Dagur - 26.10.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 26. október 1990 - DAGUR - 9
_ Minning:
X Þuríður Helga Jónsdóttir
Sunnuhvoli Glerárhverfi
Fædd 30. júní 1907 - Dáin 21. október 1990
í dag er hún amma borin til
hinstu hvílu. Okkur langar til að
minnast með örfáum orðum,
hennar ömmu í Sunnu eins og við
kölluðum hana alltaf. Fyrst mun-
um við eftir því er amma og afi
stunduðu búskap í Sunnuhvoli
með kýr og kindur. Það gerði
okkur gott að fá að alast upp í
nágrenni við slík heiðurshjón.
Við minnumst hennar sem mikils
náttúrubarns. Henni þótti vænt
um allt sem lífsandann dró og
einnig hafði hún gaman að hlúa
að gróðri sem í kringum hana
var. Alltaf tók hún okkur opnum
örmum, sagði sögur af uppvexti
sínum og ýmis ævintýri. Hún
hafði alltaf nógan tíma til að
sinna Iitlu skinnunum og ekkert
breyttist þótt við yxum úr grasi,
þá komu börnin okkar til sögunn-
ar. Þá eru ógleymanlegar stund-
irnar sem við áttum saman ár eft-
ir ár á túninu í Sunnu að kvöldi
gamlársdags, þar sem fjölskyldan
safnaðist saman og beið þess að
nýtt ár rynni upp. Þetta voru
ánægjustundir fyrir alla og ekki
síður ömmu.
Við minnumst hennar með
þakklæti og kveðjum hana með
söknuði, en vitum að hún hvílir í
friði í guðsörmum.
Helgi, Maja, Egill,
Didda, Anna og
fjölskyldur.
í dag er til moldar borin tengda-
móðir mín, sem varð bráðkvödd
að heimili sínu að kveldi laugar-
dags, en einmitt þennan sama
dag hittumst við í sumarbústað
Stefáns og Kristbjargar. Þennan
dag var verið að steypa undir-
stöður undir sumarbústað, sem
systkinin og fjölskyldan eiga, en
Þuríður kom, þótt þrek hennar
væri dvínað, og þegar ég kvaddi
hana þennan dag, þá kom sú
hugsun að mér: Skyldi þetta
verða síðasta kveðjan?
Þuríður var fædd að Litla-
Árskógarsandi. Foreldrar hennar
voru Jón Gunnlaugsson og Þór-
Athugasemd við
Pressumola
Pressan, sem seint verður talinn
ábyrgasti fjölmiðill landsins, birt-
ir í gær slúðurfrétt af verri endan-
um. Af því að Dagur kemur þar
við sögu þykir undirrituðum rétt
að leiðrétta „fréttina“. Hluti
hennar sem að blaðinu snýr er
svohljóðandi: „Á síðasta ári
sagði Lilja Mósesdóttir upp starfi
sínu sem hagfræðingur ÁSÍ og
bar fyrir sig launamisrétti kynja.
Þessa skoðun sína áréttaði Lilja í
viðtali við Dag á Akureyri í síð-
ustu viku. Við heyrum að athuga-
semdum hafi rignt yfir norðan-
blaðið síðan: ASI var nóg
boðið...“
Ekki veit ég hvernig heyrn
Pressumanna er háttað (eru þó
líklega heyrnarlausir upp til
hópa), en get þó hér og nú upp-
lýst þá um að engin rigning
athugasemda hefur verið yfir
Dag vegna ummæla Lilju í
umræddu viðtali. Lára V. Júlíus-
dóttir hefur ein komið athuga-
semd á framfæri í formi greinar,
sem Dagur birti í þessari viku.
Ekki einn einasti maður annar
hefur hringt til blaðsins eða kom-
ið á framfæri skrifaðri athuga-
semd við nefnd ummæli.
