Dagur - 14.09.1991, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 14. september 1991
Bautamót í
tvímenningi
(Mitchell - tvímenningur)
hefst þriðjudaginn 17. sept. kl. 19.30.
Spilað verður í Hamri, félagsheimili Þórs.
Skráning fer fram í síma 21695
(Páll H. Jónsson) eða á keppnisstað.
Stjórnin.
Opið liús
Vegna góðrar þátttöku um síðustu helgi
höftun við aftur „Opið hús“
núna um helgina 14. til 15. sept.
frá 13.00 til 17.00 báða dagana.
Og að sjálfsögðu er opið hjá okkur
alla virka daga.
Komið við eða hringið í síma 27899.
Tölvunám „Nám sem nýtist“
Tölvufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34, IV. hæð, Akureyri, sími 27899.
...... 1
Nýtt efni vikulega
mörg eintök af hverri mynd
Leigjum leikjatölvur,
videotökuvélar,
sjónvörp og videotæki
Óáteknar kassettur
á frábæru verði.
Munið skólaafsláttinn
Videover
Myndbandaleiga með metnað
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 26866
Borgarbíó sýnir: Eymd
(Misery).
Leikstjóri: Rob Reiner.
Aðalhlutverk: James Caan, Kathy Bates
og Frances Sternhagen.
Castle Rock Entertainment 1990.
Að öllu jöfnu er ég ekki neitt sér-
lega áfjáður í að horfa á verk er
byggja á sögum Stephens King,
ekki vegna þess að ég telji hann
lélegan höfund heldur vegna hins
að mér fellur ekki bíó-skelfing.
Engu að síður lét ég verða af því
að sjá Eymd, í og með vegna þess
að Kathy Bates fékk Óskarinn
fyrir hlutverk sitt í myndinni. Og
víst er um það að hún fer á kost-
um sem ástsjúka konan; hlut-
verkið býður upp á vals upp og
niður tilfinninga-skalann; blíð-
leiki breytist í hörku, ástin í
hatur, geðprýði í skapofsa - svo
er slegið til baka og mildin tekur
völd og hinn mjúki umönnunar-
þáttur konunnar verður alls ráð-
andi. Þetta er svo sannarlega
óskahlutverk hæfileikaríkrar
leikkonu.
Eymd er nánast ekki annað en
tveggja manna tal. James Caan
er frægur rithöfundur sem hefur
nýlokið tímamótaverki á ferli
sínum. Hann hefur setið við
skriftir úti í sveit en leggur nú af
stað heim í stórborgina með
handritið. Á leiðinni verður hann
fyrir óhappi og er bjargað af
dularfullri konu sem dröslar hon-
um heim til sín, á afskekkt
bóndabýli. Þar er hann gjörsam-
lega upp á náð hennar og vilja
kominn, ófær um að hreyfa sig úr
rúminu og getur enga björg sér
veitt. Bráðlega kemur í ljós að
bjargvætturinn er ekki eins og
fólk er flest og óhugnanlegir
atburðir taka að gerast. Því fer
þó fjarri að King og leikstjórinn
velti sér upp úr blóði og
ógeðslegheitum. Þeir eru miklu
meira á sálfræðilegu nótunum.
Konan er ógnvættur, það fer ekki
á milli mála, og þegar hún pínir
Caan til að brenna handritið að
nýsaminni bókinni er stríðs-
hanskanum hent. Þessi handrits-
bruni er vissulega eitt óhugnan-
legasta atriði sem ég man eftir í
kvikmynd og er þó engum tekið
blóð við framkvæmdina.
Óhugnaðurinn er listavel magn-
aður með ýmsum smáatriðum í
þessum dúr: hreyfihömlun
Caans, úrklippubók konunnar og
óútreiknanlegum skapsveiflum.
Enda þótt Eymd sé að mestu
tveggja manna tal fer ekki á milli
mála að við erum í bíói. Einstaka
skot út í umheiminn, þar sem
dregin er upp mynd af úrræða-
leysi leitenda, eru vel gerð en
gera þó ekki annað en að undir-
strika bíóið - sjálf myndatakan í
húsinu er með þeim hætti að eng-
inn getur villst á Eymd og leik-
húsverki. Caan tekst líka með
afbrigðum vel að túlka hjálpar-
leysi rithöfundarins og er þó ekki
með neina yfirdrifna leikhús-
stæla. Hann er einn af þessum
sárafáu leikurum sem leikur svo
fyrirhafnarlaust að enginn verður
var við að hann sé að leika -
Eymd nýtur svo sannarlega góðs
af þessum hæfileika Caans.
