Dagur - 25.10.1991, Side 16
Akureyri, föstudagur 25. október 1991
/^T7\ Fjölskyldutilboð 26.10: Alltaf eitthvað nýtt
frr \ Sveppasúpa, salatbar, á villibráðarseðlinum. |CII|TI 1AMl
UiBÍf /T*ú» grísakótiletta Baden Baden, Leikhústilboð í fullum r
I ( ) I ís og ávaxtaskál. gangi. ul
V / / Verð kr. 1250 V2 gjald
f. 6-11 ára.
Frítt fyrir þá yngstu.
Sala fullvirðisréttar í mjólkurframleiðslu:
Algengt verð 70-80
krónur fyrir lítrann
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, segir töluvert um full-
virðisréttarsölu milli mjólkur-
framleiðenda og sé algengt
verð nú á bilinu 70-80 krónur
fyrir lítrann.
Búvörusamningurinn frá 11.
mars sl. opnaði fyrir verslun milli
bænda með framleiðslurétt í
Akureyri:
Jón Baldvin
kynnir EES-
samninginn
Utanríkisráðuneytið efnir til
borgarafundar á Akureyri á
sunnudaginn þar sem Jón
Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, mun hafa fram-
sögu um nýgerðan samning um
Evrópska efnahagssvæðið. A
fundinum gefst almenningi
tækifæri á að koma á framfæri
spurningum til ráðherra um
samninginn.
Samningar um Evrópskt efna-
hagssvæði tókust í byrjun vik-
unnar og í fyrrakvöld efndi utan-
ríkisráðuneytið til upplýsinga-
fundar í Reykjavík um samning-
inn. Samkvæmt upplýsingum
ráðuneytisins í gær var mikil
aðsókn á fundinn. Nú hefur verið
ákveðið að boða til sams konar
funda víða um land á næstu
dögum, þann fyrsta í Alþýðuhús-
inu á Akureyri kl. 14 á sunnudag.
F>á er í undirbúningi að halda
fund á Sauðárkróki föstudaginn
1. nóvember og á Dalvík og
Húsavík daginn eftir.
Ekki er ætlast til að á þessum
fundum verði leyfð ávörp eða
umræður heldur mun ráðherra
kynna EES-samninginn og svara
að því loknu fyrirspurnum um
málefnið. JÓH
Skagaströnd:
Vel gengur
með stálþilíð
Vel gengur að koma stálþilí
niður við hafnargarðinn á
Skagaströnd. Byrjað var á
verkinu fyrir u.þ.b. hálfum
mánuði og að sögn Magnúsar
B. Jónssonar, sveitarstjóra
Höfðahrepps, stendur til að
lokið verði við að reka það
niður í næstu viku.
Meðallengdin á stálplötunum
er um 11 metrar og eru þær settar
utan á 90 metra langan kafla af
suðausturhafnargarðinum og á
enda hans. Magnús segist búast
við um mánaðar vinnu í að
ramma þilið við garðinn og staga
það eftir að lokið hefur verið við
að koma því fyrir. Stálþilið ætti
því að verða klárt til að taka á
móti fangbrögðum Ægis undir
lok nóvembermánaðar. SBG
mjólkurframleiðslu. Heimilað
var að höndla með fullvirðisrétt-
inn frá og með 1. maí sl., en þetta
ákvæði tók þó ekki gildi fyrr en 1.
september sl.
„Það er ekki mjög mikil hreyf-
ing í sölu á fullvirðisrétti. Verð
voru til að byrja með alltof há,
allt að 125 krónur fyrir lítrann,
en þau eru að lækka. Pessa dag-
ana heyrir maður um 70-80
krónur," segir Hákon.
Ekki hefur ennþá verið gengið
endanlega frá útfærslu á ákvæð-
um búvörusamningsins um
mjólkurframleiðsluna. Fyrir ligg-
ur að hún er langt umfram innan-
landsneyslu og því er í farvatninu
að færa niður fullvirðisréttinn um
sem svarar 5 milljónum lítra. A
síðasta ári nam framleiðslan um
108 milljónum lítra, en innan-
landssalan var rétt um 100 millj-
ónir lítra. Á þessu verðlagsári er
framleiðsluréttur í mjólk um 104
milljónir lítra.
„t>að hefur verið stefnt að því
að ganga frá samningi um mjólk-
urframleiðsluna fyrir áramót.
Menn vilja í þessu sambandi sjá
hverju fram vindur með afurða-
stöðvarnar. Undirhópur sjö-
mannanefndar er að vinna að
þeim málum og. m.a. er hann að
skoða verðmiðlun milli mjólkur-
búanna til þess að auka hag-
kvæmni í mjólkuriðnaðinum,“
sagði Hákon. óþh
Unnið er að jarðvegsskiptun og lagfæringu lagna í Stóragarði á Húsavík.
Húsavík:
Mynd: IM
Jarðvegsskipti í Stóragarði
- byrjunarframkvæmdir við „ofanbyggðaveg“
Framkvæmdir standa nú yfir
við Stóragarð ofan gatnamóta
Stóragarðs og Miðgarðs. Unn-
ið er að jarðvegsskiptum og
lagfæringu lagna. 1 raun er
þetta fyrsti áfangi við „ofan-
byggðaveg“, en hann mun
liggja austan íþróttahallarinnar
og Framhaldsskólans og tengj-
ast Grundargarði og síðar
verða lagður áfram, yfir Búð-
ará og tengjast þá Fossvöllum.
Mjög brýnt er að gera nýja
aðkomu að Framhaldsskólanum,
en ökuleiðin að honum er nú um
Ásgarðsveg og Skólagarð, og
bera þær götur ekki þá vaxandi
umferð sem aukin starfsemi í
skólanum hefur í för með sér.
