Dagur - 25.10.1991, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 25. október 1991
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 100 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Áhugaleikfélög
úti í kuldanum
Starfsemi áhugaleikfélaga er blómleg um land allt
og setur sterkan svip á mannlífið jafnt í þéttbýli
sem dreifbýli. Það er margsannað mál að maðurinn
lifir ekki á brauði einu saman, hann þarf einnig að
fullnægja andlegum og félagslegum þörfum. Búseta
fólks ræðst ekki aðeins af því hvar vinnu er að fá,
þótt brauðstritið sé vissulega undirstaðan, því fólk
þrífst ekki á stöðum sem hafa ekkert upp á að bjóða
í menningar- og félagslífi. Heimsspekingar nefna
þetta þörf fyrir andleg gæði og gera ekki minna úr
henni en ásókn manna í veraldlegu gæðin, peninga
og áþreifanlega hluti.
Áhugaleikfélög eru hér nefnd vegna þess að þau
eru þungamiðjan í menningar- og félagsstarfi í
mörgum byggðarlögum. Fjölmargir starfa við
sýningarnar og enn fleiri sækja þær. Þarna er unnið
af hugsjón og þörf fyrir listsköpun og mannleg sam-
skipti en ekki á viðskiptalegum grunni. Uppsetning
leikverks er þó ekki gerleg nema peningar komi til
og þar stendur hnífurinn í Huppu.
Innan Bandalags íslenskra leikfélaga eru 86
áhugaleikfélög. Um 50 þeirra settu upp liðlega 70
sýningar á síðasta leikári. Fjárveiting ríkisins til
áhugaleikfélaganna á yfirstandandi ári var um 13
milljónir króna en fjárlög næsta árs hljóða upp á 12
milljónir. Bandalag íslenskra leikfélaga fór fram á 17
milljónir, ekki síst í ljósi þess að styrkurinn á fjárlög-
um hækkaði ekkert milli áranna 1989 og 1990. Að
auki var fjárveiting til skrifstofu bandalagsins skor-
in úr 3,8 milljónum í 2,5.
„Þetta er eins og kjaftshögg fyrir áhuga-
leikfélögin, “ sagði María Axfjörð, fyrrum formaður
Leikfélagasambands Norðurlands, um þennan
niðurskurð í frétt Dags 17. október sl. „Það er eins
og blaut tuska í andlitið að fá þessar fregnir. Eftir
blómlegt leikár í fyrra fáum við minni peninga,"
sagði María.
Fjárveiting til áhugaleikfélaga er ætluð til þess að
jafna aðstöðu leikfélaga úti á landi til að ráða sér
leikstjóra. Á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfé-
laga eru tveir starfsmenn auk ritstjóra Leiklistar-
blaðsins sem er í hlutastarfi. Til skrifstofunnar
sækja áhugaleikhópar leikrit, samninga við þýðend-
ur og leikstjóra og aðra þjónustu við uppsetningu
leikrita. Skrifstofan þjónar líka skólaleikfélögum á
landinu. Geti hún ekki starfað vegna fjársveltis er
hætt við að áhugaleikfélög lognist út af. Útgáfa
Leiklistarblaðsins er einnig í hættu.
Fyrir utan niðurskurð á fjárveitingum má nefna
að komið hefur fram að áhugleikfélög eiga æ erfið-
ara með að sækja fjárhagsaðstoð til viðkomandi
bæjar- og sveitarfélaga. Þá hafa þau ekki átt jafn
greiðan aðgang að félagsheimilum og áður og dæmi
eru um að þau séu krafin um fulla leigu á æfinga-
tímabilinu. Það er óheillavænleg þróun ef blómlegt
starf áhugaleikfélaga er dæmt til þess að fölna. SS
Smáiðnaðarverkefni
Fjórþætt verkefni
Smáiðnaðarverkefni byggist upp
á fjórum þáttum:
1. Koma upp skrám um lík-
lega möguleika á smáiðnaðar-
sviði. Þetta skal bæði gert með
eigin leit og svo með fundahaldi
um sýsluna þar sem áhugafólk
um þessa hluti verður boðað. Þá
skal skoðuð rekstrarhæfni hug-
myndanna út frá kostnaðarfor-
sendum (stofn- og rekstrarkostn-
aði) og hugsanlegum markaði. f>á
skal staðsetning sérstaklega
skoðuð.
