Dagur - 04.12.1990, Page 6

Dagur - 04.12.1990, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 4. desember 1990 MEISTARAFÉLAG BYGGINGAMANNA NOROJRLANDI Meistarar! Muniö aö mæta á félagsfundinn miövikudaginn 5. desember kl. 20.15 að Hótel KEA. * Ar læsis „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft“ Stjórnin. Pað ár sem nú er senn að renna sitt skeið hefur verið kennt við læsi og mikilvægi góðrar lestrar- kunnáttu fyrir einstaklinginn. Pví er ekki úr vegi að hefja þetta greinarkorn á því að skilgreina nokkuð hvað flest í því að vera læs. Samkvæmt skýringu Orðabók- ar Menningarsjóðs merkir þetta orð að viðkomandi kunni að lesa. En hvað er þá það að kunna að lesa? Er hægt að segja að sá sem stautar sig fram úr orðum sé læs á sama hátt og sá sem les samfelld- an texta erfiðislaust og af fullum skilningi? Flestir sem til þekkja vita svarið: Til að teljast læs í orðsins fyllstu merkingu þarf viðkomandi að vera fær um að skilja orðanna hljóðan og yfirfæra merkingu þeirra, sjálfum sér til aukins skilnings og þroska. En til þess að svo megi verða þarf að leggja traustan grunn að því sem þar skal byggt ofan á. Eitt af því sem hollt er að hafa fyrir börnum er góðar bækur sem fræða þau, skemmta þeim og auka þeim skilning á daglegu lífi sínu og umhverfi. Og er þá enn ótalinn sá þáttur sem ef til vill er mikilvægastur. Vandaður texti örvar málþroska barna, eykur orðaforðann og auðveldar þeim alla framsetningu ritaðs og talaðs máls. Barn sem snemma verður læst og haldið er að lestri góðra Röð greina um lestur og lestrarkunnáttu Laugardaginn 8. desember verður efnt til viðamikillar dagskrár í Samkomuhúsinu á Akureyri í tilefni af ári læsis. Fjölmargir aðilar á Norðurlandi eystra; félagasamtök, nefndir og stofnanir, hafa haft veg og vanda að skipulagningu þessarar dagskrár. Liður í undirbún- ingnum er að kynna málefnið sem best og hefur undirbúningshópur- inn fengið Dag í lið með sér í þeim tilgangi. Næstu daga munu því birtast hér í blaðinu greinar sem fjalla um lestur og lestrarkunnáttu út frá mismunandi sjónarhorni. Vonandi hafa lesendur Dags bæði gagn og gaman af. Ritstj. Kristín Árnadóttir. bóka nær fyrr og betur tökum á þeim dýrmæta þætti mannlegra samskipta sem málið er og á þapnig auðveldari vegferð fyrir IÞR0TTAV0RUR í HÆST& GÆÐAFLOKKI • LÚFFUR • SOKKAR • INNISKÓR • STUTTBUXUR • SUNDFATNAÐUR • SKAUTAR • BOLTAR O.FL. • SKIÐAGALLAR • ÚLPUR • GALLAR • SKÓR • TÖSKUR • BOLIR • HÚFUR ÞROTTAVORUVERSLUN Strandgötu 6, sími 27771. Opið frá kl. 9.30-18.00, laugard. kl. 10.30-12.30. höndum en sá sem ekki fær tjáð hugsanir sínar með eðlilegum og óþvinguðum hætti. En hvað er þá góð bók? Flvaða skilyrði þarf hún nað uppfylla? Flestir geta verið sammála um að til barnabóka megi gera þrjár meginkröfur: Að þær hafi upp- eldislegt gildi, að þær hafi fræðslugildi og að þær hafi skemmtigildi. Uppeldislegt gildi felst í mörg- um þáttum, en sá sem e.t.v. verð- ur fyrst fyrir er málfar bókarinnar og stíll sem hefur mikil áhrif á lesandann og því mikilvægt að til þeirra hluta sé vandað. Hug- myndafræði og gildismat síast einnig auðveldlega inn í unga barnshugi og fela þannig í sér ákveðna innrætingu, bæði með- vitaða og ómeðvitaða. Með fræðslugildi er átt við að bókin gefi réttar upplýsingar um lífið og tilveruna umhverfis okk- ur þannig að lesandinn standi fróðari eftir. Priðja þáttinn, þ.e. skemmti- gildið, er erfiðast að skilgreina, en það þýðir ekki að hann skipti minna máli en hinir tveir fyrr- nefndu. Skemmtigildi getur falist í lifandi og skemmtilega skrifuð- um texta, í frásögnum og lýsing- um á spaugilegum atvikum og í spennu. Góð barnabók verður að búa yfir hæfilegu samblandi af öllum þessum þáttum, en einnig er mikilvægt að þeir séu svo vel samofnir að ekki verði raktir liver frá öðrum með góðu móti. Á síðustu árum hefur bókin átt nokkuð undir högg að sækja í samkeppninni við ýmsa fjölmiðla sem stöðugt seilast lengra í bar- áttunni um brauðið. Sömuleiðis virðist nú nokkuð ríkjandi við- horf að það sé af hinu illa að börn séu ein með sjálfum sér stund úr degi hverjum og öllum ráðum beitt til að koma í veg fyrir slíkt með óþrjótandi framboði á hvers kyns tómstundaiðju. Er svo kom- ið fyrir sumum börnum að dagur þeirra er skipulagður frá morgni til kvölds, jafnvel að undirlagi foreldra, og það gefur auga leið að ekki gefast margar stundir til bóklestrar eða annarrar friðsællar iðju sem eflir hugsun og andlegan þroska og eykur sálarró. Hér þarf að snúa vörn í sókn og efla þátt bókarinnar í daglegu lífi Larna sem mótvægi við þann háværa og óþolinmóða heim sem nútíminn býr þeim og gera þeim bókina að vini sem ekki bregst. Allir sem ætluð er umsjá barna, hvort heldur er sem for- eldrar, kennarar eða starfsmenn á dagvistarstofnunum barna, tak- ast á hendur það verk að hafa bækur fyrir börnunum og þurfa þá að gera sér skýra grein fyrir því hvað þeir eru að bjóða upp á. Við lesum fyrir börn, kaupum handa þeim bækur eða ráðleggj- um þeim um bókalán á söfnum og höfum þannig afgerandi áhrif á lestrarvenjur þeirra og smekk. En sjóndeildarhringur barna, hugmyndaheimur þeirra og and- legur þroski hlýtur að mótast af því sem fyrir þeim er haft, þeim þroskaferli sem þeim er búinn. Pví er ótrúlega áríðandi að allir uppalendur geri sér ljósa grein fyrir mikilvægi barnabókarinnar tyrir þann þroskaferil og þá veg- ferð sem hann á að stýra. Kristín Árnadúttir. Höfundur er íslenskukennari viö VMA.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.