Dagur - 29.10.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 29. október 1991
Þriðjudagur 29. október 1991 - DAGUR - 9
Iþróttir
Úrvalsdefld
A-riðill
Haukar-Tindastóll 106:103
ÍBK-SnæfelI 106:77
Skaliagrímur-Valur 80:90
Þór-KR 109:111
UMFG-UMFN 89:74
KR 5 4-1 496:416 8
UMFN 5 4-1 432:393 8
Tindastóll 5 2-3 450:452 4
Snæfell 5 1-4 358:446 2
Skallagrímur 5 0-5 374:458 0
B-riðill
ÍBK 5 5-0 510:392 10
UMFG 5 4-1402:378 8
Haukar 5 3-2 451:473 6
Valur 5 2-3 432:443 4
Þór 5 0-5 393:447 0
Handknattleikur
1. deild
KA-Haukar 24:17 Selfoss-Stjarnan 26:25
IBV-FH 27:29
Grótta-UBK 18:17 HK-Víkingur 17:25 Fram-Valur 17:29
FH 5 5-0-0 143:109 10
Víkingur 4 4-0-0 111:86 8
Stjarnan 5 3-1-1 125:112 7
HK 4 2-1-1 94: 89 5
Selfoss 5 2-1-2 134:134 5
Haukar 5 2-1-2 111:113 5
Fram 5 1-3-1104:115 5
Valur 4 1-1-2 104:102 3
Grótta 5 1-1-3 89:111 3
KA 4 1-0-3 99:106 2
ÍBV 3 0-1-2 76: 79 1
UBK 5 0-0-5 79:117 0
2. deild
HKN-ÍH 28:24
Völsungur-Ármann
Þór-Ármann
Ögri-UMFA
1R
Þór
HKN
UMFA
Ármann
KR
ÍH
Völsungur
ÍH
Fjölnir
Ögri
4 4-0
3 3-0-
3 3-0-
4 3-0.
5 2-0-
3 1-0-
2 1-0-
3 1-0.
3 1-0.
4 1-0-
5 0-0-
24:28
26:20
17:27
94:62 8
88:53 6
83:49 6
87:69 6
104:96 4
65:52 2
51:41 2
67:75 2
60:70 2
65:85 2
5 79:134 0
Blak
1. deild karla
Þróttur N.-ÍS
Víkingur
Völsungur
ÍS
UBK
KA
HK
Þróttur N.
Sindri
3 3-0
3 3-0
3 2-1
4 2-2
2 1-1
3 1-2
1:3
9:1 6
9:2 6
7:6 4
6:8 4
4:3 2
6:6 2
5 1-4 6:12 2
3 0-3 0:9 0
1. deild kvenna
Þróttur N.-ÍS 1:3
Þróttur N.-ÍS 0:3
Umf. Skeið-HK 0:3
IS
HK
Þróttur N.
KA
Þróttur R.
Umf. Skeið
4 4-0 12:2 8
4 3-1 10:6 6
6 2-4 11:13 4
1 1-0 3: 1 2
4 1-3 6:112
3 0-3 0: 9 0
Handknattleikur:
Langþráður sigur
hjá KA-mönnum
KA-menn brutu loksins ísinn
og unnu sinn fyrsta sigur á Is-
landsmótinu í handbolta þegar
þeir mættu Haukum á Akur-
eyri á föstudagskvöldið. Sigur-
inn var bæði verðskuldaður og
sannfærandi, 24:17. „Við höf-
um verið að detta niður á ansi
Iágt plan í fyrri leikjum en
sluppum við það núna og spil-
uðum vel allan tímann. Eg er
sérstaklega ánægður með bar-
áttuna í vörninni og stuðningur
áhorfenda var frábær,“ sagði
Pétur Bjarnason, fyrirliði KA.
