Dagur - 25.10.1991, Page 8
Fjárhúsin í björtu báli.
Æfing hjá Slökkviliði Húsavíkur:
Eldvömum mjög ábótavant hjá
húsvískum íyrirtækjum
- segir Jón Ásberg Salómonsson, slökkviliðsstjóri
Jón Ásberg Salónionsson er
slökkviliðsstjóri á Húsavík.
Varaslökkviliðsstjórar eru
Benedikt Jónasson og Svein-
björn Lund. Eins og greint er
frá í Degi í síðustu viku hélt
slökkviliðið mikla æfíngu
næstliðinn laugardag, og
brenndi þá gömul fjárhús. Jón
Ásberg féllst á að segja lesend-
um Dags frá æfíngunni, og
greina einnig frá starfí og bún-
aði Slökkviliðs Húsavíkur.
„Við byrjuðum á því að prufa
símakerfi Slökkviliðsins á föstu-
dagskvöld, og tilkynntum
slökkviliðsmönnum um æfingu á
laugardagsmorgun. Þegar æfing-
in hófst klukkan níu um morgun-
inn kveiktum við á brunalúðrin-
um. Slökkviliðsmenn mættu á
stöðina, Fróði Jónsson frá
Slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli var með okkur og flutti fyrir-
lestur um reykköfun, reyklosun
og fleira. Pá lá leiðin í Barnaskól-
ann og þar skoðuðum við tvær
kvikmyndir um slökkvistörf,
önnur fjallaði aðallega um reyk-
losun en hin um tækni við
slökkvistörf.“
Næsta vor verður slökkvi-
Iið vel búið tækjum
„Eftir hádegið mættu menn síðan
aftur á Slökkvistöðina, klæddu
sig í búninga og fóru að fjárhús-
unum. Fyrst var húsið fyllt af
reyk og reykkafarar prófaðir en
síðan kveiktum við þrisvar í hús-
inu og slöktum aftur, meðan við
vorum að prófa ýmis tæki og æfa
slökkvistörf. En síðan brenndum
við húsið til grunna.
Æfingin stóð fram eftir degi og
í lok hennar héldum við á
Slökkvistöðina og ræddum hvað
betur hefði mátt fara.
Slökkviliðið okkar fer að verða
vel búið tækjum á næsta vori,
þegar við verðum komnir með
nýja slökkvibifreið. Á þessu ári
urðum við fyrir því að aðal-
slökkvibifreiðin okkar bilaði
alvarlega, og ekki hefur verið
lagt í að gera við hana. Til bráða-
birgða var vörubíll útbúinn með
dælu og ýmsum tækjum og auk
þess er Slökkviliðið með léttan
bíl með lausri dælu og slöngum. í
vor kemur nýr Iveco, fullkominn
slökkvibíll til bæjarins, og eftir
Braggi...... 278,-
Vínarbiti 238,-
Tilboðið stendur frá 16. til 24. okt.
KíEiA
1
i
BRAUÐGERÐ
það tel ég að við verðum mjög
vel tækjum búnir.“
- Á æfingunni sá ég ykkur
opna þakið á fjárhúsunum með
vélsög sem ég hef ekki tekið eftir
hjá ykkur áður.
„Við erum nýbúnir að kaupa
þessa vélsög og vorum að prófa
hana. Höfðum að vísu reynt hana
áður við að rista niður bíl. í sum-
ar kom hér tækjabíll frá Bruna-
málastofnun og þá vorum við
með slíka æfingu.
í Blazerbílnum erum við með
nýja dælu og við erum vel búnir
reykköfunartækj um. “
- Reykköfun er nú varla fyrir
hvern sem er.
„Nei, það er ekki fyrir hvern
sem er að fara í reykköfun, það
eru margir sem fá innilokunar-
kennd. Menn eru prófaðir og
verða að segja til um hvort þeir
þola þetta, því í þetta þarf að fá
menn sem eru hraustir og fá ekki
þessa innilokunarkennd. Þegar
menn eru komnir í búninginn og
með reykköfunartæki er þetta
um 20 kg. af búnaði sem þeir eru
með.“
- Þetta var allsérstæð bygging
sem þið brennduð á laugardag-
inn. Kanntu að greina frá sögu
hennar?
Þetta var völundarhús
„Þetta voru fjárhús sem maður
kallaður Bensi Koti átti. Þau
voru í notkun alveg þar til í vor.
Húsin voru liðónýt en ég hef
heyrt að karlinn hafi sagt á sínum
tíma að enginn hafi rekið nagla
þarna nema hann sjálfur. Þetta
var Völundarhús, hver skúrinn
utaná og innaní hver öðrum og
súrheysgryfja var inní miðju húsi.
Það var löggiltur andapollur í
húsinu, því einn skúrinn var
byggður yfir læk. Svo brenndum
við líka torfkofa sem enginn vissi
eiginlega hver átti.“
- Hvernig á ég að fara að því
að ræsa út Slökkviliðið ef kviknar
í hjá mér?
„Þú hringir í 41911. Pá er svar-
að á Hótel Húsavík, en þar er
vakt allan sólarhringinn. Þegar
tilkynnt er um bruna sér hótelið