Dagur - 26.06.1991, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 26. júní 1991 - DAGUR - 5
Að snúa faðirvorinu
upp á andskotann
Núverandi ríkisstjórn hefur setið
við völd í um tvo mánuði. Lands-
menn hafa nú fengið smjörþefinn
af því sem koma skal og ekki
örgrannt um að fari um þá suma.
Svo virðist sem sagan ætli að
endurtaka sig. Vaxtahækkanir og
gjaldþrot atvinnufyrirtækja virð-
ast enn vera þeir helstu vegpóstar
sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins ætlar að varða veginn með.
Vissulega með góðum stuðningi
Alþýðuflokksins.
„Gúrú“ ríkisstjórnarinnar
Oft hefur heyrst að sá ágæti
maður, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, sé einn af helstu
hugmyndafræðingum forsætis-
ráðherra og einn helsti „gúrú“
ríkisstjórnarinnar í vaxta- og
efnahagsmálum. Honum virðist
líka lífið bærilega um þessar
mundir, ef marka má grein eftir
hann í Pressunni nú nýlega.
Fróðlegt er fyrir lesendur Dags
að kynnast lítillega þeim viðhorf-
um sem fram koma í áðurnefndri
grein.
Hávaxtastefnan og
skuldakóngarnir
Tilefni greinarinnar er að
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, hefur kvartað undan
hávaxtastefnu ríkisstjórnarinnar.
Hannes Hólmsteinn segir að
launþegar eigi peningana í
bönkunum en fyrirtækin taki þá
að láni. Ef vextir eru keyrðir nið-
ur með handafli, jafngildi það
„millifærslu fjár frá venjulegum
launþegum til fyrirtækjanna, for-
stjóra þeirra og eigenda“. Með
andstöðu við „hávaxtastefnuna"
séu menn „að heimta slíka milli-
færslu, aðstoð við skuldakóng-
ana, sem stunda þessa dagana
laxveiði af miklu kappi.“
Almenningur hagnast ekki
Vel getur verið að venjulegt fólk
eigi mikla peninga í bönkum og
fái einhvern tekjuauka við vaxta-
hækkanir. í þeim flokki er þó
varla það fólk sem nú berst um á
hæl og hnakka að halda íbúðum
sínum og gerir hvað það getur til
að halda sjó þegar vaxtaholskefl-
urnar ríða yfir. Að segja að vaxta-
hækkanirnar séu gerðar til að
allur almenningur í landinu
hagnist, er að snúa faðirvorinu
upp á andskotann.
Ekki í þágu Iaunþega
Sé málið hugsað áfram er það
heldur ekki hagur venjulegs
launafólks að vaxtagjöld fyrir-
tækja aukist á ný. Þótt sumir
virðist hafa flestu gleymt og
ekkert lært, þá er almenningur á
íslandi ekki búinn að gleyma því
að fyrir aðeins þremur árum var
nánast búið að koma aðul-
atvinnuvegum landsmanna á
hausinn. Ég fullyrði að það er
ekki í þágu launþega ef leika á
sama leikinn með ófyrirséðum
afleiðingum.
Guðntundur Stefánsson.
Misheppnað
hagstjórnarkerfi
Hvað sem öllum hagkenningum
líður, þá held ég að það hafi sýnt
sig að vaxtahækkanir luifa ekki
verið það hagstjórnartæki sem
frjálshyggjumenn hafa viljað
halda fram. Hækkun vaxta dreg-
ur ekki að marki úr eftirspurn
eftir fjármagni, heldur veldur
fyrst og fremst auknum tilkostn-
aði í fyrirtækjum, gengisbreyt-
ingum og verðbólgu. Reynslan
hefur sýnt að „lögmál hins frjálsa
markaðar“ hefur átt erfitt upp-
dráttar í okkar smáa samfélagi.
.Fari efnahagsntálin nú eina
: ferðina enn úf skofði|m, þá mun
það.' mest ska^)£jí. Jitflutnings-
atvinnuvegina og""“þvf» fyrst og
fremst atvinnulífið úti á landi.
Þegar erfiðleikar koma upp í
atvinnulífinu, hvort sem það er í
Ólafsvík eða á Akureyri, þá
verður að bregðast við þeim af
kjarki og þori og láta einskis
ófreistað að halda uppi atvinnu
sem skapar fólkinu viðurværi og
þjóðinni auð.
Uppgjöf og undansláttur
Fólk hefur nú fengið for-
smekkinn að því sem koma skal.