Það var greinilegt strax í upp-
hafi hvert stefndi. KA náði for-
ystunni í byrjun, Haukar jöfnuðu
3:3 en eftir það skildu leiðir og
það var aldrei spurning hvort lið-
ið myndi sigra. Haukar áttu í
miklum vandræðum með að finna
leiðir í gegnum geysisterka vörn
KA-manna og ef það tókst strönd-
uðu skot þeirra æði oft á Axel
sem var í banastuði í markinu. í
sókninni léku KA-menn af mun
meiri yfirvegun en þeir hafa gert
til þessa og árangurinn lét ekki á
sér standa. Munurinn jókst jafnt
og þétt, varð 12:7 fyrir hlé og
lengi 8 mörk í seinni hálfleik.
Haukarnir reyndu þá að taka
bæði Alfreð og Erling úr umferð
en allt kom fyrir ekki.
„Ég er rosalega ánægður með
þennan leik. Loksins small vörn-
in saman hjá okkur og við unnum
þetta fyrst og fremst á varnarleik.
Ég var svolítið stressaður í byrj-
un en það var sem betur fer
ástæðulaust, við náðum að sýna
að við erum mun betri en fyrstu
leikirnir gáfu til kynna,“ sagði
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson sem
átti enn einn stórleikinn fyrir KA
og skoraði hvert markið öðru
glæsilegra úr vinstra horninu.
Hann nýtur góðs af því að vera
búinn að fá Alfreð við hliðina á
sér og nýtist nú liðinu eins og
hann á að gera. Alfreð var grfðar-
lega sterkur í vörn og sókn, þrátt
fyrir að hann væri tekinn úr um-
ferð lengst af, og sama má segja
um Erling sem átti frábæran leik
en hefði mátt skjóta meira. Þá
átti Jóhann Jóhannsson sinn
langbesta leik til þessa og virðist
vera að finna sig í KA-búningn-
um.
Haukarnir voru hálfdaprir og
fljótir að gefast upp. Lykil-
mennirnir þrír fyrir utan,
Halldór, Páll og Baumruk kom-
ust lítið áleiðis í sókninni og þá
var ekki mikið eftir af liðinu.
Flestir leikmennirnir og þjálfari
(nema hvað?) létu lélega dóm-
gæsluna fara alltof mikið í taug-
arnar á sér og máttu í lokin ekk-
ert vera að því að spila handbolta
fyrir nöldri.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
10/4, Alfreð Gíslason 5, Jóhann Jóhanns-
son 4, Erlingur Kristjánsson 2, Pétur
Bjarnason 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1.
Axel Stefánsson varði 13/2 skot og Björn
Björnsson 1.
Mörk Hauka: Petr Baumruk 7/4, Halldór
Ingólfsson 3/1, Páll Ólafsson 3/1, Jón
Örn Stefánsson 2, Sveinberg Gíslason 2.
Magnús Árnason varði 6/1 skot og Páll
Poulsen 1.
Dómarar: Runólfur Sveinsson og Hlynur
Jóhannsson. Æ, æ, æ.
Erlingur Kristjánsson átti stórleik og varnarmönnum Hauka virtist nákvæm-
lega sama þótt hann væri í nýjum búningi. Mynd: Goiii
Handknattleikur, 2. deild:
Þriðji sigur Þórsara í röð
Þórsarar láta ekki staðar num-
ið í 2. deildinni í handknattleik
og á laugardag unnu þeir
öruggan sigur á Ármenning-
um, 26:20. Leikurinn var þó
jafn framan af og staðan í hléi
var 10:8.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og Ármenningar yfirleitt skrefinu
á undan. Þeir höfðu forystuna 8:7
en Þórsarar skoruðu þrjú síðustu
mörkin í fyrri hálfleik og létu for-
ystuna ekki af hendi eftir það.
Þeir höfðu greinilega undirtökin í
seinni hálfleik og sigurinn var
aldrei í hættu.
„Ég er nokkuð ánægður með
þetta. Ármenningar eru með
ágætis lið og það er greinilega
mun meiri alvara í þessu hjá
þeim en í fyrra. Það hefur verið
vandamál hjá okkur að nýta
dauðafærin og við fórum illa með
ein 15 í fyrri hálfleik. Það vantar
meiri vandvirkni. Annars finnst
mér liðið spila skemmtilegan
handbolta og það er synd hvað
fáir fylgjast með leikjunum. Fólk
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Haukar lögðu Tindastól
Haukar sigruðu Tindastól
106:103 í mjög fjörugum og
skemmtilegum leik í Hafnar-
fírði á laugardag. Leikurinn
var jafn og spennandi allan
tímann en 8 stig Hauka í röð á
lokamínútunum gerðu gæfu-
muninn.
