Dagur - 08.08.1991, Blaðsíða 1

Dagur - 08.08.1991, Blaðsíða 1
74. árgangur Akureyri, fímmtudagur 8. ágúst 1991 147. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Framtíð ullar- iðnaðarins á Akureyri skýrist íþessummánuði - unnið af krafti að málinu hjá Iðnþróunar- félagi EyjaQarðar Eyjaljarðarsveit: Rannsókna- borunin í landi Hóls- gerðis lofar góðu Þessa dagana er verið að vinna úr gögnum og kanna stöðu mála varðandi Álaföss hf. hjá Iðnþróunarlelagi Eyjafjarðar. Ásgeir Magnússon, fram- kvæmdastjóri IFE, segir að frétta geti verið að vænta af málinu um miðjan mánuðinn. Margt starfsfólk Álafoss hf. er komið aftur til vinnu að loknu sumarleyfi, en reiknað er með að í næstu viku verði allir komnir til starfa sem voru endurráðnir. Nokkrir starfsmenn verða ekki ráðnir að nýju eftir uppsagnirnar, en ekki er fullkomlega ljóst enn sem komið er hversu margir missa atvinnuna. Kolbeinn Sigurbjörnsson, sem sæti á í starfsmannaráði Álafoss hf., segir að í sínum huga sé spurningin ekki hvort heldur hvernig fyrirtækið verði reist úr rústum eftir gjaldþrotið. „Nú er verið að safna saman tölfræðileg- um uppiýsingum, og í framhaldi af því verður hægt að taka endan- legar ákvarðanir um hvernig reksturinn verður byggður upp,“ segir Kolbeinn. Eftir því sem næst verður kom- ist bendir flest til að línurnar muni skýrast nægilega mikið í þessum mánuði til að grundvöllur sé til að taka ákvörðun um fram- haldið. Kolbeinn kveðst eiga von á að málið fari inn á borð bæjar- stjórnar Akureyrar ekki síðar en í næsta mánuði. „Ég tel að menn verði að taka ákvarðanir í þess- um efnum í þessum mánuði, það er mín skoðun. Verkefnastaðan er þokkaleg hérna eftir því sem ég best veit, en eitthvað er um að fólk er ekki endurráðið til starfa," segir hann. Birgir Marinósson, starfs- mannastjóri Álafoss hf., segir að langflestum starfsmönnum verði boðin endurráðning, eða um níutíu af hundraði. Pau mál munu þó ekki skýrast að fullu fyrr en í næstu viku. EHB Undanúrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ í kvöld: Þórsarar taka á móti bikarmeistunmum Þórsarar taka í kvöld á móti Valsmönnum í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Akureyrarvelli og hefst kl. 19. Eins og mönnum er enn í fersku minni rúll- uðu Þórsarar KR-ingum upp í átta liða úr- slitunum og spennandi verður að sjá hvernig þeim reiðir af í slagnum við núverandi bikar- meistara í kvöld. í Garðinum verður hinn leikurinn í undanúrslitunum og taka heimamenn í Víði á móti FH-ingum. Búist er við miklum fjölda fólks á leikinn og vitað er af fjölda stuðningsmanna Vals, sem ætla að koma norður gagngert til að sjá hann. Dyggir stuðningsmenn Þórsara hituðu upp fyrir leikinn í gær og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Frá vinstri Samúel Jóhannsson, Óskar Erlendsson, Guðmundur Sigurbjörnsson, Magnús Jónatansson og Ragnar Breiðfjörð. óþh Fimm sekúndulítrar af fímmtíu og þriggja gráðu heitu vatni fengust í byrjun vikunnar í landi Hólsgerðis í Eyjafjarðar- sveit. Rannsóknaborunin hef- ur því skilað árangri og önnur hola verður ekki boruð sem ráðgert var. Rannsóknaborun eftir heitu vatni hófst í landi Hólsgerðis í Eyjafjarðarsveit sl. fimmtudag, en áður hafði Orkustofnun gert jarðfræðilega úttekt á svæðinu. „Heitt vatn er fyrir hendi sem niðurstöður borunar sýna. Nú þarf að bora holuna dýpra því gert er ráð fyrir að hægt sé að ná vatni með hærra hitastigi. Ákvörðun hefur ekki verið tekin um þá framkvæmd, en ástæðu- laust þykir að bora aðra rann- sóknaholu, árangurinn þykir lofa það góðu nú þegar,“ sagði Birgir Þórðarson oddviti Eyjafjarðar- sveitar. ój Sérfræðingaskýrsla um Mývatnsrannsóknir lögð fram í gær: Fyrst og fremst pólitísk ákvörðun hvaða kostur verður fynr valiuu - segir Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður nefndarinnar Skýrsla sérfræðinganefndar um Mývatnsrannsóknir var lögð fram í gær. I henni kemur fram að bein áhrif Kísiliðjunn- ar hf. á lífríki vatnsins eru mun minni, en