Dagur - 26.10.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 26. október 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR, 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (iþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGAHSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASlMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Ú.A. hefiir sérstöðu
Miklar umræður hafa farið fram undarfarið á Akur-
eyri og víðar á Norðurlandi um atvinnumál, sem er
mjög eðlilegt í ljósi þess að atvinnuástandið á
Norðurlandi eystra og vestra er mjög slæmt.
Það vekur vissulega mikla athygli, að samkvæmt
fréttum nýlega stefnir í að landsmenn ætli að verja
5,5 milljörðum króna í kaup á hlutabréfum í nokkr-
um fyrirtækjum á þessu ári. Hver skyldi vera
skýringin á þessu breytta viðhorfi landsmanna til
atvinnurekstrarins í landinu? Hluti af henni er trú-
lega sá, að kaupi menn hlutabréf fyrir 100 þúsund
krónur fá þeir skattaafslátt upp á 45 þúsund krón-
ur á móti.
Útgerðarfélag Akureyringa er eitt af þeim fyrir-
tækjum, sem aukið hafa hlutafé sitt verulega á
þessu ári með hlutabréfasölu. Svo mikil ásókn var
í bréfin að færri fengu en vildu. Nú hefur stjórn
félagsins ákveðið að bjóða út 50 milljónir króna á
nafnverði til viðbótar, og trúlega gengur eins vel
að selja bréfin eins og áður.
Eins og allir vita, er eignaraðild að Ú.A. þannig
háttað að Akureyrarbær, íbúar á Akureyri, á
meirihluta í fyrirtækinu. Eignarhlutur bæjarsjóðs
minnkaði að vísu af því bærinn nýtti sér ekki for-
kaupsréttinn nema að hálfu leyti, þegar fyrra
hlutafjárútboðið fór fram. í sambandi við þessi
hlutafjárútboð í Ú.A. hafa þær spurningar vaknað
hvort nauðsynlegt sé að Akureyrarbær eigi áfram
meirihluta í Ú.A., og hvort bærinn eigi að falla frá
forkaupsrétti sínum, eða jafnvel draga sig að
mestu út úr félaginu, og nota það fjármagn sem
þannig fengist til annarrar atvinnustarfsemi í
bænum.
Slíkar hugmyndir um að selja fyrirtæki bæjarins,
sem vel ganga, hafa áður komið fram. En hvað þá
um fyrirtæki eins og Krossanes? Vill nokkur kaupa
hlutabréf í því fyrirtæki? Er einhver einkaaðili til-
búinn til að taka við því fyrirtæki, þótt allt hlutafé
Akureyrarbæjar væri afskrifað, en viðkomandi tæki
við skuldunum? Sannleikurinn er auðvitað sá að
almenningur sækist ekki eftir að kaupa hlutabréf
nema í þeim fyrirtækjum sem ganga vel og skila
góðum arði. Svo einfalt er það.
Eins og alkunna er, þá hefur Ú.A. þó nokkra sér-
stöðu meðal útgerðarfyrirtækja landsmanna í dag.
Allur afli ísfisktogara félagsins er unninn hjá félag-
inu sjálfu, og þess vegna hefur fjöldi bæjarbúa þar
örugga og góða atvinnu. Það er því réttnefni, þeg-
ar Ú.A. er kallað óskabarn Akureyringa. Af þessum
ástæðum er ekki ástæða til að Akureyrarbær dragi
sig út úr félaginu. Það er engan veginn öruggt að
„kapítalistarnir11 sem við tækju myndu reka fyrir-
tækið á sama hátt og gert er í dag, með hagsmuni
allra bæjarbúa að leiðarljósi. S.O.
f/ hvoð er að gerast ,
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Fundur með félagsmönnum
haldinn á Akureyri
Starfsmannafélag ríkisstofnana
verður með svokallaðan stórfund
með félagsmönnum á morgun,
laugardaginn 27. okt. Fundurinn
fer fram í sal Starfsmannafélags
KEA í verslunarmiðstöðinni
Sunnuhlíð og stendur frá kl.
13.00-17.00.
