Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 21. nóvember 1990 Kodak Express Gæöaframköllun ★ Persónuleg jólakort með þínum myndum. i cPedíomyndir' Afsláttur í nóvembermánuði. Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Myntl: Golli „Viljum ekki sjá á eftir tog- umm úr byggðarlaginu“ - segir formaður Vöku á Siglufirði Hafþór Rósmundsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, segir að margir Siglfirðingar hafi haft áhyggjur af málefnum Þor- móðs ramma hf. í mörg ár. Á síðasta aðalfundi fyrirtækisins lýsti Hafþór, ásamt varafor- manni Vöku, því yfir að yfir- stjórnun Þormóðs ramma hafi ekki að neinu leyti verið undir beimamönnum komin um langt skeið. Hafþór segir að fréttirnar um vilja fjármálaráðuneytisins til að selja hlutabréf ríkisins í Þormóði ramma hf. hafi komið sér og fleirum algjörlega á óvart. Óviss- an um opinberar aðgerðir í málefnum fyrirtækisins, sem er svo að segja algjörlega í eigu ríkisins, sé komin undir ákvörð- unum fjármálaráðherra á hverj- um tíma. I þeirri stöðu sem upp Iðnaðarráðuneytið: Endurgreiðsla vegna álmálsins Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, hefur ákveðið að endur- greiða Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar og Akureyrarbæ tvo þriðju hluta kostnaðar sem þessir aðilar urðu fyrir af álmálinu svonefnda. Upphæð- in er nokkuð á fimmtu milljón króna. Jón Sigurðsson ræddi við bæjaryfirvöld að loknum fundi um íslenskt atvinnulíf á Akureyri sl. föstudag. Heimir Inginiars- son, formaður atvinnumála- nefndar, greindi frá þessu á fundi bæjarstjórnar í gær. Heimir sagði að viðræðurnar við iðnaðarráð- herra hefðu verið gagnlegar, og hefði hann heitið Eyfirðingum stuðningi í ýmsum málum sem falla undir ráðuneytið. EHB er komin sé mikilvægast að halda hlutabréfunum í Þormóði ramma í eigu heimamanna. í fjármálaráðherratíð Alberts Guðmundssonar var Þormóður rammi settur á skrá yfir fyrirtæki sem ráðuneytið óskaði eftir að selja, þótt ekkert yrði úr sölu. „Óvissan um fyrirtækið stafar einmitt af ríkiseigninni," segir Hafþór. „Við viljum ekki sjá á eftir togurunum úr byggðarlag- inu, ef einhverjum fjármálaráð- herranum dytti í huga að selja,“ segir hann. Ýmsir velta því fyrir sér hvort Siglfirðingar hafi bolmagn eða getu til að kaupa hlutabréf ríkis- ins, en í krónum talið losar hluta- féð 400 milljónir. Hafþór bendir á að hugsanlegt sé að nafnverð bréfanna sé lægra, og Atvinnu- tryggingasjóður hafi t.d. staðið frammi fyrir því að hlutafé hafi verið allmiklu lægra metið í fyrir- tækjum en krónutala um skráð hlutafé segði til um. Þá væri hugsanlegt að ríkið auðveldaði heimamönnum með einhverjum hætti að kaupa hlutabréfin. EHB Hvar skyldi minn nú vera? Stækkun flugstöðvar á Akureyri gæti verið skammt undan: „Iit á stækkun stöðvarinnar sem lið í vaxandi hlutverki flugvallarins“ - segir Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra Styrkir úr Próunar- sjóði leikskóla,- Sunnuból fékk 200 þúsund Dagheimiliö Sunnuból á Akureyri hefur fengið 200.000 króna styrk úr Þró- unarsjóði leikskóla en alls fengu sjö dagvistir styrk úr sjóönum á þessu ári. Sunnu- bói fær styrkinn vegna athugunar á því hvort ann- ars vegar greining og hins vegar meðferð þroskaheftra inni á dagheimili/leikskóla sé heppileg og árangursrík. Styrkir úr Þróunarsjóði leik- skóla eru veittir vegna nýjunga, tilrauna og nýbreytni í uppeldisstarfi og er þetta annað árið sem sjóðurinn er starfræktur. Sjóðurinn fékk 3,4 milljónir til umráöa og veitti á þessu ári styrki til 7 verkefna í jafnmörgum leik- skólum. í úthlutunarnefnd sem met- ur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar eru ein fóstra, einn sálfræðingur og deildar- stjórar grunnskóladeildar og lcikskóladeildar menntamála- ráðuncytisins. Menntamála- ráðherra hefur nú staðfest til- lögur nefndarinnar. Sunnuból, sem Akureyrar- bær rekur, er cina dagvistin utan höfuðborgarsvæðisins scm fékk styrk. Hinar