Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 5
 Miövikudagur 21. nóvember 1990 - DAGUR - 5 Jónas enn og aftur - samsett dagskrá á Sauðárkróki Dagskrár byggðar á rilverkum þekktra höfunda hafa notið mikilla vinsælda í áhugaleikhúsi undanfarin ár. Sett hafa verið upp lesin og leikin atriði. Pað hefur verið sungið, leikið og dansað af innlifun og þrótti og úr hafa orðið hinar béstu skemmt- anir, þar sem fjöldi ieikfélags- meðlima, jafnt ungir sem aldnir, hafa átt þess kost að taka þátt og iðulega stíga fyrstu skrefin á leik- sviði. Slíkt er mikils virði og mik- ill akkur, að til þess skuli gefast tækifæri. Sá höfundur, sem væntanlega hefur verið mest kynntur í sam- settum dagskrám, er Jónas Árna- son, rithöfundur, skáld og lcik- ritahöfundur. Þetta er að vonum. Verk Jónasar spanna mikið svið og fjölbreytt. Þau hafa mörg hver notið mikilla vinsælda með þjóð- inni — ekki síst sviðsverk hans og söngtextar. í þeim er gjarnan að finna leikræn tilþrif og skemmti- legt glens. Þau hafa því flest það til að bera, sem til þarf til þess að setja megi saman dagskrá fyrir skemmtilega kvöldstund. Sunnudaginn 18. nóvember frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks Jónasarkvöld sitt, sem aðstand- endur dagskrárinnar kalla „í sal hans hátignar" og höfða þar til höfundar efnisins, Jónasar Árna- sonar. Uppsetning í áhorfendasal var með óvenjulegu sniði. Leik- húsgestir sátu ekki á þverbekkj- um, eins og almennast er, heldur var borðum raðað í salinn og á þeim voru til reiðu kaffibollar og hitakönnur og kleinur fylgdu í hléinu. Ef til vill er þetta fyrirkomulag ekki notað svo tíðum sem skyldi. Yfir þessari óhefðbundnu sæta- skipan er léttur bragur sem skapar stemmningu, sem til dæm- is á vel við flutning blandaðrar skemmtidagskrár, eins og þeirr- ar sem Jónasarkvöld er. Rétt er í þessu sambandi að taka fram, að þessi háttur er ekki frumsmíði þeirra Sauðkrækinga. Þennan brag notuðu til dæmis leikfélög Hofsóss og Raufarhafnar, þegar upp var sett leikritið „Þið munið hann Jörund“ á þessum stöðum. Jónasardagskrá Leikfélags um og hnyttnum tnngangi um hans hátign, Jónas Árnason, í prýðilegum flutningi Hauks Þor- steinssonar. Síðan rak hvert atriðið annað; flest vel af hendi leyst. Of langt mál yrði hér að telja upp alla þá, sem áttu góð tilþrif. Ekki verður þó hjá því komist að geta nokkurra sérstak- lega. Knútur Ólafsson átti verulega góða spretti í leikgerð smásög- unnar „Tíðindalaust í kirkju- garðinum“. Þá var léttur og góð- ur bragur yfir leiknu atriði úr „Deleríum Búbónis", þar sem Elsa Jónsdóttir var stórgóð og unaðslega klaufaleg í ballettatriði og Haukur Þorsteinsson og Bragi Haraldsson áttu skemmtilegan samleik. Elsa flutti lagið og textann „Jón Kristófer kadett í Hernum" af næmni og skoplegri innlifun, María Gréta Ólafsdóttir brá á leik af þrótti í „Ég elska hann Jóhann“ og bráðgott atriði, sem kallað var „Óvænt uppákoma“, þar sem Jósep Svanur Jóhannes- son og Guðni Friðriksson fóru á kostum sem tvær áberandi per- sónur sín úr hvoru leikverkinu, vakti verulega kátínu þeirra, sent á horfðu og hlýddu. Ýmislegt smátt mætti að Jónas- ardagskránni finna, en þeir gallar sem voru, voru smáir á móti öllu því vel gerða og góða. Yfir flutningnum var þróttur og gleði og hressilegt tempó. Þar átti mikinn hlut fjöldi ungmenna, sem mynduðu kór og virtust njóta þess innilega að taka þátt í uppsetningunni. Þá lagði lipur- legur undirleikur lítillar hljóm- sveitar sitt til skemmtunarinnar. En ekki síst á leikstjórinn, Sig- urgeir Scheving, eindregið hrós skilið. Það hefur ekki verið vandalaust að koma þeim iðulega ólíku atriðum sem flutt voru, saman í viðhlítandi heild. Það hefur tekist vel og tryggir með öðru ánægjulegt kvöld í Leikhús- inu á Sauðárkróki á meðan Jón- asarkvöldið, „í sal hans hátignar" er