Dagur


Dagur - 23.08.1991, Qupperneq 11

Dagur - 23.08.1991, Qupperneq 11
Föstudagur 23. ágúst 1991 - DAGUR - 11 Íþróttir Frjálsar íþróttir: Átta íslend- ingar á HM í Japan Heimsmeistaramótið í frjáls- um íþróttum fer fram í Tokyo dagana 24. ágúst til 1. sept- ember. 8 íslenskir íþróttamenn verða meðal þátttakenda á mótinu og þeirra á meðal er Sigurður Matthíasson, spjót- kastari úr UMSE. Alþjóðafrjálsíþróttasamband- ið setti mjög ströng lágmörk fyrir þátttöku í þeim tilgangi að tryggja aðeins besta frjálsíþrótta- fóiki heims keppnisrétt á mótinu. Þrátt íyrir þetta tara 8 íslenskir frjálsíþróttamenn til Japan og í einni grein, spjótkasti karla, eig- um við þrjá keppendur en það er hámarksfjöldi sem hver þjóð má senda og er sjaldnast nema á færi stórþjóða að fylla þennan hóp. Peir sem héldu til Japan í vik- unni eru: Einar Vilhjálmsson spjótkast Martha Ernstsdóttir 10000 m hlaup íris Grönfeldt spjótkast Pétur Guðmundsson kúluvarp Sigurður Einarsson spjótkast Sigurður Matthíasson spjótkast Vésteinn Hafsteinsson kringlukast Pórdís Gísladóttir hástökk Magnús Jakobsson fararstjóri Hreinn Halldórsson liðsstjóri Þráinn Hafsteinsson þjálfari Petta verkefni er mjög kostn- aðarsamt fyrir Frjálsíþrótta- sambandið og hefur af þeim sök- um verið opnaður reikningur nr. 2641 í Landsbanka 139. Það er von FRÍ að velunnarar frjáls- íþrótta sjái ástæðu til að styrkja íþróttafólkið með því að leggja inn á reikninginn. íþróttir KNAITSPYRNA Eöstudagur 2. dcild: Tindastóll-Þróttur kl. 19 Selfoss-Þór kl. 19 3. dcild: Dalvík-Reynir kl. 19 Laugardagur 1. deild kvcnna: I’róttur N.-Þór kl. 14 2. dcild kvcnna: Dalvík-KS kl. 14 Tindastóll-Leiftur kl. 14 3. dcild: Þróttur N.-Leiftur kl. 14 ÍK-Magni ki. 14 yölsungur-KS kl. 14 Úrslitakcppni 4. dcildar: Grótta-Hvöt kl. 14 2. flukkur A: Víkingur-Þór kl. 14 Sunnudagur 2. flokkur A: Valur-Þór kl. 11 Mánudagur 2. flokkur C: KA-Haukar kl. 18.30 AFLRAUNIR Keppnin um titilinn „Aflraunameist- ari lslamls“ fer fram við jþróUahöll- ina á Akurcyri á morgun. Keppni hefst kl. 10 og lýkur um kl. 17. GOLF Akureyri: Lacoste á laugardag. 18 holur með og án forgjafar. Dalvík: Opið mót laugardag og sunnudag._ Mývatnssveit: Mývatnsmótið föstudag og laugardag. 36 holur mcð og án forgjafar. Hlömluós: Opna TM-mótið laugardag og sunn- udag. 36 holur með og án forgjafar. FRJÁLSAR ÍÞRÓTIIR Unglingamót UMSS fer fram á Fylk- isvelli, Blönduhlið, laugardag og sunnudag. UMSE-UÍA-HSÞ á Egilsstööuin á laugardag. Flosi Jónsson geysist hér um með vörubíl í eftirdragi. Hann verður meðal þátttakenda á morgun. Aflraunameistari íslands 1991: Tólf Qallhraustir taka vel á því Skíðalandsliðin: Luku hring- ferðinni á 118 tímum Skíðalandsliðin luku hringferð sinni um landið um kl. 10.30 í gærmorgun. Kapparnir höfðu þá lijólað 3056 km á 118 klukkutímum og vantaði því 50 tíma upp á að ferðin tæki viku. Meðalhraðinn var 25.9 km á klst. Ferðin gekk betur en jafnvel bjartsýnustu menn höfðu þorað að vona en talað var um að reyna að halda 20 km meðalhraða. Veður var gott allan tímann þar til í fyrrakvöld en þá var það orð- ið snælduvitlaust, sérstaklega þegar farið var um Snæfellsnesið. Rögnvaldur Ingþórsson lenti þá tvívegis í því að hjólið fauk undan honum en hann slapp með skrámur. Ekki er vitað hversu mikið fé safnaðist með tiltækinu en for- maður SKÍ sagðist í gær hafa á tilfinningunni að þetta hefði gengið vel, sérstaklega hefðu við- tökur á Norðurlandi og Vest- fjörðum verið góðar. keppnin á Akureyri á morgun Árleg keppni um titilinn „Afl- raunameistari íslands“ fer 350 pollar á Króksmóti Um helgina verður hið árlega Króksmót í knattspyrnu haldið á Sauðárkróki. Styrktaraðili mótsins er Fiskiðjan Skagfirð- ingur hf. en mótið er í umsjá Tindastóls. Um 350 pollar mæta