Þetta skal helst unnið í sam-
vinnu við áhugaaðila um fram-
kvæmd málsins en eigið frum-
kvæði skal líka vera fyrir hendi.
Ef niðurstaðan er að hér sé um
vænlegan kost að ræða þá skulu
skoðaðir möguleikar á að koma
honum í framkvæmd. Helst
þannig að um einstaklinga sé að
ræða en ekki er útilokað að
Atvinnuþrónarfélagið standi að
stofnun slíks rekstrar t.d. í félagi
við viðkomandi sveitarstjórn,
verkalýðsfélag, Framleiðnisjóð
eða Byggðastofnun, allt eftir eðli
málsins, og ráði sér starfsfólk til
rekstrarins.
Ráðgjöf og aðstoð af
ýmsu tagi
2. Þá skal veitt ráðgjöf um stofn-
un nemendafyrirtækja í tengslum
við framhaldsskóla í sýslunni.
Þessi ráðgjöf beinist ekki síst að
því að kynna heppilega kosti í
slíkum rekstri.
3. Einnig skal leitast við að
setja af stað hugmyndir sem eru á
framkvæmdastigi en hafa stöðv-
ast einhverra hluta vegna og
verður auglýst eftir slíkum
málum. Þetta verði gert með því
að skoða rekstrargrundvöll hug-
myndanna s.s. kostnað, tækni og
markað. Aðstæður hafa breyst á
þann veg að núna er verið að
gera ýmislegt til að skapa nýja
atvinnumöguleika í dreifbýli.
4. Verkefni sem Atvinnuþró-
unarfélag Þingeyinga setur sjálft
af stað. Þarna er um að ræða
verkefni sem passa vel inn í
ímynd þess og framtíðarsýn og
krefst lítillar sem engrar fjárfest-
ingar.
5. Rekstraraðstoð við smáiðn-
aðarfyrirtæki. Þar skal leitast við
að hjálpa smáiðnaðarfyrirtækjum
með stofnáætlanir, fjárhagsáætl-
anir o.fl.
Þessir möguleikar verði teknir
saman og raðað eftir heildar-
skipulagi um sýslurnar í samráði
við sveitarstjórnir með samstarfs-
samninga.
Félagsmálaráðuneytið og
Byggðastofnun veittu kr.
2.000.000 styrk til verkefnisins.
1. Skrá um líklega mögu-
leika á smáiðnaðarsviði:
1.1. Uppstoppun á fuglum:
Mikill skortur er á minjagrip-
um fyrir útlendinga sem hingað
Ásgeir Leifsson.
Síðari hluti
koma. Mikill urmull er af sjófugl-
um við landið. T.d. er metið að
fjöldi lunda við landið sé
6.000.000 til 10.000.000. Hér í
Þingeyjarsýslum er hægt að fá
fuglana og hér er einnig mikill
ferðamannastraumur. Það er
hægt að vinna að þessu verkefni á
veturna þegar daufar er yfir
atvinnulífinu.
1.2. Gerð postulínsleirstytta.
Það er til urmull af sögum sem
hægt væri að nota sem myndefni í
styttugerð.
Það virðist því vera margt já-
kvætt við þetta.
1.3. Vaxstyttur.
í þessu verkefni felst að búa til
styttur, merki og jólaskreytingar
úr vaxi.
1.4. Gerð Iyngöls, berja-,
fíflavína og þess háttar.
Þarna væri um það að ræða að
skapa sérstöðu með náttúruvör-
um úr héraðinu.
1.5. Ræktun jurta með lækn-
ingamátt.
Til er lærð ritgerð um íslenskar
heilsujurtir eftir Ingólf Davíðs-
son. Engar mælingar hafa farið
fram um virk lækningaefni í
íslenskum jurtum.
1.6. Svepparækt.
Ýmsir aðilar eru þegar í
svepparækt á íslandi. Ræktun
þeirra er fremur einhæf. Til eru
ýmsar sveppategundir sem ekki
eru ræktaðir hér en gætu haft
góðan markað.
1.7. Ræktun alidúfna til matar.
Þetta gæti verið ódýrt og nokk-
ur markaður mun eflaust
skapast.
1.8. Heimagisting fyrir ferða-
menn.