Sóknarleikurinn hafði forgang
í leiknum en varnarleikurinn sat
á hakanum. Mikill hraði var all-
ann tímann og liðin hittu vel.
Leikurinn var í járnum allan tím-
ann og munurinn sjaldnast meiri
en 5-6 stig. Staðan í hléi var 56:56
og í seinni hálfleik voru Stólarnir
lengst af skrefinu á undan.
Skömmu fyrir leikslok höfðu þeir
náð 6 stiga forystu, 98:92, en þá
kom slæmur leikkafli og Hauk-
arnir skoruðu 8 stig í röð og
héldu forystunni eftir það á æsi-
spennandi lokasekúndum.
Einar Einarsson fór á kostum í
liði Tindastóls í fyrri hálfleik og
skoraði þá 18 stig, 12 úr þriggja
stiga skotum. Hann skoraði hins
vegar ekki stig í seinni hálfleik.
Valur var sterkur allan tímann og
Ivan Jonas og Haraldur Leifsson
voru góðir í seinni hálfleiknum.
Ivan var mjög sterkur undir körf-
unni og Haraldur sýndi á sér nýja
hlið og raðaði niður þriggja stiga
skotunum.
Haukaliðið var jafnt en mest
bar á þeim ívari Ásgrímssyni og
Jóni Arnari Ingvarssyni sem báð-
ir áttu stórleik. RK/JHB
Stig Hauka: Ivar Ásgrímsson 27, Jón
Arnar Ingvarsson 26, Mike Dizaar 14,
Jón Örn Guðmundsson 13, Pétur
Ingvarsson 10, Reynir Kristjánsson 8,
Eggert 6, Tryggvi 2.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 26,
Ivan Jonas 25, Haraldur Leifsson 25,
Einar Einarsson 18, Karl Jónsson 7,
Kristinn 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Krist-
inn Óskarsson. Dæmdu vel.
virðist fara eftir andstæðingunum
þegar það ákveður hvort það á að
koma en mér finnst að menn ættu
að mæta og styðja sitt lið, sama
við hverja það er að spila,“ sagði
Jan Larsen, þjálfari Þórs.
Leikur Þórsara lofar góðu en
styrkur þeirra kemur þó ekki í
ljós fyrr en þeir fara að spila við
sterkustu liðin í deildinni. Varn-
arleikurinn virðist vera nokkuð
gloppóttur ennþá en sóknar-
leikurinn lítur vel út. Ole Nielsen
fer þar fremstur í flokki, mjög
skemmtilegur og fjölhæfur
leikmaður. Rúnar og Jóhann eru
báðir sterkir fyrir utan og Sævar
lék mjög vel í horninu í seinni
hálfleik.
Mörk Þórs: Ole Nielsen 8, Jóhann
Samúelsson 5, Rúnar Sigtryggsson 5,
Sævar Árnason 5, Atli Rúnarsson 1,
Ingólfur Samúelsson 1, Kristinn Hreins-
son 1.
Mörk Ármanns: Ásgeir Sveinsson 6, Ein-
ar Naby 6, Ingólfur Steingrímsson 3,
Magnús Guðmundsson 3, Einar Benón-
ýsson 2.
Dómarar: Kristján Sveinsson og Þorlák-
ur Kristjánsson.
Haustmót Júdósambandsins:
Freyr Gauti og Guðlaugur með gufl
Freyr Gauti Sigmundsson og
Guðlaugur Halldórsson, KA,
unnu báðir yfírburðasigra í sín-
um þyngdarflokkum á Haust-
móti i Júdósambands Islands
sem fram fór í Laugardalshöll
og æfíngahúsnæði Júdódeildar
Ármanns um helgina. Þrír
KA-menn kræktu sér alls í
fern verðlaun og tveir Skag-
fírðingar náðu í tvenn brons-
verðlaun.