til leiks í 31 liði frá Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Hofsósi, Skagaströnd, Blönduósi, Hvamms- tanga, Grundarfirði, Stykkis- hólmi og Sauðárkróki. Keppt er í 5., 6. og 7. flokki. Hápunktur mótsins verður þegar forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhendir verð- laun í mótslok á sunnudaginn. Handknattleikur: ÞóráVorupCup 2. deildarlið Þórs í handknatt- leik heldur í dag til Danmerkur þar sem liðið tekur þátt í árlegu móti sem kallast Vorup Cup. Liðið leikur 5 leiki á 2 dögum í mótinu, síðan 4 æfingalciki að því loknu og kemur aftur heim eftir viku. Fjölmörg lið í ýmsum flokkum taka þátt í mótinu en í meistara- flokki karla eru 18 lið í þremur riðlum. Pórsarar eru í riðli með IF Stadion, Köge HK, Hvam HK, TST 79 og Dronningborg. Prógrammið er stíft því á morgun leikur liðið fjóra leiki og einn á sunnudag. Par með er þátttöku í mótinu lokið nema Þór komist í úrslit. Þess má geta að 100 þús- und krónur eru í verðlaun fyrir sigur á mótinu. í næstu viku leika Pórsarar síð- an fjóra æfingaleiki, tvo gegn Ribe, sem Jan Larsen þjálfaði áður en hann kom til Þórs, og einn gegn Bjerringbro og Skjern. Liðið kemur aftur til Islands á laugardag og leikur gegn Hauk- um á Akureyri á sunnudags- kvöldið. Pórsarar hafa undirbúið sig vel fyrir ferðina, æft stíft og ieikið æfingaleiki, m.a. gegn FH í gærkvöld. fram um helgina, að þessu sinni á Akureyri. Keppnin hefst á morgun við íþróttahöll- ina og munu 12 fjallhraustir menn etja kappi í 8 greinum. Meðal þeirra eru Akureyring- arnir Torfi Ólafsson, FIosi Jónsson og Pétur Broddason. Af öðrum keppendum má nefna Andrés Guðmundsson, kúluvarpara, Magnús Hauksson, júdókappa, Jón Gunnarsson, margfaldan methafa í kraftlyft- ingum, og Njál Torfason, „Vest- fjarðaskelfi". Eins og áður sagði hefst keppnin við íþróttahöllina kl. 10 í fyrramálið á 30 metra bíla- drætti. Næstu sex þrautir fara fram í garðinum við Sundlaug- ina. Þar verður m.a. keppt í tunnuhleðslu, dekkjakasti, steina- kúluhleðslu á tunnur og reiptogi. Síðasta þrautin hefst kl. 16.30 en þá verður keppt í kirkju- tröppuhlaupi með 50 kg á bak- inu. Verðlaunaafhending fer svo fram við Akureyrarkirkju hálf- tíma síðar og Aflraunameistari íslands hlýtur glæsilega aflrauna- styttu sem er 30 kg að þyngd, gefna af GuHsmiðastoíunni Skarti á Akureyri. -bjb 1. deild kvenna: Létt hjá Þór í Ejjum Þór vann auðveldan sigur á Tý, 6:2, í 1. deild kvenna í Vestmannaeyjum á miðviku- dagskvöld. Leikurinn var ein- stefna nánast allan tímann og hefðu Þórsarar átt að geta bætt við helmingi fleiri mörkum. Það var reyndar Týr sem náði forystunni með marki Stefaníu Guðjónsdóttur strax á I. mínútu. Tveimur mínútum síðar jafnaði Ellen Óskarsdóttir fyrir Þór og eftir það tók Þórsliðið öll völd. Ellen bætti öðru marki við og íris Thorleifsdóttir breytti stöðunni í 3:1 fyrir hlé. í seinni hálfleik skoruðu Þórunn Sigurðardóttir, Lára Eymundsdóttir og Inga Huld Pálsdóttir fyrir Þór en Sara Ólafsdóttir minnkaði muninn fyr- ir Tý í leikslok. Þór lagaði verulega stöðu sína í fallbaráttunni með sigrinum en ljóst er að Týr leikur í 2. deild á næsta ári. Knattspyrna: KÞ-mótið á Húsavík Á morgun, laugardag, kl. 10 hefst KÞ-mótið í knattspyrnu fyrir 5. flokk á Húsavíkurvelli. Til mótsins koma lið frá eftir- töldum félögum: íþróttafélagið Höttur Egilsstöðum með a- og b- lið, KS frá Siglufirði með a- og b- lið, Þróttur frá Neskaupsstað, a- og b-lið, Ungmennafélagið Efl- ing Reykjadal með b-lið, íþrótta- félagið Eilífur Mývatnssveit með a-lið, íþróttafélagið Magni Grenvivík með a-lið og gestgjaf- arnir í Völsungi verða með a- b- og c-lið. Ekki verður öllum tíma móts- ins varið í boltaspark. Ýmislegt verður gert til að gera gestunum dvölina sem skemmtilegasta. Boðið