Dagur - 10.11.1990, Blaðsíða 20
Kylfíngar á Akureyri eru enn að. Fjöldi karla og kvenna stundar sportið af
lífi og sál, þrátt fyrir að vetur ríki samkvæmt almanakinu. Veðurblíðan léttir
mörgum lífið og samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar verður sama
veðurblíðan á Norðurlandi um helgina og verið hefur alla síðustu viku. Er
nokkuð betra til en að fara upp á golfvöll og elta hvítu kúluna? Mynd: ój
Stefnir í kærumál vegna samnings Akrahrepps og
Skotveiðifélags Akrahrepps um leigu á Öxnadalsheiði:
„Parna er imnið þvert gegn hags-
munum skotveiðimanna um ailt land“
- skotveiðimenn í Eyjafirði ætla að ijölmenna á heiðina
og fá fram kærumál
„Það er yfirlýst stefna Skot-
veiðifélags Islands að mönnum
séu heimilar veiðar á afréttum
enda er heimildin skýr í iögum.
Við hljótum því að mótmæla
þessum aðferðum sem nú á að
beita á Öxnadalsheiðinni og
munum fjölmenna upp á heiði
til að láta á þetta reyna. Kæra
á hendur okkur yrði fagnaðar-
efni,“ segja þeir Gísli Ólafs-
son, formaður Skotveiðfélags
Eyjafjarðar, og Ásgrímur
Ágústsson, meðstjórnandi í
sama félagi, vegna þess samn-
ings sem gerður hefur verið
milli Akrahrepps í Skagafirði
og Skotveiðfélags Akrahrepps.
Það sem eftir er veiðitímabils
og næsta veiðitímabil mun Skot-
veiðifélag Akrahrepps annast
skipulag veiða og selja veiði-
leyfi.
Þessi samningur var ræddur á
félagsfundi í Skotveiðifélagi
Eyjafjarðar í fyrrakvöld og þar
var ákveðið að láta á reyna hvort
5. gr. laga um fugláveiðar og
fuglafriðun stenst. Þar segir:
Öllum íslenzkum ríkisborgur-
um eru fuglaveiðar heimilar í
afréttum og almenningum utan
landareigna lögbýla, enda geti
enginn sannað eignarrétt sinn til
þeirra.“
„Þeir segjast að vísu geta
sannað eignarrétt til þessa land-
svæðis en það segir ekkert um
það í lögum að hægt sé að fram-
selja þennan rétt eða leigja hann.
Við hvetjum því okkar menn til
að mæta á heiðina og sjá hvort
menn hafa þor til að kæra. Þeirra
er sönnunarbyrðin því þeir
verða að sýna fram á að þeir hafi
yfirráð yfir veiðiréttinum á svæð-
inu,“ segir Gísli.
Gísli sagði að félagið hafi að
baki sér sérfróða mcnn í landrétt-
armálum sem muni taka þetta
mál að sér, komi fram kærur.
Einnig hafi verið ákveðið að
Skotveiðifélag Eyjafjarðar muni
bera allan kostnað af málarekstri
fyrir sína félagsmenn.
„Þetta félag í Akrahreppi er
ekki aðildarfélag að Skotveiðifé-
lagi íslands og með þessu frurn-
hlaupi sínu er telagið að vinna
þvert gegn hagsmunum skotveiði-
manna um allt land. Við ætlum
okkur því að standa fast á rétti
okkar,“ sagði Gísli Ólafsson.
JÓH
Bjargskýrslan til umræðu á
ríkisstjórnarfundi í gær:
„Málið verður að
leysa í heild“
- segir Guðmundur Bjarnason
Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi eystra:
Tuttugu og fínun í kjöri til
sjö efstu sæta framboðslistans
- kosning fer fram á aukakjördæmisþingi á Húsavík á morgun
Tuttugu og fímm verða í kjöri
til sjö efstu sæta framboðslista
Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra fyrir
komandi alþingiskosningar.
Kosið verður um þessi sjö sæti
á aukakjördæmisþingi fram-
sóknarmanna á Húsavík á
morgun. Af þeim sem eru í
kjöri eru tólf úr Eyjafjarð-
arsýslu, tíu úr Suður-Þingeyj-
arsýslu og þrír úr Norður-
Þingeyjarsýslu.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra hefst á Húsavík í dag. Fyr-
ir hádegi munu þingmenn flokks-
ins í kjördæminu og gestir ávarpa
þingið. Þar á meðal mun Stein-
grímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, flytja ávarp. Síðdegis
verða stjórnmálaumræður, nefnda-
störf, afgreiðsla mála, kosning-
ar og önnur mál.
Á sérstöku aukakjördæmis-
þingi á Hótel Húsavík á morgun
kjósa framsóknarmenn í sjö efstu
sæti framboðslista Framsóknar-
flokksins fyrir komandi alþing-
iskosningar. Kosningin er bind-
andi. Stjórn kjördæmissambands-
ins mun síðan ganga endanlega
frá lista flokksins.
Eins og áður segir hafa tuttugu
og fimm manns gefið kost á sér
í kjöri til sjö efstu sæta listans á
aukakjördæmisþinginu á morg-
un. Eftirfarandi er röð frambjóð-
enda samkvæmt útdrætti, eins og
segir í reglum um kjör þeirra.
