Dagur


Dagur - 25.10.1991, Qupperneq 3

Dagur - 25.10.1991, Qupperneq 3
Föstudagur 25. október 1991 - DAGUR - 3 Fréttir Framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda um EES-samninginn: Tekið hefiir verið tillit til okkar athugasemda Hákon Sigurgrímsson, fram- kvæmdastjóri Stéttarsambands bænda, segir ánægjulegt að athugasemdir sem Stéttarsam- bandið gerði í sumar við fyrir- liggjandi drög að samningnum um Evrópskt efnhagssvæði hafl skilað sér í endanlegri útgáfu samningsins. Guðmundur Sigþórsson, skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðu- neytinu, fór sl. miðvikudag yfir þann hluta EES-samningsins sem að landbúnaðinum snýr með stjórn Stéttarsambandsins. Hákon Sigurgrímsson segir frarn hafa komið að mikið hafi áunnist frá Litli-Árskógssandur: Sólrún hf. kaupir gamla Blika EA - hét áður Arnar ÁR og gerður út frá Porlákshöfn í dag bætist 147 tonna skip í flota Árskógsstrendinga, sem mun bera nafnið Sólrún EA- 351. Samnefnt fyrirtæki á Litla-Árskógssandi keypti skipið frá Þorlákshöfn, þar sem það hét Arnar ÁR-55. Þar áður nefndist það Bliki og var gert út af samnefndu fyrirtæki á Dalvík. Sólrúnu fylgir 13 tonna rækju- kvóti, en botnfiskkvóti Særúnar EA-251, sem er um 255 tonn í þorskígildum auk 70 tonna rækjukvóta, færist yfir á Sólrúnu. Særún, pem er 73 tonn að stærð, Hefðbundinni sauðfjárslátrun lokið hjá Sláturhúsi KEA: Minna keypt af slátri og nýju kjöti - segir Óli Valdimarsson, framkvæmdastj óri Hefðbundinni sauðfjárslátrun er lokið á þessu hausti hjá Slát- urhúsi KEA á Akureyri. Fleiri dilkum var slátrað í ár en í fyrra. Að sögn Óla Valdimarssonar, sláturhússtjóra og framkvæmda- stjóra Kjötiðnaðarstöðvar KEA, var 37.060 dilkum slátrað í ár, sem er aukning frá árinu áður. Norðurland: Sumarið var gott - sagði Trausti Jónsson, veðurfræðingur „Ekkert sérstakt kom fram í veöurmælingum á Norðurlandi í sumar. Sumarið var gott sem undangengin ár og heyfengur bænda ineð því mesta, svo eitthvað sé tiltekið,“ sagði Trausti Jónsson, veðurfræð- ingur á Veðurstofu íslands. Að sögn Trausta hefur hann ekki lagt saman niðurstöður mælinga enda gefa þær ekki tilefni til slíks. Sumarið var ekki afbrigðilegt á nokkurn hátt. Heilt yfir var veðráttan góð. Júnímánuður var kaldur lengst af, sem oft vill verða. „Norðlendingar fengu hita- bylgju í júlí, en ágúst og sept- einber voru ögn undir meðallagi hvað hitastig áhrærir. Þannig jafnast þetta allt út. Norðlend- ingar hafa búið við hagstæð veðurskilyrði undanfarin ár og tölur yfir hitastig, úrkomu og sólskin gefa ekki tilefni til yfiriýs- inga. Engin met voru slegin,“ sagði Trausti Jónsson. ój DAGUR Akure\Ti 8 96-24222 Norðlenskt dagblað Meðalvigt er 15,24 kíló, sem er á svipuðum nótum og áður. Full- orðnar ær voru 2325, sem er held- ur færra en sláturloforð greindu frá. „Sláturtíðin gekk í alla staði vel. Minna var verðfellt vegna sláturgalla en oft áður. í ár voru starfsmenn heldur færri og eftir- vinna minni. Fólk kaupir minna af slátri á þessu hausti og svo er einnig um nýja kjötið. Hvað veldur er erfitt að gera sér grein fyrir. Trúlega þarf að hressa upp á sölukerfið. Nú þegar aðalsauð- fjárslátrun er lokið tekur við slátrun á 4000 kindum vegna samninga við Mexíco, en því verki lýkur n.k. þriðjudag," sagði Óli Valdimarsson. ój hefur verið seld til Hjördísar hf. í Keflavík. Að sögn Péturs Sigurðssonar hjá Sólrúnu hf. verður Sólrún EA til að byrja með gerð út á netaveiðar, en síðan á línu- og rækjuveiðar. Pétur segir að fyrirtækið hafi keypt helmingi stærra skip fyrst og fremst af hagkvæmnisástæð- um. Reynslan hafi sýnt að fiskinn þarf að stærstum hluta að sækja á fjarlæg mið og gamla Særún hafi ekki reynst hagkvæm í löngum stímum vegna m.a. fremur hás olíukostnaðar. Sólrún EA-351 var smíðuð í Noregi árið 1960. Hún var lengd árið 1977 og yfirbyggð árið 1985. Skipstjóri verður Ólafur Sig- urðsson á Litla-Árskógssandi. óþh fyrirliggj andi drögum í júlí sl. Til dæmis séu Smjörvi, Létt og lag- gott og efni til ísgerðar ekki inn í samningnum. „Hins vegar er þarna inni smjörlíki sem