Dagur - 23.08.1991, Side 3

Dagur - 23.08.1991, Side 3
Föstudagur 23. ágúst 1991 - DAGUR - 3 Fréttir Þingflokkur og landsstjórn Framsóknarflokksins og aðrir gestir við höfnina á Húsavík í gær. Mynd: im Þingflokksfundur framsóknarmanna á Húsavík: Verulegar áhyggjur af við- horfi nkisstjómar Davíðs - segir Páll Pétursson, formaður þingflokksins Þingflokkur framsóknarmanna og Landsstjórn Framsóknar- flokksins héldu fund á Húsavík í gær með forustumönnum flokksins í kjördæminu og heimsóttu fyrirtæki og stofnan- ir í bænum. Þeir heimsækja síðan Kópasker í dag. Páll Pétursson, formaður þing- flokksins, sagði í samtali við Dag að sá háttur hefði verið á hafður, að fara í það minnsta einu sinni á ári og halda vinnufund úti á landi og hitta heimamenn á hverjunt stað. „Ég held þetta sé gagnlegt, bæði að sjá sig um og kynnast fólki og fá víðari sýn á verkefnin. Það hefur verið gaman að koma hér til Húsavíkur og vel tekið á móti okkur og ég vona að fundur- inn verði gagnlegur,“ sagði Páll fyrir fundinn í gær. „Við hljótum að hafa verulegar áhyggjur af því viðhorfi sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar virðist hafa, því afskiptaleysi og ég vil segja and- úð sem hún virðist hafa á atvinnulífinu og jafnvel á þeirri byggðastefnu sem fylgt hefur verið. Forsætisráðherra gengur fram fyrir skjöldu að úthrópa byggðastefnuna og það sem gert hefur verið í byggðamálum. Pað hlýtur að setja að manni ákveð- inn óhug og mér þykir sennilegt að þetta komi til umræðu á fund- inum. Við lítum það mjög alvar- legum augum ef á að fara að rífa til grunna það velferðarþjóðfélag sem við höfum verið að byggja upp á undanförnum áratugum, eins og núverandi valdhafar hafa uppi hótanir um. Við munum ræða minnisverða atburði í heimsmálum, atburðina í Sovétríkjunum m.a og afstöð- una til Evrópubandalagsins og stefnuna í atvinnumálum yfir- leitt," sagði Páll, aðspurður um efni þingflokksfundarins á Húsa- vík. 1M Sérhönnuð slökkvibifreið kynnt á Akureyri: „Slík bifreið hentar lands- byggðinni fyrst og fremst“ - sagði Erlingur Helgason, forstjóri Krafts hf. I gær voru staddir á Akureyri Erlingur Hclgason, forstjóri Krafts hf., og Guðmundur Guðmundsson, fv. slökkviliðs- stjóri Flugmálastjórnar, til að kynna sérhannaða slökkviliðs- bifreið. Undanfarin átta ár hefur Kraftur hf. flutt inn til landsins 9 nýjar slökkviliðsbifreiðar. Þessar bifreiðar eru af MAN gerð með yfirbyggingu frá H.F. Nielsen í Danmörku. Bifreiðarnar eru nú staðsettar f Reykjavík, Hafnar- firði og á Akureyri, auk þess á flugvöllunum í Reykjavík og á Akureyri. „Okkur hefur orðið stöðugt ljósari sú þörf, að koma með á markaðinn staðlaða slökkviliðs- bifreið sem hentað gæti sem flest- um byggðalögum og kauptúnum. í dag erum við með slíka bifreið er við sýnurn vítt og breitt um landið. Astæður þessa sýninga- framtaks eru að reyna að sam- rærna uppbyggingu slökkviliðs- bifreiða sem henta landsbyggð- inni auk þess að tryggja bestu mögulegu þjónustu fyrir bruna- varnir landsins. Hvað varðar þessa sýningabifreiða höfum við haft samráð við Brunamálastofn- un, Vátryggingafélag íslands hf. auk fjölda slökkviliðsntanna og slökkviliðsstjóra sem liafa stutt okkur í þessu brunavarnaátaki. Undirtektir lofa góðu, að hér fari frábær og vel uppbyggð slökkvi- bifreið sem geti þjónað og hentað landsbyggðinni," sagði Erlingur Helgason, forsijóri Krafts hf. Bæjarverk hf.: MM vinna við malbikun á bflastæðum og gangstéttum Mikil og stöðug vinna hefur verið frá því snenima í vor hjá fyrirtækinu Bæjarverki hf. á Akureyri en það hefur sérhæft sig í lagningu malbiks á bíla- stæði og við heimahús og einnig gangstéttagerð. Verkefni