að ræða.
Erlingur segir að fljótt hafi ver-
ið vitað hvaða börn voru þarna
að verki. „Þetta eru bara óvitar.
Ég held að þeir hafi ekki gert sér
grein fyrir hvað þeir voru að gera
með þessu. Þeir hafa aldrei kom-
ið nálægt neinu þessu líku áður,“
segir Erlingur.
Mál af þessu tagi fer ekki hina
hefðbundnu leið þar sem börn
eru ekki sakhæf. Rannsókn er
lokið og fær félagsmálafulltrúi
bæjarins málið nú til meðferðar.
JÓH
ið eftir áreksturinn. Engin
meiðsl urðu á fólki, en bíllinn
skemmdist töluvert.
Þetta er tólfta hrossið sem ekið
er á á árinu í Skagafirði og Iög-
reglu er tilkynnt um. Björn
Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki, sagði í samtali við
Dag í gær að þar sem einhver
brögð virtust vera að því að
kvartað væri yfir lausagöngu
hrossa mætti fara að búast við
aðgerðum eins og smölun til að
reyna að stemma stigu við vand-
anum. Að sögn Björns er lausa-
gönguástandið einna verst í
Hegranesi núna. Eigendur lausa-
gönguhrossa í Skagafirði geta því
átt von á að þurfa að leysa hross
sín úr haldi einn daginn ef þau
eru að þvælast á stöðum þar sem
þau eiga ekki að vera. SBG
Sléttbakur EA-304, frystitog-
ari Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf., hefur verið í heima-
höfn síðustu tíu daga. Unnið er
að dálitlum viðgerðum, en
áhöfnin ásamt mökum er í
Bandaríkjunum í boði Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Að sögn Þorleifs Ananíasson-
ar, hjá Utgerðarfélagi Akureyr-
Alþingi, 113. löggjafarþing,
verður sett í dag. Að venju
verður guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni kl. 13.30 og síðan
ganga þingmenn til þinghúss,
þar sem forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, setur þingið
formlega. Viðstaddur þing-
setninguna verður Landsberg-
is, forseti Litháens, en hann er
hér í opinberri heimsókn í boði
Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra.
Fastlega má búast við storma-
sömu þingi, eins og ætíð er á síð-
asta þingi kjörtímabils. Guðrún
Helgadóttir, forseti Sameinaðs
þings, segir að mörg stór mál
verði á dagskrá til að byrja með.
Hún nefnir að álmálið muni
ugglaust setja mark sitt á þing-
störfin fyrstu dagana. Þá verði
fjárlagafrumvarpið að venju lagt
fram í upphafi þings og um það
verði tekist að hefðbundnum
hætti. „Síðan á ég von á umræðu
um landbúnaðarmál, útflutn-
ingsmál og efnahagsmál af öllu
inga, fór hópurinn, alls um 50
mans, fyrir rúmri viku til að
skoða aðalstöðvarnar fyrir
vestan. Þorleifur sagði að þetta
væri í fyrsta sinn sem áhöfn skips
frá ÚA færi vestur í kynnisferð
sem þessa.
Meginhluti hópsins er væntan-
legur heim í dag og mun Slétt-
bakur halda aftur á veiðar um
næstu helgi. ój
tagi,“ segir Guðrún.
„Þetta leggst mjög vel í mig.
En það fer ekki hjá því að kom-
andi kosningar setji mark sitt á
þingið. Ég neita því ekki að ég
hef búið mig undir hressilegri
umræður en oft áður, en ég held
að þinghald muni þó fara fram
með ró og spekt eins og vera
ber,“ segir Guðrún. Hún segir að
reynslan sé sú á kosningaþingi að
umræður verði snarpari en ella
og þingmenn beiti sér meira og
minni kjósendur þannig á sig.
Ef ekkert óvænt kemur upp á
með líf ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar verður ekki kos-
ið fyrr en í vor. Guðrún segir að
fyrir liggi starfsáætlun þingsins og
gert sé ráð fyrir að þingstörfum
Söltun er hafín hjá síldarsöltun
Tanga hf. á Vopnafírði. Fyrsti
farmurinn, um 35 tonn, var
færöur til söltunar þar sl. mánu-
dag og var það Húsavíkurbát-
urinn Sigþór sem kom meö
síldina. Hana fékk hann í
Mjóafírði og Norðfjarðarflóa.
Vertíðin fer að öðru leyti mjög
rólega af stað og í gærdag urðu
bátar lítið varir við síld á hefð-
bundnum síldarmiðum eystra.
Bátarnir tínast þó einn af öðrum
á miðin og bíða átekta.
Að sögn Aðalsteins Sigurðs-
sonar, verkstjóra í síldarsöltun
Tanga hf., er vart saltað nema á
ljúki þann 15. mars 1991. Þannig
gefist þingmönnum færi á að
plægja akurinn heima í kjördæm-
um sínum fyrir kosningarnar.
„Þetta verður því stutt þing, en
áreiðanlega annasamt,“ segir
Guðrún.
Ýmis teikn hafa verið á lofti
um að hrikta kunni í stoðum
ríkisstjórnarinnar. Einkum hefur
gætt titrings í álmálinu svokall-
aða. Forseti Sameinaðs þings og
þingmaður Alþýðubandalagsins
telur að ríkisstjórnin muni standa
þetta óveður af sér og sitji til loka
kjörtímabilsins. „Það er alltaf
titringur öðru hverju. Það er með
ríkisstjórnina eins og skjálftana
fyrir norðan. Það koma svona
hrinur annað slagið.“ óþh
hálfum hraða, enda vinna ein-
ungis um 15 manns við söltunina.
Síðar er gert ráð fyrir að á milli
50 og 60 manns vinni við það hjá
Tanga hf. að koma silfri hafsins
fyrir í tunnum.
„Þetta er góð síld - mér líst vel
á hana,“ sagði Aðalsteinn. Fyrir
liggja samningar um sölu saltsíld-
ar til Skandinavíu og segir Aðal-
steinn að þessi fyrsta síld fari til
Svíþjóðar og Finnlands. „Söltunin
er varla komin í gang ennþá.
Þetta er ennþá rólegt og gott,“
sagði Aðalsteinn. Hann reiknaði
með að ljúka við að salta þessi 35
tonn um miðjan dag í gær. óþh
Áhöfn Sléttbaks EA-304:
í kynnísfór í Bandaríkjunum
Sfldarsöltun hafin hjá Tanga hf.
á Vopnafirði:
Iist vel á þessa sfld
- segir Aðalsteinn Sigurðsson, verkstjóri