Dagur - 30.04.1991, Síða 16
Akureyri, þriðjudagur 30. apríl 1991
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
íbesta ^Pedíoniyndir
Hafnarstræti 98, simi 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis:
Iimlánsaukning langt
umfram landsmeðaltal
- rekstrarhagnaður 3,4 milljónir króna
Rekstur Sparisjóðs Þórshafnar
og nágrennis gekk vel á síðasta
Rekstrarhagnaður var 3,4
an
T1« / •
Fjonr
Akureyri:
rétt-
indalausir
gómaðir
Lögreglan á Akureyri stöðvaði
fjóra réttindalausa ökumenn á
bifhjólum sl. föstudag.
Að sögn Árna Magnússonar,
varðstjóra hjá lögreglunni, voru
piltarnir á þrem léttum bifhjólum
og einu venjulegu bifhjóli. óþh
SkagaQörður:
Vindheima-
fénu lógað
- ósamið um
Skörðugilsféð
Skorið hefur verið niður vegna
riðu sem kom upp í fjárstofni
að Vindheimum í Lýtingsstaöa-
hreppi í Skagafirði. Riðusmit
greindist í einni kind þar í síð-
ustu viku og var fénu því farg-
að og það urðað.
Féð var í eigu Sigmundar
Magnússonar og var hjörðin alls
um hundrað og sextíu fjár. Samið
var um hefðbundnar bætur fyrir
féð. Að sögn Kjartans Blöndal
framkvæmdastjóra Sauðfárveiki-
varna hafa Sauðfjárveikivarnir
ekki enn náð samningum um
bætur fyrir fé sem var lógað í vet-
ur vegna riðu á Syðra-Skörðugili
í Seyluhreppi. Að sögn Kjartans
voru þær kröfur sem fram voru
settar óaðgengilegar og því ekki
hægt að fallast á þær. Einar E.
Gílslason mun þó á næstunni eiga
viðræður við landbúnaðarráðu-
neytið um bótakröfurnar en ekki
náðist í Einar vegna málsins. kg
milljónir króna en hagnaður-
inn var 9 milljónir árið 1989.
Heildarrekstrartekjur spari-
sjóðsins námu 42,2 milljónum
kr. á móti 65,4 milljónum árið
1989. Heildarrekstrargjöld
námu 19,9 milljónum á móti
38.5 milljónum árið áður.
Þessar upplýsingar koma fram
í ársreikningi sparisjóðsins fyrir
árið 1990. Þar kemur einnig fram
að launakostnaður nam 8,5 millj.
kr. á síðasta ári og hafði vaxið
frá fyrra ári um 12,4%.
Eiginfjárstaða sparisjóðsins er
sterk. Alls nam eigið fé í árslok
45.5 milljónum og hafði vaxið um
17,3% frá fyrra ári. Eiginfjár-
hlutfall sparisjóðsins var í árslok
23,7% sem er langt yfir því marki
sem gildandi lög kveða á um.
Heildarinnlán Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis voru í árslok
237.5 milljónir króna og höfðu
vaxið á árinu um 49,7 milljónir
eða 26,5%. Til samanburðar var
innlánsaukning banka og spari-
sjóða árið 1990 að meðaltali
15,1%.
Útlán sparisjóðsins námu í árs-
lok 195,8 milljónum og höfðu
vaxið á árinu um 7,11%. Almenn
útlán innlánsstofnana á landinu
jukust hins vegar um 19,7% á
árinu. SS
Einn af vorboðunum er blcssaður silungurinn. Veiðimenn á Akureyri eru farnir að taka fram stengur sínar og hafa
þegar krækt í nokkra. Mynd: Golli
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Hagnaður í fyrra tæpar 60 milljónir
Hagnaður Kaupfélags Þingey-
inga nam rúmlega 59 milijón-
um króna á síðasta ári og var
velta félagsins 1.744 milljónir
sem er 20% aukning frá fyrra
ári. Fjármunamyndun rekstar-
ins var 62,4 milljónir en var
43,8 milljónir árið 1989. Þetta
kom fram á aðalfundi félagsins
sem var haldinn sl. laugardag.
