Dagur - 10.10.1991, Síða 2

Dagur - 10.10.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 10. október 1991 Fréttir Síldarútvegsnefnd: Tekist hefiir samkomulag við kaupendur í Finnlandi - vonast eftir samkomulagi við danska og sænska kaupendur í vikunni Samningaumleitanir um fyrir- framsölu á saltaöri Suður- landssfld til hinna ýmsu mark- adslanda hafa staðiö yfir að undanförnu og standa vonir til þess að unnt verði að ganga frá samkomulagi við sænska og danska sfldarkaupendur síðari hluta þessarar viku. Sam- Sauðárkrókur: Neftidum þjónustuíbúðir Á bæjarstjórnarfundi á Sauð- árkróki sl. þriðjudag var kosið í nefnd til að kanna grundvöll fyrir byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða í bænum og skoða þá möguleika sem fyrir hendi eru í sambandi við slíkt. f nefndina voru kosnir þrír aðalmenn og þrír til vara. Aðal- menn eru: Halldór P. Jónsson, Jón Karlsson og Sæmundur Her- mannsson. En til vara: Svafar Helgason, Helga Hannesdóttir og Sveinn Friðvinsson. Nefndin á að taka til starfa strax og skila síðan greinargerð til bæjaryfirvalda. SBG Nýtt á Akureyri Ekkert km gjald Budgets rentacar Sími Akureyri: 985-23650. Sími Reykjavík: 91-641255. Hús fyrir ferða- þjónustuL Verðaðeins kr. 1.350.000 sé pöntun staðfest fyrir 20. okt. nk. Hafið samband. „TRÉSMIÐJAN MOGILSF.yy Svalbarðsströnd, sími 96-21570. komulag hefur tekist í öllum aðalatriðum við kaupendur í Finnlandi og eru líkur á að þangað takist að selja svipað magn og á sl. ári, eða 24-25 þús. tunnur. Óvæntur dráttur hefur orðið á samningagerð við Pólverja en þess er vænst að staðan á þeim markaði skýrist upp úr næstu helgi, eins og segir í fréttatilkynn- ingu frá Síldarútvegsnefnd. Sölutilraun til rússneska lýð- veldisins er haldið áfram. Við- semjendur þar hafa margsinnis tilkynnt að þeir hafi áhuga á kaupum á miklu magni af saltaðri síld ef verðið yrði svipað og þeim standi tii boða að kaupa frá Kanadamönnum og öðrum keppinautum okkar á markaðin- um. Mikill skortur er á matvæl- um í landinu en gjaldeyrir af skornum skammti. Að svo stöddu er því of snemmt að spá nokkru um það hvort samningar kunni að takast. Þá er rétt að geta þess að unnið er að því að leita eftir viðskipta- samböndum í Eistlandi, Lett- landi og Litháen, svo og upplýs- ingum um síldarmarkaðina þar. í þessum löndum var all mikil síld- arneysla meðan þau voru sjálf- stæð milli heimsstyrjaldanna. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hefur aldrei tekist að fá upplýs- ingar um neysluna þar eftir seinni heimsstyrjöldina. A sjálfstæðisár- unum var árleg neysla af saltaðri síid í Litháen t.d. talin hafa verið á annað hundrað þúsund tunnur og Eistlendingar gerðu út leið- angra til síldveiða fyrir Norður- landi á fjórða áratugnum og sölt- uðu síldina um borð. -KK Hann var þéttsetinn réttarveggurinn í Laufskálarétt sl. laugardag, en þá var hin árvissa stóðrétt í Hjaltadalnum sem ungir jafnt sem aldnir og Skagfirðingar jafnt sem Reykvíkingar, sækja hvernig sem viðrar. Svalt var í veðri, en mannþröng og eldvatn sáu til þess að engum yrði kalt og sumir héldu á sér hita með að reyna sig við hrossin sem voru minnihlutahópur í forugri réttinni. Þegar lagið var síðan tekið undir réttarveggnum og raddað að skagfírskum sið og nokkrar góðar gangnasögur rifjaðar upp, gleymdist nepjan fljótt. Mynd: sbg „Opið hús“ á Siglufirði hefst á morgun: Ætlum að rífa þetta starf upp segir Anna Vilbergsdóttir, tómstundafulltrúi Á morgun verður formlega hleypt af stokkunum „opnu húsi“ unglinga á Siglufirði. Mikið og líflegt starf er fyrir- hugað í vetur og að sögn Önnu Vilbergsdóttur, tómstundafull- trúa, er mikill hugur í krökkunum. Anna tók við starfi tómstunda- fulltrúa 1. september sl. og sinnir því ásamt starfi sínu sem hjúkr- unarfræðingur við Sjúkrahúsið á Siglufirði. Hún segir að margt sé á prjón- unum í vetur. Auk málfundafélags verði þrír klúbbar; spilaklúbbur, músík- og listaklúbbur og mynd- lista- og ljósmyndaklúbbur, starf- ræktir. „Opið hús“ verði fyrir 6-9 ára og 10-12 ára tvisvar í viku, en fjórum sinnum fyrir 13-16 ára. „Við ætlum að rífa þetta starf upp, enda var það í algjörri ládeyðu í fyrra og ekkert gert,“ sagði Anna. Auk þess sem