Dagur - 04.12.1990, Side 7
Þriðjudagur 4. desember 1990 - DAGUR - 7
KA-mcnn eru stórveldi í íslensku júdó. Þeir unnu tvo titla um helgina en voru óheppnir í keppni í fullorðinsflokki.
55
Eyjólfur skoraði á föstudaginn:
Jolly Joker“ með
góð spil á hendi
segir Bild um Eyjólf
Þýska blaðið Bild kallar Eyjólf
Sverrisson „Jolly Joker“ eftir
að hann skoraði sigurmark
Stuttgart gegn 2. deildarliðinu
Preusen Miinstcr í bikar-
keppninni á föstudagskvöld. í
blaðinu segir að „Jolly“ hafí
mjög góð spil á hendi gagnvart
Christoph Daum, þjálfara
Stuttgart, og hann hafí skotið
þeim frægu leikmönnum Walt-
er og Kastel ref fyrir rass þann-
ig að þeir eigi síður en svo vís
sæti í liðinu á næstunni.
„Joker“ er þýska heitið á hesti
Lukku-Láka og er þarna vísað
Sveitakeppni íslands í júdó:
KA vann tvo flokka af þremur
Sveitakeppni íslands í júdó fór
fram í Grindavík á laugardag-
inn. Keppt var í drengja-, ungl-
inga- og fullorðinsflokki og
áttu KA-menn sveit í hverjum
flokki. Árangur Akureyring-
anna var góður eins og við
mátti búast, þeir unnu tvo
flokka en máttu sætta sig við
þriðja sætið í fullorðinsflokki.
f drengjaflokki höfðu KA-
menn mikla yfirburði og sigruðu
Knattspyrna:
KA-menn leita
að útlendingum
- hafa augastað á júgó-
slavneskum 1. deildarleikmanni
Knattspyrnudeild KA hefur
ákveðið að leita út fyrir
landsteinana að leikmönn-
um fyrir næsta keppnistíma-
bil. Deildin hefur nú auga-
stað á júgóslavneskum sókn-
arleikmanni scm leikur í 1.
deild en hyggst einnig leita
fyrir sér í öðrum löndum.
Aö sögn Sveins Brynjólfsson-
ar, formanns knattspyrnudeild-
ar KA, er hugmyndin sú aö fá
einn eða tvo erlenda leikmenn
og væri deildin með augastað á
þessum tiltekna Júgóslava. Þá
stæði tii aö kanna málin í
Tékkóslóvakíu og hugsanlega
Búlgaríu.
KA-menn hafa ckki haft er-
lenda leikmenn í sínum röðum
til þessa þannig að hér er um
ákveðna stefnubreytingu að
ræða. Sveinn sagði að mörg
önnur lið væru komin með
erlenda leikmenn eöa á höttun-
um eftir þeim þannig að segja
mætti að þetta væri svar við
samkeppninni. „Auðvitað von-
umst við einnig til þess aö góöir
innlendir leikmenn sjái sér hag í
að spila með okkur og við höf-
um kannað þau mál að undan-
förnu. Við höfunt misst menn
og það er alveg ljóst að ef við
ætlum okkur að ná viöunandi
árangri í 1. deildinni þá verðum
við að styrkja liðið á móti,"
sagði Sveinn Brynjólfsson.
Akureyri:
Kylfingar með aðventumót
Þrátt fyrir að komið sé fram í
desember eru kylfíngar á
Akureyri ekki af baki dottnir
og á sunnudaginn slógu þeir
upp aðventumóti á Jaðarsvelli.
Leiknar voru 9 holur með for-
gjöf og varð Þór Árnason sig-
urvegari, hann lék á 28 höggum
netto.
Jafnir í 2.-3. sæti urðu Sævar
Gunnarsson og Guðjón Guð-
mundsson á 29 höggum. Sævar
lék á 34 höggum brúttó sem var
besta skor sem náðist í mótinu.
Kylfingum má benda á að golf-
skálinn að Jaðri er opinn að
vetrarlagi og þar geta meðlimir
GA brugðið sér í billiard eða gert
sér annað til dundurs.
með glæsibrag. Sveitina skipuðu
þeir Víðir Guðmundsson, Smári
Stefánsson, Ómar Arnarson og
Friðrik Pálsson. Þess má geta að
einn úr sveitinni forfallaðist á síð-
ustu stundu þannig að drengirnir
þurftu að byrja hverja viðureign
einum vinningi undir en það kom
ekki að sök.
I unglingaflokki voru yfirburði
KA einnig miklir þrátt fyrir að
þar vantaði einn mann eins og í
drengjaflokknum og sveitin vann
öruggan sigur. Hana skipuðu þeir
Sævar Sigursteinsson, Baldur
Stefánsson, Freyr Gauti Sig-
mundsson og Arnar Hreinsson.
í fullorðinsflokki keppti ungl-
ingasveitin að viðbættum þeim
Guðlaugi Halldórssyni, Jóni
Óðni Óðinssyni og Torfa Ólafs-
syni. Keppnin var mjög hörð og
jöfn og stóð baráttan á milli KA,
Ármanns og UMFG. Heppnin
var ekki með KA að þessu sinni,
Freyr Gauti slasaðist í keppni við
UMFG og höfnuðu KA-menn
því í þriðja sæti. Freyr Gauti
verður frá æfingum og keppni í
fimm vikur.
