Dagur - 25.10.1991, Síða 14

Dagur - 25.10.1991, Síða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 25. október 1991 HÉR & ÞAR Ein af hópsenunum í myndinni „Hvíti víkingurinn“. í stærstu atriðum myndarinnar taka um 600 manns þátt. „Hvíti víkingurinn“ frumsýnd í næstu viku: Stórvirki á sviði kvikmyndagerðar — kostnaður við myndina 420 milljónir króna Kvikmyndin „Hvíti víkingur- inn“ verður frumsýnd þ. 1. nóvember næstkomandi. Gerd myndarinnar hefur staðið síð- ustu þrjú árin og nálgast heild- arkostnaður við myndina 420 milljónir króna. Myndin er samstarfsverkefni Norðurland- anna á sviði kvikmyndagerðar og um leið mesta stórvirki íslenskrar kvikmyndagerðar því myndin er leikin á íslensku. Tökur hennar fóru fram sumarið og haustið 1990, bæði í Noregi og á íslandi. í stærstu atriðum myndarinnar taka þátt um 600 manns. Undirbúningur að „Hvíta vík- ingnum“ hófst fyrir um þrem árum þegar leikstjórar norrænu sjónvarpsstöðvanna ákváðu að fela Hrafni Gunnlaugssyni að skrifa handrit að þáttaröð sem Gottskálk Dagur Sigurðarson er í hlut- verki Asks í myndinni. Hann segir að það mótlæti sem Askur verði fyrir í sögunni herði hann smám saman og í þessu hlut- verki hafi hann fundið til allra mannlegra tilfinninga. byggði á íslenskum sögum um kristnitökuna á Norðurlöndum. Jafnframt var ákveðið að Lars Bjalkeskog hjá sænska Sjónvarp- inu tæki að sér stjórn undirbún- ings verklegra framkvæmda. Hrafn Gunnlaugsson er leik- stjóri, jafnframt því að vera höfundur sögu og leiktexta. Kvikmyndin er 130 mínútur að lengd en jafnframt var gerð fjögurra þátta útgáfa fyrir sjónvarp. „Hvíti víkingurinn“ er saga um ástir, valdafíkn og ástríður. Þetta er sagan um Ask og Emblu sem uxu upp á þeim tímum þegar kóngar börðust um völdin og ásatrú víkinganna tókst á við kristindóminn á vígvellinum. Sagan hefst árið 999 e. Kr. og gerist á höfðingjasetri í Noregi þar sem síðasti heiðni jarlinn ræður ríkjum. Haldið er brúð- kaup íslenska piltsins Asks og hinnar fögru Emblu að ævaforn- um siðum launhelga. En brátt ber að garði óvænta og óboðna gesti; Olaf konung Tryggvason og krossfara hans sem eru að leggja enn eitt héraðið undir sinn blóðuga kross. Embla er tekin höndum og Askur, sem er stað- fastur í trú sinni á Óðinn og Þór, er sendur til íslands. Konungur kveður hann með þessum orð- um: „Þú munt ekki endurheimta eiginkonu þína fyrr en þú hefur kristnað ísland." Askur fær til- sögn við hæfi en ætlunarverkið virðist vonlaust því íslendingar hæða og spotta alla trúboða sem koma til þerra í nafni Hvíta- krists. Á meðan heldur konungur Emblu í gíslingu í klaustri. Og kongur laðast æ meir að gísl sínum.... Askur og Embla eru því peð í valdatafli konungs og fýrir þeim liggja þungar raunir þeim er ætl- að að svíkja ást sína, hefðir og trú. En þau eru nógu ung og óreynd til að allt sé mögulegt. Áðalhlutverk í myndinni eru í höndum Gottskálks Dags Sigurð- arsonar og Mariu Bonnevie. Af öðrum íslenskum leikendum má nefna Egil Ólafsson, Þorstein Hannesson, Helga Skúlason, Bríeti Héðinsdóttur, Eddu Björgvinsdóttur, Flosa Ólafsson, Þráin Karlsson, Árna Tryggva- son og Róbert Arnfinnsson. BÓNUSSKÓR Nýkomnir barnakuldaskór á ótrúlegu verði Aðeins kr. 1.990 Loðfóðruð stígvél m/rennilás, leður og nubuck. Loðfóðraðir, reimaðir úr leðri. Loðfóðruð m/frönskum rennilás, úr leðri. Beinn innflutningur - lægra verð SKÓHÚSIO Verslunarmiðstöðinni Kaupangi, sími 27019 Gottskálk Dagur Sigurðarson og Maria Bonnevie í hlutverkum Asks og Emblu. Þetta var fyrsta kvikmynd hennar og fyrir utan að hlutverkið er stórt þurfti hún að ná valdi á íslcnskunni því sjálf er hún norsk. Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og höfundur sögunnar um hvíta víkinginn. Hann hefur helgað sig þessu verki síðustu þrjú árin.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.