Oskar Þór Halldórsson,
blaðamaður.
unn Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Á
þessum árum var margt öðruvísi
og lífsbaráttan þröng. Þuríður
lærði því frá blautu barnsbeini að
una við það, sem lítið var af
heimsins gæðum en þeim mun
ríkari var hún af þeirn gæðum
sem nú hafa komið henni að
notum, en það voru þau andlegu
verðmæti sem hún átti í trúnni á
Jesúm Krist. En honum fylgdi
hún af einlægni og trú, og sjálf
sagði hún mér: „Ég hefi oft lært
og fengið að reyna á hinum ýmsu
stundum erfiðleikanna að varpa
mér í faðm frelsarans. Hann hef-
ur aldrei brugðist mér.“
14 ára gömul varð hún fyrir
þeirri sáru sorg að missa föður
sinn og leyndi það sér ekki, þegar
þetta barst í tal. En faðir hennar
var mikill söngmaður. Þuríður
var líka sjálf mikill söngelskandi
og söng m.a. í kirkjukór Lög-
mannshlíðar í mörg ár. Þuríður
hafði mikinn áhuga fyrir ræktun,
og það sýna fallegu trén í kring-
um Sunnuhvol.
Hamingjusól Þuríðar skein
skært 22. ágúst 1925, en þá gekk
hún að eiga Magnús Júlíusson.
Það hvíldi mikil Guðs blessun
yfir þeim og Guð gaf þeim 10
börn sem öll eru á lífi. En þau
eru: Jón Hilmar, Friðrik,
Margrét, Kristbjörg, Ebba, Sig-
ursveinn, Inga, Rósa, Þórarinn
og Skarphéðinn. Þegar litið er
yfir þennan stóra og fallega hóp,
þá fyrst lýkst það u )p fyrir mér,
hversu mikinn arf b.iu hafa lagt
íslensku þjóðinni. I-: ^si myndar-
legi hópur var hamingja þeirra og
mikil var gleðin þegar allur hóp-
urinn kom saman í Sunnuhvoli.
Það eru stundir sem við nú geym-
um í sjóði minninganna.
22. ágúst 1950 á silfurbrúð-
kaupsdegi þeirra hjóna dró ég
upp hringinn með einni dóttur-
inni, Margréti, og eignaðist um
leið bæði bestu konuna sem ég
hefi kynnst, en líka góða og gef-
andi tengdaforeldra, sem voru
mér ávallt eins og ég væri einn af
fjölskyldunni.
Magnús og Þuríður höfðu ávallt
svolítinn búskap og þar varð ég
vitni að því, hvernig menn geta
farið vel með skepnur. Það var
sama hvort það voru kýrnar eða
kindurnar. Ég á margar ómetan-
legar minningar úr heyskapnum.
Sjálfur átti ég á þeim árum
bifreið, sem hasgt var að nota við
heyskapinn. Ég mun aldrei
gleyma þakklæti þeirra hjón-
anna, þó að mér finnist í dag það
hafa verið lítið, því að maður
fékk ávallt meira en maður gat
gefið sjálfur.
Þegar degi fór að halla í lífi
þeirra hjóna kom best í ljós að
systurnar sem heima voru, þær
Ebba og Inga, fórnuðu sér henn-
ar vegna, og þær kærleikshendur,
sem nú voru réttar fram, komu til
hjálpar og ekki síst nú síðustu 9
árin, sem Þuríður var ekkja.
Smám saman fann hún þrekið
dvína, en þá kom að því að Friðrik
missti atvinnuna og var heima. Sá
kærleikur sem hún naut af hans
hálfu var ómetanlegur og naut
hún þess að keyra út og ferðast á
þann hátt. Ég er ekki viss um að
það séu margir synir sem mundu
vinna það verk sem Friðrik vann
fyrir sína öldruðu móður, en í
dag dáist ég að slíkum fórnandi
kærleika.
í 39 ár hefi ég fengið að kynn-
ast Þuríði og þegar ég kveð hana
þá er það með sárum söknuði, en
sárastur er söknuðurinn börnun-
um og barnabörnunum.
Ég bið Guð að vera með ykkur
öllum og styrkja ykkur öll og
munið að ganga sömu hamingju-
leiðina og hún valdi, en það var
að fylgja Jesú Kristi og treysta
honum fyrir öllu sínu lífi.
