Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagur - 26.06.1991, Side 7

Dagur - 26.06.1991, Side 7
Miðvikudagur 26. júní 1991 - DAGUR - 7 Guðný Úlfarsdóttir og Elías Pétursson heyja einvígi. Myndir: SBG Verðlaunahafar í Rallíkrossi f.h.: Elías, Sigmundur, Hermann og Guðný Axels. Dalakofa-bílkrossið á Króknum: Elías sigraði í harðri keppni Laugardaginn 15. júní var haldið á Sauðárkróki, Dala- kofa-bílkross á vegum Bíla- klúbbs Skagafjarðar. Keppnin var liður í Islandsmeistaramót- inu í bílkrossi, en sú íþrótt á nú vaxandi vinsældum að fagna víða um land. Til bílkrosssins á Króknum mættu þrettán manns, en Elías Pétursson, 26 ára Garðbæingur, bar sigur úr býtum eftir harðvítuga keppni. Skagfirðingar eiga núverandi íslandsmeistara í bílkrossi, Hermann Halldórsson og að sjálfsögðu var hann mættur til leiks á laugardáginn. Keppendur komu að norðan, sunnan og vest- an og var meirihlutinn karlmenn þó tvær konur laumuðu sér með. Einna mesta athygli vakti að Örn Ingólfsson, 53 ára gamall rall- kappi, mætti til leiks ásamt þrem- ur sonum sínum og voru þeir feðgar með fjóra bíla í krossinu. í norðankalda voru fyrstu keppendurnir ræstir eftir að tímataka hafði farið fram. Þannig gekk það koll af kolli án teljandi óhappa, nema hvað Skodi, Ægis Arnarsonar lenti á hliðina með smáhjálp frá öðrum keppanda. Að tveimur umferðum loknum hafði Guðný Úlfarsdóttir náð bestum tíma samanlagt og skotið körlunum ref fyrir rass með snilldarlegum akstri á gömlum. rallíbíl af Toyotu Starlet gerð, en ekkj dugði það henni til sigurs. SkodaSaabinn sigraði Nokkuð var um að menn ættu við bilanir að stríða og ekki luku allir keppni af þeim sökum. Ellefu tókst þó að vera með í úrslitaum- ferðinni, þeirri fjórðu og var hart barist. Pað fór þó ekkert á milli mála að sigurvegarinn var Elías Pétursson á Skodabifreið sinni sem búið er að setja í tveggja lítra Saabvél. Hann náði ætíð besta startinu og virtust þar hjálpast að stærri vél og aukin þyngd á drifhjólin, auk að sjálf- sögðu góðra aksturstilþrifa. En annars var sætaröðin þessi: 1. Elías Pétursson Garðabæ, Skod'a 2000. 2. Sigmundur Guðnason Reykjavík, Toyota Corolla. 3. Hermann Halldórsson, Sauðárkróki, Toyota Celica 1600. 4. Grétar Skarphéðinss. Akureyri, Toyota Starlet. 5. Guðný Úlfarsdóttir Kópavogi, Toyota Starlet. 6. Halldór Arnarson Búðardal, Daihatsu Charmant. 7. Örn Ingólfsson Sauðárkróki, Trabant. 8. Óliver Pálmason Reykjavík, Lada 1500. 9. Ægir Arnarson Sauðárkróki, Skoda 1300. 10. Guðmundur Rúnarss. Kópavogi, Lada 1600. 11. Guðný Axelsdóttir Sauðárkróki, MMC Galant 1600 Tilþrifakeppni í lokin Að keppni lokinni var ákveðið að allir þeir keppendur sem áhuga hefðu á mættu taka þátt í keppni uin tilþrifabikarinn. Fór hún þannig fram að þessu sinni að all- ir voru ræstir í einu og óku síðan brautina í fimm mínútur og reyndu að sýna tilþrif sem vöktu athygli dómnefndarinnar. Varð úr þessu hálfgerður darraðadans því flestir ákváðu að vera með. Harðir pústrar voru veittir og við það styttist Skodinn hans Ægis um hálfan metra og menn misstu lijól undan bílum sínum. Að endingu reyndust það vera konumar, Guðný Úlfars og Guðný Axels, sem sýndu mest tilþrif því þær keyrðu af sér alla karlana og voru einu keppendurnir sem luku þessum fimm mínútna akstri. Þær urðu því að deila með sér til- þrifabikarnum og varð einhverj- um að orði við verðlaunaafhend- inguna í Dalakofanum um kvöldið að gott væri nú að hafa sög til að skipta verðlaununum. Þess má geta að Skodinn hans Elíasar var klár á götuna strax eftir keppni þegar búið var að skrúfa í hann Ijós og fleira á nýj- an leik og ók hann suður á hon- um skrámulausum daginn eftir. Sex keppnir eru inni í íslands- meistaramótinu í bílkrossi og er tveimur þeirra lokið. Eftir eru ein keppni á Akureyri, ein á Króknum og tvær fyrir sunnan. SBG Egilsstaðir: