Dagur - 25.10.1991, Side 10

Dagur - 25.10.1991, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 25. október 1991 Dagskrá FJÖLMIÐLA [ kvöld, föstudag, kl. 20.10, er á dagskrá Stöðvar 2 bandaríski framhaldsmyndaflokkurinn, Kænar konur. Þær eru fjórar hrífandi, kynþokkafullar, veraldarvanar og fágaðar með munn- inn fyrir neðan nefið og skoðanir á bókstaflega öllum hlutum. Sjónvarpið Föstudagur 25. október 18.00 Paddington (2). Teiknimyndaflokkur um björninn Paddington. 18.30 Beykigróf (6). (Byker Grove II). Breskur myndaflokkur. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Hundalíf (6). (The Doghouse.) Kanadískur myndaflokkur í léttum dúr. 19.30 Shelley (6). 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Kastljós. 21.05 Er létt tónlist léttvæg? Umræðuþáttur um stöðu íslenskrar dægurtónlistar í tilefni af íslenskum tónlistar- degi. Fulltrúar tónlistar- manna, alþingismanna og útgefenda koma saman og brjóta málin til mergjar og söngvaramir Móeiður Júníus- dóttir, Dam'el Ágúst Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson taka lagið. 21.45 Samherjar (8). (Jake and the Fat Man). 22.40 Óperudraugurinn. Fyrri hluti. (The Phantom of the Opera). Bresk/bandarísk sjónvarps- mynd frá 1989. Handritið skrifaði Arthur Kopit eftir skáldsögu Gastons Leroux. Draugur, sem leynist í Parísaróper- unni, verður ástfanginn af ungri og efnilegri söngkonu en aðrir reyna að leggja stein í götu hennar. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Charles Dance, Teri Polo og Ian Richardson. 00.20 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok. Stöð 2 Föstudagur 25. október 16.45 Nágrannar. 17.30 Gosi. 17.55 Umhverfis jörðina. 18.20 Herra Maggú. 18.25 Á dagskrá. 18.40 Bylmingur. 19.19 19:19 20.10 Kænar konur. (Designing Women) 20.35 Ferðast um tímann. (Quantum Leap III) 21.30 Guð skóp konuna...# (And God Created Woman.) Rómantísk og gamansöm mynd um unga stúlku, Robin Shay, sem er tilbúin að gera ýmislegt til að losna úr fangelsi. Þar með talið að giftast Billy McQuinn. Að komast í hjónaband er ein saga en önnur að venjast því, enda um hagkvæmnis- giftingu að ræða þar sem ástin lýsir sér ekki í sótthita. Billy ræður ekkert við þessa óstýrlátu konu sem er, að hans mati, óútreiknanlegur ærslabelgur. Aðalhlutverk: Rebecca DeMornay, Vincent Spano, Frank Langella og Donovan Leitch. Bönnuð börnum. 23.05 Illur grunur.# (Suspicion) Þetta er bresk endurgerð samnefndrar myndar sem meistari Hitchcock gerði árið 1941 með þeim Cary Grant og Joan Fontain í aðalhlut- verkum. í mynd kvöldsins eru það Anthony Andrews og Jane Curtin sem fara með hlutverk elskendanna sem giftast þrátt fyrir hörð mót- mæli föður hennar. Þegar hún kemst að því að hann virðist ekki allur þar sem hann er séður og að hann virðist valdur að dauða vinar þeirra fara að renna á hana tvær grímur. Aðalhlutverk: Anthony Andrews, Jane Curtin og Jonathan Lynn. Stranglega bönnuð börnum. 00.40 Togstreita. (Blood Relations) Dr. Andreas er haldinn mörgum ástríðum. Hann gerir tilraunir í taugaupp- skurði af sama eldmóði og hann dansar framandi tangó við fallega konu. Hann rækt- ar tónlistarhæfileika sína af sama brennandi áhuga og hann sinnir fornmunum sínum. Hann nýtur hvers augnabliks af sínu ágæta lífi. Aðalhlutverk: Jan Rubes, Lydie Denier, Kevin Hicks og Lynne Adams. Stranglega bönnuð börnum. 02.05 Dagskrárlok. Rás 1 Föstudagur 25. október MORGUNÚTVARP KL. 06.45-09.00 06.45 Veðurfregnir • Bæn. 07.00 Fréttir. 07.03 Morgunþáttur Rásar 1. - Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. Gluggað í blöðin. 7.45 Krítík. 08.00 Fréttir. 