Dagur - 23.08.1991, Síða 5

Dagur - 23.08.1991, Síða 5
Föstudagur 23. ágúst 1991 - DAGUR - 5 Veiðiklóin Ekki alltaf hefðbundin veiði úr ánum: Hnúðlaxar og álar á færum veiðimanna Nokkrir hnúðlaxar hafa komið á land í sumar úr ám sem renna út í Eyjafjörð. Einn sex punda hnúðlax kom á land úr Eyja- fjarðará í fyrradag og daginn áður kom einn úr Hörgá en þar hafði fyrr í sumar komið hnúðlax á landi, sem og úr Fnjóská. Þá hefur blaðið vitn- eskju um að hnúðlax hafi kom- ið úr Ormarsá fyrr í sumar. Hnúðlax eða bleiklax er bein- fiskur af laxaætt. Hængar fá um hrygningartímann hnúð eða kryppu á bakið auk þess sem litur verður skær. Heimkynni bleik- laxins voru upprunalega í N- Kyrrahafi og innhöfum þess en Sovétmenn hafa sleppt bleiklaxi í ár í Síberíu og Rússlandi og hef- ur hann síðan flækst um NA- Atlantshaf allt til Noregs, Bret- lands og íslands. Hér við land varð lians fyrst vart árið 1960. Þessi fiskur getur orðið allt að 75 cm að lengd. Gott sumar í Svarfaðardalsá En frá hnúðlaxinum hverfum við að silungsveiðinni í Svarfaðar- dalsá. Jón Halldórsson í verslun- inni Sportvík á Dalvík segir að veiðin hafi verið góð í sumar en smærri fiskur hafi veiðst allra síð- ustu dagana. „Veiðin hefur verið nokkuð jöfn þó komið hafi dauð- ir dagar inn í milli. Annað svæðið hefur vaknað til lífsins síðustu dagana og í dag eru menn að veiða allt upp í 3 punda urriða á þessu svæði en þarna hefur þó aðallega verið bleikjuveiði," sagði Jón í gær. Hann segir að um 10 laxar séu nú komnir úr ánni, allt frá 4 upp í 11 pund. Alltaf slæðist einn og einn lax úr ánni þó kunnust sé hún fyrir bleikjuveiði enda sjötta aflahæsta bleikjuveiðiá landsins á síðasta ári. Lítið varir við smábleikju enn Einar Long í Eyfjörð á Akureyri segir að auk hnúðlaxins hafi veiðst nokkrir smálaxar í Eyja- fjarðará síðustu dagana. Þá hafi veiðimenn orðið varir við talsvert af stórbleikju en hins vegar sé lít- ið enn um smábleikju. Búast má þó við að hennar fari að verða vart innan tíðar. Dagamunur er á veiðinni í Hörgá, að sögn Einars, og úr Fnjóská eru komnir 70-80 laxar. 29 laxar... og einn áll Úr Aðaldal eru þær fréttir að Laxá sé um það bil að ná 1100 fiskum en þar hefur mönnum gengið misjafnlega síðustu dag- ana. Heyrst hefur þó af mönnum sem gert liafa ágæta túra í ána. Úr Húseyjarkvísl eru komnir 80 fiskar, eða svipað og á þessum tíma í fyrra. Laxá á Ásum er í um 750 löx- um en þar fékk eitt holl í vikunni 29 laxa á tveimur vöktum, en sem kunnugt er eru tvær stangir í Gimnar Öm og Jóhann Eyfells Mtrúar íslands - á samnorrænni nútímalistasýningu um „afurðir" náttúrunnar ar um Norðurlönd. Fyrst í Vadstena í Svíþjóð og síðan í Finnlandi, Noregi og Danmörku. Ráðgert er að sýningin verði f Reykjavík í byrjun ársins 1993. Fimmtudaginn 15. ágúst síð- astliðinn var opnuð í tengslum við aðalfund Norrænu bænda- samtakanna, umfangsmikil myndlistasýning í Vadstena í Svíþjóð, sem ber yfirskriftina „Hvað gefur náttúran?“ og er hún sett saman að frumkvæði Norrænu bændasamtakanna. Fyrir rúmu ári kom fram sú hugmynd hjá Norrænu bænda- samtökunum að efna til sýningar á norrænni samtímalist, þar sem temað yrði „Hvað gefur náttúr- an?