Ráðste&ia og vöru-, tækni- og þjónustusýning í haust - stefnt að metþátttöku Ráðstefna ásamt vöru-, tækni- og þjónustusýningu verður haldin á Egilsstöðum laugar- daginn 7. september nk. Sýn- ingin verður í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Framkvæmdastjóri Lagna- félags íslands undirbýr ráðstefn- una og sýninguna í samvinnu við Samtök tæknimanna sveitar- félaga, Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Samband íslenskra hitaveitna, Rafmagns- veitur ríkisins og iðnaðarráðu- neytið. Við undirbúning hefur verið tekið mið af sérstöðu Aust- firðinga þar sem víða má finna dæmi um háan orkukostnað. Fimmtán fyrirtæki voru þátt- takendur í sýningunni á Akureyri í september 1989, þrjátíu og þrjú voru þátttakendur í sýningunni á ísafirði í september 1990 og aðstandendur sýningarinnar á Egilsstöðum stefna að því að nær tvöfalda töluna enn og ná um 60 sýnendum. Námskeið fyrir pípulagninga- menn og fleiri um stillingu hita- kerfa, sem Lagnafélag íslands og Samband íslenskra hitaveitna komu á stað fyrir tveimur árum og hefur verið haldið tíu sinnum á ýmsum stöðum á landinu, verð- ur haldið á Egilsstöðum samhliða ráðstefnunni og sýningunni. Lagnamenn og aðrir þeir sem hafa áhuga á hagkvæmum lagna- kerfum og orkunýtingu eru hvatt- ir til að nýta sér þetta tækifæri til að auka þekkingu sína og kynna góða vöru og þjónustu. Nánari tilhögun og dagskrá verða auglýst síðar. Verðlagsstofnun: Auglýsingar sem gefa til kynna að bifreiðar séu „umhverfisvænar“ eru brot á lögum Undanfarið hefur borið á því að bifreiðar hafa verið auglýstar með orðum sem gefa til kynna að þær séu „umhverfisvænar“ eða „vistvænar". Þegar seljendur ákveðinna bifreiðategunda auglýsa þær sem „vistvænar" eða „umhverfisvæn- ar“ gefa þeir í skyn að bifreiðarn- ar séu skaðlausar náttúrunni eða jafnvel að þær bæti hana. Enn- fremur er látið í veðri vaka að bifreiðarnar sem auglýstar eru þannig séu betri fyrir umhverfið en aðrar bifreiðar. I auglýsingunum sem birst hafa að undanförnu kemur ekki fram hvers vegna bifreiðarnar eru „umhverfisvænar“ né að mati hvers þær eru það. Enginn hlut- laus aðili hefur metið það svo að bifreiðarnar séu „umhverfisvæn- ar“ eða hafi minni skaðlegar afleiðingar fyrir náttúruna. í auglýsingum verður að nota orð eins og „umhverfisvænn" eða „vistvænn" í þröngri merkingu. Orðin verða að merkja eitthvað sem bætir eða að minnsta kosti skaðar ekki umhverfið eða nátt- úruna. Hlutlaus aðili verður að hafa lagt á það mat hvort tiltekin vara sé umhverfisvæn t.d. með sér- stakri merkingu. Það er augljóslega villandi að nota fyrrnefnt orðalag almennt um bifreiðar sem hafa skaðleg áhrif á umhverfið. Af þessu tilefni vill Verðlags- stofnun benda á að samkvæmt 27. gr. laga nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti er óheimilt að veita rangar, ófull- nægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum. Einnig mega upplýsingarnar ekki vera þannig að þær séu óhæfilegar gagnvart neytendum eða öðrum atvinnurekendum. Það verður að telja óréttmæta viðskiptahætti að notfæra sér það á villandi hátt að neytendur eru nú móttækilegri fyrir umhverfis- og náttúrvernd en áður. Verður samkvæmt framan- sögðu að telja að það sé bæði vill- andi og óhæfilegt gagnvart neyt- endum að auglýsa bifreiðar sem sérstaklega „umhverfisvænar“ og er það brot á 27. gr. fyrrnefndra laga. íþrótta- og leikjanámskeið Næstu iþrotta- og leikjanámskeið á vegum Þórs verða haldin dagana 01.07-12.07 og 15.07-27.07. Verö fyrir hvert barn er kr. 700. Leiðbeinandi er Matthea Siguröardóttir. Pantanir í síma 22381 eða í Hamri félagsheimili Þórs. TRYGGINGASTOFNUN JÖÖRÍKISINS Lyfjaskírteinishafar Öll lyfjaskírteini sem eru í gildi 1. júlí gilda til áramóta, án tillits til áritunar um annan gildis- tíma. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.