Dagur


Dagur - 25.10.1991, Qupperneq 5

Dagur - 25.10.1991, Qupperneq 5
Föstudagur 25. október 1991 - DAGUR - 5 Lesendahornið Hvílík forsmán! - „ekki er víst að þeir sem á hamrinum halda vildu standa undir þegar hann fellur“ „Lengi hefur ólgað niðri fyrir en upp úr sauð þegar ég horfði á sjónvarpsmynd af þeirri hörmung er Hólsfjallabúar urðu að sjá á eftir lífsbjörg sinni og um leið hlusta á landbúnaðarráðherrann hrósa sér af verkunum og að þannig yrði áfram haldið. Hátt er reitt til höggs í byggð- um landsins en ekki er víst að þeir sem á hamrinum halda vildu standa undir þegar hann fellur. Herra Blöndal! Líttu þér nær og hugsaðu. Það nálgast þig bik- svartur skuggi, uns hjá þér stend- ur ógnar stórskorinn risi. Hann er í sparifötunum og hann brosir en ekki er ég viss um að það bros sé ekta. Hann kastar til þín hnútu og segir við þig: „Þetta er greiðsla fyrir eigur þínar og hypjaðu þig svo burt. Hér færð þú hvorki að búa eða starfa lengur - ekki framar - hvorki þú eða börnin þín - nei, enginn íslendingur.“ Svo spyrnir hann við þér með stórutánni. (Það skiptir risann ekki nokkru einasta máli hvað verður um þig). Svo byrjar hann að traðka. Það tekur ekki svo langan tíma að mylja niður húsið þitt; þó var það vel byggt og Rusl við Vaðlareit: „Reiður og svekktur“ „Nýlega lagði ég bílnum mínum á bílastæðið við Vaðlareit og gekk niður fyrir handriðið til að njóta útsýnis og veðurblíðu, en heldur varð ég fyrir vonbrigðum því ég þurfti að vaða í glerbrot- um og rusli sem hent hafði verið úr bílum sem þarna hafði verið lagt. Ég varð bæði reiður og svekktur yfir þessari umgengni en tók þá eftir því að engin rusla- fata var á stæðinu, sem hlýtur að vera að hluta til skýringin á öllu ruslinu. Það er ábending mín til þeirra sem málið varðar að setja nú upp ruslafötu hið snarasta og heldur tvær en eina.“ Lesandi Sykurinn dýr í Grímsey Grímseyingur hringdi: „Ég var að renna yfir verð- könnunina sem birtist í blaðinu þriðjudaginn 8. október og það stakk mig að sjá að hæsta verð á tveggja kílóa poka af sykri er 148 krónur. Ég var að kaupa tvo poka af sykri í Kaupfélaginu í Grímsey og þar kostaði pokinn 189 krónur. Mér fannst þetta svo lygilegt að ég hafði ekki tíma til að fetta fingur út í þetta. Ég trúi varla öðru en að þetta sé einhver vitleysa. Sykurinn getur ekki ver- ið svona mikið dýrari hjá okkur. Samkvæmt könnuninni kostar pokinn 117 krónur i KEA Hrísa- lundi og 106 krónur í Nettó en 189 krónur í Grímsey. Þetta er allt of mikill rnunur." Lesendur! Hringið eða skrifið Við hvetjum Iesendur til að láta skoðanir sínar í ljós hér í lesendahorn- inu. Síminn er 24222. vandað og það kostaði mikið. Skorsteinninn stendur lengst en fellur þó líka að lokum. Gróður- inn í kring er horfinn, allt orðið að einni þúst. Þá er það blessaður mosinn, íslenski mosinn - tárvot- ur - sem breiðir yfir spellvirkið. Herra Blöndal! Þeir mega eiga þessa sögu með þér, Oddsson og Jónarnir og bara hvaða kjáni sem er.“ María Eðvaldsdóttir. UIJ Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn mánudaginn 28. október kl. 20.30 í Hafnarstræti 90. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á 36. kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra. Önnur mál. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, aiþingismaður, mætir á fundinn. Áríðandi að félagar mæti vel. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. BYGGINGAVORUR LÓNSBAKKA Rýmingarsala í timbursölu 10% afsláttur af túngirðingaefni net - staurar - gaddavír 20-25% afsláttur af nokkrum gerðum af plötum og panel Símar 96-30323 og 30325 Laugard að sjálfsögðu Verð kr. 400 r: DÍS Hljómsveitin Kredit : 22-Pjstepirkko 29 (sjá þátt í sjónvarpi, föstudagskvöld). Verð kr. 1.000 egur klæðnaður Verð kr. 1.000 pantanir í sinw4199

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.