Dagur - 04.12.1990, Side 16

Dagur - 04.12.1990, Side 16
Kodak Express Gæöaframköllun Akureyri, þriðjudagur 4. desember 1990 Persónuleg jólakort með þínum myndum. ^PeótSmyndir’ . Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. MMMm KA-menn gerðu það gott í Sveitakeppni Islands í júdó sem fram fór í Grindavík á laugardag. Kcppt var í þremur flokkum og sigruðu KA-menn í tveimur. Myndin var tekin þegar hópurinn kom til Akureyrar. í efri röð frá vinstri eru Baldur Stefánsson, Jón Óðinn Óðinsson, Guðlaugur Halldórsson, Torfi Ólafsson og Arnar Hreinsson. Neðri röð frá vinstri: Freyr Gauti Sigmundsson, Víðir Guðmundsson, Fjóla Stefánsdóttir, sem keppti með KA-mönnum í fullorðinsflokki, Smári Stefánsson, Friðrik Pálsson og Ómar Arnarson. Á myndina vantar Sævar Sigursteinsson. Mynd: Golli Söltunarfélag Dalvíkur hf.: Dalborg seld til Suðumesja? - forsvarsmenn Söltunarfélagsins hafa hug á að kaupa stærra skip í stað Dalborgar Samkvæmt heimildum Dags eiga forsvarsmenn Söltunarfé- lags Dalvíkur hf. í viðræðum við aðila á Suðurnesjum um sölu á skipi Söltunarfélagsins, Dalborgu EA. Talað er um að selja skipið á 180 milljónir króna og er gert ráð fyrir að með því fylgi 400 tonna kvóti í þorskígildum talið. Söltunar- félagið myndi þá halda eftir rúmlega 800 tonna kvóta skipsins, en auk hans á félagið um 500 tonna kvóta af Heið- rúnu EA. Það mun vera ætlun forsvars-- manna Söltunarfélags Dalvíkur, samkvæmt þeim heimildum sem Dagur hefur aflað sér, að kaupa stærra skip í stað Dalborgar, en eftir því sem næst verður komist er enn sem komið er ekkert ákveðið skip í sjónmáli í því sambandi. Horft er til þess m.a. að frysta rækju um borð í nýju skipi. Þreifað hefur verið á þeim möguleika að fiskverkendur á Daivík keyptu skipið, en sem stendur er verið að skoða kaup- tilboð í það frá Reykjavík. Samkvæmt heimildum Dags er markmið forsvarsmanna Söltun- arfélagsins með sölu á Dalborgu og hugsanlegum kaupum á nýju skipi að styrkja rekstur fyrir- tækisins þegar til lengri tíma er litið. Söltunarfélag Dalvíkur er í eigu fjögurra aðila. Samherji hf. á meirihluta í fyrirtækinu, um 64%, Dalvíkurbær á tæp 36%, Hallgrímur Antonsson á 0,41% og dánarbú Aðalsteins Loftsson- ar0,01%. óþh Birgir Þórðarson, umhverfisskipulagsfræðingur: Endurvmnsla átt erfitt uppdráttar Eyjafiarðarsveit: Piltur slasaðist við útafkeyrslu Akureyringur á þrítugsaldri var fluttur á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri aðfaranótt sl. sunnudags eftir útafkeyrslu skammt frá Melgerði í Eyja- fjarðarsveit. Líðan piltsins var eftir atvikum í gær. Lögreglan á Akureyri fékk til- kynningu um slysið um kl. 04 aðfaranótt sunnudags og var þá þegar kölluð út sjúkrabifreið Slökkviliðsins á Akureyri, sem flutti piltinn á slysadeild FSA. Bifreiðin, sem er af Subaru- gerð, er mikið skemmd eftir útaf- keyrsluna. óþh Árbók sveitarfélaga: Dalvíkurbær með bestu greiðslustöðuna Samkvæmt upplýsingum úr efnahagsreikningum sveitarfé- laga 1989, sem fram koma í nýútkominni Árbók sveitarfé- laga, er Dalvík sá kaupstaður sem hefur hæst veltufjárhlut- fall, eða 2,64. í öðru sæti er Húsavík með 2,07 og Seyðis- fjörður í því þriðja með 2,01. Stuðull fyrir veltufjárhlutfall segir ekki síst til um greiðslu- stöðu sveitarfélaga. Því hærri sem stuðullinn er, því betri er greiðslustaðan. Samkvæmt þessu er greiðslustaða Dalvíkurbæjar sú besta hjá kaupstöðunum, nokkru betri en hjá Reykjavík, sem hefur lægstu skuldir á hvern íbúa. Skuldastaða Dalvíkur er góð samkvæmt árbókinni. Hver bæjarbúi skuldar 52 þúsund krónur, sem