Þess má geta að ummæli
Bjarna Felixsonar í íþróttaþætti
Sjónvarpsins á laugardag vöktu
kátínu meðal júdómanna á
Akureyri. Bjarni greindi þar frá
úrslitum mótsins og sagði greini-
legt að uppgangur væri í júdó á
Akureyri. KA vann drengjaflokk-
inn sjötta árið í röð og unglinga-
flokkinn þriðja árið í röð þannig
að sá uppgangur er búinn að
standa nokkuð lengi.
til dugnaðar Eyjólfs.
Leikurinn á föstudagskvöldið
var liður í 16 liða úrslitum og fór
fram í Múnster. Eyjólfur skoraði
eina mark leiksins á 66. mínútu
þegar Gaudhino skallaði inn í
teiginn eftir aukaspyrnu All-
göwers og þar var Eyjólfur á auð-
um sjó og skoraði af öryggi.
Leikurinn þótti ekki merkileg-
ur en Eyjólfur fær þó ágæta dóma
fyrir sína frammistöðu. Bild
segir, að auk þess að vera búinn
að tryggja sér sæti í liðinu fyrir
næsta leik, sé Eyjólfur búinn
auka verulega líkur sínar á að fá
betri samning hjá félaginu en
hann er nú á svokölluðum áhuga-
mannasamningi.
Stuttgart leikur á útivelli gegn
Hamburg á laugardaginn og hef-
ur Daum lýst því yfir að hann sjái
ekki ástæðu til að gera breytingar
á fremstu víglínu liðsins. Stutt-
gart er í 13. sæti deildarinnar
með 12 stig en Hamburg í 8. sæti
með 16 stig.
ES-Þýskalandi/JHB
Eyjólfur „Jolly“ Sverrisson.
Ársþing KSÍ:
Áhugamannaregliimar afnumdar
- Stefán Gunnlaugsson í aðalstjórn
- Tindastóll fékk Dragóstyttuna - tillaga um
breytingar á 3. og 4. deild kolfelld
45. ársþing KSÍ var haldið í
ráðstefnusal Hótel Loftleiða
um helgina. Þar voru að venju
tekin fyrir fjölmörg mál og var
m.a. samþykkt nær óbreytt til-
laga milliþinganefndar um
félagaskipti leikmanna og
afnám áhugamannareglna. Á
þinginu kom fram að rekstur
KSI gekk vel á árinu og var
sambandið rekið með 21 millj-
ón króna hagnaði.
Tillagan um félagaskipti og
afnáni áhugamannareglna felur í
sér þá grundvallarbreytingu að
félögum í L, 2. og 3. deild er
heimilt að gera samninga við
leikmenn og leikmönnum er nú
heimilt að taka við greiðslum fyr-
ir knattspyrnuiðkun þótt þeir séu
enn áhugamenn samkvæmt skil-
greiningu. Við verðlagningu er
gert ráð fyrir grunngjaldi fyrir
leikmann sem ekki hefur verið á
samningi en ef leikmaður skiptir
um félag margfaldast grunngjald-
ið með afreksstuðli sem byggir
m.a. á aldri og landsleikjafjölda.
Grunngjaldið var ákveðið 50 þús-
und krónur en hæsti margföldun-
arstuðullinn er 10 þannig að
leikmaður í hæsta verðflokki
kostar 500 þúsund krónur. Ekki
er heimilt að gera samninga til
lengri tíma en tveggja ára og við
fall úr deild er hvorum aðila um
sig heimilt að segja þeim upp.
Af afdrifum annarra tillagna
má nefna að tillaga frá ÍK um
breytingar á 3. og 4. deild, sem
greint var frá í Degi í síðustu
viku, var kolfelld. Samþykktar
voru breytingar á starfsemi aga-
nefndar þannig að nefndarmönn-
um var fjölgað úr 3 í 5 og henni
er ekki lengur kleift að vísa frá
sér málum. Þá þarf hún nú að
taka fyrir skýrslur eftirlitsmanna
en þess þurfti hún ekki áður.
Á þinginu var kosið var um
fjögur sæti í aðalstjórn til tveggja
ára. Stefán Gunnlaugsson, fyrr-
um formaður knattspyrnudeildar
KA, náði kjöri í eitt af þessum
fjórum sætum en hann felldi út
Ragnar Marinósson frá Keflavík.
Aðrar breytingar urðu ekki á
aðalstjórninni. Á varastjórn varð
ein breyting, Guðmundur Har-
aldsson var kjörin í hana í stað
Inga Jónssonar.
Að lokum má geta þess að
Tindastóll fékk Dragóstyttuna í
2. deild, en hún er veitt prúðasta
liðinu eftir hvert tímabil. Tinda-
stóll fékk 17 refsistig, ÍR 19 og
ÍBK 25. í 1. deild kom styttan í
hlut Stjörnunnar sem hlaut 18
refsistig, en KR og ÍA hlutu 20
stig hvort félag. HB/JHB