Dagur


Dagur - 26.10.1990, Qupperneq 2

Dagur - 26.10.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 26. október 1990 fréftir Reinhard Reynisson, sveitarstjóri á Þórshöfn: Kvóti Reyknesinga í skiptum fyrir álver „Fyrst að menn settu þetta álver suður á Keilisnes þá ætt- um við sem búum annars stað- ar á landinu að gera skýlausa kröfu til þess að fá kvóta í staðinn. Ef hægt er að flytja orku austan af landi suður á Reykjanes til að mala þeim gull þá hlýtur að vera hægt að flytja kvóta af Reykjanesi út á land til að mala okkur gull,“ segir Reinhard Reynisson, sveitarstjóri á Þórshöfn. Reinhard segir þetta ekki óeðlilega kröfu heldur raunhæfa verkaskiptingu milli landshluta, þ.e. ef stjórnvöld vilja á annað borð halda úti einhverri byggða- stefnu. Á Þórshöfn geta menn vel þeg- ið meiri kvóta líkt og fleiri staðir sem byggja afkomu sína á sjávar- útvegi. Henni brá illilega í brún stúlkunni sem var að gæða sér á epli heima hjá sér fyrir skömmu. Þegar hún skar eplið í sundur, birtust tvær litlar pöddur sprelllifandi. Ekki vitum við á Degi hvers kyns pöddur hér um ræðir en hægt er að greina aðra þeirra í glasinu á myndinni. Þegar móðir stúlkunnar fór að skoða tvö önnur epli sem keypt höfðu verið um leið, fann hún til viðbótar grænan maðk í öðru þeirra. Heldur óskemmileg reynsla þetta. Mynd: kl AKUREYRI 'jp- - - Skipagotu 12 Akureyri ■ Simi 21464 Kotrúð við oq gerið ykímr dagamun HamBorgcui með jrönskum og gosij 399.- kr. Píta með grœnmed, frömskum og gosi, 399 - kr. Djúpsteyktur jhkur, Oríy með jrönskum, saíati, sósu og gosi 499.- kr. Okkar vinscdujjöískyídupakkar Atvinnuástandið er þokkalegt núna á Þórshöfn, að sögn Rein- hards, ekki síst eftir að loðnan fór að láta sjá sig. Allt er komið á fulla ferð í loðnubræðslu Hrað- frystistöðvar Þórshafnar en ann- ars hefur ekki verið mjög mikið að gera í hraðfrystistöðinni og yfirvinna af skornum skammti. Ilmur af nýbökuðum brauðum er nú farin að kitla vit heima- manna en bakarar eru farnir að þreifa sig áfram í nýstofnaðri brauðgerð Kaupfélags Langnes- inga. SS Fjáraukalög fyrir 1990 lögð fram: Ríkissjóður rekinn með 5 milljarða króna haila í ár Frumvarp til fjáraukalaga fyrir áriö 1990 hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrr á þessu ári var samþykkt annað fjáraukalaga- frumvarp en það tók nær ein- göngu til þeirra breytinga á útgjöldum ríkissjóðs sem leiddu af hlutdeild ríkisins í almennum kjarasamningum í febrúar. Nú er útlit fyrir að ríkissjóður verði rekinn með tæplega 5 milljarða króna halla á árinu í stað 3,6 milljarða halla sem fjárlög gerðu ráð fyrir. Talsverðar breytingar hafa bæði orðið á tekju- og útgjalda- hlið ríkissjóðs á árinu frá því sem áætlað var. Þannig hafa útgjöldin aukist frá fyrri fjáraukalögum um 4 milljarða á meðan tekjur hafa aðeins aukist um 3,6 milljarða. Margir liðið valda auknum útgjöldum hjá ríkissjóði í ár. Þar má nefna aukin útgjöld vegna lyfjakostnaðar, meiri kostnaður vegna verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga, aukin útgjöld vegna samþykkta Alþingis þar sem þungt vegur aukinn snjó- mokstur síðasta vetur, framlag ríkissjóðs til Endurbótasjóðs menningarstofnana og halla- rekstur ríkisstofnana frá árinu 1989. Þessir 5 liðir þýða samtals 2,4 milljarða í auknum útgjöld- um. Af öðrum viðbótarútgjöldum má nefna rekstur framhalds- skóla, kerfisbreytingar í skatt- kerfinu, aukinn rekstrarkostnað- ur í dómskerfinu, auknar útflutn- ingsbætur, endurgreiðsla á sölu- skatti til atvinnuveganna og við- bótarframlag til hafnarmála. Þá er ótalið nýlegt framlag vegna stríðsástands við Persaflóa. Ný tekjuáætlun sýnir að tekjur aukast um 3,6 milljarða frá því sem sagði í síðustu fjáraukalög- um. Þar eru ástæður fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi að álagn- ing opinberra gjalda skilaði meiri tekjum en gert hafði verið ráð fyrir, einkum tekjuskattur