falla til víða, á næst- unni verður farið inn í Kristnes og malbikað hjá íbúðum aldr- aðra, síðan til Dalvíkur og mal- bikað bílastæði Frystihúss KEA og einnig gangstéttir og þaðan liggur leiðin í Árskógshrepp. Eðli málsins samkvæmt er mjög lítið að gera yfir vetrarmánuðina en þá er boðið upp á snjómokstur og hraðsögun en við það.ej notuð lussasög sem hentar mjög vel til að saga t.d. fyrir gluggum eða baggagötum á hlöðuveggi fyrir bændur. Yfir sumartímann starfa 8 manns hjá fyrirtækinu en fækkar verulega á haustin. GG Landssamband kúabænda: AðaJfundur á Laugalandi - búist við miklum umræðum um skipulagningu mjólkurvinnslunnar Aðalfundur Landssambands Kúabænda veröur haldinn á Laugalandi á Þelamörk mánu- daginn 26. ágúst næstkom- andi. Ýmis málefni er varða mjólkurframleiðsluna í land- inu verða rædd á fundinum og búist er við að umræðan muni einkum snúast um endurskipu- lagningu á vinnslukerfi mjólk- urafurða. Guðmundur Lárusson, bóndi á Stekkum II í Ölfusi og formaður Landssambands Kúabænda, sagð- ist búast við miklum umræðum um endurskipulagningu mjólkur- vinnslunnar. Eins og kunnugt er kom út skýrsla nefndar er ætlað var að fjalla um skipulagsmál mjólkurvinnslunnar á síðastliðnu vori. í skýrslunni voru settir fram ýmsir valkostir og bent á kosti þeirra og galla. Guðmundur Lár- usson sagði að í skýrslunni hefði ekki verið mælt með neinni ákveðinni leið en umræður hafa farið fram á meðal kúabænda um málin í sumar. Á fundinum mun Guðmundur kynna hugmyndir um endurskipulagningu í mjólk- urvinnslunni og því má búast við verulegum umræðum um það mál. ÞI Lögun sauðprframleiðslunnar að neyslu: Síðara þrep í uppkaupum Mvirðisréttar á næsta ári Samkvæmt búvörusamningn- um nýja er stefnt að því að laga sauðfjárræktina að innan- landsneyslu á kindakjöti. Fyrra skrefið í þessari aðgerð stendur nú yfir með uppkaup- um á fullvirðisrétti en síðara skrefið verður á næsta ári með sambærilegum kaupum á full- virðisrétti en ekki er vitað hve stórt hlutfall af virkum rétti þarf þá að kaupa. í þessu fyrra þrepi aðlögunar sauðfjárræktarinnar að innan- landsframleiðslu á að kaupa upp 60.769 ærgildi eða rúm 1100 tonn af virkum fullvirðisrétti. Þessum uppkaupunt á að vera lokið 1. september og þá kemur til almennrar niðurfærslu á rétti bænda eftir hverju svæði fyrir sig. Hve mikið þarf að kaupa upp af fullvirðisrétti á næsta ári ræðst af innanlandsneyslu kindakjöts á yfirstandandi ári. Fram til þessa hefur sala á óvirkum fullvirðisrétti verið treg. Þetta kann að hafa áhrif á síðara þrep aðlögunarinnar að mark- ! aðnum en þessi trega sala bendir til þess að þeir sem af einhverjum orsökum eiga óvirkan rétt ætli að hefja framleiðslu á nýjan leik. Þetta getur haft þau áhrif að full- virðisréttur verði færður niður urn allt að 17% á næsta ári en ekki 12% eins og í ár, að því gefnu að innanlandssala á kinda- kjöti verði 8600 tonn í ár. JÓH Samtök framsóknarkvenna í Norðurlandskjördæmi eystra: Stofníiindur á Húsavík 21. september Samtök framsóknarkvenna í Norðurlandskjördæmi eystra, verða stofnuð á Hótel Húsavík laugardaginn 21. september nk. og hefst stofnfundurinn kl. 14. Ákvörðun um stofnun saintak- anna var tekin á fundi framsókn- arkvenna á Akureyri sl. miðviku- dagskvöld. I haust verða tíu ár liðin frá stofnun Landssambands Fram- sóknarkvenna og verður þess minnst á þingi samtakanna 4.-5. október í Reykjavík. Á fundinum á Akureyri var kjörin undirbúningsnefnd fyrir stofnun samtakanna en hana skipa: Anný Larsdóttir, Sigfríður Þorsteinsdóttir, Kristrún Sig- tryggsdóttir og Úlfhildur Rögn- valdsdóttir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.