Dagur - 04.12.1990, Qupperneq 13
Þriðjudagur 4. desember 1990 - DAGUR - 13
Flytja Grímseyingar í land?
- eftir Halldór Blöndal
Járniðnaðarmenn!
Si. þriðjudag var hátíð í Gríms-
ey, er ný lífhöfn var formlega
tekin í notkun. Af því tilefni
efndu eyjarskeggjar til sam-
kvæmis, sem þeir buðu þing-
mönnum að sitja. Það skyggði þó
á gleðina, að þann hinn sama dag
höfðu smábátaeigendur fengið
bréf um það, hvaða veiðiheimild-
ir þeir gætu vænst að fá á næsta
ári. Þeim var gefinn frestur til 15.
desember til að skila athuga-
semdum og leiðréttingum til sjáv-
arútvegsráðuneytisins.
Á bryggjunni mættum við
þingmenn sjómanni, sem hafði í
höndum bréf frá ráðuneyti um,
að kvóti hans myndi minnka úr
um 140 tonnum í rétt 80 tonn.
Hann lét þau orð falla eins og
fleiri sjómenn í eynni að Flatey-
ingar hefðu flutt í land sama árið
og þeir fengu nýja höfn. Eftir
kvótabréfunum að dæma virtust
sömu örlög bíða Grímseyinga.
Lái mér hver sem vill, þótt ég
hafi haft samband við sjávarút-
vegsráðherra og óskað eftir skrá
yfir þær veiðiheimildir, sem ein-
stakir útgerðarmenn og eigendur
smábáta hefðu fengið póstsend-
ar, auðvitað sem trúnaðarmál.
Ráðherra synjaði mér um upplýs-
ingarnar. Áf þeim sökum óskaði
ég eftir fundi í sjávarútvegs-
nefnd, en formaður hennar, Stef-
án Guðmundsson, taldi eins og
fulltrúar ráðherra, að ekki væri
ástæða til að láta nefndarmönn-
um slíkar upplýsingar í té.
Nú voru góð ráð dýr. Ég hafði
samband við forseta sameinaðs
þings, Guðrúnu Helgadóttur, og
bað um að fá að taka málið upp
Halldór Blöndal.
utan dagskrár. Hún heimilaði
umræðuna sem umræður um þing-
sköp og var samkomulag milli
okkar, að hún yrði kl. 12 sl.
fimmtudag og gaf mér heimild til
að skýra sjávarútvegsráðherra og
Matthíasi Bjarnasyni frá því.
Fyrir því er hefð á Alþingi, að
forseti stjórni fundi, þegar hon-
um er kunnugt, að þingmaður
biðji um orðið um þingsköp
vegna nefndarstarfa. Annað væri
ókurteisi, þar sem forseta á að
vera kunnugt, að þingmaður eigi
við hann erindi. Því miður gætti
Guðrún Helgadóttir ekki þessar-
ar sjálfsögðu reglu en fól Val-
gerði Sverrisdóttur fundarstjórn.
Það olli misskilningi, sem varð
afkáralegur í frétt Ríkissjón-
varpsins sl. fimmtudagskvöld.
Sannleikurinn er sá, að forseti
sameinaðs þings, Guðrún Helga-
dóttir, ítrekaði í lok umræðunn-
ar, að mál mitt hefði verið tekið
upp á réttum forsendum.
Kjarni málsins er vitaskuld
ekki sá, hvort misskilningur hafi
komið upp á milli okkar Valgerð-
ar Sverrisdóttur. Ég hef beðist
afsökunar á því fyrir mitt leyti og
veit, að hún á eftir að gera slíkt
hið sama. Hitt er kjarni málsins,
að ráðherra sjávarútvegsmála
hefur synjað þingmönnum, sem
eiga sæti í sjávarútvegsnefndum,
um skrár yfir þær veiðiheimildir,
sem útgerðarmenn smábáta geta
vænst að fá á næsta ári. Það er
svo alvarleg misbeiting valds, að
óhjákvæmilegt er að taka málið
upp á Alþingi. Ráðherra ber það
fyrir sig, að þingmönnum sé ekki
trúandi fyrir upplýsingunum. Ég
held því á liinn bóginn fram, að
ráðherra veiti ekki af því aðhaldi,
sem í því felst, að þingmenn fylg-
ist með því sem hann er að gera.
