Dagur - 26.06.1991, Síða 11
Miðvikudagur 26. júní 1991 - DAGUR - 11
Iþróttir
Mjólkurbikarkeppnin:
Leiftur vann á Dalvík
Það var mikil stemmning á
Dalvíkurvelli í gærkvöld þegar
á fimmta hundrað áhorfendur
fylgdust með nágrannaslag
Dalvíkinga og Leifturs í 3.
umferð Mjólkurbikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Heima-
mönnum varð þó ekki að ósk
sinni því gestirnir sigruðu 4:3
og halda því áfram í 16 liða
úrslitin.
Leiftursmenn náðu forystunni
eftir 15 mínútur þegar Dalvíking-
urinn Þorsteinn Guðbjartsson
skoraði sjálfsmark. Sóknarað-
gerðir Leiftursmanna voru held-
ur markvissari en Dalvíkingar
sóttu hins vegar meira og Örvar
Eiríksson náði að jafna metin á
43. mínútu.
Matthías Sigvaldason kom
Leiftri aftur yfir fljótt eftir hlé en
Ágúst Sigurðsson jafnaði fyrir
Dalvík eftir mikil mistök í Leift-
ursvörninni. Pað var síðan Gunn-
laugur Sigvaldason sem gerði út
um leikinn þegar hann skoraði
tvívegis á 35. og 37. mínútu en
mikil rangstöðulykt var af seinna
markinu. Eftir þetta dró heldur
af Dalvíkingum en þeir hresstust
aftur' þegar Árni Sveinsson skor-
aði fallegt mark beint úr auka-
spyrnu 7 mínútum fyrir leikslok.
Sóttu heimamenn af ákafa í lokin
en Ólafsfirðingar vörðust vel og
héldu fengnum hlut.
Önnur úrslit í 3. umferð urðu
þessi:
Huginn-Þróttur N. 1:4
Þór-Tindastóll 3:0
Dalvík-Leiftur 3:4
Þróttur R.-ÍBK 3:4
ÍA-Fylkir 2:1
Haukar-ÍK 0:1 GG/JHB
Fyrirhafiiarlaus sigur
Þórs á Tindastól
Þórsarar áttu ekki í miklum
vandræðum með að tryggja sér
sæti í 16 liða úrslitum Mjólkur-
bikarkeppninnar í knattspyrnu
þegar þeir mættu Tindastól á
Akureyrarvelli í fyrrakvöld.
Munurinn á liðunum var aug-
Ijós og 3:0 sigur Þórs hefði
hæglega getað orðið helmingi
meiri.
Það tók Þórsara um það bil 10
mínútur að ná undirtökunum en
eftir það réðu þeir öllu um gang
leiksins. Þeirn gekk þó ekkert
alltof vel að skapa sér færi en
Bjarni Sveinbjörnsson var engu
að síður búinn að misnota eitt
slíkt þegar hann náði forystunni á
34. mínútu, fékk ágæta sendingu
frá Nóa Björnssyni og renndi
boltanum fram hjá markverði
Tindastóls sem kominn var
hættulega langt út í teiginn. Þórs-
arar sóttu látlaust eftir þetta og
þegar komið var fram yfir venju-
legan leiktíma í fyrri hálfleik
bætti Þórir Áskelsson öðru marki
við og er óhætt að kalla það
stórglæsilegt. Hann fékk boltann
rúllandi á móti sér við hægra víta-
teigshornið og þrumaði viðstöðu-
laust í stöngina og inn.
Seinni hálfleikur var ákaflega
keimlíkur þeim fyrri, Þórsarar
réðu því sem þeir vildu ráða og
Bjarni Sveinbjörnsson bætti
þriðja markinu við beint úr auka-
spyrnu á 60. mínútu. Skotið var
lúmskt en hefði átt að vera við-
ráðanlegt fyrir markvörðinn. Eft-
ir þetta dofnaði yfir leiknum,
Þórsarar slökuðu á en sóknarað-
gerðir Stólanna voru algerlega
hættulausar. Þór fékk horn í lok
leiksins en um leið og Júlíus
Tryggvason skallaði í markið
flautaði dómarinn leikinn af og
markið var því ekki gilt.
Þórsarar léku ágætlega með
Nóa, Júlíus og Bjarna sem bestu
menn. Tindastólsliðið lék afleit-
lega, allt spil í molum, baráttan
lítil og vörnin ósannfærandi.
Liö Þórs: Friörik Friðriksson, Lárus Orri
Sigurðsson, Birgir Þór Karlsson (Árni
Þór Árnason á 65. mín.), Nói Björnsson,
Sveinn Pálsson, Þorsteinn Jónsson, Hall-
dór Áskelsson, Júlíus Tryggvason,
Ásmundur Arnarsson (Axel Vatnsdal á
57. mín.), Þórir Áskelsson, Bjarni Svein-
björnsson.