verður upp á grillveislu, sundlaugarferð, skoðunarferð í Safnahúsið og á laugardagskvöld- ið verður flugeldasýning sem félagar úr kiwanisklúbbnum Skjálfanda sjá um. Vonandi verða veðurguðirnir í sólskinsskapi og halda aftur af miklum vindi og ekki síður af regninu. Keppnin sjálf hefst kl. 10 að morgni laugardags og verð- ur leikið með hléum til kl. 19. Á sunnudag hefst keppnin einnig kl. 10 og leikið fram á miðjan dag en um kl. 16 er stefnt að verð- launaafhendingu og mótsslitum. Aðalstyrktaraðili mótsins er Kaupfélag Þingeyinga og vil ég við þetta tækifæri flytja KÞ inni- legar þakkir fyrir sinn þátt í þessu mótshaldi. Svo vil ég í lokin einnig færa öllum þeim fjöl- mörgu, sem með einum eða öðr- um hætti lögðu hönd á plóg til að þetta mót gæti orðið að veru- leika, kærar þakkir og óska þess að allir sem hér eiga hlut að máli muni eiga skemmtilega og góða helgi. Ég vil hvetja Húsvíkinga til að fara á völlinn og fylgjast með þessum ungu knattspyrnudrengj- um í leik sínum. Með bestu Völsungskveðju Hatliði Jósteinsson. Punktar frá Þýskalandi ■ Stuttgart varð fyrsta liðiö til að sigra Hansa Rostock þegar liðin mættust f Stuttgart á miðvikudagskvöldið. Stutt- gart sigraði 3:0 í bráðskémmti- legum leik sem 60 þúsund áhorfendur fylgdust með. Ljóst er að það var ekki Stutt- gart sem dró alla þessa. áhorf- endur að enda hefur liðið ekki veriö sannfærandi hingað til en nú varð breyting þar á. Liðsuppstilling Stuttgart var allnýstárleg, hvorki Eyjólfur né Kastl voru í liðinu heldur voru Walter og Gaudino fremstir og fimm á miðjunni. ■ Cristoph Daum, þjálfari Stuttgart, segir aö Eyjólfur sé ekki kominn út í kuldann þrátt fyrir að hann hafi ekki verið í byrjunarliði í síöustu leikjum. Hann passi hreinlega ekki inn í ieikkerfi liðsins sem stendur en hann hafi sýnt framfarir á æfingum upp á síðkastið og hans tími komi innan skamms. ■ Leverkusen sigraði Duis- hurg 2:1. ■ Frankfurt hélt uppteknum hætti á heimavelli, sýndi sínar bestu hliðar og sigraði Bochuni 2: t. ■ Þýsku meistararnir, Kais- crslautern, máttu hafa sig alla við þegar þeir sigruðu Stutt- gart Kickers 4:3 í bráð- skemmtilegum leik. Við ósig- urinn féllu Kickers úr þriðja sæti í það fimmtánda og eru nú komnir á það ról sem menn reiknuðu almennt með fyrir tímabilið. ■ Ilainhurg og Kóln skildu jöfn 1:1. ■ Bayern Munchen sigraði Scliálkc 3:2 á þriðjudags- kvöldið fyrir frantan 43 þús- und áhorfendur. Heynkes, þjáifari Bayern, er nú vinsæl- asta umræðuefnið í þýsku pressunni og hefur möguleg brottvikning hans veriö þar mjög til umræðu. Margir vilja þó meina að hann sé að gera góða hluti og talandi dænti um styrkleika liðsins er að Wohlfart, markakóngúrinn frá síðasta tímabili, komst ekki á bckkinn heldur sat heima og horfði á leikinn í sjónvarpi. Wohlfart segir sjálfur að verið sé að hegna sér fyrir að leggja sig ekki nægilega fram á æfing- um og hann hafi veriö settur út úr hópnum til aö hann rnissti bónusinn. Hann ætti þó að skrimta því hann hefur um 1400 þúsund krónur á mánuði í fastalaun. ■ Borussia Dortmund sigraði Fortuna Dússeldorf 3:1. Það sem þótti merkilegast við þann leik var að Daninn Flemming Paulsen skoraði fyrir Dortmund. Hann var kcyptur á síðasta tímabili til að skora en hefur gert lítið af því. Þjálf- ari Dússeldorf er Hicken- berger, sá sem var látinn fjúka sem landsliðsþjálfari Austur- ríkis eftir ósigurinn fræga gegn Færeyjum og hann er einn af þeim sem pressan gerir harða hríð að þessa dagana. ■ Werder Bremen sýndi sitt rétta andlit þegar liðið sigraði Borussia Mönchengladbach 2:0 á útivelli. ■ Núrnberg og Dynamo Dresden gerðu 1:1 jafntefli. Núrnberg fékk a.m.k. tíu dauðafæri sem ekki nýttust. Einar Stefánsson, Þýskalandi

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.