óttast var. Þrátt fyrir að aukning hafí orðið á ákomu næringarefna, niturs og fosfórs, í vatnið hafa þau lítil áhrif á næringarbúskap þess. Einnig kemur fram í skýrslunni að hjálparefnin sódi og brenni- steinssýra, sem notuð eru í vinnsluferli Kísiliðjunnar, geta ekki borist í skaðlegu formi til Mývatns, miðað við núverandi vinnslurás verksmiðjunnar. Á blaðamannafundi, sem hald- inn var í gær í tengslum við útkomu skýrslunnar, sagði Eiður Guðnason, umhverfisráðherra, að ráðuneytið myndi senda Lögreglusamþykkt Akureyrarkaupstaðar: Úrelt og 37 ára gömul - endurskoðun í biðstöðu á annan áratug „Enginn má baða sig eða syncía nakinn við bryggjur bæjarins eða annars staðar svo nærri landi eða skipum á höfn- inni, að hneyksli valdi.“ Svona hljóðar 8. grein í Lögreglusam- þykkt Akureyrarkaupstaðar, sem er orðin 37 ára gömul. Yfírlögregluþjónn segir fulla þörf á að samþykktin verði færð í nútímahorf enda sé hún gömul og úrelt. Útgáfa nýrrar lögreglusamþykktar er ekki í bígerð hvorki hjá bæjaryfir- völdum né hjá bæjarfógeta. Dómsmálaráðuneytið hefur slíkt ekki á dagskrá. Samþykktin tekur mið af lifn- aðar- og staðháttum sem ekki eiga lengur við 14000 manna höfuðstað Norðurlands enda eru ákvæði um búfjárhald og hrossa- rekstra í ósamræmi við nútímann í lögsagnarumdæmi Akureyrar. Ýmis ákvæði samþykktarinnar stangast á við núgildandi löggjöf og miðast umferðarreglur t.d. við tímabundna ökuljósanotkun og vinstri-reglu, sem var afnumin 1968. Einnig er margt í lögreglusam- þykktinni sem óþarft er að skrifa í reglur og skyggja annmarkarnir á það sem þarft er og skyit að slíkar reglur innihaldi. Opnunar- tími félagsmiðstöðva Akureyrar- bæjar brýtur í bága við 20. grein lögreglusamþykktarinnar, sem útlistar útivistartíma barna. Nánari úttekt á Lögreglusam- þykkt Akureyrarkaupstaðar er gerð í opnu blaðsins í dag. GT skýrsluna til Náttúruverndarráðs strax í næstu viku, en lögum sam- kvæmt er það umsagnaraðili um efni slíkrar skýrslu. Ráðherra sagði að búast mætti við umsögn- inni í næsta mánuði og þá myndi umhverfisráðuneytið í samvinnu við iðnaðarráðuneytið gefa sér góðan tíma til að velta fyrir sér hvort Kísiliðjunni yrði veitt áframhaldandi rekstrarleyfi, en það rennur út um næstu áramót. Þótt ekki hafi verið sýnt fram á að kísilvinnsla í Mývatni hafi haft veruleg áhrif á dýra- og plöntu- stofna Mývatns sagði Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður nefndar- innar, að áhrif breytinga á set- flutningum séu enn lítið rannsök- uð og því verði að fara að öllu með mikilli gát. Það séu fjórir möguleikar sem til greina komi með rekstur Kísiliðjunnar. í fyrsta lagi að loka verksmiðjunni sem fyrst og taka þannig enga áhættu varðandi frekari áhrif hennar á lífríki Mývatns. í öðru lagi að framlengja eins og kostur er dælingu í Ytriflóa, þó þannig að áhrif á uppeldissvæði og fæðu- öflunarsvæði vatnafugla verði sem minnst og ekki verði veru- legir setflutningar úr Syðriflóa f Ytriflóa. í þriðja lagi að veita Kísiliðjunni hf. leyfi til að nýta sér vinnslusvæðið á Bolum, enda hafi forsvarsmenn Kísiliðjunnar bent á að það sé eðlilegt fram- hald vinnslu í Ytriflóa. í fjórða lagi bendir nefndin á þann kost að leyfa áfram dælingu kísilgúrs án frekari fyrirvara. Þetta sé þó varla raunhæfur möguleiki miðað við þá varfærni sem sjálfsögð sé fyrir nýtingu þessarar auðlindar. { máli Vilhjálms Lúðvíkssonar kom fram að nefndin sem slík tæki ekki afstöðu til ofangreindra kosta. „Það er fyrst og fremst pólitísk ákvörðun hvaða kostur verður valinn,“ sagði formaður- inn. AP/óþh Tjörnes: Skall á brúar- stólpa og valt Erlcndur ferðamaður var flutt- ur á sjúkrahús á Húsavík eftir að bifreið sem hann ók skall á brúarstólpa og valt út af vegin- um á móts við Mánárbakka á Tjörnesi á fímmta tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar á Húsa- vík slapp farþegi í bílnum án telj- andi meiðsla, en bifreiðin er mjög illa farin. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.