Pálmi Þorsteinsson, yfirmaður
verklegra framkæmda hjá Húsa-
víkurbæ, sagði að fjárveiting til
þessa verkefnis næmi fimm millj-
ónum á þessu ári og í haust yrði
unnið eins lengi og peningar ent-
ust eða veðurfar leyfði. Vonandi
næði vegarlagningin langleiðina
að Framhaldsskólanum fyrir
þessa fjárveitingu, en kostnaður
við jarðvegsskipti á þessu svæði
væri ekki alveg ljós, vegna hugs-
anlegs vatnsaga. IM
Hellulagning á Ráðhústorgi á Akureyri:
Brotþol og frostþol hellnanna mjög gott
- segir framkvæmdastjóri Malar og Sands hf.
og vísar á bug öllum ásökunum um lélega framleiðslu
„Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins hefur rannsakað
framleiðslu gangstéttahellna er
fóru til hellulagningar á Ráð
hústorgi, og það í byrjun
verks, eins og farið var fram á
í útboðs- og verklýsingu.
Niðurstöður rannsókna sýna
að brotþol þessara hellna er
mjög gott sem og frostþol.
Fullyrðingar Gunnars Jóhann-
essonar, verkfræðings, um
gallaða framleiðslu eru með
öllu óskiljanlegar þar sem
hann hefur öll gögn undir
höndum frá réttum rannsókn-
araðilum,“ sagði Hólmsteinn
T. Hólmsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Malar og sands
hf. á Akureyri.
Svo sem greint var frá í Degi í
gær eru skoðanir skiptar um
ágæti framkvæmda við Ráðhús-
torg. Fram kemur að hellur vilja
springa og Gunnar Jóhannesson,
verkfræðingur hjá Akureyrarbæ,
Hraðfrystihús Ólafsíjarðar hf.:
Frystur fískur eyði-
lagðist í fiystiklefa
Fiskur að verðmæti þrjár millj-
ónir eyðilagðist í frystigeymslu
Hraðfrystihúss Ólafsljarðar hf.
síðastliðinn mánudag er
amoníakrör fór í sundur.
Starfsmaður var að störfum í
frystiklefanum á lyftara. Óhapp-
ið varð er maðurinn rak bretti
utan í kælirör. Rörið fór í sundur
á suðu og kælivökvinn úðaðist um
alla frystigeymsluna. Manninn sak-
aði ekki þar sem hann gat forðað
sér hið snarasta.
„Við náðum að skrúfa strax
fyrir lekann. Hluti þess fiskjar er
í frystinum var er ónýtur. Laus-
lega áætlað er tjónið um þrjár
milljónir, sem verður bætt þar
sem við erum tryggðir gagnvart
slíku óhappi,“ sagði Sigurður
Ástþórsson, verkstjóri ój
segir að skýringar séu ekki ein-
hlítar. Hann nefnir óeðlilega
spennu í fletinum og að hellurnar
standist ekki gæðakröfur.
Hólmsteinn, framkvæmda-
stjóri Malar og sands hf. segir, að
þær hellur er fóru til verksins á
Ráðhústorgi fullnægi settum
skilyrðum utan lítið magn af
stærðinni 10x20. Skekkja varð í
móti þannig að tólfta hver hella
stóðst eklti mælingu og Hólm-
steinn tók fram að strax voru
boðnar bætur er gallinn kom í
ljós enda sé stefna fyrirtækis hans
að selja gallalausa og góða vöru.
„Yfir níutíu prósent þeirra
hellna er fór til hellulagningar-
innar á Ráðhústorgi eru hellur af
stærðinni 30x30. Þessar hellur
eru vandaðar og standast 100%
allar gæðakröfur. Frostþíðupróf-
ið sýnir 0,35 og prófun á beygju-
togþoli 8,2.
Áf þessum tölum má sjá að
sprungur í hellum eftir lögn eru
ekki vegna lítilla gæða. Annað
kemur til. Svo virðist sem þung-
um tækjum hafi verið ekið inn á
hellulögnina áður en búið var að
læsa henni með sandburði. Því
brotnuðu hellur á vissum hluta
torgsins á mjög sérstakan hátt
þ.e. á hornum þess flatar er snýr
inn að miðju torgsins. í byrjun
verks unnu faglærðir menn
verkið, en svo er ekki nú í jafn
ríkum mæli. Með þeim ófaglærðu
fór að bera á mistökum og
sprungum. Sökin er ekki starfs-
manna Malar og sands hf.,“ sagði
Hólmsteinn.
í útboðs- og verklýsingu vegna
hellulagningar Ráðhússtorgs
segir, að hellurnar skulu vera
með sléttu, þéttu og áferðar-
fallegu yfirborði. Mesta frávik frá
fyrirhugaðri lengd, breidd eða
hæð skal vera plús/mínus 2 mm.
Hornskekkja skal vera rninni en
3 mm á 500 mm.
Beygjuþol skal vera meira en
4.5 MPa á stökum sýnum og
meira en 6 MPa að meðaltali þeg-
ar tekin eru a.m.k. 5 sýni.
Veðrunarþolspróf skal gera
samkvæmt sænskum staðli og
skal flögnun eftir 28 frostþíðu-
umferðir vera minni en 0,5 kg á
fermeter í meðaltali 5 sýna og
aldrei meira en 0,6 kg á fermeter
í stöku sýni.
„Að framantöldu má sjá að
framleiðsla Malar og sands hf., er
hér um ræðir, er í fullu samræmi
við gerðar kröfur og gott betur,“
sagði Hólmsteinn T. Hólmsteins-
son. ój