fyrir- tækja, sem sýnir betri afkomu fyrirtækja á árinu 1989 en gert var ráð fyrir. Hin ástæðan er hert innheimta sem skilað hefur ríkissjóði tals- verðum viðbótartekjum. Þar er bæði um að ræða innheimtuátak ríkissjóðs og kerfisbreytingar við upptöku virðisaukaskatts. JÓH Breytingar á húsnæði Smiðjunnar a Akureyri: „Yfirbragðið verður allt léttara4 - segir Hallgrímur Arason, veitingamaður „Við höfum þegar haflð breyt- ingar á útliti og aðkomu Smiðjunnar. í desember og janúar verður staðurinn lokað- ur vegna breytinga og endur- nýjunar innréttinga,“ sagði Hallgrímur Arason, veitinga- maður í Bautanum og Smiðj- unni á Akureyri. Veitingastöðum á Akureyri hefur fjölgað á síðari árum á sama tíma sem bæjarbúum hefur lítið fjölgað. Er þessi þróun vegna þess að íbúar Akureyrar fara í auknum mæli út að borða? Ekki er svo, að sögn veitinga- manna á Akureyri. Sumartíminn er mjög annasamur á veitinga- stöðunum vegna ferðamanna, en vetrartíminn er afar rólegur. Árs- hátíðir félaga og fyrirtækja bjarga þó miklu. Einn elsti og virtasti matsölu- staðurinn á Akureyri er Smiðjan, sem hefur þjónað fólki um langt árabil. Fólki sem hefur sóst eftir góðum mat og góðri þjónustu. Eigendur staðarins eru að hefja framkvæmdir að breyting- um á staðnum, gera hann vist- legri og léttari, en veitinga- reksturinn verður áfram með sama sniði. „Við höfum þegar hafið breyt- ingar á fordyri Smiðjunnar og í desember og janúar verður stað- urinn lokaður vegna endurnýj- unar innréttinga. Baldvin Bald- vinsson, innanhúsarkitekt, hefur hannað nýjar innréttingar og breytingin verður mikil. Yfir- bragðið verður allt léttara, en eins og staðurinn er í dag, þá er hann þungur. Valkostirnir verða fleiri og betri og sætaskipan önnur. Jafnframt fær barinn á efri hæðinni andlitsupplyftingu," sagði Hallgrímur Arason. ój Sveitarfélög á höftiðborgarsvæðinu vilja jafna kosningaréttinn Undanfarið hafa þær raddir heyrst frá sveitaifélögum á höfuðborgarsvæðinu að tíma- Undirritaður hefur verið samningur milli sjávarútvegs- ráðuneytis, Hafnarsambands sveitarfélaga og Tölvuþjónustu Sambands íslenskra sveitarfé- laga um gerð tölvukerfis, sem hefur hlotið nafnið Lóðsinn. Kerfinu er ætlað að halda skrá um skipaferðir og vigtun afla. Tölvukerfið á að vera tilbúið til notkunar 1. september 1991. Samkvæmt nýjum lögum um stjórnun fiskveiða, sem taka gildi um næstu áramót hafa hafnirnar yfirumsjón með vigtun afla og bært sé að breyta vægi atkvæða í alþingiskosningum milli landshluta, og jafna kosn- söfnun upplýsinga um löndun afla. „Tölvukerfi þetta verður sett upp í öllum höfnum á landinu til skráningar og eftirlits með magni afla. Þannig eru hafnirnar tengd- ar tölvu í Hafrannsóknastofnun og senda dag hvern upplýsingar um landaðan afla í viðkomandi byggðarlagi. Verkefnið er liður í samstarfi Hafnarsambands sveit- arfélaga og sjávarútvegsráðu- neytisins," sagði Guðmundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á Akureyri. ój ingaréttinn, þéttbýlinu við Faxaflóa vil. Áskell Einarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Norðlendinga, segir það sína skoðun að ekki verði hróflað við núverandi kosningafyrir- komulag til Alþingis, nema koma upp lýðræðislegu valdi í lands- hlutunum til að fást við þá mörgu málaflokka, sem búið er að fela ríkinu. „Þetta er forsenda fyrir allri uppstokkun í vægi atkvæða. Heimastjórnarvald landshlut- anna verður að efla um leið. Breytingum á atkvæðavægi verð- ur þrýst í gegn ef þeir sem það vilja fá til þess styrk. Jafnræði valdsins í landshlutunum verður að koma á móti jafnræði atkvæðis- réttarins. Það er aðalatriðið, og frumskilyrði þess að réttlætanlegt sé að jafna kosningaréttinn," seg- ir Áskell Einarsson. EHB Nýtt tölvukerfi í höfnum landsins: Hefiir hlotiö nafiiið Lóðsinn - ætlað að skrá skipaferðir og vigtun afla

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.