Það fann ég glöggt, þegar ég var
að fagna nýju höfninni með
Grímseyingum sl. þriðjudag, að
sjómenn þar ætluðust tií, að þing-
menn þeirra fylgdust með og
gættu hagsmuna þeirra. Ég er
þeirrar skoðunar, og sú skoðun
er bjargföst, að stjórn fiskveiða
megi ekki haga á þann veg, að
hinum duglegu sjómönnum í
Grímsey verði gert ókleift að búa
þar. Til þess að geta rækt þing-
mannsskyldu mína í þessu efni
þarf ég á því að halda, að hafa
undir höndum skrá yfir þær veiði-
heimildir, sem smábátaeigendur
geta vænst að fá á næsta ári. Svo
einfalt er það.
Höfundur er þingmaður í Norðurlands-
kjördæmi eystra fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn.
Talsjá til notkunar við kennslu og
þjálfun fólks með talörðugleika:
Hvalreki á Qörur fólks
Hjördís Anna Haraldsdóttir sem er heyrnarlaus situr hér við talsjána og
prófar. Hjá henni standa þau Friðrik Rúnar Guðmundsson deildarstjóri
talmeinadeildar HTÍ, Ásthildur Snorradóttir talmeinafræðingur og Gunnar
M. Hansson forstjóri IBM á íslandi. Myndin er tekin þegar Heyrnar- og
talmcinastöð íslands var afhent talsjá að gjöf í tengslum við sýninguna
(Jndraheiinur IBM.
Heyrnar- og talmeinastöð íslands
hefur þegið að gjöf íslenska talsjá
til notkunar við kennslu og þjálf-
un fólks með talörðugleika. Það
er IBM á íslandi sem gefið hefur
talsjána og aðlagað hana íslensku
máli. Talsjáin var afhent í básn-
um IBM og fatlaðir á sýningunni
Undraheimur IBM í dag, fimmtu-
dag. Gunnar M. Hansson for-
stjóri IBM á íslandi afhenti gjöf-
ina og tók Friðrik Rúnar Guð-
mundsson deildarstjóri talmeina-
deildar HTÍ á móti henni.
Talsjá er framleidd af IBM er
hefur sérstaka deild í Belgíu sem
sérhæfir sig í að leita tölvulausna
fyrir fatlaða. Talsjá er tölvu- og
hugbúnaður tengdur hljóðnema
sem hannaður er til að bæta tal-
kennslu og raddþjálfun. í henni
eru sjónrænir möguleikar tölv-
unnar tengdir mælingu á hljóð-
myndun nemandans og fæst við-
stöðulaus svörun á skjánum við
framlagi hans. Sem dæmi um
hvernig talsjáin virkar má nefna
að þegar t.d. heyrnarskertir eru
þjálfaðir í að auka styrk raddar-
innar með hjálp talsjárinnar,
birtist litauðug mynd af apa í tré
á skjánum og hjálpar nemandinn
honum að klifra upp eftir trénu
með því að auka raddstyrkinn.
Þannig er talþjálfun gerð að leik
sem nemandinn nýtur að taka
þátt í. Aðlögun talsjárinnar að
íslensku felst í að allur texti sem
birtist á skjánum er á íslensku og
hljóðkerfið sem innbyggt er í
hana er í samræmi við íslenska
tungu.
Heyrnar- og talmeinastöð ís-
lands starfar samkvæmt lögum
frá árinu 1980 og er stjórn hennar
skipuð af heilbrigðisráðherra.