þar á-fjölunuin. Haukur Ágústsson. Úr flutningi Leikfélags Sauðárkróks á verkum Jónasar Árnasonar. Sauðárkróks hófst á greinagóð- tónlist í forgörðum Drottins - nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson Sá eftirtektarverði atburður var í hátíöarguðsþjónustu í Akureyr- arkirkju þar sem minnst var fimmtíu ára afmælis kirkjunnar, að frumflutt var nýtt tónverk eftir Jón Hiöðver Áskelsson. tónskáld, sem hann samdi í tilefni afmælisins. Það er ekki á hverjum degi, sem þess gefst kostur að hlýða á ný tónverk eftir norðlenskt tónskáld. Sérlega ánægjulegt er líka, að hér er um að ræða verk, sem er talsvert metnaðarfullt í sniðum, samið fyrir kór, einsöng, orgel og blásara. Texti verksins er tekinn úr 26. og 84. sálmi Davíðs, en verkinu lýkur á Glor- ía Patri, eða Dýrð sé Guði. Verkið hefst á blásarakafla með orgeli. Síðan tekur kórinn við. í verkinu eru margir áheyri- legir kaflar og víða skemmtilega unnið með hljóma og samspil hljóðfæra og radda. Þó verður ekki sagt, að mikils nýjabrums gæti og víða virðist tónskáldið hafa fetað kunnuglegar slóðir. Á það ekki síst við í upphafs- kaflanum. Sérlega skemmtilega hefur tek- ist til með kaflann við textann „Jafnvel fuglinn hefur fundið sér hús...“ í þessum hluta tekst tón- skáldinu að vefa saman raddir flytjenda á fjörlegan og áhuga- verðan liátt. Meira hefði mátt vera af slíku. Það hefði rofið þá einhæfni, sem gætti nokkuð í verkinu. Þá hefði ekki sakað, að meira hefði verið unnið úr stefj- um og efnivið þannig gerð fyllri skil. Verkið „í forgörðum Drottins“ verður að skoðast sem byrjun. Vonandi er hún boðberi fleiri verka og meiri. Margt bendir til þess, að sú von geti átt sér grunn og eigi eftir að rætast. Flutningur verksins gekk allvel, en því miður ekki galla- laust. Kórinn stóð þó að jafnaði vel fyrir sínu, en fyrir kom til nokkurs skaða, að tónn var ekki nógu góður hjá blásurum Þar sem hér hefur verið rætt um flutning tónverks Jóns Hlöð- vers við afmælisguðsþjónustuna í Akureyrarkirkju, verður ekki svo við þessa athöfn skilist, að ekki sé minnst á fleiri tónlistar- atriði, sem vöktu sérlega athygli undirritaðs. Annað var næmlegur og góður flutningur Margrétar Bóasdóttur á 23. sálmi Davíðs, „Drottinn er minn hirðir...“ við tónlist A. Dvoraks, og hitt glæsi- legt lokaframlag organistans, Björns Steinars Sólbergssonar og blásarasveitar til afmælismess- unnar í „Nun danket alle Gott" eftir F. Liszt. Sem betur fór voru kirkjugestir beðnir að hinkra á meðan verkið var flutt, en ganga ekki út, eins og venja er við messulok. Sá ósiður mætti gjarn- an afleggjast. Þau verk, sem eru flutt í messulok í Akureyrar- kirkju, eru fyllilega áheyrnar virði og flutningur þeirra jafnan tónleika ígildi. Haukur Ágústsson. Bændur athugið! Höfum til sölu grasköggla, blandaða með fiski- mjöli. Afbragðs fengieldisfóður. Hafið samband við Pétur í síma 95-38233. Höfum til sölu hlutabréf í Sæplasti hf. og Auðlind hf. Leitið frekari uppiýsinga á skrifstofunni eða í síma 24700. Sölugengi verðbréfa þann 21. nóv. Einingabréf I ............ 5.172,- Einingabréf 2 ............ 2.805,- Einingabréf 3 ............ 3.402,- Auðlind hf .............. 1 ,003 Skammtímabréf ............ 1,739 ééf KAUPÞ/NG NÖRÐURLANDS hf Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700 n Jóla- H föndur Boðið verður upp á hópkennslu í jólaskreyting- um, mánudaginn 26. nóvember kl. 19.30 að Bjargi. Allt efni á staðnum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 26888 milli ki. 12.30 og 16.30 daglega hjá Baldri. Sjálfsbjörg. Til ættingja og vina erlendk! Sjáum um matarsendingar til vina og ættingja erlendis fyrir jólin. ★ Munið jólatilboðið á bökunarvörunum Verslið hagstætt Krónan er verðmikil hjá okkur Kjörbúð KEA 5ími 30375

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.