08.10 Að utan. 08.15 Veðurfregnir. ÁRDEGISÚTVARP KL. 09.00-12.00 09.00 Fréttir. 09.03 „Ég man þá tíð“. Þáttur Hermanns Ragnars Stefánssonar. 09.45 Segðu mér sögu. „Litli lávarðurinn" eftir Francis Hudson Burnett. Sigurþór Heimisson les (43). 10.00 Fréttir. 10.03 Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur. 10.10 Veðurfregnir. 10.20 Mannlífið. (Frá ísafirði). 11.00 Fréttir. 11.03 Tónmál. Djass um miðja öldina. 11.53 Dagbókin. HÁDEGISÚTVARP KL. 12.00-13.05 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Að utan. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Auðlindin. Sjávarútvegs- og viðskipta- mál. 12.55 Dánarfregnir • Auglýs- ingar. MIÐDEGISUTVARP KL. 13.05-16.00 13.05 Út í loftið. Rabb, gestir og tónlist. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan: „Fleyg og ferðbúin" eftir Charlottu Blay. Bríet Héðinsdóttir les þýð- ingu sína (16). 14.30 Út í loftið - heldur áfram. 15.00 Fréttir. 15.03 Sæluhús eða minninga- banki. Um Skíðaskálann í Hveradöl- um. Seinni þáttur. Umsjón: Elísabet Jökuls- dóttir. SÍÐDEGISÚTVARP KL. 16.00-19.00 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrín. Kristín Helgadóttir les ævintýri og bamasögur. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlist á síðdegi. 17.00 Fréttir. 17.03 Á fömum vegi. Norðurland með Kristjáni Sigurjónssyni. 17.30 Hér og nú. Fréttaskýringaþáttur Frétta- stofu. 17.45 Eldhúskrókurinn. 18.00 Fréttir. 18.03 Létt tónlist. 18.30 Auglýsingar • Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýs- ingar. KVÖLDÚTVARP KL. 19.00-01.00 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Kviksjá. 20.00 Grænlensk alþýðutón- list. Dagskrá um söngsögu Grænlendinga, allt frá forn- um trommusöng til samtím- ans. Umsjón: Jens Kr. Guð- mundsson. 21.00 Af öðm fólki. Þáttur Önnu Margrétar Sig- urðardóttur. 21.30 Harmoníkuþáttur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Orð kvöldsins ■ Dagskrá morgundagsins. 22.30 í rökkrinu: Þáttur Guðbergs Bergsson- ar. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Tónmál. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Rás 2 Föstudagur 25. október 07.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lífsins. Leifur Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson. Fjölmiðlagagnrýni Ómars Valdimarssonar og Fríðu Proppé. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 09.03 9-fjögur. Úrvals dægurtónlist í allan dag. Umsjón: Þorgeir Ástvalds- son, Magnús R. Einarsson og Margrét Blöndal. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 9-fjögur. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmála- útvarp og fréttir. Starfsmenn dægurmála- útvarpsins, Anna Kristine Magnúsdóttir, Bergljót Bald- ursdóttir, Katrín Baldurs- dóttir, Þorsteinn J. Vil- hjálmsson og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál dagsins. 17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram. 17.30 Hér og nú. Fréttaskýringaþáttur Frétta- stofu. - Dagskrá heldur áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund- ur í beinni útsendingu, þjóðin hlustar á sjálfa sig. Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Hafstein sitja við símann, sem er 91-686090. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Vinsældarlisti Rásar 2 - Nýjasta nýtt. Umsjón: Andrea Jónsdóttir. 21.00 íslenska skífan: „Þagn- að í hei" frá 1980 með Þey. - Kvöldtónar. 22.07 Stungið af. 02.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7,7.30,8, 8.30,9,10, 11,12,12.20,14,15,16,17,18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 02.00 Fréttir. - Rokkþáttur Andreu Jóns- dóttur. 03.30 Næturtónar. 