Eigið fé félagsins er 247.9 millj-
Loðdýrabúskapurinn:
Sól yfir Kaupmamiahafnaruppboði
Gott verð fékkst fyrir íslensk
refaskinn á skinnauppboði í
Kaupmannahöfn um helgina og
í gær seldust íslensk minka-
skinn á uppboði ytra fyrir mun
hærra verð en fengist hefur
lengi. Arvid Kro, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda, segir að leita
verði aftur til ársins 1988 til að
finna sambærilegt skinnaverð
á uppboðum í Kaupmanna-
höfn.
Á þessu uppboði í Kaupmanna-
höfn voru seld 3003 refaskinn á
meðalverði 299 danskar krónur
(2734 íslenskar krónur).
fari að sjást í fyrstu veggi upp úr
grunninum enda á húsið að véra
að fullu risið í fyrstu viku júlí-
mánaðar. JÓH
íþróttahús á félagssvæði KA:
Teikningarnar samþykktar
Bygginganefnd Akureyrarbæj-
ar kom saman til fundar á
föstudag þar sem teikningar að
íþróttahúsi á félagssvæði KA
voru samþykktar og þar með
heimilað að uppsláttur hefjist.
Á miðvikudag stöðvuðu starfs-
menn hjá embætti bygginga-
fulltrúa bæjarins framkvæmdir
vegna þess að teikningar höfðu
ekki verið samþykktar.
Sigmundur Þórisson, formaður
KA, sagðist í gær ekki vita annað
en öll þessi mál væru leyst og
undirbúningur stæði yfir fyrir
steypu á sökklum hússins. Sam-
kvæmt þeirri verkáætlun sem
kynnt var þegar framkvæmdirnar
hófust má vænta þess að fljótlega
Seld voru 1034 blárefsskinn á
321 Dk (2945 ísl. kr). Til saman-
burðar var verðið í febrúar 184
Dk. Af skuggaref voru seld 1054
stk á 299 Dk (2743 ísl. kr). í
febrúar fengust 215 Dk fyrir
skuggarefsskinnið. Af Bluefrost
voru seld 193 stk á 332 Dk (3046
ísl. kr) samanborið við 253 Dk í
febrúar sl. Seld voru 22 stk af
hvítref fyrir 318 Dk (2917 ísl. kr)
og af silfurref voru seld 102 stk á
371 Dk (3403 ísl. kr), en í febrúar
fengust 238 Dk fyrir silfurrefs-
skinnið.
I gær bárust síðan fregnir af
þvf að veruleg hækkun hefði orð-
ið á minkaskinnum á uppboði í
Kaupmannahöfn. Ekki var hins
vegar vitað á hvaða verði
íslensku minkaskinnin fóru. í allt
voru seld um 170 þúsund skinn
(þar af um 30 þúsund íslensk
skinn). Högnaskinnin fóru á 223
Dk og læðuskinnin á 130 Dk. í
febrúar sl. voru högnaskinnin
hins vegar seld á 129 Dk, en
læðuskinnin á 89 Dk. óþh
ónir og hefur eiginfjárhlutfall
hækkað úr 12% í 19%. Veltufjár-
hlutfall í árslok nam 1,03 í stað
0,97 í ársbyrjun.
Verslunin skilaði rúmlega átta
milljóna tekjuafgangi, sem er um
19,5 milljónum betri afkoma en
árið á undan, og sýna flestar
deildir batnandi niðurstöðu.
Afsláttur til viðskiptavina versl-
unardeilda nam rúmlea 5,3 millj-
ónum króna á árinu. Er hér bæði
um að ræða tilboð og afslátt til
félagsmanna og staðgreiðslu-
afslátt sem viðskiptavinum Mat-
bæjar og Miðbæjar býðst.
Ársverk hjá KÞ voru 165 og
fækkaði um 18 milli ára, munar
þar mest um samdrátt í sauðfjár-
slátrun, vegna þess að í haust var
á ný einnig slátrað á Kópaskeri,
en fé af því svæði var slátrað á
Húsavík haustið áður. Launa-
kostnaður félagsins var 215 millj-
ónir á árinu hækkaði um 4,3%
milli ára en annar rekstrarkostn-
aður hækkaði um 7,6%. Fjár-
magnskostnaður lækkaði verulega
á árinu.