áður er nefnt sagði Anna að diskótek yrði einu sinni í mánuði í samráði við skólann. Þá mætti ekki gleyma „opnu húsi“ fyrir hús- mæður í bænum. Þeim gefst kost- ur á að koma í félagsmiðstöðina Skjól eftir hádegi og ræða málin, auk þess sem boðið verður upp á ýmisskonar fræðslu fyrir þær, á meðan börn þeirra una sér við leik. Sjallinn á Akureyri: Stjömukvöld á laugar- dagskvöldum til áramóta hægt Frá og með laugardeginum 19. október og til áramóta verður skemmtidagskrá á laugardags- ÖxarQörður: Bonmin gengur Borunum á vegum Jarðborana ríkisins í Öxarfirði hefur miðað heldur hægt undanfarna daga. Borholan, sem er í landi Ær- lækjarsels, hefur verið boruð í tveim áföngum. Fyrst var boruð víð hola niður á 320 metra dýpi, en eftir það hefur holan verið grennri, jafnframt því sem kjarn- ar hafa verið teknir. Að sögn Ólafs G. Flóvenz hjá Orkustofn- un er ætlunin að holan verði allt að 800 metra djúp. Þessi hola er nánast við hliðina á holu þeirri sem boruð var í fyrra og gaf til kynna að þarna kynni að vera gas í jörðu. Gert er ráð fyrir að kostnaður við borunina og úrvinnslu kjarn- anna sé um 11 milljónir króna. Úrvinnslan verður bæði hér á landi, í Danmörku og Bretlandi. óþh kvöldum í Sjallanum sem ber yfirskriftina „Stjörnukvöld í Sjallanum“. Dagskráin verður með líku sniði öll kvöldin en landskunnir skemmtikraftar munu skiptast á um að koma fram. Að sögn Kolbeins Gíslasonar, framkvæmdastjóra Sjallans, er þegar ákveðið að fram komi á þessum kvöldum m.a. þau Eyjólfur Kristjánsson, Ragnar Bjarnason, Jóhannes Kristjáns- son eftirherma, Helena Eyjólfs- dóttir, Finnur Eydal, Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð. Kolbeinn segir að fleiri þekktir skemmtikraftar kunni að koma við sögu en það muni skýrast síðar. Stjörnu- kvöldin verða öll með áþekku sniði þó skemmtikraftarnir skipt- ist á um að koma fram. Öll kvöldin verða tískusýningar, happdrætti og óvæntar uppákom- ur. Kolbeinn segir að boðinn verði þríréttaður matseðill á stjörnkvöldum og miði á skemmt- unina, matinn og dansleikinn seldur á 3600 kr. eða 300 krónum minna en á skemmtidagskrám Sjallans í fyrra. Kynnir á stjörnukvöldum Sjall- ans verður Bjarni Hafþór Helga- son, fréttamaður. Hljómsveitin Rokkbandið leikur fyrir dansi en hljómsveitin hefur verið ráðin til að leika í Sjallanum til áramóta. Nýr liðsmaður hefur bæst í hóp Rokkbandsmanna en það er Guðrún Gunnarsdóttir, söng- og leikkona. JÓH Einn maður verður í fullu starfi í Skjóli og auk þess mun stúlka sjá um klúbbana í 25% starfi. óþh Aðalftindui' Landvemdar á sunnudag Aðalfundur Landverndar verð- ur haldinn í Munaðarnesi á sunnudaginn kemur. Á morg- un og laugardag verður haldin ráðstefna á sama stað á vegum Landverndar og ber hún yfir- skriftina: Ásýnd íslands, fortíð, nútíð, framtíð. Eins og nafn ráðstefnunnar ber með sér verður fjallað um ásýnd landsins í fortíð þ.a.e.s. hvernig talið er að gróðurfari og landslagi hafi verið háttað við landnám, - í nútíð þegar búseta og tæknivæð- ing hafa gert stórfelldar beytingar á umhverfi og náttúru landsins - og svo verður hugað að því hvernig við viljum að landið líti út í framtíðinni. Alls verða flutt átta erindi á ráðstefnunni. Á sunnudagsmorgun kl. 9.30, mun Auður Sveinsdóttir, for- maður Landverndar, setja aðal- fundinn og er reiknað með að hann standi eitthvað fram eftir degi. -KK Skák Skákfélag Akureyrar: Stigamótin að hefjast - þrenn verðlaun veitt Skákféiag Akureyrar mun í vetur haida sjö skákmót frá október til apríl með 15 mín- útna umhugsunartíma. Gefin verða stig fyrir efstu sætin og verða fimm bestu mótin hjá hverjum og einum tekin til stigaútreiknings. Þrír stigahæstu menn fá verð- laun. 1. verðlaun eru flugfarmiði á skákmót innanlands, t.d. íslandsmótið 1992. 2. verðlaun eru kr. 6000 og 3. verðlaun kr. 3000. Fyrsta mótið í þessari röð verður haldið á rnorgun, föstu- daginn 11. október, og hefst kl. 20. Teflt er í Skákheimilinu í Þingvallastræti 18. Menn eru hvattir til að mæta og æfa sig, ekki síst þeir sem fara suður 18. október í deildakeppni Skáksambands Islands, en Skák- félag Akureyrar er með tvær sveitir í 1. deild og eina í 2. deild. SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.