Dagur - 04.12.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 4. desember 1990
Risarnir Pétur Guðmundsson og Cedric Evans háðu marga hildi i „haloftun-
um“. Evans þurfti að lokum að yfirgefa völlinn með 5 villur. Mynd. Goiii
Blak, 1. deild karla:
Formsatriði hjá KA
KA-menn unnu fyrirhafnarlít-
inn sigur á Frömurum í 1. deild
karla í blaki á Akureyri á laug-
ardaginn. Þeir þurftu ekki
nema þrjár hrinur enda mót-
staðan vægast sagt lítil og aug-
ljóst allan tímann hvort liðið
myndi sigra.
- sigruðu Fram 3:0
KA-menn byrjuðu á að komast
í 9:2 í fyrstu hrinu en slökuðu þá
á og Framarar náðu að minnka
muninn í eitt stig, 11:10, áður en
KA-menn lifnuðu við aftur og
unnu 15:11. Framarar voru yfir í
byrjuninni á annarri hrinu en
KA-menn komust yfir 7:6 og
Úrvalsdeild
A-riðill
Iiaukur-IR
UMFN-SnæfelI
89:70
102:52
UMFN 13 10- 3 1192: 996 20
KR 13 8- 5 1061:1020 16
Haukar 13 7- 6 1083:1073 14
Snæfell 13 2-11 962:1168 4
ÍR 13 1-12 875:1228 2
B-riðill
Þór-UMFT 89:100
ÍBK-Valur 73:77
Tindastóll 13 11-2 1294:1162 22
ÍBK 13 9-4 1245:1149 18
UMFG 13 9-4 1135:1072 18
Þór 13 4-9 1189:1209 8
Valur 13 4-9 1054:1140 8
Blak
1. deild karla
ÍS-Þróttur N. 3:2
HK-Þróttur R. 0:3
KA-Fram 3:0
HK-Þróttur N. 3:0
Þróttur R. 9 7-2 25: 9 14
KA 9 7-2 24:12 14
ÍS 8 6-2 20:14 12
HK 8 4-4 18:14 8
Þróttur N. 12 3-9 14:27 6
Fram 10 1-9 4:29 2
1. deild kvenna
Völsungur-Víkíngur
ÍS-Þróttur N.
KA-Víkingur
HK-Þróttur N.
Víkingur 11 11
UBK 8 6
Völsungur 9
ÍS 10
KA 11
Þróttur N. 14
HK 9
1:3
3:0
0:3
2:3
0 33: 5 22
2 20:10 12
6- 3 20:13 12
6- 4 20:16 12
4- 7 19:24 8
3-1116:37 6
0- 9 3:27 0
Handknattleikur
2. deild
Þór-UMFA
Völsungur-UMFA
HK
Þór
UBK
UMFN
ÍBK
Völsungur
UMFA
Ármann
ÍH
ÍS
10 9-1-0
9 8-1-0
10 7-1-2
116-1-4
10 5-0-5
11 4-1-6
11 4-0-7
12 2-2-8
12 3-0-9
10 1-1-8
26:14
18:19
259:153 19
213:166 17
229:172 15
237:221 13
212:220 10
227:235 9
200:242
225:254
237:270
161:247
Handknattleikur, 2. deild:
Þórsarar gefa ekkert eftir
- sigruðu Aftureldingu en Völsungur tapaði
Þórsarar unnu öruggan sigur
á Aftureldingu, 26:14, í 2.
deild íslandsmótsins í hand-
knattleik á Akureyri á laugar-
dag. Staðan í leikhléi var
10:9, Þórsurum í vil. Á
sunnudag mætti Afturelding
síðan Völsungi á Húsavík og
sigraði 19:18.
Þórsarar áttu í mesta basli
með gestina í fyrri hálfleik enda
virtist kæruleysið í fyrirrúmi.
Leikmenn Aftureldingar börð-
ust hins vegar ágætlega og þeim
gekk vel að finna leiðir í gegn-
um götótta vörn Þórs. Þórsarar
voru þó ætíð fyrri til að skora en
náðu aldrei meira en tveggja
marka mun, 6:4.
í seinni hálfleik skoraði
Afturelding fyrsta markið en
leikmenn liðsins náðu síðan
ekki að bæta við öðru marki
fyrr en 14 mínútum seinna. Á
meðan skoruðu Þórsarar 7
mörk í röð og gerðu út um leik-
inn. Sóknarleikur Þórs hefur
reyndar oft verið betri en varn-
arleikurinn lagaðist og það
gerði útslagið. Munurinn jókst
sífellt og varð mestur 13 mörk.
Þórsliðið var jafnt eins og oft
áður en hjá Aftureldingu voru
Gunnar Guðjónsson og Lárus
Sigvaldason allt í öllu.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 5,
Ólafur Hilmarsson 4, Páll Gíslason 4,
Rúnar Sigtryggsson 4, Sævar Árnason
4, Ingólfur Samúelsson 2, Jóhann
Jóhannsson 2, Aðalsteinn Pálsson 1.
Gunnar Guðjónsson og Lárus Sig-
valdason skoruðu 5 mörk hvor fyrir
Aftureldingu.
