Dagur - 26.10.1990, Page 7

Dagur - 26.10.1990, Page 7
Föstudagur 26. október 1990 - DAGUR - 7 Laxárfélagið fagnar 50 ára afmæli á morgun: Veiðitúr í Laxá í Aðaldal eins og að fara heim - segir Orri Vigfússon, formaður Laxárfélagsins Fimm tugir ára eru nú liðnir síðan netaveiði á laxi var hætt í Laxá í Aðaldal og veiðiréttur- inn leigður til stangveiði- manna. Þennan veiðirétt tók Stangveiðifélagið Laxá fyrst á leigu en síðar breyttist nafn þessa félags í Laxárfélagið og heitir svo enn þann dag í dag. Annað kvöld fagna félagar þessum tímamótum með bændum við Laxá sem sam- starf hefur verið mikið og gott við á þessum tíma. Núverandi formaður Laxárfélagsins er Orri Vigfússon og hann var spurður nánar um sögu félags- ins. „Já, árið 1940 var síðasta árið sem lagðar voru gildrur og net í ána. Jón Þorbergsson, þáverandi ábúandi á Laxamýri, hafði þá framsýni til að hætta þessari gildruveiði og leigja stangveiði- réttindi þess í stað. Árið 1941 hófst svo þessi stangveiði og fremstir í flokki í þessu félagi fóru þeir bræður Sæmundur og Kristinn Stefánssynir, Stefán Árnason á Akureyri og fáeinir menn á Húsavík. Um 1950 voru síðan formlega stofnaðar deildir með aðild að félaginu á Akur- eyri og Húsavík, Stangveiðifélag- ið Straumar á Akureyri og Stang- veiðifélagið Flúðir á Húsavík," segir Orri. Félagar í Laxárfélaginu eru nú um 140 að sögn Orra. Akureyr- ingar eiga 3/6 félagsins, Reykvík- ingar 2/6 og Húsvíkingar 1/6 hluta. Farsælt samstarf við bændur Samstarf við bændur í Aðaldal hefur verið stór þáttur í starfi þessa félags. „Jú, þetta samstarf hefur fyrst og fremst hefur ráðið því hve giftusamlega hefur til tekist í gegnum árin. Ég held að þessi nána samvinna, það að við fáum að taka þátt með bændun- um í ræktunarstarfinu og öðru geri það að verkum að starfið við Laxá er svona farsælt. Bændur hafa tekið okkur mjög vel og það hefur verið reynt að hafa í þessu samstarfi dýpri tón en bara.við- skipti. Eg held að allir meðlimir í Laxárfélaginu séu sannfærðir um að þetta sé sú mesta laxveiðiá veraldar. Þarna er lax og óvenju- mikil náttúrufegurð sem gerir hana heillandi. Þegar menn eru að leggja í veiðitúr í Laxá í Aðaldal þá er það eins og þeir séu að fara heim. Þetta er viðhorf margra.“ Umræða milli manna árið um kring Orri segir að ræktunarstarfið í Laxá í Áðaldal sé í nokkuð föst- um skorðum. Þar ráði veiðifélag bænda ferðinni en þeir vinni að einhverju leyti í samráði við Lax- árfélagið en fari fyrst og fremst eftir tillögum Tuma Tómassonar, sem gefur ráðleggingar um slepp- ingar og annað slíkt. Orri segir að utan veiðitíma- bilsins hafi menn innan félagsins mikið samband sín í milli og leggi þá á ráðin í ræktunarstarfinu og öðrum mikilvægum málum. „Jú, það fer stöðugt fram umræða milli manna um þetta áhugamál og það gerir þetta einmitt mjög spennandi, ekki bara á veiðitím- anum heldur allt árið um kring.“ Stefnum að 3500 laxa veiði á ári á komandi áratug Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Þetta á við um laxveiði og laxveiðimenn ekkert síður en annað. Þó geta þeir sem að lax- veiðiánum standa unnið mark- visst að ræktunarstarfi sem síðar mun skila þeim góðum árangri og draga úr sveiflum í veiðinni. Orri er bjartsýnn fyrir hönd veiði- manna í Laxá í Aðaldal hvað þetta varðar. „Við fórum síðast í gegnum lægð á árunum 1981-1984 þegar veiðin fór langt niður. Sumir vildu þá kenna um kuldaárinu 1979. Nú virðumst við vera að fara í gegnum aðra lægð en mun- urinn er samt sá að nú veiðist þó meiri fiskur en í síðustu lægð. Ræktunarstarfið hefur skilað árangri, á því er ekki vafi. Við höfum tölur allt frá seinustu öld og fram til dagsins í dag og frá aldamótum og til 1969 veiddust á veiðitíma að meðaltali um 1000 laxar. Síðan þá hefur veiðin verið að meðaltali um 2000 laxar og þannig hefur meðalveiðin verið tvöfölduð með ræktun. Við vit- um að vísu ekki hvað við höfum gert rétt og hvað rangt en ég held að í framtíðinni verði skrefin stigin í átt að því marki að veiðin verði 3-3500 laxar að meðaltali á veiðitímabili á þeim áratug sem nú fer í hönd,“ segir Orri Vigfús- son. JÓH Frá Laxá í Aðaldal. Félagsvist og bingó verður haldið að Freyjulundi, föstudagskvöidið 26. október og hefst kl. 21.00. 3ja kvölda keppni. Góðir vinningar. \s Nefndin. A Laugardagskvöldið 27. október 1. vetrardagur Hljómsveitin STYRMING Sigfús Arnþórsson leikur fyrir matargesti. Uppselt í mat. Húsiö opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00. ★ tÉMtoÍ Sunnudagsveisla á Súlnabergi Spergilkálssúpa, ofnsteikt lambalæri og/eða reykt grísalæri. Þú velur sjálfur sósuna og salatið. Glæsilegt deserthlaðborð. Allt þetta fyrir aðeins kr. 980.- Frítt fyrir börn 0-6 ára, V2 gjald fyrir 7-12 ára. Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. |j Hótel KEA j| fyrir vel heppnaða veislu Bílasala • Bílaskipti Vantar jeppa og fjóritjóladrifsbíla á söluskrá MMC Lancer 4x4 st, árg. '88, ekinn 45.000, verð 1.050.000.- Nöldursf. Ford Bronco XLT, árg. '86, upph. ekinn 53.000 mílur, verð 1.500.000,- Mazda 626 2000 GLX A/T, árg. '86, ekinn 70.000, verð 650.000.- Subaru E-10 4x4 m/sætum, árg. '88, ekinn 55.000, verð 650.000.- BÍIASAIA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. Jeep Cherokee, árg. '86, ekinn 40.000 mflur, verð 1.450.000,- RÍLftSfltlWW Blaizer Silverrado, árg. '86, upph. 38“ dekk, verð 1.900.000. MMC Lancer 1500 GLX, árg. '90, ekinn 4.000, verð 880.000.- Citroen BX 16 TR station, árg. '87, ekinn 90.000, verð 780.000.-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.