dagvist- irnar eru Hálsaborg, Ásborg, Furuborg og Ós í Reykjavík og Leikskólinn við Hjalla- braut og Hvammur í Hafnar- firði. SS „Af hálfu samgönguráðuneyt- isins og flugmálastjórnar er stækkun flugstöðvar á Akur- eyri sem og önnur málefni Akureyrarflugvallar í skoðun. Þetta tengist líka hugmyndinni um varaflugvöll á Akureyri og innanlandsfluginu og aðstöð- Nær öruggt er að á fundi stjórnar Hlutafjársjóðs á morgun fáist úr því skorið hvort Sæberg hf. í Ólafsfirði kaupir hlut Hlutafjársjóðs í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf. Samkvæmt heimildum Dags eru miklar líkur á að samning- ar takist milli allra þeirra aðila sem að þessu máli koma og Sæberg kaupi hlut Hlutafjár- sjóðs í Hraðfrystihúsinu. Síðustu daga hafa verið stíf fundahöld um hugsanleg kaup Sæbergs hf. á 48% hlut sjóðsins í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf. í fyrradag var fundur í Reykjavík þar sem forsvarsmenn Hlutafjár- sjóðs, Sæbergs hf., bæjarstjórinn unni sem þarf að bæta til að þjóna því. Ég lít því á stækkun flugstöðvarinnar sem lið í vax- andi hlutverki flugvallarins í heild,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra. Steingrímur segir að brýna nauðsyn beri til að bæta aðstöð- í Ólafsfirði og bæjarráðsmenn í Ólafsfirði fóru yfir stöðuna. Með þessum fundi vildi Hluta- fjársjóður m.a. fá fram skýra afstöðu bæjaryfirvalda í Ólafs- firði til kaupa Sæbergs hf. á hlut sjóðsins í HÓ, en forsvarsmenn Hlutafjársjóðs leggja mikla áherslu á að bæjaryfirvöld í Ólafsfirði leggi blessun sína yfir sölu sjóðsins til annarra aðila, í þessu tilfelli Sæbergs hf. Sam- kvæmt heimildum Dags er ekki andstaða innan bæjarstjórnar Ólafsfjarðar við þessa skipan mála1 og nt.a. í ljósi þess eru allar líkur á að á ntorgun verði gengið frá sölusamningi á 48% lilut Hluta- fjársjóðs í Hraðfrystihúsi Ólafs- fjarðar hf. óþh una á vellinum bæði fyrir farþega í innanlandsflugi og í millilanda- flugi. „Staðreyndin er sú að við erum minnst að hugsa um þá stöðu sem upp kemur þó að þarna lendi vélar sem nota völlinn sem varaflug- völl. Slík staða kemur tiltölulega sjaldan upp. Því erum við ekkert síður að hugsa um að á Akureyr- arflugvelli verði þokkaleg að- staða fyrir hendi þannig að milli- landaflug geti farið samtímis innanlandstlugi um völlinn án þess að valda röskun. Við erum líka að hugsa um beina flugið milli Akureyrar og Keflavíkur en við höfum séð það þannig fyrir okkur að þeir farþegar sem nota sér þennan möguleika fái toll- Ellefu umsóknir höfðu borist í gær um stöðu framkvæmda- stjóra Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar, en umsóknarfrestur um hana rann út í gærkvöld. Kristján Þór Júlíusson, for- maður stjórriar Iðnþróunarfé- lagsins, átti í gær allt eins von á að fleiri umsóknir ættu eftir að skoðun og vopnaleit á 'Akureyri þannig að í Keflavík geti þeir gengið beint um borð í milli- landaflug. Þetta eru hlutir sem við erum að skoða nú,“ segir Steingrímur. í fjárveitinganefnd Alþingis er nú til umfjöllunar beiðni um fjár- veitingu til Akureyrarflugvallar þannig að hann geti þjónað sem varavöllur strax á næsta ári. Til þess þarf bæði aukinn mannskap og viðbót við tæki vallarins en Steingrímur segir að jafnframt muni rekstrarkostnaður á vellin- um aukast og þvf sé hér um tals- verða upphæð að ræða. En hver niðurstaðan verður mun ráðast við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi fyrir áramót. JÓH berast. Kristján Þór sagði að stjórn Iðnþróunarfélagsins myndi skoða umsóknirnar fljótlega og í fram- haldi af því yrði væntanlega tekin ákvörðun um hver yrði ráðinn. Gert er ráð fyrir að nýr fram- kvæmdastjóri taki við af Sigurði P. Sigmundssyni unt næstu ára- mót. óþh Hraðfrystihús Ólafsíjarðar: Miklar líkur á undirritun sanuiinga við Sæberg hf. - líklega gengið frá málinu á morgun Nýr framkvæmdastjóri IE: Ellefu umsóknir hafa borist um stöðuna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.