Dagur - 25.10.1991, Síða 15

Dagur - 25.10.1991, Síða 15
Föstudagur 25. október 1991 - DAGUR - 15 Íþróttir Landsliðið í körfuknattleik: Nokkrir af sterkustu leik- mönnunum verða ekki með - m.a. Valur Ingimundarson Torfi Magnússon, landsliðs- þjálfari í körfuknattleik, hefur valið 12 manna hóp sem fer í keppnisferð til Bandaríkjanna 4.-19. nóvember. Þrír nýliðar eru í hópnum og einn þeirra er Einar Einarsson, leikmaður Tindastóls á Sauðárkróki. Hinir tveir nýliðarnir eru Bárð- ur Eyþórsson, Snæfelli, og Hermann Hauksson, KR. í 12 manna hópnum eru aðeins sex sem léku með landsliðinu í fyrra en nokkrir af sterkustu körfu- knattleiksmönnum landsins gátu ekki gefið kost á sér, menn eins og Valur Ingimundarson, Tinda- Fyrsta júdó- mót vetrarins Fyrsta júdómót vetrarins verð- ur haldið í Laugardalshöll á morgun. Það er Haustmót Júdósambands íslands og verður keppt í flokkum karla og unglinga. Norðlendingar munu eiga 11 fulltrúa á mótinu, KA sendir 7 og Varmahlíðarskóli í Skagafirði sendir 4. Þar hefur júdó verið stundað í nokkur ár en þetta verður í fyrsta sinn sem keppend- ur frá skólanum taka þátt í júdó- móti. Á sunnudaginn fer fram keppni í þyngdarflokkum drengja í æfingahúsnæði júdó- deildar Ármanns í Einholti. Knattspyrna: KAmeð8.bestu aðsóknina KA-menn voru í 8. sæti hvað aðsókn varðaði á heimaleiki í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu í sumar. Áhorfendur á heimaleikjum liðsins voru samtals 5.222 eða 580 að með- altali á leik. Framarar voru í efsta sæti með 1.481 áhorfanda að meðaltali, KR í öðru sæti með 1.205, FH með 772, ÍBV 760, Breiðablik 738, Valur 655, Víkingur 593, Víðir 412 og Stjarnan 318. Flestir áhorfendur fylgdust með 8. umferð deildarinnar eða 997 og 929 fylgdust með 11. umferð. Aðeins 468 fylgdust með 18. og síðustu umferð. íþróttir H ANDKN ATTLEIKU R Eöstudagur 1. dcild: KA-Haukar 2. deild: kl. 20.30 Völsungur-Ármann kl. 20 Laugardagur 2. dcild: Þór-Ármann kl. 13.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur Úrvalsdcild: Haukar-Tindastóll kl. 14 Sunnudagur Úrvalsdcild: Þór-KR kl. 20 stól, Jón Kr. Gíslason, ÍBK, Páll Kolbeinsson, KR, og Pétur Guðmundsson. Nokkrir koma nýir inn, t.d. Pálmar Hauksson, UMFG, Tómas Holton, Val, og Henning Henningsson, Haukum. Hópurinn er þannig skipaður (tölurnar tákna hæð og lands- leikjafjölda): Albert Óskarsson, ÍBK 193/16 Bárður Eyþórsson, Snæfelli 182/0 Einar Einarsson, Tindastól 178/0 Guðmundur Bragason, UMFG 199/51 Henning Henningsson, Haukum 184/11 Hermann Hauksson, KR 199/0 Magnús Matthíasson, Val 204/25 Nökkvi Már Jónsson, ÍBK 194/4 Pálmar Sigurðsson, UMFG 187/69 Rúnar Árnason, UMFG 192/13 Teitur Örlygsson, UMFN 190/35 Tómas Holton, Val 188/40 íslenska liðið leikur við 7 bandarísk háskólalið og koma fimm af þeim úr 1. deildinni í háskólaboltanum en mótherjar liðsins í fyrri leikjum hafa oftast verið úr 3. deild. Liðin 7 eru University of Washington, University of Oregon, College of Idaho, Boise State University, College of Southern Idaho, Washington State University og Oregon State University. Valur Ingimundarson gefur ekki kost á sér í Bandaríkjaferðina, Punktar frá Þýskalandi ■ Eyjólfur Sverrisson spilaði í stöðu afturliggjandi tengiliðs þegar Stuttgart gerði 0:0 jafn- tefli við Osasuna í Evrópu- keppni fclagsliða á Spáni á þriðjudagskvöldið. Eyjólfur fékk góða dóma fyrir leik sinn. Úrslitin þykja góð fyrir Stutt- gart og líklegt þykir að liðið komist áfram í þriðju umferð. Walter lék ekki með Stuttgart vegna