Þátttaka félagsmanna tilkynn-
ist til Þorsteins Péturssonar hjá
fæjarfógeta Akureyrar, í síma
96-26900. Dagskrá fundarins sem
er fjölbreytt, er svohljóðandi:
Kl. 13.00 Kjaramál - Hvað á að
gera í nóvember?
KI. 13.30 Uppbygging SFR. Auk-
ið lýðræði. Landshlutadeildir.
Kl. 14.00 Hópvinna.
Kl. 15.00 Kaffi.
Kl. 15.30 Hópar skila áliti.
Barnaskóli Húsavíkur og Húsgull
hafa í samvinnu sett upp sýningu
Akureyri:
Myndlistar-
sýning
Aðalsteins
Vestmann
Myndlistarsýning Aðalsteins
Vestmann sem staðið hefur yfir í
Gallerí Delfi í verslunarmiðstöð-
inni Sunnuhlíð á Akureyri, hefur
verið framlengd til nk. sunnu-
dagskvölds.
Sýningin sem var opnuð þann
13. okt. sl., er opin daglega frá
kl. 14-20 og þegar hafa um 400
manns komið á hana. Á sýning-
unni eru 72 verk, vatnslitamynd-
ir, olíuverk og myndir unnar með
blandaðri tækni.
Kynning á gæða-
stjómun þjónustu
Gæðastjórnun er vaxandi þáttur í
stjórnun íslenskra fyrirtækja.
Fjöldi athugana hefur sýnt að
fyrirtækjum og stofnunum geng-
ur vel ef gæðum er stýrt, því virk
gæðastjórnun hefur bæði áhrif til
kostnaðarlækkunar og söluaukn-
ingar.
Endurmenntunarnefnd Háskól-
ans mun þann 30. október bjóða
upp á kynningu á grunnhugtök-
um og aðferðafræði gæðastjórn-
un þjónustu. Leiðbeinandi verð-
ur Höskuldur Frímannsson rekstr-
arhagfræðingur hjá Ráðgarði, en
hann hefur þróað gæðaaðferðina
fyrir þjónustufyrirtæki og stofn-
anir.
Kynningin er ætluð stjórnend-
um fyrirtækja og stofnana og
þeim sem iáta sig gæði einhverju
máli skipta.
Markmið kynningarinnar er að
þátttakendur kynnist grunnhug-
tökum og aðferðafræði við að ná
fram varanlegum umbótum. Þeir
geti metið þörf fyrir gæðastjórn-
un þjónustu í fyrirtækjum sínum.
Nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Endurmenntunar-
nefndar Háskóla íslands í síma
694923/24.
Kl. 16.00-17.00 Almennar um-
ræður, m.a. er áhugi á beinu flugi
frá Akureyri, erlendis næsta
sumar. Forystumenn SFR sitja
fyrir svörum.
Á þessum fundi gefst félögum
tækifæri til þess að ræða kjara-
málin og ekki síður hvernig félag
Þrír listamenn opna samsýningu í
Safnahúsinu á Húsavík á morgun
laugardag kl. 14. Við opnun sýn-
ingarinnar mun ungt fólk annast
sem samanstendur af veggspjöld-
um með myndum og texta. Sýn-
ingin er fengin frá Landvernd og
nefnist Mengun - Sorp - Endur-
vinnsla, og er ætluð til að vekja
fólk til umhugsunar um þau
umhverfisvandamál sem steðja
að. Sýningin verður opin frá kl.
8-16 til 2. nóv.
Sýningin verður einnig opin frá
kl 10-13.30 á laugardag og munu
fulltrúar frá Húsgulli þá vera til
staðar til að ræða við sýningar-
gesti og ýmsar upplýsingar frá
félaginu liggja frammi. A sama
tíma verða nemendur 8. og 9.
bekkjar með kynningu á verkefni
sem nefnist Mataræði og holl-
usta.
Þessa viku hefur aðaláhersla
verið lögð á umhverfisfræðslu hjá
nemendum barnaskólans.
Vetrarstarf Flugmódelfélags
Akureyrar er hafið og verður
starfsemin til húsa í íþróttavallar-
húsinu við Akureyrarvöll.