eru lægstu skuldir á hvern íbúa í kaupstöðum á Norðurlandi. Siglfirðingar skulda hins vegar mest af norðlenskum kaupstöðum. Hver Siglfirðingur skuldar 233 þúsund krónur sam- kvæmt efnahagsreikningi síðasta árs. óþh en hefur þó verið stunduð um árabil iVerðandi stúdent, Erna Björnsdóttir í fylgd þeirra Kristins Wiuins (til , vinstri) og Ásmundar Arnarssonar. Mynd: im Framhaldsskólinn á Húsavík: Fyrsta „diiranisioniii“ á fóstudagúin Stór hluti af þeim úrgangi sem til fellur í nútímasamfélagi er endurvinnanlegur í einhverju formi. Þótt endurvinnsla hafi átt erfitt uppdráttar fram að þessu hefur hún verið stunduð hér á landi um árabil í smáum stíl. Sem dæmi um endur- vinnslu má nefna endurvinnslu 20 dagar tííjóía á gúmmi, pappír og plasti. Þetta kom fram í erindi Birgis Þórðarsonar, umhverfisskipu- lagsfræðings, á fundi um sorp- hirðu, brotamálma og meng- unarvarnir sem haldinn var á vegum Fjórðungssambands Norðlendinga síðastliðinn föstudag. Tvö fyrirtæki starfa nú að vinnslu brotamálma á íslandi, Hringrás hf. í Reykjavík, sem hefur verið í fararbroddi við ýmiss konar endurvinnslu á undanförnum árum, og íslenska stálfélagið hf. í Hafnarfirði, sem meðal annars hefur hafið endur- vinnslu á bílflökum. Afkastageta málmtætara fyrirtækisins er um 1800 tonn á viku. Nokkur fyrirtæki hafa safnað pappírsafskurði og sent erlendis og Silfurtún hf. í Garðabæ hefur unnið eggjabakka úr úrgangs- pappír í nokkur ár. Nú er unnið að athugun á auknum möguleik- um í pappírsendurvinnslu. Um 25 þúsund tonn falla til af úr- gangspappír á höfuðborgarsvæð- inu á ári og um 10 til 15 þúsund tonn af þessum pappír er úrgang- ur frá framleiðslu, verslun og þjónustu. Endurvinnslan hf. í Reykjavík hefur nú starfað á annað ár og á Akureyri hafa tvö fyrirtæki unnið að endurvinnslu. Það eru Gúmmívinnslan hf., sem um árabil hefur framleitt ýmsar vörur úr gúmmi, og Saga plast hf., sem hafið hefur söfnun á úrgangsplasti, s.s. ónýtum plast- kössum. Saga plast hefur þróað færanlegt vinnslukerfi, sem farið er með á þá staði er plastúrgang- ur hefur safnast saman á. ÞI Fasteignasali á Akureyri hefur verið kærður fyrir fjármála- misferli. Málið kom til kasta rannsókn- arlögreglunnar á Akureyri um helgina og er unnið að rannsókn Fyrsta „dimmisionin“ við Fram- haldskólann á Húsavík fór fram eftir hádegi á föstudag. Tveir stjórnarmcnn úr nem- endafélagi skólans óku um bæinn með verðandi stúdent Ernu Björnsdóttur á pallbíl svo hún gæti kvatt kennara sína með kossum og rósum fyr- ir upplestrarfríið. þess. Ekki fengust upplýsingar í gær um gang rannsóknar málsins. Maðurinn sem kærði fasteigna- salann missti íbúð sína á nauð- ungaruppboði í liðinni viku og telur að það megi rekja til mis- ferlis fasteignasalans. óþh Framhaldsskólinn tók til starfa um haustið fyrir rúmum þremur árum og þá hóf Erna sitt fram- haldsnám. Erna stefnir að því að útskrifast sem stúdent 20. des. nk. Hún verður ekki fyrsti stúd- entinn sem útskrifast frá skólan- um en sá fyrsti sem byrjar þar í framhaldsnámi og lýkur stúd- entsprófi. Fylgisveinar Ernu á föstudag- inn voru Ásmundur Arnarsson og Kristinn Wium. í tilefni dags- ins höfðu þ>au lagt hversdagsfötin á hilluna, Erna klæddist nælon- pels og stakk íslendingabók und- ir hendina, en piltarnir báru ein- kennishúfur sem hver einkabíl- stjóri gat verið fullsæmdur af. Undrunar gætti í svip margra bæjarbúa sem urðu vitni að ferð unga fólksins í þessari fyrstu dimision á Húsavík. IM Akureyri: FasteignasaJi kærður

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.