Hreiðar Karlsson, kaupfélags-
stjóri, segir í skýrslu sinni að inn-
viðir félagsins hafi styrkst og
staða þess batnað verulega. Unn-
ið hafi verið samkvæmt þeim,
markmiðum sem félaginu voru
sett á aðalfundi þess vorið 1989,
og verulegur árangur náðst.
Fjárfestingar allar hafi verið í
lágmarki og alls sparnaðar gætt.
Því megi þó ekki gleyma, að rekstr-
arumhverfi síðasta árs hafi reynst
fremur hagstætt, og ekki sé hægt
að treysta slíku að jafnaði. Engu
að síður sé ljóst, að starfsmenn
félagsins hafi lagt sig mjög fram
og félagsmenn sjálfir staðið þétt
saman um það starf, sem hér sé
unnið. Sagðist Hreiðar vilja
þakka öllu þessu fólki sérstak-
lega. IM
Aðalfundur SÁÁ-N:
Góð reynsla af göngudeildinni
Aöalfundur SÁÁ-N var hald-
inn í gær. Þar var m.a. farið
yfir umsvif samtakanna á síð-
asta ári og að sögn Ingjalds
Arnþórssonar, ráðgjafa, fengu
88 einstaklingar sérstaka með-
höndlun á göngudeildinni árið
1990 á móti 77 árið áður.
Af þessum 88 einstaklingum
voru 63 karlar og 25 konur. Með-
alvitjunartími var 18 skipti. Tvö
fræðslunámskeið voru haldin
fyrir alkóhólista og eitt fyrir
aðstandendur. Stuðningsgrúppur
Fiskeldisfyrirtækið Miklilax í Fljótum:
Fékk um 100 milljónir frá Byggðastofiiun
Byggðastofnun hefur afgreitt
um 100 milljóna króna lán til
fiskeldisfyrirtækisins Miklalax
hf. í Fljótum. Fyrirtækið hafði
farið fram á 140 milljóna króna
lánafyrirgreiðslu Byggðastofn-
unar. Fyrirgreiðsla hennar til
Miklalax hf. nemur nú á bilinu
4-500 milljónum króna.
„Þessir peningar fara í hita-
veituframkvæmdir, frágang á
sláturhúsi og að hluta til í
rekstur,“ sagði Reynir Pálsson,
framkvæmdastjóri Miklalax, í
samtali við Dag.
„Við boruðum eftir heitu vatni
fyrripartinn í vetur og höfum að
undanförnu verið að tengja það
út á Hraun. Varmabúskapurinn
að vetrinum hefur verið lélegur
og hefur sett okkur nokkrar
skoröur, en á því verða miklar
breytingar til batnaðar nú,“ sagði
Reynir. óþh
voru vikulega allt árið. Skráð
einkaviðtöl á árinu voru 277 og á
vegum SÁÁ-N fóru um 100 ein-
staklingar í meðferð á sjúkra-
stofnunum SÁÁ.
Ingjaldur sagði að þessar tölur
segðu ekki allt um umsvifin því
fjölmargir þættir væru aldrei
skráðir, s.s. löng símtöl og fjöldi
samtala sem tengdust ákvörðun
einstaklinga að fara til meðferð-
ar.
Ef litið er á árangur af starfi
göngudeildarinnar þá hafa 54 af
þessum 88 einstaklingum ekki
notað áfengi eða önnur vímuefni
aftur, eða 61%. Enn marktækari
er árangur þeirra sem fengu með-
höndlun á göngudeildinni 1989
því að sögn Ingjalds fer svo lang-
ur tími að teljast varanlegur
árangur. Af 77 einstaklingum
hafa 43 ekki notað vímuefni
aftur, eða 56%.
„Árangur þessa hóps er ein-
stakur, en þó sýnist mér sem 1990
hópurinn ætli líka að ná þessum
sama árangri,“ sagði Ingjaldur.
SS