Dagur - 30.04.1991, Side 7
Þriðjudagur 30. apríl 1991 - DAGUR - 7
KA-menn rökuðu saman verðlaununum
Um helgina fór fram á Akur-
eyri Islandsmót 18 ára og yngri
í júdó og jafnframt var keppt í
flokkum kvenna og stúlkna.
122 keppendur frá 5 félögum
tóku þátt í mótinu sem fór
fram í íþróttaskemmunni. KA-
menn urðu sigursælir á mót-
inu, unnu til samtals 37 verð-
launa, þar af 7 gullverðlauna.
KA-menn unnu 7 gull, 11 silfur
og 19 brons, Ármenningar komu
næstir með 5 gull, 3 silfur og 4
brons og Grindvíkingar með 5
gull, 4 silfur og 1 brons. Júdófé-
lag Reykjavíkur hlaut eitt af
hverju og Selfyssingar hlutu 1
gull og 2 brons.
Úrslit urðu þessi:
Opinn flokkur 7 ára 1. Sveinn Þór Steingrímsson UMFG
2. Atli Daði Smárason UMFG
3. Karles Ólafsson KA
-25 kg 8 ára 1. Birkir Hrafnsson UMFG
2. Arnar Hilmarsson KA
3. Ómar Karlsson KA
3. Andri Rúnar Karlsson KA
+25 kg 8 ára
1. Helgi Már Helgason UMFG
2. Ingólfur Axelsson KA
3. Bragi Gunnarsson KA
3. Helgi Pétursson KA
-28 kg 9-10 ára
1. Björn Harðarson KA
2. Snævar Jónsson Árm.
3. Brynjar Ásgeirsson KA
3. Bjarni Þór Sigurjónsson UMFG
-34 kg 9-10 ára
1. Haraldur Jón Jóhannesson UMFG
2. Elmar Dan Sigþórsson KA
3. Víðir Orri Hauksson KA
3. Jóhannes Gunnarsson KA
+34 kg 9-10 ára
1. Arnar I. Gylfason Árm.
2. Sæmundur Haraldsson UMFG
3. Bragi Axelsson KA
3. Hróðmar V. Steinsson Árm.
-33 kg 11-12 ára
1. Björn Davíðsson KA
2. Hilmar Stefánsson KA
3. Steinar Ólafsson KA
3. Eiríkur Karl Ólafsson KA
- 42 kg 11-12 ára
1. Víðir Guðmundsson KA
2. Jóhann Kristinsson KA
3. Helgi Stefánsson KA
3. Ásmundur Rúnar Gylfason KA
+42 kg 11-12 ára 1. Rúnar Pálmason Self.
2. Sverrir Már Jónsson KA
3. Atli Þórarinsson KA
-43 kg 13-14 ára 1. Ólafur Baldursson JR
2. Jónas Oddsson JR
3. Marinó Tryggvason KA
3. Gísli Guðmundsson JR
-48 kg 13-14 áia 1. Smári Stefánsson KA
2. Guðfinnur Karlsson UMFG
3. Jóhann Finnbogason KA
3. Ragnar Páll Dyer Árm.
-56 kg 13-14 ára
1. Magnús Óli Sigurðsson UMFG
2. Sigurður Þór Birgisson UMFG
3. Sæþór Sæþórsson Árm.
+56 kg 13-14 ára
1. Atli Gylfason Ármanni
2. Vilhelm A. Jónsson KA
3. Ragnar Ólafsson KA
Knattspyrna:
Þórsarar unnu Tactic-mótið
Þór varð sigurvegari á Tactic-
móti Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar sem Iauk á Þórsvellinum
á sunnudag. Úrslitin réðust í
síðasta leik mótsins þegar Þór
og KA gerðu markalaust jafn-
tefli, það dugði Þórsurum sem
höfðu betri markatölu en KA.
Leikur Leifturs og Tindastóls
var hreinn úrslitaleikur um 3.
sætið og lauk honum með 1:0
sigri Leifturs.
Úrslitaleikurinn fór fram á möl
í nokkuð sterkri golu og bar þess
merki. Þó brá fyrir ágætum köfl-
um hjá báðum liðum og verða
úrslitin að teljast sanngjörn.
Bæði lið fengu ágæt tækifæri til
að skora, besta færi KA-manna
fékk Tékkinn Pavel Vandas þeg-
ar hann skaut viðstöðulaust af
stuttu færi eftir sendingu frá Haf-
steini Jakobssyni en Friðrik
Friðriksson varði hreint frábær-
lega. Besta færið við mark KA
fékk Árni Þór Árnason en hann
skaut hátt yfir af stuttu færi.
Þórsarar áttu reyndar að fá víta-
spyrnu þegar Steingrímur Birgis-
son sló boltann út úr teignum en
það fór fram hjá dómaranunt.