Opið verður tvisvar í viku, á
fimmtudagskvöldum frá kl. 20-23
og á laugardögum frá kl. 15-18.
Smíðaaðstaða verður í vallar-
húsinu fyrir þá félaga sem þess
Samtök um sorg og sorgarvið-
brögð halda kynningarfund í
Barnaskóla Húsavíkur mánudag-
inn 29. okt. og hefst fundurinn
kl. 20. Á fundinn koma Gfsli G.
Auðunsson, heilsugæslulæknir og
sr. Sighvatur Karlsson, sóknar-
prestur.
Nýlega hafa tveir slíkir fundir
verið haldnir í Kelduhverfi, en
verið lítið sóttir. Nú hefur verið
ákveðið að kanna viðbrögð við
fundi á Húsavík og sjá til hvort
grundvöllur er til að stofna deild í
Samtökunum um sorg og sorgar-
viðbrögð.
Á fundinn eru allir velkomnir
og hann er ekki aðeins ætlaður
fólki sem syrgir látna ástvini,
heldur einnig þeim sem eiga í erf-
iðleikum t.d. vegna veikinda,
skilnaðar eða atvinnumissis.
Enginn þarf að tjá sig á fundinum
SFR á að vera í framtíðinni. Á að
deildaskipta félaginu, stofna
landshlutadeildir eða hvernig get-
ur félagið þjónað sínum félags-
mönnum best? Stjórn SFR hvet-
ur félaga til þess að mæta á fund-
inn og taka þátt í umræðunni og
leggja um leið sitt af mörkum til
þess að rétta leiðin finnist.
tónlistarflutning og allir eru
boðnir velkomnir. Sýningin verð-
ur síðan opin kl. 14-21 til 4.
nóvember.
Listamennirnir þrír eru allir
með próf frá Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands.
Torfi Ásgeirsson, listmálari,
sýnir 20 myndir unnar með olíu
og akríl. Torfi hélt sína fyrstu
einkasýningu í vor, en sýningin í
Safnahúsinu er fyrsta samsýning-
in sem hann tekur þátt í. Torfi
átti heima á Halldórsstöðum í
Laxárdal á bernskuárum sínum,
sn móðir hans er Hrafnhildur
Ólafsdóttir frá Þórðarstöðum á
Húsavík.
Oddný E. Magnúsdóttir, mynd-
menntakennari á Húsavík, sýnir
10 myndir, bæði myndvefnað og
saumaðar myndir. Oddný hefur
haldið eina einkasýningu og tekið
þátt í nokkrum samsýningum.
Hún er í Textílfélagi íslands og
það er Hólmfríður, þriðji lista-
maðurinn einnig.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
frá Sandi, myndmenntakennari
við Hafralækjarskóla, sýnir 10
myndir, myndvefnað. Hólmfríð-
ur hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum.
óska.
Allir þeir sem óska nánari upp-
lýsinga um Flugmódelfélagið og
starf þess eru boðnir velkomnir
og einnig er hægt að hafa sam-
band við Kjartan Guðmundsson í
síma 25220, Magnús Ottósson í
síma 22197 eða Björn Sigmunds-
son í síma 23243.
frekar en hann vill en fólki mun
gefast kostur á að ræða einslega
við fundarboðendur. Kaffiveit-
ingar verða á fundinum.
Akureyri:
Kynning á þró-
unarheimspeki
Kynning verður haldin á Akur-
eyri, ef næg þátttaka fæst, á þró-
unarheimspeki, stöðu mannsins í
þróuninni og skyldu efni.
Skráning fer fram laugardag-
inn 27. okt. og þriðjudaginn 30.
okt., frá kl. 18-19 báða daganna.
Skráning fer fram í símum 22093
(Anna) og 25728 (Gunnar).
Skráningargjald er kr. 1500.-.
Sýning í Barnaskóla Húsavíkur:
Mengun - Sorp - Endurvinnsla
Safnahúsið á Húsavík:
Samsýning þriggja listamanna
Flugmódelfélag Akureyrar:
Vetrarstarfið hafið
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð:
Kynningarftmdur á Húsavík