í Þingeyjarsýslum er skortur á
gistirými á sumrin aðalhindrun
vaxtar í ferðamennsku. Víða er
fólk, þar sem áður var mann-
margt heimili en börnin farin að
heiman, með stórt en illa nýtta
húsnæði. Það gæti skapað sér
verulegar aukatekjur með heima-
gistingu og þar að auki haft gam-
an af því. Þessa heimagistingu
þyrfti að reka í samvinnu við þá
aðila sem reka gististaði en samt
að kynna og auglýsa sérstaklega.
Æskilegt væri að vera með nám-
skeið fyrir væntanlega heima-
gistiaðila og veita þeim stuðning.
1.9. Hönnun sérferða fyrir
fcrðamenn.
Leitað hefur verið eftir ferða-
möguleikum fyrir ferðamenn.
Það er töluvert mál að gera sér
grein fyrir athygliverðum ferða-
möguleikum. Fara þarf um svæð-
ið og vera með hæfilegan áfanga,
og gera sér grein fyrir kostnaði og
markaði ferðanna.
1.10. Gæludýrarækt.
Ræktun gullfiska, páfagauka,
dúfna, katta og hunda svo dæmi
séu nefnd. Það virðist vera vax-
andi markaður fyrir gæludýr.
1.11. Framleiðsla á kattasandi.
Kattasandsmarkaðurinn á ís-
landi er um 200 tonn á ári og sem
stentíur er allur kattasandur inn-
fluttur. A.m.k. tvær tilraunir
hafa verið gerðar til að framleiða
fslenskan kattasand. Ein var að
nota vikur en hann líkaði illa.
Hann var ekki vatnsdrægur,
kekkjaðist ekki og eyddi ekki
lykt. Um tíma var framleiddur
kattasandur úr Búðardalsleir en
því var hætt. Við Nes hjá Laxá er
töluverð kísilgúrnáma. Tilraun
hefur verið gerð til að kvarna
hann og þurrka og virðist þarna
um að ræða ágætan kattasand.
Finna þarf leið til að eyða lykt frá
honum. Líklega þarf lítinn búnað
svo sem lítinn traktor með
ámokstursbúnaði, kvörn, sigti,
þurrkunarbúnað og pökkunar-
búnað, allt af einföldustu og
ódýrustu gerð.
1.12. Breyting heimilisum-
hverfis.
Þjónusta þar sem hægt er að
kaupa á heimili efni, veggfóður,
teppi, gluggatjöld, húsgögn og
annað til heimilisprýði.
1.13. Veitingar.
Veitingarþjónusta á staðnum,
þegar verið er að halda upp á
eitthvað.
2. Tillögur um nemenda-
fyrirtæki
2.1. Þurrkun blóma.
2.2. Veiði í tjörnum og uppi-
stöðulónum.
Bæjarbúar og ferðamenn geta
fengið stangir og veitt úr keri fisk
til matar. Veiðileyfið yrði borgað
eftir þyngd fisksins og svipað
búðarverði. Það mætti elda fisk-
inn á staðnum.
2.3 Sjá um grasflatir.
Hér mætti hugsa sér garða-
þjónustu þar sem boðið væri upp
á að klippa limgerði, snyrta tré,
skera kanta, bera á, gróðursetja
plöntur og tré, slá og hirða bletti
og margt fleira. Hægt væri að
gera samninga um garðhirðu.
2.4. Rófnarækt.
Nemendum útvegaður akur til
að rækta rófur eða aðra jarð-
ávexti.
2.5. Söfnun lúpínuróta.
Aðrir möguleikar
3. Hugmyndir sem hafa dagað
uppi.
Hér er um að ræða hugmyndir
sem kunna að vera góðar en hafa
ekki komist í framkvæmd ein-
hverra hluta vegna.
4. Verkefni sem Atvinnuþró-
unarfélag Þingeyinga hf. setur
sjálft af stað.
5. Rekstraraðstoð við smáiðn-
aðarfyrirtæki.
Leitast verður við að ná betri
tengslum við smáiðnaðarfyrir-
tæki en verið hefur.
Húsavík 7. október, 1991.
Ásgeir Leifsson.
Höfundur er framkvæmdastjóri Atvinnu
þróunarfélags Þingeyinga.
Sem dæmi um heppilegt smáiðnaðarverkefni nefnir greinarhöfundur
svepparækt: „Til eru ýmsar sveppategundir sem ekki eru ræktaðar hér en
gætu haft góðan markað.“