Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 21.11.1990, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 21. nóvember 1990 - DAGUR - 11 íþróttir F Handknattleikur: Alfreð hugsanlega með KA næsta vetur Hugsanlegt er að handknatt- leiksmaðurinn Alfreð Gíslason leiki með KA á næsta tímabili. Alfreð, sem er Akureyringur, leikur sem kunnugt er með spænska liðinu Bidasoa. „Eins og staðan er í dag þá hreinlega nenni ég þessu ekki lengur hérna úti. Og ef maður fer heim Iiggur nokkuð beint við að fara í KA,“ segir Alfreð. Alfreð hóf ferilinn hjá KA en fór síðan til KR áður en hann gerðist atvinnumaður með Essen í V.-Pýskalandi árið 1983. Par dvaldist hann í 5 ár, fór þá heint og lék með KR eitt tímabil áður en hann hélt til Spánar. Samning- urinn við Bidasoa rennur út í vor og hann hefur hug á að halda heim. „Þeir hafa minnst á að frantlengja samninginn um 1-2 ár en ég hef ekki viljað ræða það strax enda orðinn hálfleiður á þessu. Þá spilar það líka inn í að strákurinn minn verður 8 ára á næsta ári og það verður að taka ákvörðun um hvort hann fer í skóla heima eða heldur áfram hér. Það hlýtur að koma að því að maður hætti þessu hérna úti og fari heim og líklegt að ég geri það eftir þetta tímabil þótt það sé ekki endanlega ákveðið." Síðast ineð KA 1979 Alfreð segir að ef hann fari heim öruggt að hann setjist se að á Akureyri og þá fari hann í KA. Hann spilaði síðast með liðinu árið 1979. „Ég get nú varla talað um að spila með gömlu félögun- um því þeir eru flestir hættir. Ég held að Erlingur sé sá eini í liðinu í dag sem var byrjaður þá. Byrj- unarliðið þetta tímabil var þann- ig að Magnús Gauti var í mark- inu og Leibbi í vinstra horninu. Ég var úti vinstra megin, gott ef Hemrni Haralds var ekki á lín- unni og Jói Einars hægra megin. Guðbjörn Gísla var svo í hægra horninu og Gunni bróðir á miðj- unni. Þetta var alveg klassalið og gaman að spila með þessum körlum." „Zorró“ Alfreð hefur átt í nokkrum meiðslum síðan hann fór til Spánar. „Ég sleit vöðva neðst í maganum sl. vor og spilaði því með staðdeyfingu síðustu 5 leik- ina. Afleiðingarnar voru þær að megnið af júní gat ég varla geng- ið og ekkert æft fyrr en í sept- ember eða október. Síðan hef ég lent í ýmsum smámeiðslum, fór t.d. úr lið á putta og nefbrotnaði núna síðast." Þess má geta að hann hefur leikið með grímu í síðustu leikjum vegna nefbrots- ins og varð það til að félagi hans Handknattleikur, 3. flokkur: Völsungar unini alla sína leikí - KA og Þór áfram í 2. deild Um síðustu helgi fóru fram fyrstu umferðirnar í 3. flukki Islandsmótsins í handknatt- leik. A Akureyri var leikið í 2. deild og þar voru KA og Þór meðal þátttakenda en á Húsa- vík var leikið í b-riðli 4. deildar þar sem Völsungar áttu lið. Á Akureyri höfðu FH-ingar töluverða yfirburði og hlutu 10 stig úr 5 leikjum og sæti í 1. deild ásamt Stjörnunni sem varð í 2. sæti með 7 stig. KA-menn urðu í 3. sæti með 6 stig en liðið sigraði Þór 18:16, Víking 20:12, UMFN 14:13 en tapaði 11:13 fyrir FH og 14:17 fyrir Stjörnunni. Þórsarar utðu í 4. sæti með 4 stig. Liðið sigraði UMFN 19:18 og Víking 19:18 en tapaði fyrir KA 16:18, FH 17:20 og Stjörnunni 17:21. UMFN og Víkingur féllu í 3. deild. Á Húsavík voru Völsungar tvimælalaust með sterkasta liðið og unnu alla sína leiki, UMFB 19:10, HK 18:16, Leikni 14:12 og Aftureldingu 16:14. Liðið leikur því í 3. deild í næstu umferð. Sigurður Sveinsson fór að kalla hann Zorró. Með í B-keppninni? Það hefur kvisast út að Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþj álfari, hefur rætt við Alfreð um að leika með landsliðinu í B-keppninni í Austurríki en hann hafði áður lýst því yfir að hann væri hættur. „Jú, hann var búinn að spyrja mig hvort ég væri tilbúinn til að konta inn í liðið ef á þyrfti að halda. Ég held að hann hafi þá aðalléga verið að hugsa um vörn- ina. Ég verð 33 ára þegar þetta verður og það er aldrei að vita hvernig aðstæður verða. Ég hef því engin svör getað gefið en það getur verið að ég slái til ef á þarf að halda," sagði Alfreð Gíslason. Alfreð Gíslason: „Hreinlega nenni þessu ckki lengur hérna