Slakt hjá Völsungum
Völsungar áttu afleitan leik í
fyrri hálfleik og Afturelding
leiddi með 2-3 mörkum. Sér-
staklega var vörnin slæm hjá
Völsungum og þegar hún lagað-
ist í seinni hálfleik brást sóknar-
leikurinn þannig að Afturelding
náði að halda fengnum hlut.
Völsungar tóku örlítinn kipp í
restina en það nægði ekki til og
Afturelding fór með bæði
stigin.
Heiðar Dagbjartsson varði
ágætlega í marki Völsungs, sér-
staklega í seinni hálfleik.
Ásmundur Arnarsson lék
þokkalega en aðrir náðu sér
ekki á strik. Mörk Völsungs:
Ásmundur Arnarsson skoraði 4 mörk,
Helgi Helgason 3, Örvar Sveinsson 2,
Tryggvi Guðmundsson 2, Vilhjálmur
Sigmundsson 2, Sveinn Freysson 2,
Haraldur Haraldsson 1, Jónas Grani
Garðarsson 1 og Skarphéðinn ívarsson
1.
Viktor Viktorsson var yfirburðamað-
ur hjá Aftureldingu og skoraði 8 mörk.
íþróttir
Úrvalsdeildin í körfuknal
möimum
unnu 15:9. Það var síðan aðeins
formsatriði að ljúka síðustu hrin-
unni, KA-menn komust í 11:1 en
slökuðu aftur á og unnu á endan-
um 15:6.
Tindastóll sigraði Þór fyrir
fullu húsi áhorfenda í íþrótta-
höllinni á Akureyri á sunnu-
dagskvöldið. Lokatölurnar
urðu 89:100 í bráðskemmtileg-
um leik og Tindastóll situr því í
efsta sæti úrvalsdeildarinnar
nú þegar jólafrí körfuknatt-
leiksmanna er hafíð.
Loftið var þrungið spennu í
höllinni á sunnudagskvöldið enda
Akureyringar búnir að bíða með
eftirvæntingu eftir þessum leik.
700 manns voru mættir á pallana
og er ekki á hverjum degi sem
forráðamenn íþróttahallarinnar
þurfa að biðja áhorfendur að
þjappa sér betur saman. U.þ.b.
200 manns komu frá Sauðárkróki
og Iífguðu þeir mikið upp á
stemmninguna.
Leikurinn var mjög hraður frá
fyrstu mínútu en greinilegt var að
taugaspenna sat í leikmönnum
beggja liða. Aðeins Ivan Jonas
virtist rólegur og skoraði hann
sex fyrstu stig leiksins en Þórsar-
ar vöknuðu þá til lífsins og jöfn-
uðu. Stólarnir höfðu síðan frum-
kvæðið framan af fyrri hálfleik en
Þórsarar voru ætíð skammt und-
KA-liðið átti engan stjörnuleik
enda var mótspyrnan of lítil til að
búast mætti við því. Vara-
mennirnir fengu að spreyta sig og
stóðu sig með prýði. Hjá Fröm-
urum var fátt um fína drætti enda
liðið tvímælalaust það slakasta i
deildinni.
an og þegar skammt var til hlés
náðu þeir forystunni. Þegar rúm
mínúta var eftir var staðan 40:35
fyrir Þór en Tindastóll skoraði 7
síðustu stigin og staðan í hléi var
40:42.
Þegar aðeins tvær mínútur
voru liðnar af seinni hálfleik urðu
Þórsarar fyrir áfalli. Jóni Erni
Guðmundssyni var vikið af leik-
velli eftir að hafa brotið á Einari
Einarssyni. „Þetta var ásetnings-
Ivan Jonas var besti maður vallar-
ins. Hér skorar hann eina af fjöl-
mörgum körfum sínum. ,, , „
B Mynd: Golh
Háspennu„dr2
í nágranna
Blak, 1. deild kvenna:
Tveir Víkingssigrar
- gegn Völsungi og KA
Fátt virðist getað stöðvað Vík-
ing í 1. deild kvenna í blaki.
Liðið Iék tvo leiki á Norður-
landi um helgina, á föstudags-
kvöldið sigraði það Völsung
3:1 á Húsavík og daginn eftir
lagði það KA 3:0 á Akureyri.
Liðið hefur unnið alla sína
leiki til þessa og hefur afger-
andi forystu í deildinni.
Völsungar byrjuðu mjög vel í
leiknum á föstudagskvöldið og
voru lengi yfir í fyrstu hrinu. Þær
misstu þó dampinn þegar staðan
var 12:10 og Víkingar unnu
15:13. Þær unnu síðan aðra hrinu
15:8 en í þeirri þriðju höfðu
Völsungar sigur eftir mikla bar-
áttu, 16:14. En allt kom fyrir
ekki, Víkingur tryggði sér sigur-
inn með því að vinna fjórðu
hrinu 15:10.
Völsungsliðið átti köflóttan
leik en bestar voru Jóhanna
Guðjónsdóttir og Björg Björns-
dóttir.
Víkingur hafði nokkra yfir-
burði í tveimur fyrstu hrinunum
gegn KA og vann 15:4 og 15:7.
KA-stúlkurnar hresstust síðan í
síðustu hrinunni og var hún jöfn
framan af en Víkingar þó jafnan
með frumkvæðið. Þær voru svo
sterkari á endasprettinum og
tryggðu sér 15:13 sigur.