Það er greinilegt að hagsmunir
þess fólks sem enn býr ofan
Elliðaánna eru ekki hafðir að
leiðarljósi þessa dagana. Ríkis-
stjórnin virðist hvorki þekkja né
trúa á þá möguleika sem eru
þrátt fyrir allt í landinu og meðal
þjóðarinnar. Uppgjöf og undan-
sláttur einkenna vinnubrögð
hennar. Þetta er mesta hörmung.
Nú er ekki annað að gera en bíta
á jaxlinn og snúa bökum saman.
Þó það sé trúa ríkisstjórnarinnar,
þá megum við hin þó aldrei trúa
því að við getum lifað af gjald-
þrotum og almennum aumingja-
skap.
Guðmundur Stcfánsson.
Höfundur er fyrrverandi framkvæmda-
stjóri fstess hf.
Strákarnir sem ekki sleppa hendi af Kolling Stones. Frá vinstri eru Richard
Donatcllo, bassi, Kent „Richards“ Börjesson, söngur og gítar, Sören
„Jagger“ St. Vincent, söngur, Ronny Skoog, gítar og Bongo Fury,
trommur. Mynd: Golli
Sjallinn Akureyri:
Sticky Fingers spila
- sérhæfa sig í Rolling Stones
Til Akureyrar er komin
sænska rokkhljómsveitin
Sticky Fingers. Hún hefur sér-
hæft sig í að spila Rolling
Stones-smelli og verður í Sjall-
anum tvö næstu kvöld en
hljómsveitin spilaði þar einnig
tvö síðastliðin kvöld. Hljóm-
sveitin er á 12 daga hljómleika-
ferðalagi á Islandi á vegum
Hótels íslands og spilar á
Fáskrúðsfirði um helgina.
Hljómsveitin sem samanstend-
ur af fimm atvinnutónlistarmönn-
um frá Stokkhólmi og Gautaborg
hefur starfað saman í tvö og hálft
ár og síðastliðið hálft ár undir
nafninu Sticky Fingers sem feng-
ið er af samnefndri breiðskífu
Rolling Stones.$l Hljómsveitin
hefur sérhæft sig í að spila vinsæl-
ustu lög Rolling Stones svo sein
Angie, Satisfaction, Happy,
Honky Tonk Women og Mixed
Emotions en í samtali við Dag
sögðust þeir hafa á færi sínu að
spila yfir 50 vinsælustu lög RS og
auk þess Chuck Berry-lög sem
RS hefðu gefið út á plötum
sínum.
Sticky Fingers spilaði í Sjallan-
um á mánudags- og þriðjudags-
kvöld og spilar þar einnig næstu
tvö kvöld. Hljómsveitarmeðlim-
irnir sögðu í samtali við Dag að
þeir væru rokkhljómsveit og
vildu fá rokkáheyrendur í sam-
ræmi við tónlistina en þeir eru
sagðir ná RS-tóninum ótrúlega
vel. í Reykjavík spiluðu þeir fyrir
matargesti sem voru heldur í
eldri kantinum. Hljómsveitar-
meðlimirnir, sem voru nýlentir er
Dagur náði tali af þeim, sögðu
fyrstu kynni af Akureyri vera
mjög góð en í Reykjavík fannst
þeim erfitt að ná sambandi við
fólk enda voru áheyrendur þar
heldur lokaðir. Aðalsöngvarinn
Sören „Jagger“ St. Vincent sagði
mjög mikilvægt að vera velkom-
inn og sagði Akureyri vera vina-
legan bæ sem þó væri úr alfara-
leið. GT
Ferðagetraun Ríkisskipa
á Sumarsýningunni 1991
Á Sumarsýningunni 1991, sem haldin var í íþróttahöllinni dagana 7.-9.
júní var Ríkisskip með ferðagetraun sem vakti mikla athygli.
. Rúmlega 2200 sýningargestir tóku þátt í leiknum, sem fólginn var í því
að finna út hvað margar golfkúlur komast í 30 rúmmetra gám. Ríkis-
skipsmenn fengu prófessor hjá Háskóla íslands til að reikna þetta
nákvæmlega út, og komst hann að niðurstöðu sem var mjög nálægt
sigurvegaranum, en hann nefndi 553,036 kúlur. Sigurvegarinn er Páll
Freyr Jónsson, Þingvallastræti 16, 600 Akureyri. Vinningurinn er ferð
fyrir tvo með m/s Heklu til Færeyja, en Ríkisskip siglir vikulega frá
Áusturlandshöfnum, á nokkrar hafnir í Færeyjum. Vinningurinn gildir
hvort sem er frá Reykjavík eða Akureyri.
Við óskum Páli til hamingju með vinningínn.
^ RÍKISSKIP