Dagur - 25.10.1991, Blaðsíða 11

Dagur - 25.10.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 25. október 1991 - DAGUR - 11 " ' ..... A Leiklist Líflegt og skemmtilegt ævintýri - leikhópur frá Þjóðleikhúsinu kynnir nemendum á Norðurlandi leikhúsið og list þess Nýjar vörurí Barnanáttföt í úrvali. Verð frá kr. 790. Hnepptar vestispeysur á börn stærðir 4-10, verð kr. 1.200. Mánudaginn 21. október sl. hóf- ust í Samkomuhúsinu á Akureyri sýningar leikhóps frá Þjóð- leikhúsinu í Reykjavík á leikriti, sem unnið var af flytjendum í hópvinnu. Slík leikverk voru tals- vert í tísku á tímabili, en heldur minna hefur farið fyrir þeim á síðari árum. Iðulega tókst heldur illa til og voru uppsetningar margra þessara verka lítilvægar. Svo er ekki farið að þessu sinni. Leikverkið, sem kallað er Næt- urgalinn og byggt er á samnefndu ævintýri eftir H.C. Andersen, er líflegt og skemmtilegt. Það hefst á heimili, þar sem heimilisfólkið situr við hina viðteknu heimils- tómstundaiðju nútímans - sjón- varpsgláp. Allt í einu bilar tækið. f fyrstu fyllist fjölskyldan örvænt- ingu. Afþreyingin er horfin og ekkert við að vera, en lipurlega og sem af sjálfu sér rennur atgervis- og framtaksleysið inn í fjörlegt leikrit, þar sem saga H.C. Andersens er endursögð á skemmtilegan og Iíflegan hátt. Leikararnir skipta um hlutverk að því er virðist fyrirhafnarlaust. Allt í einu eru þeir orðnir að furðu sannfærandi Kínverjum, sem túlka fyrir okkur mannlega bresti, en verkið er fullt með til- vísanir í margt það í mannlegu samfélagi, sem við öll þekkjum í öðrum - og ekki síður sjálfum okkur, ef við erum raunsæ. Flytjendur verksins eru Helga E. Jónsdóttir, Jón Símon Gunn- arsson, Kristbjörg Kjeld, Mar- grét Gunnarsdóttir og Þórhallur Sigurðsson, en flautuleikari í sýn- ingunni er Kristjana Helgadóttir. Tónlistin við sýninguna er eftir Lárus Grímsson og um gerð leik- muna sá Jón Páll Björnsson. Skrifari hópsins á meðan á samn- ingu verksins stóð var Guðmund- ur Steinsson, en um líkamsþjálf- un og hreyfingar sá Sylvia von Kospoth. Næturgalinn var frumsýndur fyrir um ári á Seltjarnarnesi og hefur síðan verið sýndur um eitt hundrað og áttatíu sinnum fyrir um þrjátíu og fimm þúsund áhorfendur. Þeir hafa langflestir verið nemendur í grunnskólum víða á landinu, en fyrir þá er verkið samið og þeim boðin ókeypis aðgangur. Sýningarnar á Akureyri eru upphafið á sýninga- ferð um Norðurland, en verkið verður sýnt í öllum sýslum fjórð- ungsins. Tilgangurinn með þessu fram- taki leikaranna úr Þjóðleikhúsinu er að kynna nemendum leikhús og list þess. Von þeirra er, að kynningin verði til þess, að nemendur örvist til sköpunar jafnt í félagslífi sínu sem námi og hafi þannig meiri ánægju og gagn af starfinu og samverunni á skólaferli sínum. Þetta er lofsvert markmið og gott til þess að vita, að reynt sé að ná því. Þessi fyrsta sýning leikara m Si 1 þakdúkui r Eitt það besta á flöt og lítið hallandi þök. BLIKKRÁS HF. Hjalteyrargötu 6, símar 27770,26524, fax 27737, Fallegar barnaflauelsbuxur, 5 litir, verð frá kr. 2.500. Spariskyrtur á litlar dömur og herra. Hanskar, lúffur og húfur í úrvali á sprenghlægilegu verði. ☆ 'vV'A' Leðurhanskar á dömur og herra nýkomnir. Herrabaðsloppar, 4 ntir, verð kr. 3.995. Útsöluhornið! 50% afsláttur Opið iaugardaga kl. 9-12. Þjóðleikhússins lofar góðu. Það er von stofnunarinnar, að sýning- ar sem þessar geti orðið árviss viðburður í starfsemi hennar. Við getum ekki annað en vonað, að svo geti orðið, en líka má benda á það, að önnur leikhús á landinu, jafnt áhuga- sem atvinnuleikhús, mættu huga að þessu sama og ígrunda hvort ekki væri grundvöllur fyrir svipaða starfsemi þó í minna mæli væri á þeirra vegum. Haukur Agústsson. m EYFJOBÐ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 Möldur sf. sýningarsalur Bílasýningar okkar eru ekki bara venjulegar bílasýningar Sjáið og reynsluakið upphækkaða (double cab) L-200 sem boðinn er á frábæru verði - langt undir öðrum pic-up bílum á markaðinum Sjáið nýju bílana frá Mitsubishi með nýjungum framtíðarinnar Reynsluakstur á öllum gerðum og sölumenn aðstoða Notaðir bílar á útisvæði á lækkuðu verði Vélsleðar frá Arctic Cat og sjáið nýja LYNX sleðann - Frumsýndur á Akureyri - Sýndir á útisvæði Vörukynningar í gangi alla helgina - Kjarnafæði - Léttur bjór - Gos frá Viking brugg - Flögur frá Polly og marg fleira Láttu ekki happ úr hendi sleppa - Gerðu góð kaup! r Anægja fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 26. októberfrá kl. /3.00-/8.00 og sunnudaginn 27. október frá kl. /3.00-/7.00

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.