Lið Tindastóls: Stefán Vagn Stefánsson,
Gunnar Gestsson. Hólmar Ástvaldsson
(Smári Eiríksson á 62. mín.), Björn
Björnsson. Gcorg Nazario, Kevin
Grimes, Sigurjón Sigurðsson, Guðbrand-
ur Guðbrandsson (Sigurður Ágóstsson á
46. mín.), Grétar Karlsson, Guðbjartur
Haraldsson, Stefán Pétursson.
Mörk Þórs: Bjarni Sveinbjörnsson 34. og
60., Þórir Áskelsson 46.
Dómari: Marinó Þorsteinsson.
Línuverðir: Valdimar Freysson og Árni
Arason.
Opna breska skólamótið í borðtennis:
Sjö Grenvíkingar í
íslenska liðinu
- sem heldur utan á laugardag
Sjö keppendur frá íþróttafé-
laginu Magna á Grenivík eru í
20 manna liði Islendinga sem
tekur þátt í Opna enska skóla-
mótinu í borðtennis sem fram
fer í Birmingham dagana 5.-7.
júlí. Þetta verður í fimmta sinn
sem íslendingar taka þátt í
mótinu.
Keppendurnir frá Grenivík eru
Ægir Jóhannsson, Elín Þorsteins-
dóttir, Elva Helgadóttir, Berg-
lind Bergvinsdóttir, Hjördís
Skírnisdóttir, Margrét Ósk
Hermannsdóttir og Margrét Ösp
Stefánsdóttir en alls eru 20
rnanns í íslenska liðinu. Auk
íslendinga taka Englendingar,
Skotar, írar, Walesbúar, Manar-
menn og Tékkar þátt í mótinu.
íslenska liðið hefur æft stíft
undanfarnar vikur. Hólmfríður
Björnsdóttir hefur stjórnað
æfingum á Grenivík að mestu en
aðalþjálfari landsliðsins, Kristján
Viðar Haraldsson, kom til Greni-
víkur á dögunum og tók góða
skorpu.
Hópurinn heldur utan laugar-
daginn 29. júní og dvelur í æf-
ingabúðum í Englandi í 5 daga
fyrir mót. Æfingum úti stjórnar
Brian Wright, skoskur borðtenn-
issnillingur sem hefur þjálfað
íslenska unglingalandsliðið þar
úti sl. 4 ár.
F rj álsíþróttir:
Norðlenskir
imglingar keppa
fyrir íslands hönd
á Evrópumóti
Þrír norðlenskir unglingar taka
þátt í „Europian youth olymp-
ic days“ eða Evrópumóti æsk-
unnar dagana 17. til 21. júlí nk.
í Brussel í Belgíu. Hér er um
að ræða keppni unglinga 17
ára og yngri.
Þetta eru Óniar Kristinsson
UMSE sem keppir í 400 metra
hlaupi en hans besti árangur er
51,9 sek.; Sunna Gestsdóttir
USAH sem keppir í 200 metra
hlaupi og hefur hlaupið á 25,91
sek. og Hákon Sigurðsson HSÞ
sem keppir í 800 metra hlaupi, og
hefur hlaupið á 2.05,56 mín.
Um helgina keppa íslendingar
í C-Evrópukeppni í frjálsíþrótt-
um í Viseu í Portúgal. Meðal
landsliðsmanna er Jón Stefáns-
son UFA sem keppir í 5000 m
hlaupi. Jón er í námi í Bandaríkj-
unum og hefur tekið stórstígum
framförum að undanförnu. 26.
maí sl. hljóp hann hálfmaraþon-
hlaup í borginni St. Paul á tíman-
um 1.10.35 klst. GG
Árni Hermannsson er sennilega með markheppnari varamönnum landsins
og hann brást ekki liði sínu í gær.
Samskipadeildin:
Árni skoraði úr fyrstu snert-
ingunni og tryggði KA stig
- þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Víði
KA-menn máttu þakka fyrir
að ná einu stigi út úr viðureign
sinni gegn Víði á Akureyrar-
velli í gærkvöld. Reyndar réðu
þeir gangi leiksins lengst af og
seinni hálfleikurinn fór að
mestu fram á vallarhelmingi
Víðismanna en færin létu á sér
standa og ekkert annað en
ósigur blasti við þegar Árna
Hermannssyni var skipt inná 6
mínútum fyrir leikslok. Hann
tók sér mínútu umhugsunar-
frest áður en hann skoraði úr
sinni fyrstu snertingu og
tryggði KA-mönnum jafntefli
gegn botniiðinu.
Leikurinn var óskaplega slakur
og KA-menn hafa sennilega ekki
leikið verr nema ef vera skyldi
gegn Breiðabliki í 2. umferð.
Liðinu gekk erfiðlega að ná upp
samspili, leikur þess einkenndist
af löngum og háum sendingum
sem sterk Víðisvörnin átti ekki í
nokkrum vandræðum með. Víð-
ismenn voru reyndar engu skárri
en náðu þó forystunni á 17. mín-
útu þegar Ólafur Róbertsson
skoraði með þrumuskoti af 35
metra færi. Boltinn hafnaði í
þverslánni, fór þaðan í bak
Hauks markvarðar og endaði í
netinu. „Ég hefði átt að eiga
þennan bolta en var of seinn.