Guð blessi ykkur öll.
Bogi Pétursson.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Dalbraut 9, Dalvík, talinn eigandi
Sigurgeir Sigurðsson, miðvikud. 31.
okt., '90, kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hrl., Hús-
næðisstofnun ríkisins, Trygginga-
stofnun ríkisins, Hróbjartur
Jónatansson hdl. og Gunnar Sólnes
hrl.
Sandskeið 31, Dalvík, þingl. eigandi
Ölunn hf., miðvikud. 31. okt., '90, kl.
10.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Hróbjartur Jónatansson hdl. og Sig-
ríður Thorlacíus hdl.
Glerárgata 34, vörug. á baklóð,
norðurhluti A-1, Akureyri, þingl. eig-
andi Hjólbarðaþjónusta Heiðars,
miðvikud. 31. okt., '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
íslandsbanki hf., Ólafur Birgir Árna-
son hrl., Gunnar Sólnes hrl., Jón
Eiríksson hdl. og Guðjón Á. Jóns-
son hdl.
Borgarsíða 11, Akureyri, þingl. eig-
andi Árni Björgvinsson, miðvikud.
31. okt., '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og Ásgeir
Thoroddsen hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
SKATAFELAGIÐ
KLAKKUR
Skátar 15 ára og eldri athugið!
Framhaldsaðalfundur Klakks verður haldinn mánu-
dagskvöldið 5. nóvember og hefst kl. 20.30.
Stjórnin.
Framsóknarfólk á Húsavík
Framvegis verður skrifstofa flokksins í Garðari,
Garðarsbraut 5, opin á laugardagsmorgnum milli kl.
11.00 og 12.00.
Heitt á könnunni.
Lítum inn og ræðum málin!
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Ungt framsóknarfólk á
Akureyri og Eyjafirði athugið!
Framhaldsaðalfundur F.U.F.A.N., Félags ungra
framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni, verður
haldinn miðvikudagskvöldið 31. október kl. 20.30, að
Hafnarstræti 90, 2. hæð.
Dagskrá:
1 .Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing á Húsavík
10. pg 11. nóvember.
3. Önnur mál.
Ungt framsóknarfólk á svæðinu hvatt til að mæta.
Stjórnin.
(------------------\
Verslunin Þorpið
Mikið kjötúrval, frosið og nýtt.
Fiskur, nýr, saltaður og reyktur.
Silungur, siginn fiskur, saltfiskur.
Sprengitilboð á Fanta:
2 lítrar aðeins 104 kr.
Tilboð á Coka-Cola
Vz lítri verð kr. 64.
Diet Coke V2 lítri kr. 64.
R.C. Cola IV2 lítri kr. 99.
Hi-spot Vh lítri kr. 99.
Pepsi Cola 2 lítrar kr. 169.
Seven Up 2 lítrar kr. 169.
Op/ð alla daga frá kl. 10.00-22.00
Sunnudaga frá kl. 10.00-14.00.
Verslunin Þorpið,
MÓASÍÐU 1. rgn
WS4
Atvinna
Óskum eftir að ráða þjón eða aðila með mikla
reynslu í veitingasal okkar um helgar.
Einnig vantar aðstoðarfólk með reynslu, um
helgar og í miðri viku.
Upplagt fyrir skólafólk ekki yngra en 18 ára.
(Herbergi gæti fylgt).
Upplýsingar á staðnum föstudaginn 26. október frá
kl. 17.00 til 18.00 og mánudaginn 29. október frá kl.
17.00 til 18.00.
-JkotelL_
STEFAHÍA
Aðstoð á tannlæknastofu
Óska að ráða
„Klinikdömu"
á tannlæknastofu mína.
Vinnutími frá kl. 13.00 til 17.00.
Þarf að geta byrjað 1. desember eða 1. janúar 1991.
Skriflegar upplýsingar um menntun og fyrri störf
ásamt meðmælum óskast.
Hörður Þorleifsson, tannlæknir,
Kaupangi, Akureyri, sími 21223.