inni- heldur á milli 10 og 15 prósent mjólkurfitu. Maður veit út af fyr- ir sig ekki hvað það þýðir, en hins vegar hefur þessi vara ekki verið á boðstólum hér,“ sagði Hákon. Þá kveður samningurinn á urn fækkun blómategunda sem hing- að má flytja inn og innflutnings- tímabilið stytt. Það verður frá 1. desember til 30. apríl. Einnig hefur tíminn, sem flytja má inn paprikur, gúrkur og tómata, ver- ið styttur og verður samkvæmt samningnum frá 1. nóvember til 15. mars. „Stéttarsambandið gerði á sín- um tíma athugasemdir við ákvæði um rétt útlendinga til að kaupa land hér á landi. Það virð- ist vera ákvæði inn í samningnum sem virðir ákvæði laga um for- kaupsrétt sveitarfélaga og ríkis- ins. En okkur virðist þurfa að styrkja þau ákvæði. Almennt má segja að þau atriði sem Stéttarsambandið gerði athugasemdir við hafí verið færð til betri vegar. Annars er erfitt að dæma um samninginn í heild. Það gerir auðvitað ekkert annað en reynslan." óþh Skotveiðideilan á Öxnadalsheiði: Ríkis- saksóknarí vísaði málinu frá Kæran á hendur fjórum skotveiðimönnum frá Akur- eyri vegna rjúpnaveiða á Oxnadalsheiði sl. haust er nú úr sögunni. Mál þetta var sent ríkissaksóknara fyrir skömmu en þá var lokið skýrslutöku af öllum máls- aðilum. Ríkissaksóknari hefur nú tilkynnt málsaðil- um að málið verði látið nið- urfalla. í byrjun rjúpnavertíðar í fyrra gerðu aðilar í Skagafirði samning við Akrahrepp um skipulag og sölu rjúpnaveiði- leyfa á Öxnadalsheiði. Skot- veiðimenn frá Akureyri neit- uðu að viðurkenna rétt til slíks samnings og ákváðu að láta reyna á málið. Þeir voru kærð- ir á þeim grundvelli að Akra- hreppur eigi afsöl fyrir jörðun- um Bakkaseli og Gili í Öxna- dalshreppi sem og Silfrastaða- afrétti. Ríkissaksóknari segir í bréfi sínu að á grundvelli þess- ara afsala og laga um fugla- veiðar og fuglafriðun mæli hann ekki fyrir um frekari aðgerðir í málinu. JÓH Akureyri: Holræsamál tekin til endurskoðunar - norskir tæknimenn annast verkið Nýverið var haldinn fundur umhverfísnefndar Akureyrar í Eyrarlandsstofu. Sorplosun og holræsamál voru m.a. á dagskrá. Til fundarins voru mættir verkfræðingarnir Stef- án Stefánsson og Guðmundur Guðlaugsson, sem gerðu nefndarmönnum grein fyrir stöðu mála á Akureyri. Að sögn Guðmundar Guð- laugssonar, yfirverkfræðings hjá Akureyrarbæ, er unnið að hönn- un fráveitukerfis, þar sem miðað er að grófhreinsun skólps og að koma því út í Eyjafjörð á heppi- legum stað norðan Oddeyrar- tanga. Þessa vinnu annast norskir tæknimenn, sem eru hinir sömu og voru ráðgefandi fvrir Reykja- víkurborg á sínum tíma. „Fyrst og fremst er litið til stað- setningar þessarar stöðvar á Akureyri öðru hvoru megin við ós Glerár. Ekki er hægt að til- greina hvenær framkvæmdir hefjast, en frumhugmyndir norsku tæknimannanna munu liggja fyrir í byrjun næsta árs,“ sagði Guðmundur Guðlaugsson, yfirverkfræðingur Akureyrarbæj- ar. ój Rokkbondið leikur fyrir gesfi til kl. 00.00 FríH inn til kl. 24.00 Kjallarinn Guðmundur Rúnor Lúðvíksson leikur fyrir gesti föstudogs- og lougardagskvöld SJALLINN Lougordogur Stjörnukvöld í SjollQHum Kvöldverður, skemmfun og donsleikur kr. 3600 Fram koma: Eyjólfur Kristjánsson Jóhonnes Krístjánsson eftirhermo Kognor Djornoson Donsflokkur frá Donsstúdíói Alice undir stjórn Nenette Melms Kynnír: Djorni Hofþór Helgason RÍÓ-tríó kemur from kl. 01.00 Marseðill: Koníaksbœrr sjóvarrérrasúpa SvínahryggvööviTneö bakaðri karröflu og kaperssósu Isdúerr með ferskjum og rjóma Grín og glens á breiðtjoldinu Rokkbondið og Guðrún Gunnorsdóttir íeiko fyrir donsi til kl. 00.00 Happdrætti / vinning er tíu þúsund króna matarúttekt frá Matvörumarkaðinum, kokkur og þjónn Vinnlngshafi má bjóða 4-6 gestum heim í mat og Sjallinn sendir matreláslumelstara til þín tll þess að elda matinn og þjón til að bera hann fram Húsið opnað kl. 19.00 Maturinn borinn fram stundvíslega kl. 20.00 MATVÖRUMARKADURINN ✓y KAUPANGI__yy. Doröapantanir í síma 22770 Forsala aðgöngumiöa i Sjallanum föstudaginn 25. október milli kl. 17.00-19.00

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.