Dagur - 23.11.1990, Page 3
Skuld Ú.A. við
Akureyrarbæ:
468 þúsund
enekki
52 milljórnr
Bæjarritaranum á Akureyri
hefur verið falið að ganga frá
uppgjöri á gamalli skuld
Útgerðarfélags Akureyringa
hf. við Frarnkvæmdasjóð
Akureyrarbæjar, en skuldin er
vegna lána til togarakaupa fyr-
ir allmörgum árum.
Bæjarráð lagði til að frá þessu
máli yrði gengið, á fundi 15. þ.m.
Framkvæmdasjóður lánaði
Útgerðarfélaginu vegna kaupa á
togurunum Kaldbak og Harðbak
frá Spáni á árunum 1975 til 1978.
í skilmálum lánsins er ekki gert
ráð fyrir að það sé bundið verð-
tryggingu eða vöxtum.
Arið 1974 voru sett lög um
opinberar lánveitingar til togara-
kaupa. Nokkrar útgerðir fengu
skip á þeim tíma frá Spáni, m.a.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og
BÚR. Ákveðið framlag átti að
koma frá sveitarfélögum á móti
framlagi ríkisins í svokölluð 18
ára lán. Samkvæmt skilmálum
átti ekki að hefja greiðslu á lán-
um þessum fyrr en 1992 hvað
Ú.A. snertir. Upphæð sú sem
Ú.A. skuldar Akureyrarbæ af
láni þessu er 468 þúsund krónur í
dag, en sl. vetur var því haldið
fram, m.a. í fyrrverandi bæjar-
stjórn, að framreiknuð upphæð
eftirstöðva væri 52 milljónir
króna. Þetta reyndist þó fjarri
sanni, þegar farið var að skoða
málin. EHB
Sundlaug og íþrótta-
hús á Siglufirði:
Reksturirm
boðinn út
Bæjaryílrvöld á Siglufirði hafa
ákveðið að bjóða út rekstur
sundlaugar og íþróttahúss.
Þetta er gert til að freista þess
að ná fram sparnaði í rekstri
bæjarins.
„Útboðsgögn eru tilbúin fyrir
þetta útboð,“ sagði Kristján
Möller, forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar. „Við viljum reyna
þessa leið og sjá hvort við getum
ekki fengið hagstæðari tilboð í
þetta en við borgum með þessu í
dag. Við erum að prófa það að
gefa einstaklingum, fjölskyldum,
fyrirtækjum eða hverjum sem er
tækifæri á að taka að sér þennan
rekstur eftir ákveðnum skilyrð-
um sem við setjum,“ sagði
Kristján. óþh
Leiðrétting:
Lækkun en
ekki hækkun
Inn í frétt Dags í gær af rekstr-
arafkomu Kaupfélags Eyfirð-
inga fyrstu níu mánuði ársins
slæddist ein meinleg villa.
í fréttinni var m.a. sagt að
heildarlaunagreiðslur KEA á
þessu níu mánaða tímabili hefðu
numið 860 milljónum króna og
hefðu hækkað um 17 milljónir
króna milli ára. Hið rétta er að
heildarlaunagreiðslur KEA lækk-
uðu um 17 milljónir króna milli
ára.
Föstudagur 23. nóvember 1990 - DAGUR - 3
V/elkomin í
________rft.________________
Geislagötu 14
Opnum nýja
glæsilega
verslun
T dag
í tilefni dagsins bjöðum við 14" Philips
litsjónvarpstæki á aðeins kr. 24.900 staðgreitt
Qæðatæki á einstöku verði
Sanyo örbylguofn CM-1414
Verð frá kr. 19.900 staðgreitt
Funai örbylgjuofn EM-1614
Verð frá kr. 25.900 staðgreitt
Akai videóspólur 5 stk. T pakka á 499 kr. stk.
Munið 18 mánaða greiðslukjörin
Líttu inn — það er heitt á könnunni
PHIUPS
RdDIO
Þetta leiðréttist hér með og
biðst Dagur velvirðingar á þess-
ari missögn.
Geislagötu 14