Júlía á sér tvo elskhuga
Borgarbíó sýnir: Júlía á sér tvo elskhuga
(Julia Has Two Lovers).
Leikstjóri: Bashar Shbib.
Aðalhlutverk: Daphna Kastner,
David Dudchovny og David Charlcs.
South Gate Lntertainment 1991.
Fór hálf kvikmyndin eða meira í
símakjaftæði? Meira myndi ég
segja. Daphna Kastner á við
sérkennilegt vandamál að stríða,
að minnsta kosti held ég að það
sé sérkennilegt. Hún er í tygjum
við karlmann er vill giftast henni.
Sá er ekki laus við að vera svolít-
ið undarlegur, hann virðist þola
illa að Kastner hafi forgöngu um
kynmök - ekki svo að skilja að
mikið sé um slíkar athafnir í
myndinni - og gerir sér þar að
auki sérstakt erindi heim um
miðjan dag til að taka ástkonu
sína að indíánskum hætti - gam-
anið stendur í hálfa mínútu, ekki
sekúndu lengur, síðan er vinur-
inn brókaður á nýjan leik og sá á
biðilsbuxunum fer aftur í vinn-
una. Sannarlega einkennileg
aðferð til að vinna hjarta kven-
manns jafnvel þó maður haldi að
hún geymi það neðan mittis. Og
enn og aftur vil ég ítreka að kyn-
lífsathafnir setja ekki sterkan
svip á þetta verk.
Eg sé ekki betur en að leik-
stjórinn, Shbib, sem er allt í öllu í
þessari kvikmynd, hafi hér misst
af ágætis tækifæri til að takast á
við mismunandi kynlífsskilning
kynja ef hann er þá til staðar.
í staðinn býður hann okkur upp á
einhæft leikhúsverk, mikið
kjaftæði leiðinlegra persóna og
gjörsamlega spennulaust verk,
hvernig sem á það er litið, jafnvel
svæfandi.
Fullyrdingar um kaupmáttaraulamigu
eiga ekki við félagsmenn í KÍ
- segir m.a. í ályktun formanna aðildarfélaga
Kennarasambands íslands
Fundur formanna aðildarfélaga
Kennarasambands íslands mót-
mælir þeim fullyrðingum sem
fram hafa komið í fjölmiðlum að
kaupmáttur hafi aukist á því
samningstímabili sem nú er að
ljúka. Þessi fullyrðing á ekki við
um félagsmenn í Kennarasam-
bandinu.
Eitt af meginmarkmiðum þess
kjarasamnings sem nú er að
renna út var að auka kaupmátt.
Allt bendir hins vegar til að
kaupmáttur taxtalauna félags-
manna Kennarasambandsins
verði 1,5% lakari 1. september
1991 heldur en hann var í árs-
byrjun 1990.
Staðreyndin er sú að meðal-
talskaupmáttur á samningstíman-
um er nálægt 0,5% lakari en sam-
ið var um. Allt samningstímabil-
ið hafa viðskipakjör verið mun
hagstæðari en forsendur samn-
ingsins gerðu ráð fyrir. Sú tak-
markaða hlutdeild sem launafólk
fékk í þeim bata verður aðeins til
þess að meðaltalskaupmáttur á
samningstímanum er svipaður og
ráð var fyrir gert í forsendum
samningsins. Betri viðskiptakjör
áttu að skila sér sem viðbót við
umsamirm kaupmátt. Svo hefur
ekki orðið.
Fundurinn áréttar það sem
fram kemur í samþykktum 6.
fulltrúaþings Kennarasambands
íslands þar sem segir að megin-
krafa í komandi kjarasamningum
verði hærri grunnlaun, aukinn
kaupmáttur og öruggar kaup-
máttartryggingar, auk annarra
atriða sem beint snerta kjör
kennara og skólastjórnenda í
grunnskólum, framhaldsskólum
og tónlistarskólum.