Ætli ég hafi ekki verið of framar-
lega,“ sagði Haukur Bragason
eftir leikinn.
Ekkert gekk né rak hjá KA-
mönnum í sókninni fyrr en líða
tók á leikinn. Þeir náðu reyndar
upp sæmilegu spili á miðjunni og
vængjunum í seinni hálfleik en
þegar kom að vítateig Víðis rann
allt út í sandinn. í lokin voru
menn þó farnir að finna þefinn af
jöfnunarmarkinu og það kom
loks á 85. mínútu. Örn Viðar tók
þá innkast frá vinstri, Erlingur
nikkaði inná teiginn þar sem
Pavel reyndi hjólhestaspyrnu en
hitti ekki og boltinn barst til
Árna sem þrumaði honum vafn-
ingalaust í netið.
Eins og fyrr segir léku KA-
menn illa þrátt fyrir að þeir hafi
átt mun meira í leiknum. Vörnin
er aðall liðsins og miðjan er öll að
koma til en sóknarleikurinn er
bitlítill. Annars lék allt liðið und-
ir getu og beið ósigur sem gæti
reynst dýrkeyptur þegar fram í
sækir.
Baráttan einkennir Víðisliðið
öðru fremur og vörnin gæti vel
átt eftir að reynast ntörgum lið-
um erfið. Daníel Einarsson var
mjög sterkur aftast, yfirburða-
maður á vellinum í þessum leik.
l.ið KA: Haukur Bragason, Stcingrímur
Birgisson, F.rlingur Kristjánsson, Hall-
dór Halldórsson (Árni Hcrmannsson á
84. ntín.), Ormarr Örlygsson, Örn Viðar
Arnarson, Páll Gíslason, Gauti Laxdal,
Svcrrir Sverrisson, Einar Einarsson,
Pavel Vandas (Árni Freystcinsson á 88.
mín.).
Liö Víöis: Gísli Hreiðarsson, Klemcns
Sæmundsson, Ólafur Róbcrtsson, Daníel
Einarsson, Guðjón Guðmundsson, Vil-
bcrg Þorvaldsson, Stcinar Ingimundar-
son, Grétar Einarsson, Hlynur Jóhanns-
son (Björn Vilhelmsson á 66. mín.), Karl
Finnbogason, Sigurður Magnússon.
Mark KA: Árni Hermannsson 85.
Mark Víöis: Ólafur Róbertsson 17.
Gul spjöld: Steingrímur Birgisson og
Pavel Vandas, KA. Steinar Ingintundar-
son, Víði.
Dómari: Ólafur Ragnarsson.
Línuvcröir: Eyjólfur Ólafsson og Engil-
berf Runólfsson.
Staðan
1. deild
Stjarnan-Víkingur 3:4
Valur-IBV 1:2
KA-Víöir 1:1
UBK-KR 1:1
Fram-FH miðvikud.
KR 6 4-2-0 13: 2 14
UBK 6 4-2-0 11: 5 14
ÍBV 6 3-1-2 9: 8 10
Valur 6 3-0-3 6: 6 9
Víkingur 6 3-0-3 12:13 9
Fram 5 2-1-2 7: 5 7
KA 6 2-1-3 6: 8 7
FH 5 1-2-2 5: 6 5
Stjarnan 6 1-1-4 5:11 4
Víðir 6 0-2-4 4:12 2
Markahæstir
Guðnt. Steinsson, Víkingi 6
Steindór Elíson, Breiðabliki 6
2. flokkur:
Öruggt hjá KA gegn FH
KA-menn sigruðu FH 3:1 í C-
riöli 2. flokks á Menntaskóla-
vellinum á Akureyri á mánu-
dagskvöldið. Staðan í hléi var
3:0.
KA-menn áttu mun meira í
leiknum frá fyrstu mínútu. Svo
undarlega vildi til þó að mörkin
létu standa á sér þar til þeir voru
orðnir einum færri en Höskuldur
Þórhallsson fékk að líta rauða
spjaldið fyrir óviðurkvæmileg
ummæli eftir 20 mínútur.
Skömmu síðar skoruðu KA-
menn þrjú mörk með stuttu milli-
bili. Baldur Hólm skoraði beint
úr aukaspyrnu af 30 m færi,
Sigurður Öli Ólason komst í
gegnum vörn FH og renndi af
öryggi í markið og Helgi Níels-
son bætti þriðja markinu við af
stuttu færi eftir fyrirgjöf.
í seinni hálfleik komu FH-ing-
ar meira inn í leikinn og minnk-
uðu muninn með skoti sem
Eggert Sigmundsson hefði varið
á góðum degi. FH-ingar sóttu
síðan meira í framhaldinu en
KA-menn héldu fengnum hlut.