Dagur - 26.10.1990, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 26. október 1990
Villibráðarlgötseyði Royal
Franskt paté með lifsbeqahlaupi
Kampavínslegiun Skötuselur í íjómasósu
Hreindýrasteik á ijómasoðnum kartöflum með Waldorfsalati
Steikt ijúpnabijóst með lyngsósu og týttubeijasósu
Ofiisteikt heiðagæs í súrsætri sósu
Súkkulaðihjúpuð pera með vinilluís
Hjólaskógur framundan.
Mynd: Golli
Iðnaðarmannafyrirtæki á Norðurlandi vestra:
Sterk fjárhagslega en búa
víð minnkandi heimamarkað
Alls eru 64 iðnaðarmannafyrir-
tæki með verkstæðisaðstöðu
staðsett á Norðurlandi vestra,
þar af 29 í Skagafjarðarsýslu, 7
í Vestur-Húnavatnssýslu, 14 í
Austur-Húnavatnssýslu og
14 á Siglufirði. Einn megin
styrkur þessara fyrirtækja ligg-
ur í því að fjárhagsstaða þeirra
er góð eða allgóð en einn af
stærstu veikleikum þeirra er sú
staðreynd að fólki fer fækk-
andi á svæðinu og þar af leið-
andi fer heimamarkaðurinn
minnkandi.
Petta koma m.a. fram í erindi
Unnar Kristjánsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Iðnþróunarfélags
Norðurlands vestra, á ráðstefnu
um samstarf fyrirtækja á
Norðurlandi sem haldin var á
Akureyri um síðustu helgi.
Unnur sagði að kostir iðnað-
armannafyrirtækja á Norðurlandi
vestra felist í góðri fjárhagsstöðu
þar sem flest fyrirtækjanna skuldi
lítið. Pau séu vön tilboðsverkum,
bjóði upp á verktæknilega fjöl-
breytni, hafi yfir að ráð dugleg-
um og vandvirkum iðnaðar-
mönnum, hafi vaxandi metnað í
stefnumótun og vöruþróun og
vinni sum hver að uppbyggingu
sérhæfingar. Þá hafi þessi fyrir-
tæki yfir að ráða sveigjanleika,
hafi talvert unnið utan svæðisins,
séu dugleg og útsjónarsöm í
aðföngum og tæknileg staða
þeirra sé góð miðað við aðstæð-
ur.
Unnur taldi einnig upp veik-
leika iðnaðarmannafyrirækja á
þessu svæði. Þar bar hæst minnk-
andi markað þeirra vegna fækk-
andi íbúa. Lítil samvinna sé milli
fyrirtækja, bílskúrsaðilar séu
margir og þar af leiðandi einingar
litlar, samkeppni sé við ófag-
lærða, gæði lágt verðlögð, of lítið
um endurmenntun, markaðsmál-
um lítill gaumur gefinn, miklar
sveiflur í eftirspurn, Iítið um
staðlaða framleiðslu og loks sé
sérfræðiaðstoð dýr. JÓH
Rækjukvótinn í ár senn á þrotum:
BuUandi tap á
rækjuvhmslunm
- segir framkvæmdastjóri Félags
og hörpudiskframleiðenda
rækju
Lárus Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpu-
diskframleiðenda, segir að um
þessar mundir sé bullandi tap á
rækjuvinnslunni, sem helgist
af mjög lágu afurðaverði á er-
Ágreiningur í Blöndudal:
„Eru að leggja línuna í vitlausa átt
- segir Björn Björnsson á Ytri-Löngumýri
„Landsvirkjun byrjaði alltof
seint að reyna að hefja samn-
ingaviðræður. Mér hafa þeir
boðið sem svarar greiðslu á 5
mánaða rafmagnseyðslu hjá
mér fyrir að leggja á tvo vegu
24 m há járnmöstur á hæstu
punktum landareignar minnar.
Því var bara einfaldlega
hafnað,“ sagði Björn
Björnsson, bóndi á Ytri-
Löngumýri í Svínavatnshreppi
A .-Húna vatnssýslu.
í gær kom fram í blaðinu að
lagning tengilínu milli Blöndu-
virkjunar og byggðalínu er að
stöðvast vegna ágreinings milli
bygginganefndar Svínavatns-
hrepps og Landsvirkjunar.
Nefndin felldi erindi Landsvirkj-
unar um að mega leggja línuna.
Að sögn nefndarmanna voru
ástæðurnar aðallega tvær: Engir
samningar lágu fyrir við þrjá
landeigendur og uppdrátturinn af
lagningunni passaði ekki alveg
við framkvæmdir.
Landið sem eftir er að leggja
yfir eiga Höllustaðir og Ytri- og
Syðri-Löngumýrarbæirnir. Dag-
ur heyrði einnig hljóðið í Sigurði
Inga Guðmundssyni bónda á
Syðri-Löngumýri. „Það er um ár
síðan þeir athuguðu land undir
línuna, en á þeim tíma hafa þeir
ekkert reynt að semja við okkur,
koma svo bara og rjúka í verkið.
Við sem eigum þessar jarðir
fengum bréf ekki fyrir löngu þar
sem okkur var tilkynnt að þeir
gætu farið í þetta þegar þeim
dytti í hug og látið síðan meta
það eftir á. Eg tel okkur ekki
hafa verið neitt óþjála, heldur
hafa þeir ekkert reynt til að
semja við okkur,“ sagði Sigurður
Ingi og kvað þá alltaf jákvæða
fyrir samningaviðræðum ef ein-
hverjir menn með samningsvilja
töluðu við þá.
