Dagur - 30.04.1991, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 30. apríl 1991
11 fréttir
Kaupfélag Þingeyinga:
„Þakka félagsmönnum og
starfsmönnum árangurinn“
- sagði stjórnarformaður að loknum aðalfundi
Egill Olgeirsson, stjórnarformaður Kaupfclags Þingeyinga, flytur skýrslu sína á aðalfundi þess sl. laugardag. Á
myndinni eru auk hans Hreiðar Karlsson, kaupfélagsstjóri og stjórnarmenn KÞ. Mynd: im
Greiðslumat í húsbréfakerfmu til banka,
sparisjóða og Kaupþings í gær:
„Fyrsta skrefið í þá átt að þjónusta Hús-
næðisstofiiunar færist til banka og sparisjóða“
- segir Friðrik Friðriksson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Svarfdæla
Baldvin Baldursson, Rangá,
gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs eftir 24 ára setu í stjórn
Kaupfélags Þingeyinga á aðal-
fundi félagsins sl. laugardag.
Voru honum þökkuð góð og
vel unnin störf í þágu félagsins
og var hann hylltur á fundinum
með langvarandi lófataki.
Halldóra Jónsdóttir frá Gríms-
húsum í Aðaldal var kjörin í
stjórn í stað Baldvins. Ari Teits-
son, Hrísum í Reykjadal var
endurkjörinn. í varastjórn var
Hlöðver P. Hlöðversson, Björg-
um, kjörinn og Kristján Kárason,
Ketilsstöðum, endurkjörinn.
Uthlutað var úr Menningar-
sjóði KÞ, alls 500 þúsundum til
Kaupfélag
Skagfirðinga:
Strikamerk-
ingar í Skag-
firðingabúð
- kerfið tekið í
notkun í maí
Um þessar mundir er Kaup-
félag Skagfírðinga að taka upp
strikaverðmerkingar í Skag-
fírðingabúð á Sauðárkróki.
Unnið er að uppsetningu tækja-
búnaðar við afgreiðslukassa en
stefnt er að því að kerfíð verði
tekið í notkun um miðjan
næsta mánuð.
Uppsetning strikamerkinga-
kerfisins er nokkuð kostnaðar-
söm en verulegur sparnaður og
hagræðing hlýst af notkun þess
þegar til lengri tíma er litið. Með
tilkomu kerfisins verður mun
fljótlegra að sjá sölu- og birgða-
stöðu á hverjum tíma. Einnig
mun afgreiðsla við kassa verða
mun fljótlegri og færra starfsfólk
verður bundið við afgreiðslu-
störf.
Verðmerkingakerfið er frá
fyrirtækinu IBM en ekki er
endanlega ljóst hvað það mun
kosta uppkomið. kg
fimm aðila. Safnahúsið á Húsa-
vík hlaut 250 þúsund, í minningu
Hjördísar Tryggvadóttur Kvaran.
Kór Kvenfélagasambands Suður-
Þingeyinga, Lissý, hlaut styrk að
upphæð 100 þúsund. Þrír ein-
staklingar hlutu 50 þúsund hver:
Rut Káradóttir sem stundar nám
við innanhússarkitektur á Ítalíu.
Kári Friðriksson frá Helgastöð-
um sem stundar söngnám á Ítalíu.
Sigríður Kristín Porgrímsdóttir,
sagnfræðingur frá Garði, til að
vinna að útgáfu á verkum Þuru í
Garði.
Egill Olgeirsson, stjórnarfor-
maður KÞ var spurður hvort
miklar umræður hefðu farið fram
á fundinum: „Mér fannst áber-
andi hve umræður voru jákvæð-
ar. Menn voru mjög að brýna
varkárni fyrir stjórnendum, þrátt
fyrir breytta stöðu en virtust þó
bjartsýnir. Umræður um stöðu
Fiskiðjusamlags Húsavíkur og
aðild Kaupfélags Þingeyinga að
því voru mjög jákvæðar, en því
var beint til stjórnarmanna að
vera mjög varkárir í framlagn-
ingu fjár. Menn ræddu þetta
mjög málefnalega og voru sam-
mála um mikilvægi fiskvinnslu og
útgerðar.
