Dagur - 12.12.1990, Qupperneq 15
íþróttir
Miðvikudagur 12. desember 1990 - DAGUR - 15
Sundfólk úr Óðni á Akureyri atti um helgina kappi við sundfólk úr Vestra á ísafirði í maraþonboðsundi. Synt var
í 24 klukkustundir og þegar upp var staðið höfðu Isfirðingar farið með sigur af hólmi en þeir syntu samtals 106 km
en Óðinsmenn 104. I>á var kcppt uin hvort félagið gæti safnað hærri áheitum og þar höfðu ísfirðingar einnig betur,
söfnuðu tæpri hálfri milljón en Óðinn 350 þúsund kr. Wolfgang Sahr, þjálfari Óðins, var ánægður með sitt fólk þrátt
fyrir ósigurinn og sagði árangurinn betri en hann hafði átt von á. Myndin var tekin þegar einn þátttakandinn stakk
sér til sunds. Mynd: jhb
Handknattleikur, 1. deild:
Hvað gera KA-menn
gegn bikarmeisturuninn?
KA og Valur mætast í 16. uni-
ferð VÍS-keppninnar í hand-
knattleik í kvöld. Leikurinn fer
frant í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og hefst kl. 20.30. Þetta
verður síðasta umferðin í 1.
deildinni fyrir jólafrí en næsta
umferð hefst 18. janúar.
KA-menn unnu ágætan sigur á
Vestmannaeyingum um síðustu
helgi og sitja nú í 7.-8. sæti deild-
arinnar. Þeir þurfa hins vegar að
vera í hópi 6 efstu liða til að korn-
ast í úrslitakeppnina þannig að
þeir þurfa á sigri að halda í
kvöld.
Bikarmeistarar Vals eru í 2.
sæti 1. deildar með 25 stig, hafa
aðeins tapað tveimur leikjum,
unnið tólf og gert eitt jafntefli.
Liðið er mjög sterkt enda hefur
það marga landsliðsmenn innan-
borðs, m.a. Akureyringinn Jón
Kristjánsson sem áður lék með
KA.
Akureyrarmótið í snóker:
Ófeigur kominn með forystuna
Valdimar skíðamaður ársins
Ófeigur Marinósson varð sig-
urvegari í fyrsta hluta Akur-
eyrarmótsins í snóker sem
fram fór á knattborðsstofunum
á Akureyri um síðustu helgi.
Ófeigur sigraði Sigurjón
Sveinsson 4:1 í úrslitaleik. í
þriðja sæti varð Ingólfur Valdi-
marsson.
21 keppandi tók þátt í mótinu
um síðustu helgi og var keppt
með útsláttarfyrirkomulagi. Billi-
ardinn í Kaupvangsstræti og Gilið
halda sameiginlegt Akureyrar-
mót að þessu sinni og er leikið á
báðurn stofum samtímis. Mótið
samanstendur af tveimur stiga-
I mótum og úrslitakeppni. Seinna
stigamótið fer fram eftir áramót
og að því loknu leika 16 stiga-
| hæstu menn til úrslita.
Akureyringurinn Valdimar
Valdemarsson var valinn
skíðamaður ársins 1990 af
stjórn SKÍ. Þetta kom fram í
hófi í Reykjavík í síðustu viku
þar sem tilkynnt var um kjör
íþróttamanna ÍSÍ.
Valdimar er 21 árs. Hann er í
landsliði íslands í alpagreinunr og
hefur verið það í nokkur ár. hann
er bikarmeistari SKÍ í flokki full-
orðinna í alpagreinum en hann
hlaut 140 stig af 150 mögulegum.
Hann er jafnframt íslandsmeist-
ari karla í stórsvigi og alpatví-
keppni.
Á alþjóðlegum mótum sem
fram fóru hérlendis sl. vor náði
Valdimar langbestum árangri
íslendinga en samanlagt náði
hann öðrum besta árangrinum úr
öllum mótunum.
íþróttamenn ársins í öðrum
greinunt eru: Ólafur Eiríksson,
íþróttir fatlaðra, Bjarni Á. Frið-
riksson, júdó, Pétur Guðmunds-
son, frjálsar íþróttir, Broddi
Kristjánsson, badminton, Bjarni
Sigurðsson, knattspyrna, Ulfar
Jónsson, golf, Ólafur Haukur
Ólafsson, glíma, Ólafur Viðar
Birgisson, skotfimi, Porvarður
Sigfússon, biak, Ómar ívarsson,
karate, Sigurbjörn Bárðarson,
hestaíþróttir, Páll Kolbeinsson,
körfuknattleikur, Einar Siggeirs-
son, tennis, Sigríður Ólafsdóttir,
siglingar, Guðmundur Hrafn-
kelsson, handknattleikur, Linda | mundur Helgason, lyftingar, og
Steinunn Pétursdóttir, fimleikar, Ragnheiður Runólfsdóttir, sund.
Kjartan Brienr, borðtennis, Guð- I -bjb/JHB
Valdimar Valdemarsson.
*rtV. u-
♦ *
*■
í
Knattspyrna:
Luka Kostic
fer á Skagann
„Ég get lítið annað sagt en að
það hafa enn engin félagaskipti
átt sér stað. En hann hefur
greinilega náð samkomulagi
við IA og við munum ekki
leggja stein í götu hans,“ sagði
Rúnar Antonsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs, um
þau tíðindi að Luka Kostic
hyggist leika með ÍA næsta
tímabil.
Luka Kostic hefur leikið með
Þór sl. tvö sumur og þjálfaði liðið
að auki á síðasta tímabili. Vitað
er að hann hefur átt í viðræðum
við nokkur félög að undanförnu
Luka Kostic.
en Morgunblaðið skýrir frá því í
gær að hann hafi náð samkomu-
lagi við ÍA.
Rúnar sagði að Kostic hefði
verið einn af bestu leikmönnum
1. deildarinnar undanfarin tvö ár
og það væri ákveðið áfall fyrir
Þór að missa hann. „En við erum
það heppnir að eiga nóg af ung-
um.mönnum í Þór sem geta farið
að taka við. Það er stefnan að
byggja liðið upp á þeim mönnum
og við höfum trú á að það sé
hægt,“ sagði Rúnar Antonsson.
Knattspyrna:
Ijríkur
aðstoðar
Ormarr
Miklar líkur eru á að Eiríkur
Eiríksson verði aðstoðar-
maður Ormarrs Örlygsson-
ar, þjálfara knattspyrnuliðs
KA, næsta sumar. Að sögn
Sveins Brynjólfssonar hefur
verið rætt við Eirík og hann
lýst áhuga sínum á starlinu
og verður sennilega gengið
frá ráðningu hans á næst-
unni.
Eiríkur þjálfaði 2. flokk KA
sl. surnar en hann var um
árabil markvörður hjá Þór og
Reyni Árskógsströnd. Svcinn
sagöi að Eiríkur myndi sjá um
markmannsþjálfun í meistara-
flokki og vera Ormarri til
aðstoðar í leikjum, auk þess
sem hann myndi sennilega sjá
um markmannsþjálfun í 2. og
3. flokki.