Guðmundur Stefánsson Akur-
eyri, Guðrún Sveinbjörnsdóttir
Bárðardal, Áslaug Magnúsdóttir
Akureyri, Bjarni Aðalgeirsson
Húsavík, Bragi V. Bergmann
Akureyri, Valgerður Sverrisdótt-
ir Grýtubakkahreppi, Jón Illuga-
son Skútustaðahreppi, Sigfús
Karlsson Akureyri, Daníel Árna-
son Akureyri, Jakob Björnsson
Akureyri, Ári Teitsson Reykdæla-
hreppi, Kristján Karl Kristjáns-
son Þórshöfn, Gunnlaugur Áðal-
Lítill scndifcrðahíll valt á
gatnamótum Þingvallastrætis
og Mýrarvegar á Akureyri eftir
að hann hafði lent í árekstri við
lögreglubifreið. Lögreglubif-
reiðin var í útkalli og kom því
með blikkljósin kveikt á gatna-
mótin móti rauðu Ijósi.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni á Akureyri kom sendiferða-
bifreiðin út á gatnamótin á grænu
ljósi. Lögreglumennirnir höfðu
komið auga á bílinn og virtist
björnsson Öxarfjarðarhreppi,
Sigfríður Þorsteinsdóttir Akur-
eyri, Jóhanna Valdimarsdóttir
Eyjafjarðarsveit, Guðlaug
Björnsdóttir Dalvík, Bjarney
Bjarnadóttir Svalbarðsstrandar-
hreppi, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson Eyjafjarðarsveit, Þor-
geir Hlöðversson Ljósavatns-
hreppi, Sara Hólm Reykjahreppi,
Guðmundur Bjarnason Húsavík,
Kristján Ólafsson Dalvík, Hall-
dóra Jónsdóttir Aðaldælahreppi,
Helga Jónsdóttir Ólafsfirði og
Pétur Sigurðsson Litla-Árskógs-
sandi. óþh
þeim hann hafa stansað til að
hleypa lögreglubílnum framhjá
en svo var ekki og því skullu bíl-
arnir saman með fyrrgreindum
afleiðingum. Ökumaður sendi-
ferðabílsins var einn í bílnum og
sakaði hann ekki. Bílarnir eru lít-
ið skemmdir.
Þrír ökumenn voru teknir fyrir
of hraðan akstur á Akureyri í
fyrrakvöld og var einn ökumann-
anna sviptur ökuleyfi á staðnum.
Hann mældist á 94 km hraða inn-
anbæjar. JÓH
Eins og fram kom í Degi í gær
leggur nefnd sem fjallað hefur
um fjárhagsvanda Bjargs á
Akureyri til að ríkið leggi
fram 26 milljónir króna í því
skyni að leysa fjárhagsvanda
fyrirtækisins. Málið var rætt í
ríkisstjórn í síðustu viku og aft-
ur á fundi hennar í gær.
Þetta mál er á hendi þriggja
fagráðuneyta, félagsmálaráðu-
neytisins, menntamálaráðuneyt-
isins og heilbrigðisráðuneytisins
SigluQörður:
Engin loðna
Síldarverksmiðjur ríkisins á
Siglufírði hafa ekki fengið
neina loðnu enn. Fimm loðnu-
skip voru komin á mið út af
Vestfjörðum í gær, og voru
menn nokkuð vongóðir um að
geta hafíð veiðar á nýrri loðnu-
göngu þar.
Þörhallur Jónasson, rekstrar-
stjóri SR á Siglufirði, segir að
menn séu að vonum óhressir með
loðnuleysið. f fyrra tóku verk-
smiðjur SR í bænum á móti 20
þúsund tonnum fyrir áramót, og
þótti það frekar lélegt þá. Nú er
útlitið síst betra.
Loðnan sem veiddist fyrir Aust-
fjörðum á dögunum barst ekki til
Siglufjarðar, vegna langrar sigl-
ingar frá miðunum. EHB
auk fjármálaráðuneytisins.
Hvorki tókst að ná tali af félags-
málaráðherra né menntamála-
ráðherra í gær, en Guðmundur
Bjarnason, heilbrigðisráðherra,
sagði fyrir ríkisstjórnarfundinn
að ekki væri nóg að gera skýrslu
um þetta mál. Mikilvægt væri að
fylgja henni eftir. „Málið verður
að leysast í heild, annars er það
jafn erfitt,“ sagði heilbrigðisráð-
herra. „Það þarf af hálfu þeirra
aðila sem að málinu koma, ríkis
ins, Akureyrarbæjar og Sjálfs-
bjargar, að setjast niður og átta
sig á því hvort ntenn eru tilbúnir
til að leysa málið á þeim nótum
sem tillögur nefndarinnar gera
ráð fyrir.
Ef þetta gengur ekki eftir sýn-
ist ekkert annað blasa við Sjálfs-
björgu en gjaldþrot og þá yrði að
leita eftir sölu á eignunt félagsins.
Þó að þetta séu miklar eignir yrði í
fyrsta lagi afar sárl að þurfa að
selja þær og í annan stað er ástæða
að spyrja sig hvernig gangi að
selja þær fasteignir sem starfsem-
in er í,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur sagðist ekki
nákvæmlega vita afstöðu félags-
málaráðherra, fjármálaráðherra
og menntamálaráðherra til þessa
máls, en sá hluli þess sent að heil-
brigðisráðuneytinu snýr, endur-
hæfingin, hefur verið þar til
skoðunar.
Eins og fram kom í Degi í gær
gerir nefndin ráð fyrir að ríkið
leggi frant 7 milljónir króna til
endurhæfingarinnar.
Heilbrigðisráðherra sagði að
hlutur hans ráðuneytis væri út af
fyrir sig minnstur í þessu heildar-
dæmi og í fljótu bragði virðist
það geta fallist á tillögu nefndar-
innar um frantlag til endurhæf-
ingarinnar. „En það eru stærri
upphæðir hjá öðrum ráðuneytum
og tillögurnar gera einnig ráð fyr-
ir að Akureyrarbær korni að mál-
inu,“ sagði Guðmundur. óþh
Akureyri:
Valt eftir árekstur
við lögreglubíl