Verksvið Heyrnar- og talmeina-
stöðvarinnar er að greina heyrn-
ardeyfur og talmein hjá fólki á
öllum aldri, útvega heyrnartæki
og veita ráðgjöf og þjálfun þeim
sem þess þurfa. Yfirlæknir er
Einar Sindrason og starfsmenn
eru 20. Aðsetur er í Reykjavík
en útibú er starfrækt á Akureyri.
Hin síðustu ár hafa starfsmenn
talmeinadeildar HTÍ reynt að
auka þjálfunarþátt starfseminnar
en skort til þess mannskap, að-
stöðu og einkum tækjakost. Þess
vegna er gjöf IBM á Islandi mik-
ill hvalreki fyrir starfsemi tal-
meinadeildar og gerbreytir hún
öllum þjálfunarmöguleikum
hennar. Talsjáin kemur til með
að nýtast einkum tveim hópum
fatlaðra. Það eru mjög heyrnar-
skertir einstaklingar og fólk sem
á við talörðugleika að stríða af
öðrum orsökum eins og t.d. hol-
góma börn sem og þeir er fatlast
hafa vegna slysa og þurfa að læra
að tala upp á nýtt.
Heyrnar- og talmeinastöð ís-
lands þakkar IBM á íslandi þessa
höfðinglegu gjöf. Vegna þess
hversu skammt er um liðið síðan
talsjá kom fyrst fram erlendis er
það HTÍ mikið ánægjuefni að
hún skuli nú vera fáanleg í því
formi sem nýtist við þjálfun á ís-
landi og er óhætt að fullyrða að
fagfólk á þessu sviði hafi ekki
dreymt um að það væri fram-
kvæmanlegt svo fljótt. Með þess-
um tækjabúnaði mun HTÍ skipa
sér á bekk með fremstu stofnun-
um á sínu sviði.
Óskum aö ráða menn vana smíði úr ryðfríu stáli.
Upplýsingar í síma 21244.
Vélsmiðjan Oddi h.f.
AKUREYRARBÆR
Á dagvistina Síðusel
vantar fóstru
eða fólk með aðra uppeldismenntun í 50% starf
eftir hádegi.
Upplýsingar hjá forstöðumönnum í síma 23034.
Við viljum ráða tvo
nýja starfsmenn
til Rafveitu Akureyrar.
Starfssvið er eftirfarandi:
1. Álestur skráður á handtölvur.
2. Aðstoð á innheimtuskrifstofu.
3. Innheimtuaðgerðir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um
næstkomandi áramót.
Upplýsingar gefa rafveitustjóri og starfsmanna-
stjóri. Sími 21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar.
Rafveitustjóri.
Forstöðumaður
viðurkenningardeildar Löggildingarstofunnar
Vegna aukinna og breyttra verkefna Lögildingar-
stofunnar er nú unnið að endurskipulagningu
hennar, en stofnuninni er nú m.a. ætlað að taka að
sér viðurkenningu (accreditation) á vottunar- og
prófunarstofum í samræmi við Evrópustaðla EN 45
Oxx.
Leitað er eftir starfsmanni til þess að byggja upp og
veita forstöðu viðurkenningardeild Löggildingarstof-
unnar. Hann þarf að hafa háskólapróf í verkfræði
eða skyldum greinum auk reynslu í skipulagningu
og stjórnun á gæðakerfum. Leitað er að manni, sem
hefur góða framkomu og á auðvelt með samskipti
við aðra, jafnt innanlands sem utan.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf skal senda til viðskiptaráðuneytisins, Arnar-
hvoli, 150 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn 14.
desember n.k.
Upplýsingnar um starfið veitir Finnur Sveinbjörns-
son, viðskiptaráðuneytinu, í síma (91)609436.
Viðskiptaráðuneytið,
30. nóvember 1990.
Kæru vinir!
Þakka innilega þann heiður og hlýhug
sem þið sýnduð mér á 85 ára afmælinu
29. nóvember s.l.
Sérstakar þakkir til Inner wheel kvenna.
INGA KARLSDÓTTIR.