„Ef þeir sýna engan samnings-
vilja þá fara þeir bara sínar leiðir
og við höldum áfram að búa, en
mér finnst alveg sjálfsagt að láta
aðeins reyna á þetta,“ sagði
Sigurður Ingi.
„Málið stendur þannig í dag að
menn Landsvirkjunar eru að
steyta sig og eitthvað að reyna að
koma fram eignarnámi, en ég
veit ekki hvort þeir ná því. Það
hefur aldrei verið tekið eignar-
nám fyrir línu svo vitað sé og því
Magni á Grenivík:
hlaupabraut í kringum malarvöllinn
Iþróttafélagiö Magni á Greni-
vík stendur í töluverðum fram-
kvæmdum um þessar mundir.
Verið er að lengja grasvöllinn
um 20 metra, úr 100 metrum í
120, og Magnamenn eru einnig
að gera malarvöll sunnan við
grasvöllinn. Kringum hann á
að koma hlaupabraut.
Jón Stefán Ingólfsson, gjald-
keri Magna, sagði að búið væri
að ryðja upp undirlagi fyrir nýja
völlinn að mestu leyti og fyrir-
hugað væri að vinna við hann
eins lengi og veðúr leyfir. Malar-
völlurinn verður 100 metrar á
lengd og 60 á breidd.
Grasvöllurinn á Grcnivík hef-
ur ætíð verið snjóþungur í
norðurendanum og með lengingu
segir Jón að hægt verði að færa
völlinn til eftir aðstæðum og hlífa
viðkvæmum svæðuni. Magna-
menn ættu því að geta komist
fyrr inn á völlinn á sumrin en ver-
ið hefur. Ekki er búið að tyrfa
nýja hluta vallarins en það stóð
til er síðasta hret skall á.
Hér er um mikla uppbyggingu
að ræöa hjá ekki stærra félagi og
ófá handtök sem þurfa að koma
til. Aðstaðan hjá Magna mun
stórbatna og sagði Jón að Akur-
eyrarferðunum ætti að fækka
þegar vellirnir verða tilbúnir.
Hann sagði að áhugi á frjálsum
fþróttum hefði aukist mjög hjá
yngri kynslóðinni og hlaupabraut
yrði því kærkomin fyrir þá sem
þessar íþróttir stunda. SS
síður dæmt í slíku, svo ég held að
allt í lagi sé að svona mál komi
upp. Annars finnst mér athygl-
isverðast í málinu að þeir eru að
leggja línuna í vitlausa átt. Hana
ætti auðvitað að leggja suður til
Keilisness. Þetta er tengilína við
byggðalínuna og þegar rafmagn
úr Blöndu er komið í báðar áttir
á henni er hún fullnýtt. Þá er eftir
Villinganesvirkjun í Skagafirði
sem líka þarf að fara inn á
byggðalínuna og þess vegna er
eðlilegra að leggja línu suður há-
lendið, en þessa tengilínu hér,“
sagði Björn og bætti við að
lokum: „Þeir hjá Landsvirkjun
tala alltaf eins og löggjafinn sé
undirverktaki við Blönduvirkjun
og dómarar landsins séu vinnu-
menn hjá þeim.“ SBG
lendum mörkuðum. Rækju-
veiðarnar í ár hafa gengið vel
og er úthafsrækjukvótinn að
mestu á þrotum, en eftir er að
veiða töluvert af innfjarðar-
rækju.
Úthafsrækjukvótinn á þessari
vertíð var um 24 þúsund tonn, en
í lok september var búið að veiða
um 22 þúsund tonn af úthafs- og
innfjarðarrækju, samkvæmt töl-
um Fiskifélagsins. Rækjuvinnsl-
urnar munu því væntanlega að
miklu leyti vinna frysta rækju,
bæði innlenda og erlenda, á síð-
ustu mánuðum ársins.
Lágt verð hefur fengist fyrir
rækjuna á Bretlandsmarkaði á
undanförnum misserum, sem er
okkar helsti markaður fyrir pill-
aða rækju, og segir Lárus að litlar
horfur séu á bata á næstunni.
„Skilyrðin eru slæm um þessar
mundir út af markaðsverðinu.
Það er bullandi tap á þessu,“
sagði Lárus.
„Sumir hafa talið að verðið
hafi lyft sér aðeins síðustu dag-
ana. Það sem ræður verðinu fyrst
og fremst eru markaðslögmálin,
framboð og eftirspurn. Framboð-
ið hefur aukist í fyrra og í ár og
ennfremur telja menn að verð-
sprengja á rækjunni árið 1986
hafi orðið þess valdandi að hlý-
sjávarrækja vann markaðshlut-
deild.“ óþh
Landssamband hestamanna:
Ársþingið hefst
á Húsavík í dag
Arsþing Landssambands
hestamannafélaga hefst á
Húsavík í dag og verður fram
haldið á morgun laugardag.
Kári Arnórsson formaður LH
setur þingið kl. 10.30 en þing-
slit eru áætluð kl. 17 á morgun.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra mætir á fundinn
í dag og flytur erindi um hrossa-
rækt sem búgrein.
Fjölmörg mál liggja fyrir þing-
mu, eins og fyrirkomulag stór-
móta og skipulagsmál LH, svo
eitthvað sér nefnt. Búast má við
fjörugu þinghaldi, ekki síst vegna
þeirrar uppákomu sem varð á
aðalfundi Hrossaræktarsam-
bands íslands á Akureyri um sl.
helgi og sagt hefur verið frá í
Degi.
Hestamennska er í miklum
vexti á íslandi og á landinu eru nú
50 hestamannafélög og félagar í
þeim yfir 7500 talsins. -KK