Freýr Gauti hafði mikla yfir-
burði í -78 kg flokknum og sama
má segja um Guðlaug í -86 kg
flokknum. Guðlaugur stóð sig
einnig mjög vel í opna flokknum,
hafði yfir á móti Sigurði Bergmann
allt þar til í lok glímunnar en tap-
aði og sagan endurtók sig í viður-
eign hans við Halldór Hafsteins-
son og Guðlaugur mátti sætta sig
við bronsið. Þá stóð Jón Jakobs-
son lengi uppi í hárinu á Sigurði í
+95 kg flokknum.
Tveir piltar frá Varmahlíð
tóku þátt í sínu fyrsta móti og
krækti hvor í bronsverðlaun.
Voru þeir báðir mun léttari en
mótherjarnir og lofaði frammi-
staða þeirra góðu.
Færri keppendur frá KA tóku
þátt í mótinu en til stóð. Bæði
Jón Óðinn Óðinsson og Baldur
Stefánsson meiddust á síðustu
æfingu fyrir mót og Ari Kolbeins-
son meiddist snemma í mótinu og
var þar með úr leik.
Þess má geta að Freyr Gauti
Sigmundsson undirbýr sig nú fyr-
ir Evrópumeistaramót 21 árs og
yngri sem fram fer í lok nóvem-
ber í Finnlandi.
Úrslit um helgina urðu þessi:
- 60 kg fl. karla
1. Höskultíur Einarsson JFR
2. Jóhanm Hallgrímsson UMFG
3. Gils Matthíasson Umf. Self.
-65 kg fl. karla
1. Hilmar Kjartansson UMFG
2. Snorri Karlsson Árm.
3. Eyjólfur Sigurðsson Árm.
Freyr Gauti vann -78 kg flokkinn með yfirburðum.
-71 kg fl. karla
1. Helgi Júlíusson
2. Karl Erlingsson
3. Eiríkur I. Kristinsson
-78 kg fl. karla
1. Freyr Gauti Sigmundsson
2. Karel Halldórsson
3. Kristján Ársælsson
-86 kg fl. karla
1. Guðlaugur Halldórsson
Handknattleikur, 2. deild:
Enn ósigur hjá Völsungi
Árm. 2. Sigurjón Hreinsson JFR
+95 kg fl. karla
Árm. 1. Sigurður Bergmann UMFG
Árm. 2. Jón Jakobsson Opinn flokkur karla KA
KA 1. Sigurður Bergmann UMFG
Árm. 2. Halldór Hafsteinsson Árm.
JFR 3. Guðlaugur Halldórsson -60 kg fl. unglingar A KA
KA 1. Gígja Gunnarsdóttir Árm.
Völsungar máttu sætta sig við
fjögurra marka ósigur, 24:28,
gegn Ármenningum á Húsavík
á föstudagskvöldið. Völsungar
fóru vel af stað en afleitur
leikkafli í fyrri hálfleik gerði út
um vonir Völsunga.
Heimamenn héldu forystunni
þar til staðan var 9:8 en þá hljóp
allt í baklás. Liðið missti einbeit-
inguna, sofnaði í vörninni og
hver mistökin ráku önnur í sókn-
inni og Ármenningar röðuðu inn
sjö mörkum í röð á skömmum
tíma. Staðan var 10:16 í hléi og
þar með voru úrslitin ráðin.
Völsungar náðu reyndar að klóra
í bakkann í seinni hálfleik og
minnkuðu þá muninn einu sinni í
tvö mörk en allt kom fyrir ekki.
Erfitt er að taka út menn úr
jöfnu Völsungsliði en hjá
Ármenningum var Einar Naby
yfirburðamaður.
Mörk Völsungs: Vilhjálmur Sigmunds-
son 6, Ásmundur Arnarsson 6, Skarp-
héðinn ívarsson 6, Haraldur Haraldsson
4, Sveinn Freysson 2.