Erfitt er að meta hversu sterk
liðin koma til með að verða í
sumar. KA-menn stilla upp mjög
breyttu liði sem gæti átt eftir að
koma á óvart. Af nýju mönnun-
um vakti Páll Gíslason, fyrrum
Pórsari, mesta athygli en hann
lék mjög vel og var einn besti
maður vallarins. Þórsliðið var
jafnt en ekki væri sanngjarnt
k annað en að nefna Friðrik sem
var mjög öruggur í markinu.
„Fáum engin stig
fyrir þetta“
„Það er auðvitað mjög gott að
Tactic-meistarar Þórs 1991.
vinna þetta mót svona skömmu
áður en deildin byrjar en við
fáum engin stig fyrir þetta,“ sagði
Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs.
„Undirbúningurinn hefur gengið
vel hjá okkur og ég vona að við
séum betur undirbúnir en t.d. í
fyrra. Við höfum æft vel og spilað
yfir 20 æfingaleiki en þar fengust
heldur engin stig. Þetta er ungt
lið og tvímælalaust efnilegt en
ung lið eru oft brothætt. Eg er
bjartsýnn á mótið en geri mér
grein fyrir að þetta verður langur
og erfiður róður. 2. deildarliðin
hafa staðið sig mjög vel í vor-
mótunum og skotið þar mörgum
1. deildarliðum aftur fyrir sig
þannig að það er ekkert vafamál
að deildin verður erfið,“ sagði
Sigurður Lárusson.
Eins og fyrr segir sigraði Leift-
ur Tindastól 1:0 og skoraði Hall-
dór Guðmundsson markið. Þór
sigraði Leiftur 4:1 og skoruðu
Árni Þór Árifáson, Axel Vatns-
dal og Ásmundur Arnarsson fyrir
Þór, Halldór Guðmundsson fyrir
Leiftur og Ólafsfirðingar skoruðu
eitt sjálfsmark. KA vann Tinda-
stól 3:1 og skoraði Sverrir Sverr-
isson tvö fyrir KA og Birgir Arn-
arsson eitt en Ingiþór Rúnarsson
mark Tindastóls. Orn Viðar Arn-
arson og Hafsteinn Jakobsson
skoruðu mörk KA í 2:0 sigri á
Leiftri og Halldór Áskelsson og
Bjarni Sveinbjörnsson mörk Þórs
í 2:0 sigri á Tindastól.
-48 kg 15-17 ára
1. Max Jónsson KA
2. Hörður Pétursson KA
3. Björn Grétarsson Self.
-59 kg 15-17 ára
1. Kári Agnarsson Árm.
2. Ómar Arnarson KA
3. Gils Matthíasson Self.
-70 kg 15-17 ára
1. Ríkharður Róbertsson Árm.
2. Friðrik Pálsson KA
3. Ari Kolbeinsson KA
3. Baldur Kristjánsson KA
+70 kg 15-17 ára
1. Dagur Agnarsson Árm.
2. Gunnar 1. Gunnarsson Árm.
3. Óskar Sigurðsson Árm.
opinn stúlknaflokkur
1. Birna Baldursdóttir KA
2. Hildur Sigfúsdóttir Árm.
3. Indiana Magnúsdóttir KA
Kvennaflokkur
1. Fjóla Guðnadóttir KA
2. Svala Björnsdóttir KA
Vorhlaup UFA
ámorgun
Vorhlaup Ungmennafélags
Akureyrar fer fram í annað
sinn á morgun. Hlaupið hefst
við IþróttahöIIina á Akureyri
kl. 14.
Mæting til skráningar er í sein-
asta lagi kl. 13.30. Búningsað-
staðan er í íþróttahöllinni.
Stelpur og strákar, 12 ára og
yngri, hlaupa 1,2 km og byrja kl.
14.00. Telpur og piltar, 13-14
ára, hlaupa 2,1 km og byrja kl.
14.20 og konur, 15 ára og eldri,
hlaupa 3,4 km og byrja kl. 14.45.
Karlar, 15 ára og eldri, hlaupa
6,8 km og byrja kl. 14.45. Hlaup-
ið er unt Brekkuna í Byggða- og
Lundahverfi. Verðlaun verða
veitt fyrir þrjú fyrstu sæti í hverj-
um flokki. Þátttökugjald er 200
kr.
Handknattleikur:
Gunnar Gísla
tilKA
Nú er orðið öruggt að
Gunnar Gíslason leikur með
handboltaliði KA næsta
vetur. Samningur hans við
sænska knattspyrnuliðið
Háckcn rennur út um miðj-
an október og má búast við
að Gunnar komi þá strax
heim og fari að leika með
KA.
Öruggt er að Hans Guð-
mundsson leikur ekki áfram
með KA en Sigurður Sigurðs-
son, formaður handknattleiks-
deildar KA, segir útlit fyrir að
aðrir leikmenn verði áfram. í
stað Hans koma þeir bræður
Alfreð og Gunnar en ekki er
vitað um fleiri, a.m.k. ekki
eins og staðan er í dag. Fréttir
hafa borist af því að rúmensk-
ur landsliðsmarkvörður korni
hugsanlega til liðsins en
Sigurður segir þetta hafa verið
möguleika en nú sé mjög ólík-
legt að af þessu verði.