Dagur - 10.10.1991, Síða 3
Fimmtudagur 10. október 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Ásýnd Akureyrar fegurri með ári hverju:
Hundrað þúsund plöntur gróðursettar á árinu
Fegrun Akureyrar hefur mið-
að vel áfram á sumrinu sem nú
er að líða undir lok. Umhverf-
isdeild bæjarins hefur lagt
áherslu á að gera aðkomuna
snyrtilegri, jafnt að norðan-
sem sunnanverðu. Einnig hafa
plöntur í tugþúsundatali verið
gróðursettar víða um bæinn og
á útivistarsvæðum. Árni Stein-
ar Jóhannsson, umhverfis-
- frumáfanga við Leirutjörn lokið
stjóri, var spurður um heistu
framkvæmdirnar á nýliðnu
sumri.
„Við vorum að ganga frá
áfanga við Lundarskóla. Þar voru
gerð ný bílastæði og aðkoman að
skólanum löguð. Einnig fórum
við í svæðið við bráðabirgðavöll
KA og suður með væntanlegri
Dalbraut og Grenilundi. Þá klár-
uðum við frumáfanga viö Leiru-
tjörn og þar er búið að rækta allt
upp á síðustu þremur árum.
Einnig höfum við verið með jarð-
vegsframkvæmdir norður með
Hörgárbraut út að mörkum lög-
sagnarumdæmisins og þar verður
byrjað að rækta upp næsta vor,“
sagði Árni Steinar.
Hann nefndi líka útplöntun á
tugþúsundum trjáa á opnum
svæðum víða um bæinn, en við
Leikfélag Húsavíkur tekur Gaukshreiðrið til æfinga:
„Æflum ekki að leika kvikmyndina“
- segir
Æfingar á Gaukshreiðrinu
hcfjast hjá Leikfélagi Húsavík-
ur um miðjan október. Leik-
stjóri er María Sigurðardóttir
og segir hún að hér sé magnað
og mikið leikrit á ferðinni.
Gaukshreiðrið hefur ekki áður
verið sýnt á sviði á Islandi.
Sonja B. Jónsdóttir þýddi
verkið sérstaklega fyrir leikfé-
lagið og lauk þýðingunni á
þessu ári.
Leikritið er byggt á skáldsögu
Ken Kersey en Dale Wasserman
skrifaði leikgerðina. Búið er að
ákveða hver fer með aðalhlut-
María Sigurðardóttir leikstjóri
verkið í verkinu á Húsavík, hlut-
verk Mark McMurphy sem Jack
Nicholson lék svo eftirminnilega
í kvikmyndinni sem byggð er á
sögunni. í handriti leikritsins eru
alls 23 hlutverk en þau verða
eitthvað færri í uppfærslu
Húsvíkinga. Ekki er búið að
finna leikara í öll hlutverkin og
María vildi ekki nefna nein nöfn í
sambandi við sérstök hlutverk
fyrr en að því loknu. Um nokkur
mikilvæg karlhlutverk mun vera
að ræða og einnig stórt hlutverk
hjúkrunarkonu.
María sagði það svolítið pirr-
andi hve leikritinu og kvikmynd-
inni væri ruglað saman, en jafn-
vel er spurt hver muni leika Jack
Nicholson í verkinu. María sagði
að ekki ætti að fara að leika
myndina og fólk yrði að átta sig á
því. Myndin væri um margt öðru-
vísi en leikritið, en það gerðist
allt inni á dagstofu sjúkrahúss.
Undirbúningur fyrir æfingar er
nú í fullum gangi, síðan er búist
við að æfingar standi yfir fram í
desember en þá verður verkið
sett upp í hillu yfir jólin. Eftir
áramótin er fyrirhugað að frum-
sýna Gaukshreiðrið á Húsavík.
IM
Sala ÁTVR fyrstu níu mánuði ársins:
í tísku að taka í nefíð og
drekka ronrni eða rósavín
Landsmcnn svclgdu ríflega 6,5
milljónir lítra af áfengi fyrstu
níu mánuði ársins á móti 6,7
milljónum á sama tímabili í
fyrra. Samdrátturinn er 3,06%
en hins vegar er aukning upp á
0,39% í alkóhóllítrum, enda
hefur sala á sterkum vínum
aukist meöan bjórsalan hefur
minnkaö. í alkóhóllítrum eru
tölurnar 734.040 í ár á móti
731.180 í fyrra.
í þessum magntölum er ekki
tekið tillit til þess áfengis sem
Dalvík:
Sundlaugin
boðin út í vor
Stefnt er að útboði á byggingu
nýrrar 25 metra sundlaugar á
Dalvík í vor og er gert ráð fyrir
að byggingunni verði lokið á
tveim til þrem árum.