úti." Handknattleikur, 1. deild: KA-menn lágu á Selfossi - Andrés frá vegna meiðsla KA-menn máttu þola ósigur gegn botnliði Selfyssinga i VlS-keppninni í handknattleik í gærkvöld. Leikurinn fór fram á Selfossi og urðu lokatölur hans 21:18 eftir að staðan hafði verið 8:8 í leikhléi. Við þennan sigur færðust Selfyssingar upp í 10. sæti deildarinnar en KA- menn sitja áfram í 8. sæti með 9 stig. Selfyssingar skoruðu fyrsta mark leiksins en síðan náðu KA- menn forystunni og héldu henni allt fram að lokurn fyrri hálfleiks. Munurinn varð tvisvar sinnum þrjú mörk en á lokamínútunum tókst heimamönnum að jafna. í seinni hálfleik náðu KA- menn fljótlega aftur þriggja marka forystu. Þá tóku Selfyss- ingar Hans Guðmundsson úr um- ferð og við það raskaðist sóknar- Blak, 1. deild kvenna: KA-Völsungur í höllinni Einn leikur fer fram í I. deild kvenna í blaki á Akureyri í kvöld. KA og Völsungur mætast í íþróttahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 19. Aðalfundur GA: Gott hljóð í fundarmöimum - stjórnin öll endurkjörin Aðalfundur Golfklúbbs Akur- eyrar var haldinn í golfskálan- uin að Jaðri sl. miðvikudag. Um 60 manns sóttu fundinn sem er einn sá. fjölmennasti frá upphafí. Stjórn klúbbsins var öll endur- kjörin en hana skipa Ragnar Steinbergsson, formaður, Þórar- inn B. Jónsson, varaformaður, Jón B. Hannesson, ritari, Karó- lína Guðmundsdóttir, gjaldkeri, Viðar Þorsteinsson, formaður vallarnefndar, Stefán Einarsson, formaður kappleikjanefndar, og Árni Ketill Friðriksson, formað- ur forgjafarnefndar. Gott hljóð var í fundarmönn- um enda gekk starfið vel á árinu. Meðlimum fjölgaði um 80 manns og fjármálin eru komin í þokka- legt horf eftir erfiða tíma. Klúbb- urinn sá um að halda Landsmót sem heppnaðist geysilega vel og miklar vonir eru bundnar við Arctic Open miðnæturmótið sem vakið hefur dágóða athygli erlendis og fer stöðugt stækk- andi. Axel Stcfánsson var langlsestur KA- rnanna. leikur KA-manna. Með mikilli baráttu náðu Selfyssingar að jafna metin og komast þremur mörkum yfir fyrir leikslok. Þetta var mikill baráttuleikur og þrátt fyrir ósigur var þetta skásti leikur KA-manna um tíma. Þeir söknuðu Andrésar Magnússonar sem meiddist á æfingu fyrir leik og verður frá um tíma og þá var Erlingur Kristjáns- son ekki fullfrískur. Hann stóð Handknattleikur 1. deild 13. umferð: Víkingur-IR 24:22 Haukur-KR 32:28 Fram-IBV 22:22 FH-Valur 30:27 Selfoss-KA 21:18 Grótta-Stjarnan 26:29 Víkingur 13 13-0- 0 319:272 26 Valur 13 10-1- 2 316:281 21 Stjarnan 13 10-0- 3 320:298 20 FH 13 7-2- 4 310:298 16 Haukar 12 7-0- 5 281:289 14 KR 13 3-6- 4 299:307 12 ÍBV 12 4-3- 5 291:284 11 KA 13 4-1- 8 302:291 9 Grótta 13 3-1- 9 286:305 7 Selfoss 13 2-3- 8 261:296 7 Fram 13 1-4- 8 264:300 6 ÍR 13 2-1-10 278:310 5 sig þó ágætlega en langbesti mað- ur KA-liðsins var þó tvímæla- laust Axel Stefánsson sem varði mjög vel. Þá var Hans sterkur þar til liann var tekinn úr umferð. Selfyssingar léku nú mun betur en í fyrri leik liðanna á Akureyri sem KA-menn unnu með 15 marka mun. Einar Sigurðsson var þeirra besti maður. Mörk Selfuss: Einur Sigurðsson 9, Gústaf Bjarnason 6. Einar Guðmundsson 3, Sverrir Einarsson 2, Stefán Halldórsson I. Mörk KA: llans Guðmundsson 8/3, Er- lingur Kristjánsson 3, Guðmundur Guðmundsson .3, Jóhannes Bjarnason 2, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson I. Petur Bjarnason 1. Dömarar: Ævyr Sigurðsson og Grétar Vilmundarson. Knattspyrnudeild KA: Aðalliindur í kvöld Aðalfundur knattspyrnudeildar KA verður haldinn í KA-heimil- inu í kvöld og hefst hann kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Knattspyrnudómarar: Aðalfundur KDE í kvöld Aðalfundur Knattspyrnudóm- arafélags Eyjafjarðar verður haldinn í kvöld, miðvikudag- inn 21. nóvember, kl. 20.30 í Glerárskóla á Akureyri (geng- ið inn að sunnan). Auk venjulegra aðalfundar- starfa og annarra mála verður rætt um ársþing Knattspyrnu- dómarasambands íslands sem verður haldið í Ártúni, Vagn- höfða 11 í Reykjavík, laugardag- inn 24. nóvember nk. kl. 14.00. Félagar í KDE eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.