Mörk Ármanns: Einar Naby 11, Ingólfur
Steingrímsson 4, Magnús Guðmundsson
4, Jörgen Magnússon 3, Einar Benónýs-
son 2, Ásgeir Sveinsson 2, Jón Sigurðs-
son 1, Þorvaldur Ingimundarson 1.
Fimmti ósigur Þórsara í úrvalsdeildinni:
KR-sigur á efleftu stundu
„Þetta var stórkostlegt. Eg er
búinn að spila körfubolta upp
alla yngri flokkana og í meist-
araflokki síðan ég var 17 ára
en hef aldrei áður skorað
körfu á síðustu sekúndunni,“
sagði Páll Kolbeinsson eftir
að hann skoraði sigurkörfuna
á elleftu stundu í æsispenn-
andi viðureign Þórs og KR á
Akureyri á sunnudagskvöld-
ið. Staðan var 109:109 og 11
sekúndur eftir þegar KR-ing-
ar hófu sókn, Páll fór fram
með boltann og út á vænginn,
fann ekki samherja og skaut
þá sjálfur af löngu færi og
tryggði KR-ingum sigurinn í
skemmtilegasta körfubolta-
Ieik á Akureyri í langan tíma.
Þórsarar hafa því tapað öllum
fimm leikjum sínum en þess
verður vart langt að bíða að
þeir fari að hala inn stig. Liðið
átti reyndar undir högg að
sækja í fyrri hálfleik en það var
fyrst og fremst fyrir góðan leik
gestanna, þeir hittu frábærlega
og náðu á tímabili 14 stiga for-
skoti. Staðan í hléi var 51:58.
Seinni hálfleikur var geysi-
lega spennandi og skemmtileg-
ur. Hraðinn var í fyrirrúmi, lið-
in skoruðu grimmt en lítið var
hugsað um varnarleik. Þórsarar
voru mjög ákveðnir og söxuðu
smátt og smátt á forskotið uns
þeir náðu að jafna 64:64.
Leikurinn var í járnum eftir
það, KR-ingar yfirleitt skrefinu
á undan en þegar staðan var
107:109 og 11 sekúndur eftir
fengu Þórsarar tvö vítaskot.
Sturla Örlygsson, besti maður
vallarins, hitti úr báðum en Páll
Kolbeinsson gerði vonir Þórs-
ara um sigur að engu eins og
fyrr er lýst.
„Þetta var erfiður leikur og
ég var heppinn að hitta. Ég er
dauðfeginn að vera búinn með
Þórsara hér á Akureyri, þeir
spiluðu vel og verða ekki auð-
unnir með þennan útlending.
Hann er einn sá besti sem ég hef
séð hér á landi og Sturla var
frábær,“ sagði Páll.
Það er óhætt að taka undir
orð Páls. Þórsarar sýndu að þeir
geta gert góða hluti og mega
vera ánægðir með frammistöðu
sína. Sturla átti stórleik, var
hreinlega óstöðvandi og hugs-
anlega hefði niðurstaðan orðið
önnur ef honum hefði ekki ver-
ið kippt tvisvar útaf á viðkvæm-
um augnablikum. Var erfitt að
sjá hvað vakti fyrir Casey þá.
Hvað nýja „Kanann“ snertir
virðast Þórsarar hafa dottið í
lukkupottinn. Hann fór rólega
af stað en lék mjög vel í seinni
hálfleik, „teknískur,“ útsjónar-
samur og baráttuglaður. Leik-
maður sem á greinilega eftir að
verða Þórsurum dýrmætur.
,Ég var ekki ánægður með
sjálfan mig. Ég get spilað betur
og veit að við hefðum unnið ef
ég hefði gert það en boltinn
hérna er nýr fyrir mér. Mér
fannst liðið spila vel og sérstak-
lega Stulli sem var frábær,“
sagði Harge.
Það má reyndar hrósa flest-
um í Þórsliðinu, Gunnar lék af
gífurlegum krafti, Konráð var
injög frískur og Georg skoraði
mikilvægar þriggja stiga körfur.