Að sögn Trausta Porsteinsson-
ar, forseta bæjarstjórnar Dalvík-
ur, hefur staðsetning sundlaugar-
innar ekki verið endanlega
ákveðin, en þó er Ijóst að henni
verður fundinn staður í íþrótta-
svæðinu suðvestan við skólahús-
í sumar var gengið frá samn-
ingi við þau Fanneyju Hauks-
dóttur, arkitekt og föður hennar
Hauk Haraldsson, tæknifræðing,
á Akureyri um að teikna og
hanna sundlaugina.
Trausti segir erfitt að segja til
urn kostnað við þessa
framkvæmd, en skjóta megi á alit
að 150 milljónir króna. óþh
áhafnir skipa og flugvéla flytja
inn í landið, eða þess magns sem
ferðamenn taka með sér frá
útlöndum eða kaupa í fríhöfn.
Bjórsalan hefur dregist saman
um 6,33% milli ára, úr 4,9 millj-
ónum lítra í 4,6 milljónir lítra.
Sala á brennivíni hefur einnig
dregist saman, um 6,97%, en nær
allar aðrar tegundir áfengis,
sterkar sem léttar, hafa sótt á
milli ára. Sem dæmi má nefna að
sala á rósavíni hefur aukist um
26%, á hvítvíni um 10%, rauð-
víni um 9,6%, kampavíni um
10,6%, rommi um 18%, bitterum
um 11% og gin, vodka og viskí
eru einnig í nokkurri sókn.
Víkjum þá að tóbakinu. Sala á
nef- og munntóbaki hefur aukist
um 7,7% og sala á vindlingum
um 1,04%. Sala á reyktóbaki hef-
ur á hinn bóginn dregist saman
um 8,5% og sala á vindlum um
0,16%.
Af framansögðu má ljóst vera
að það er í tísku að taka í nefið
og staupa sig með rósavíni eða
rommi. SS
Húsavík:
„Opið hús“ á skrif-
stofii Dags á morgun
Um þessar mundir eru sex ár
liðin frá því að skrifstofa Dags
á Húsavík var opnuð.
í tilefni afmælisins verður
„opið hús“ á skrifstofu Dags að
Stóragarði 3 á Húsavík á
morgun, föstudag, frá kl. 13.00
til 17.00. Þar gefst Húsvíkingum
og nærsveitamönnum kostur á að
kynna sér starfsemi blaðsins og
þiggja kaffisopa og meðlæti.
Óhætt er að lofa að Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem verið hefur
starfsmaður Dags á Húsavík öll
sex árin, tekur vel á móti þeim
sem líta í heimsókn.
þetta langtímaverkefni væri unn-
ið á hverju ári. Á útivistarsvæð-
um hefði verið plantað um 70
þúsund plöntum á árinu í sam-
vinnu við Skógræktarfélag Eyfirð-
inga og hefði bæjarsjóður Ákur-
eyrar veitt 3 milljónum króna til
verkefnisins á yfirstandandi ári.
Alls hefði verið plantað um 100
þúsund plöntum í bæjarlandinu á
árinu.
„Við verðum bara að loka aug-
unum og bíða í 5-10 ár til að sjá
árangurinn. Hins vegar hefur
árangurinn þegar komið í ljós í
bæjarbrekkunum sunnan skauta-
svæðis. Það hefur verið plantað í
þær á síðustu 10 árum, meðfram
hitaveituæðinni, og hefur Hita-
veita Akureyrar kostað þá fram-
kvæmd. Þetta skapar umgjörð
um reiðleið og gönguleið með-
fram hitaveituæðinni,“ sagði
Árni Steinar.
Þá eru í deiglunni hjá Umhverf-
isdeild verkefni í náttúrugarð-
inum í Krossanesi og endanleg
friðun hans á næsta ári, en þá
mun gróa þar upp náttúrlegur
gróður. Árni Steinar nefndi einnig
óshólma Eyjafjarðarár, en þar
eru uppi hugmyndir um fólk-
vang. Þetta mál tengdist nauðsyn
þess að friða svæðið við flugvöll-
inn en það væri líka staðreynd að
svæðið við gömlu Eyjafjarðar-
brýrnar væri orðið mjög vinsælt
útivistarsvæði. SS
Frá fiðu til flíkur
Kynnt verður vinnsla á kanínufiðu.
Dalvík, Hafnarbraut 5 (Víkurbakarí) 11.okt. kl. 14-18.
Ólafsfirði, Tjarnarborg, 12. okt. kl. 14-16.
Blómaskálanum Vín 13. okt. kl. 14-18.
Kanína verður klippt,
fiðan spunnin á snældu og rokk og þæfð.
Einnig sýndir ýmsir munir úr kanínufiðu.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar.
Yale talíur
( \ í T
Yale
# T lJ
Flestar gerðir fyrirliggjandi
Yale - gæði - ending
SÖLUAÐILAR A NORÐURLANDI:
Kaupfélag Hrútfirðinga, Borðeyri, Vélsmiðja Húnvetninga,
Blönduósi.Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
Þórshamar, Akureyri
^ Jóhann Olafsson & Co
W~ SUNDABORG 13 • 104 REYKJAVÍK • SÍM1688 588