meiðsla og Sammer meiddist í leiknum og verður trúlega ekki með gegn Fortuna Dússeldorf á morgun. ■ Enginn endir virðist ætla að verða á niðurlægingu Bayern Múnchen en liðið steinlá fyrir danska liðinu B-1903, 2:6. Liðið fékk hörmulega dóma í blöðum í Þýskalandi, einn fékk 3 og hinir fengu allir 5 sem er næst versta einkunn sem gefin er. I dag er morgunljóst að Karl- Heinz Rummenigge og Becken- bauer verða varaforsetar hjá liðinu og í viðtali á dögunum sagði Beckenbauer að ekki væri hægt að kenna Sören Lerby um ófarir liðsins. Leikmennirnir yrðu að vinna fyrir kaupinu sínu og ef ekki yrði breyting á leik liðsins alveg á næstunni yrði að selja að minnsta kosti 10 leik- menn. Lerby sagði að seinni leikurinn yrði að vinnast 4:0 og ef sínir menn myndu spila eins væri eins gott að senda Dönun- um strax uppgjöf í pósti. ■ Úrslitin eru þau verstu í sögu Bayern Múnchen í Evrópu- keppni frá upphafi. Liðið hefur staðið sig best allra liða í Evrópukeppni og eitt af þeim liðum í Evrópu sem oftast hefur leikið til úrslita um titilinn. ■ Ófarir Bayern hafa vakið gífurlega athygli í Þýskalandi og er vart um annað talað. Ríkissjónvarpið sendir út fréttatíma á tveimur rásum og var fjallað um leikinn í báðum aðalfréttatímunum en það er mjög óvanalegt því strax á eftir er íþróttaþáttur. ■ Eike Immel, markvörður Stuttgart, er búinn að veðja við framkvæmdastjórann Dieter Höness að hann fái ekki á sig fleiri en 32 mörk á tímabilinu. Hann hefur fengið á sig 15 mörk í 14 leikjum. Einar Stefánsson, Þýskalandi. íþróttir helgarinnar: Hvað gera Þórsarar með nýjan Kana? Norölcnsku handknattleiks- liðin þrjú eiga öll heimaleiki um helgina í íslandsmótinu. KA-menn mæta Haukum en Þórsarar og Völsungar Ármanni. Þór mætir KR á heimavelli í körfunni en Tindastóll Haukum á útivelli. Körfuknattleikslið Þórs mæt- ir að öllum líkindum til leiks með nýjan Bandaríkjamann, Joe Harge, og verður fróðlegt að sjá hvað hann kann fyrir sér í greininni. Leikurinn fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri á sunnudagskvöldið kl. 20. Tindastóll hefur verið laus við allar væringar af þessu tagi en liðið mætir Haukum í Hafnar- firði á morgun kl. 14. KA-menn hafa tapað öllum þremur leikjum sínum á Islandsmótinu í handknattleik til þessa en ætla sér sigur á móti Haukum í kvöld. Leikurinn fer fram í KA-húsinu og hefst kl. 20.30. í 2. deildinni taka Völsungar á móti Ármanni kl. 20 í kvöld. Á morgun færa Ármenningar sig síðan yfir til Akureyrar og spila við Þór í íþróttahöllinni kl. 13.30. Þá fer fram heil umferð í B- riðli 2. deildar í handbolta 3. flokks á Akureyri um helgina. Þór á sæti í þessum riðli ásamt Víkingi, Breiðabliki, Hetti og HK. Þór spilar við Víking kl. 15 á morgun og HK kl. 16.40. Á sunnudag spilar Þór við Breiða- blik kl. 9 og Hött kl. 11.30. Dalvíkingar urdu sigurvegarar á Héraðsmóti UMSE í knattspyrnu sem lauk í haust. Liðið sigraði Reyni örugglega í úrslitalcik en þetta er annað árið í röð sem liðið vinnur þetta mót. Þcss má geta að nýlega kusu leikmenn liðsins Gísla Davíðsson knattspyrnumann ársins en sama titil hjá konunum hlaut Helga Björk Eiríksdóttir. Á neðri myndinni er 5. flokkur Dalvíkinga ásamt þjálfara sínum, Jónasi Baldurssyni, en liðið varð einnig sigurvegari í Héraðs- móti UMSE. Strákarnir skarta þarna nýjum búningum sem Sparissjóður Svarfdæla gaf. 1. deild KA-Haukar í KA-húsinu, föstudaginn 25. október kl. 20.30. Mætum og styðjum okkar menn Áíram KA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.