Þrátt fyrir að KR-ingar hafi
haft heppnina með sér í lokin
áttu þeir sigurinn skilinn. Þeir
léku mjög vel allan tímann og
sýndu mikinn „karakter" í
lokin. Hittnin hjá þeim var oft á
tíðum ótrúleg og þeir skoruðu
t.d. úr 11 þriggja stiga skotum.
Guðni var drjúgur allan tím-
ann, Baer lengi í gang en geysi-
lega sterkur í lokin og Axel skil-
aði sínu eins op venjulega. Þá
sýndi Lárus Arnason frábær
tilþrif í byrjun og skoraði m.a.
úr fjórum þriggja stiga skotum í
röð.
Stig Þórs: Sturla Örlygsson 42, Joe
Harge 20, Gunnar Örlygsson 18, Kon-
ráð Óskarsson 16, Georg Birgisson 9,
Björn Sveinsson 4.
Stig KR: Guðni Guðnason 28, Jon
Baer 24, Axel Nikulásson 19, Lárus
Árnason 16, Hermann Hauksson 13,
Páll Kolbeinsson 8, Óskar Kristjánsson
3.
Dómarar: Helgi Bragason og Leifur
Garðarsson. Dæmdu mjög vel.
Sturla Örlygsson var algerlega óstöðvandi og skoraði 42 stig gegn KR.
2. Berglind Ólafsdóttir Árm.
3. Pétur Ómarsson Varmahl.
-60 kg fl. unglinga B
1. Gils Matthíasson Umf. Self.
2. Gunnar Sölvason Árm.
3. Theodór Karlsson Varmahl.
, -71 kg fl. unglinga
1. Ari Sigfússon Árm.
2. Ríkharður Róbertsson Árm.
3. Friðjón I. Guðmundsson Árm.
-25 kg fl. drengja
1. Atli Davíð Smárason UMFG
2. Víðir Jóakimsson Umf. Self.
3. Sigurður Már Davíðsson Árm.
-30 kg fl. drengja
1. Haraldur J. Jóhannesson UMFG
2. Snævar Már Jónsson Árm.
3. Leon Hafsteinsson JFR
-35 kg fl. drengja
1. Hartmann Pétursson Umf. Self.
2. Hlynur Helgason UMFG
3. Bogi Hallgrímsson UMFG
-40 kg fl. drengja
1. Ólafur Baldursson JFR
2. Þorsteinn Baldursson Árm.
3. Funi Sigurðsson JFR
-45 kg fl. drengja
1. Víðir Hermannsson Árm.
2. Jónas Þ. Oddsson JFR
3. Hróðmar V. Steinsson Árm.
-50 kg fl. drengja
1. Magnús Óli Sigurðsson UMFG
2. Bjarni Skúlason Umf. Self.
3. Magnús Þór Samúelsson Árm.
+50 kg fl. drengja
1. Atli Haukur Arnarson Árm.
2. Sigurður Þór Birgisson UMFG
3. Atli Gylfason Árm.
Körfuknattleikur:
sigurgöngu ÍBK?
í kvöld mætast Tindastóll og
Keflvíkingar í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á Sauðárkróki.
Leikurinn hefst kl. 20.
Búast má við hörkuleik því
Stólarnir eru þekktir fyrir að vera
erfiðir heim að sækja en mótherj-
arnir eru ekki af verri endanum.
Keflvíkingar hafa átt góðu gengi
að fagna, unnið alla sína leiki og
eru greinilega með eitt sterkasta
liðið í dag.
I kvöld mætast einnig Vals-
menn og KR-ingar í Valsheimil-
inu.
Handknattleikur:
Þór-Völsungur
íbikamum
Þór og Völsungur mætast í
kvöld í 1. umferð í bikarkeppni
HSÍ. Leikurinn fer fram í
íþróttahöllinni á Akureyri og
hefst kl. 20.30.
Þór og Völsungur léku einnig í
fyrstu umferð á Akureyri í fyrra
og unnu Þórsarar þá öruggan
sigur. Þórsarar hafa nú fullt hús
stiga í 2. deildinni, hafa unnið
alla þrjá leikina, en Völsungar
hafa hlotið tvö stig.