05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. - Næturtónar halda áfram. 06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 06.01 Næturtónar. 07.00 Morguntónar. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 25. október 08.10-08.30 Útvarp Norður- lands. 18.35-19.00 Útvarp Norður- lands. Bylgjan Föstudagur 25. október 07.00 Morgunþáttur. Eiríkur Jónsson og Guðrún Þóra. Fréttir á heila og hálfa tímanum. 09.00 Bjarni Dagur Jónsson. Veðurfregnir kl. 10. íþrótta- fréttirkl. 11. 12.00 Hádegisfréttir. 12.15 Kristófer Helgason. íþróttafréttir kl. 13. 14.05 Snorri Sturluson. Veðurfréttir kl. 16. 17.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thorsteinsson og Einar Öm Benediktsson. 17.17 Fréttir. 17.30 Reykjavík síðdegis heldur áfram. 19.30 Fréttir frá fréttastofu Stöðvar 2. 20.00 Heimir Jónasson. 00.00 Björn Þór Sigurðsson. 04.00 Arnar Albertsson. Stjarnan Föstudagur 25. október 07.30 Morgunland 7:27. 10.30 Sigurður H. Hlöðverss. 14.00 Arnar Bjarnason. 17.00 Felix Bergsson. 19.00 Magnús Magnússon. 22.00 Pálmi Guðmundsson. 03.00 Halldór Ásgrímsson. Hljóðbylgjan Föstudagur 25. október 16.00-19.00 Axel Axelsson tekur púlsinn á því sem er að gerast um helgina. Axel hit- ar upp með taktfastri tónlist sem kemur öllum í gott skap. Síminn 27711 er opinn fyrir afmæliskveðjur og óskalög. Þátturinn Reykjavík síðdegis frá Bylgjunni kl. 17.00-18.30. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/ Stöðvar 2 kl. 17.17. # Ríkisstjórnin rænir kirkjuna Biskup íslands hafði mörg orð um þá ráðstöfun fyrrver- andi ríkisstjórnar á síðasta ári að skerða skil ríkissjóðs á kirkjugarðsgjaldi til kirkjunn- ar. Biskupinn var að vonum óhress með að missa spón úr sfnum aski og ásakaði Ólaf Ragnar Grímsson, þáverandi fjármálaráðherra, um stuld á réttmætum tekjum kirkjulífs á íslandi. Þegar nýlega útkom- ið fjárlagafrumvarp kom fyrir sjónir almennings kom í Ijós að ákvörðun fyrrverandi fjármálaráðherra um ráðstöf- un kirkjugarðsgjaldsins var óbreytt. Ólafur Ragnar benti á þetta í frægri ræðu á Alþingi í umræðum að aflok- inni stefnuræðu forsætisráð- herra og sagði meðal annars að biskupinn vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð. Nú sitja flokksbræður hans í ríkis- stjórn og hann lét þess getið á nýafstöðnu kirkjuþingi að þeim mun sárari væru von- brigðin, því annars hefði ver- ið vænst, þegar enn væri höggvið f sama knérunn. Biskup sagði einnig að það sem fyrir ári hafi borið auð- kenni þjófnaðar og verið kall- aður stuldur, væri nákvæm- lega sama f ár. # Svartnætti í skattalögunum Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamanna- sambands íslands, brást ekki áheyrendum sínum er hann setti þing sambandsins síð- ast liðinn þriðjudag heldur hélt orðþrungna ræðu eins og honum einum er lagið. Hann gagnrýndi meðal ann- ars skattakerfið harðlega og sagði í því sambandi. „í vor var okkur sagt af öllum flokk- um að skattleysismörk yrðu hækkuð - ekkert hefur orðíð úr efndum - en okkur er nú sagt að kannski, eftir þrjú ár, verði breyting á. Peir lofuði í vor og sviku í haust, og eru forviða á því að fólkið hristi höfuðið, ef það er tortryggið á að ef til vill eftir þrjú ár komi lægri skattar.“ „Jakinn“ ræddi einnig um viðskipti með tap fyrirtækja og sagði að Grandi vildi nú ólmur kaupa frystihúsið á Stokks- eyri en ekki af þvf að Granda væri ekki sama hvort frysti- hús verið áfram rekið á Stokkseyri. Nei heldur vegna þess að Grandi fái kaupverð- ið frádráttarbært til skatts eða með öðrum orðum. Grandi fái frystihúsið á Stokkseyri fyrir ekki neitt. Þarna væri svartnætti í íslenskum skattalögum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.