Þetta var góður fundur. Það er
ljóst að áfram hefur verið unnið
að því sem menn settu sér í upp-
hafi árs 1989 og árangurinn hefur
skilað sér smátt og smátt. Ytra
umhverfi til rekstar var einnig
mun betra á síðasta ári, Cn þann
árangur sem náðst hefur ber að
þakka félagsmönnum og starfs-
mönnum sem tekið hafa verulega
á.“ IM
Ferðamálafélag Húnvetninga
gengst fyrir ráðstefnu um ferða-
mál 9. maí nk. kl. 13 á Hótel
Blönduósi. Ráðstefnunni er
ætlað að opna hug þeirra sem
stunda ferðaþjónustu í dag og
þeirra sem vilja fara út í slíka
starfsemi.
Lögð er mikil áhersla á að hags-
„Að mínu mati er hér verið að
stíga fyrsta skrefíð í þá átt að
mest öll starfsemi Húsnæðis-
stofnunar færist út til banka og
sparisjóða. Það höfum við allt-
af lagt mikla áherslu á,“ sagði
Friðrik Friðriksson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Svarf-
dæla á Dalvík, vegna þeirrar
munaaðilar og sem flestir sveit-
arstjórnarmenn mæti. Eins og
fram hefur komið missa á milli
100 og 150 manns vinnuna þegar
framkvæmdum við Blönduvirkj-
un lýkur næsta haust. Einnig er
búið að skera mikið af búfé niður
þannig að frekar dökkt útlit er í
atvinnumálum á svæðinu.
Frummælendur á ráðstefnunni
breytingar sem varð í gær þeg-
ar hið svokallaða greiðslnmat í
húsbréfakerfínu færðist út til
banka, sparisjóða, Kaupþings
hf. og Kaupþings Norðurlands
hf.
„Næsta skrefið er að við fáum
beinlínis að ákveða hverjir skuli
fá lán og hverjir ekki og að við
verða Birgir Þorgilsson, ferða-
málastjóri og fjallar hann um
ferðamálafélög og Ferðamálaráð,
María Guðmundsdóttir frá Upp-
lýsingaskrifstofu ferðamála á ís-
landi ræðir um gildi upplýsinga-
þjónustu fyrir landsbyggðina,
Jóhanna Leópolsdóttir frá Ferða-
málasjóði ræðir um fjármál ferða-
þjónustu, Páll Helgason, fram-
kvæmdastjóri Vestmannaeyjum,
ræðir um markaðssetningu ferða-
mála, Poul Richardsson, Ferða-
þjónustu bænda, talar um ferða-
þjónustu í sveitum landsins og
Steindór Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri á Skagaströnd,
fjallar í sínu erindi um hvað hægt
sé að gera. óþh
getum farið að afgreiða þessi lán
með skömmum fyrirvara. Það
hlýtur að vera eðlilegra að bank-
arnir og sparisjóðirnir fái þetta
hlutverk frá upphafi til enda þar
sem við þekkjum okkar viðskipta-
vini betur en eitthvert starfsfólk í
Húsnæðisstofnun á Suðurlands-
braut 24 í Reykjavík," sagði
Friðrik.
Friðrik sagði að þegar í gær
hafi fyrstu viðskiptavinir sjóðsins
komið til að láta meta greiðslu-
getu sína vegna húsnæðiskaupa.
Ekki sé annað að heyra en fólk
fagni þessu skrefi mjög enda
styttist biðtími verulega við þessa
breytingu. Friðrik sagði að ef
fólk kæmi með allar upplýsingar
ætti matið að liggja fyrir á um
hálfri klukkustund.
Jón Hallur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings
Norðurlands hf., tók í sama
streng. Hann sagði að fyrstu ósk-
ir uin greiðslumat hafi borist fyrir
helgi og þeir fyrstu hafi þegar
fengið afgreiðslu.