“. Norrænu bændasamtökin fengu til liðs við sig sérfræðinga frá nokkrum helstu listsöfnum á Norðurlöndum, til að koma með tillögur um val listamanna og úrvinnslu á sýningunni. Á sýningunni gefur að líta 63 verk eftir 10 norrræna Iistamenn. Þeir eru frá Danmörku: Anette Holdensen, myndhöggvari og John Olsen, málari. Frá Finn- landi: Jukka Makela, málari og Kain Tapper, myndhöggvari. Frá íslandi: Jóhann Eyfells, mynd- höggvari og Gunnar Örn, málari. Frá Noregi: Kjell Nypen, útskurður og Bárd Breivik, myndhöggvari. Frá Svíþjóð: Hans Wigert, málari og Laris Strunke, málari. í tengslum við sýninguna er gefin út vegleg sýningarskrá, þar sem er gert grein fyrir sýningar- hugmyndinni. Auk þess eru stutt- ar greinar um tengsl náttúru og myndlistar í hverju landi. í sýn- ingarskránni, sem gefin er út á 6 tungumálum, er fjöldi litmynda af verkum viðkomandi hsta- manna. Sýningin „Hvað gefur náttúr- an?“ mun verða sett upp víðsveg- ánni. Reyndar voru Iaxar ekki það eina sem þessir veiðimenn drógu á land því einn 70 cm áll ágirntist færi veiðimanna líka og segir sagan að köppunum hafi brugðið í brún þegar þeir lönd- uðu skepnunni. JÓH Þengill Jónssun með fallegan lax sem hann fékk í Kistukvísl í Laxá í Aðaldal fyrr í sumar. Næringarsjampó írá Rev1 on Revlon hefur nú bæst í hóp þeirra sjampóframleiðenda, sem bjóða sjampó og næringu í sömu flöskunni, og býður nú upp á Flex & Go 3 tegundir næringar- sjampós fyrir mismunandi hár- gerðir. í frétt frá innflytjanda Revlon- snyrtivaranna, segir m.a.: „Flex hársnyrtivörurnar hafa verið á íslenska markaðnum um langt árabil og eru löngu landsþekktar. Flex & Go er einkum ætlað þeim sem hafa tileinkað sér lífs- máta heilsubyltingarinnar, sem hefur í för með sér mikla hreyf- ingu og útiveru. Því fylgir gjarn- an sturta og tíður hárþvottur. Kostir þess að nota einungis sjampó með innbyggðri næringu eru því augljósir. “ Flex & Go er til í 3 tegundum, sem henta flestum hárgerðum. IMISSAIM verður í sýningarsal okkar að Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5, laugardaginn 24. ágúst og sunnudaginn 25. ágúst frá kl. 14-17 báða dagana. Komið og reynsluakið! ÍMISSAN Nissan Sunny Sedan 1600, 16 ventlavél, rafmagn í rúðum, sentral-læsingar, upphituð sæti, svo eitthvað sé nefnt. Einnig sýnum við Subaru Legacy og Justy, ásamt öðrum gerðum af Nissan. Komið og kynnið ykkur kjör og ræðið við sölumenn. Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Simi 22520 - Akureyri. Ingvar Helgason hf. sævarhöfða 2. Rokkbondið leikur fyrir donsi föstudogskvöld Húsið opnoö kl. 23.00 Frítf inn tll kl. 24.00 Kjallorinn Guðmundur Rúnor Lúðvíksson leikur fyrir gesti miðviku-, fimmtu-, föstu- og lougordog Síðsumorkvöld í Sjollanum 24. ágúst Kvöldverður, skemmtun 09 donsleikur aðeins kr. 1900 Guðrún Gunnorsdóttir og Derglind Djörk Jónosdóttir syngjo gomlor og góðor lummur og fræðo okkur um þekktor söngkonur síðustu áratuga Jóhonnes Kristjánsson eftirhermo lætur gamminn geyso Morgrét Pétursdóttir sem sló svo eftirminnilega í gegn í Söngvaseið heimsækir æskuslóðir og syngur lög úr þekktum söngleikjum Mafseðill: HumorsúpQ Cardinal Ungverskar svínakótileftur með saltbakaðri kartöflu og kaperssósu Kaffi og konfekt Donsleikur með Rokkbandinu fil kl. 00.00 Dorðapontanir í símo 22770 - Ath. Panfið í tímo - Síðost komust færri oð en vildu Húsið opnað kl. 19.00 SJALLINN

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.