„Það munar öllu fyrir fólk að
geta nú rætt við þann sem fram-
kvæmir matið. Með þessu verður
afgreiðslan bæði persónulegri og
væntanlega betri en hægt hefði
verið að veita úr Reykjavík,“
sagði Jón Hallur. JÓH
skák
Helgarskákmót:
Akureyringar í efstu sætum
Ferðamálafélag Húnvetninga:
Efiiir til ráðstefiiu um ferðamál
Skagfirðingur hf.:
Samið rnn nýtt fiskverð
- atkvæði talin í næstu viku
Helgarskákmót var haldið á
Akureyri dagana 25.-28. apríl
og mættu 20 keppendur víðs
vegar af landinu, heimamenn
voru þó í meirihluta. Sigurveg-
Akureyrarmeistarinn Gylfi
Þórhallsson tók ekki þátt í
helgarskákmótinu um síðustu
helgi enda teflir hann nú á
alþjóðlegu skákmóti í Gausdal
í Noregi. Þar er einnig meðal
keppenda Áskell Örn Kára-
son, félagi í Skákfélagi Akur-
eyrar.
Ekki höfum við fregnir af því
hvernig köppunum hefur vegnað
í Noregi en mótinu ætti að vera
ari varð Ólafur Kristjánsson
frá Akureyri. Hann fékk 6
vinninga af 7 mögulegum.
Röð efstu manna varð annars
sem hér segir, keppendur eru frá
lokið um þessar mundir.
Ef við snúum okkur aftur að
helgarskákmótinu á Akureyri þá
sigraði Ólafur Kristjánsson mjög
örugglega. Hann var búinn að
tryggja sér sigurinn fyrir síðustu
umferðina og ætlaði að freista
þess að fá fullt hús en tapaði fyrir
Rúnari Sigurpálssyni.
Mótið tókst í alla staði vel, en
keppendur hefðu mátt vera fleiri.
SS
Akureyri nema annað sé tekið
fram: 1. Ólafur Kristjánsson 6 v.
2. Arnar Þorsteinsson 5Vi v. 3.
Rúnar Sigurpálsson 5 v. 4. Guð-
mundur Gíslason, ísafirði, AVi v.
5. Þór Valtýsson 4VÍ v. 6. Snorri
G. Bergsson, Reykjavík, 4l/i v.
7. Bragi Halldórsson, Reykja-
vík, 4 v. 8. Júlíus Björnsson
4 v.
Verðlaunaupphæðin var 61
þúsund krónur, þar af 20 þúsund
í fyrstu verðlaun en sex efstu
menn hlutu peningaverðlaun. Þá
skiptu Friðgeir Kristjánsson og
Skafti Ingimarsson með sér verð-
launum fyrir besta árangur
skákmanna með skákstig á bilinu
1700-1900 og Júlíus Björnsson
fékk verðlaun fyrir bestan árang-
ur skákmanna með 1700 stig og
minna.
Skákstjórar voru Albert Sig-
urðsson, Ingimar Friðfinnsson og
Páll Hlöðvesson. SS
Útgerðarfélagið Skagfírðingur
og Fiskiðja Sauðárkróks hafa
náð samkomulagi við samn-
inganefnd sjómanna um nýtt
fískverð. Saman gekk með við-
ræðunefndum sjómanna og
útgerðar á fundi fyrir helgina.
Samnigsaðilar vildu ekki tjá sig
efnislega um þann samning
sem náðist.
Næsta skref verður að áhafnir
þeirra þriggja togara sem
Útgerðarfélgið Skagfirðingur
gerir út greiða atkvæði um þann
samning sem liggur fyrir. Vænt-
anlega verður atkvæðagreiðslu
áhafnanna lokið að tíu dögum
liðnum. Einfaldur meirihluti
nægir til að nýir kjarasamningar
teljist samþykktir.
„Við teljum ekki rétt að gefa
upp einstök efnisatriði samning-
anna áður en þeir hafa verið
bornir undir atkvæði sjómanna,“
sagði Einar Svansson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðju Sauðár-
króks.
Áhöfn Skagfirðings SK-4 mun
greiða atkvæði um samningana í
dag en áhafnir Skafta SK-3 og
Hegraness SK-2 munu greiða
atkvæði í næstu viku. Atkvæði
verða síðan öll talin í næstu viku.
kg
Alþjóðlegt skákmót:
Gvlfi í Gausdal