Leiðrétting:
Ágústknattspymu-
maður Dalvfloir
í síðasta föstudagsblaði slæddist
inn villa í myndatexta um Dal-
víkurliðið í knattspyrnu. Þar var
sagt að Gísli Davíðsson hefði
verið kjörinn knattspyrnumaður
ársins á Dalvík en það var hins
vegar Ágúst Sigurðsson sem varð
fyrir valinu. Er beðist velvirðing-
ar á þessu.
Loksins sigur
hjá Bayem
■ Bayern Múnchen vann loksins lang-
þráðan sigur um helgina, 3:0 á Borussia
Mönchengladbach. Gamla kempan Tony
Schumacher stóð í marki Bayern og vilja
menn að miklu leyti þakka honum sigurinn
enda stjórnaði hann vörninni eins og herf-
oringi. Karl-Heinz Rummenigge og Franz
Beckenbauer eru nú orðnir varaforsetar
liðsins og eitt blað sló upp fyrir sögninni:
„Keisarinn kom Bæjurum aftur í leður-
buxurnar," en leðurbuxur eru hluti af
þjóðbúningi Bæjara og síðustu vikur þykja
þeir hafa haft þær á hælunum. Augenthal-
er tók sér stöðu í vörninni og þótti standa
sig vel. Þótt Bayern hafi kannski ekki lcik-
ið neina stórkostlega knattspyrnu voru
greinilcga batamerki á ieik liðsins og
Beckenbauer sagði í viðtali við Bild enn
væru möguleikar á að komast áfram í
Evrópukeppnina. Til þess þarf liðið að
sigra B-1903 frá Danmörku 4:0.
■ Schumacher er rúmlega helmingi eldri
en yngsti leikmaður Bayern sem lék urn
helgina. Sá er 18 ára en Schumacher 37
ára.
■ Stuttgart skrapp til Dortmund og gerði
markalaust jafntefli. Eyjólfur byrjaði á
varamannabekknunt en kom inn á í seinni
hálfleik í stöðu tengiliðs. Kickers gerði
grín að því að Daum, þjálfari Stuttgart,
sagði fyrir leikinn að þarna mættust tvö
mestu sóknarlið Þýskalands. Sagði Kickers
að Daum hefði þarna kynnt nýja „sóknar-
taktík“ sem fælist í að hafa 10 menn í eigin
vítateig lengst af en Stuttgart þótti leika
stífan varnarleik.
■ Frankfurt tapaði 0:1 á heimavelli fyrir
Leverkusen. Éina mark leiksins var
sjálfsmark.
■ Köln gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir
Werder Bremen í Köln, 5:0. Þetta var
fyrsti heimasigur Köln á tímabilinu. Liðið
þótti leika aldeilis frábæra knattspyrnu en
það hefur átt í miklum vandræðum með að
vinna leiki á tímabilinu og gert mikið af
jafntefluin.
■ Stuttgarter Kickers og Schalke gerðu
1:1 jafntefli.
■ Núrnberg hefur cnn ekki tapað leik á
heimavelli og á því varð engin breyting um
helgina. Liðið sigraði Wattenscheid 3:1.
Eckstein skoraði eitt markanna og er orð-
inn markahæstur með 9 mörk.
■ Bochum sigraði Hansa Rostock 3:2
þannig að Holger Osieck, þjálfari
Bochum. heldur vinnunni a.m.k. eina viku
til viðbótar. Þykir nokkuð öruggt að hann
hefði fengið að fjúka hefði liðið tapað.
■ Dynamo Dresden sigraði Fortuna
Dússeldorf 2:0. Þar var aðeins eitt lið á
vellinum eins og oft vill verða í Dresden en
Dynamo vinnur hins vegar afar sjaldan á
útivelli.
■ Staðan:
Frankfurt
Bayer Leverkusen
Stuttgart
Kaiserslautern
Duisburg
Borussia Dortmund
Núrnberg
Schalke
Hamburger
Hansa Rostock
Werder Bremen
FC Köln
Bayern Múnchen
Karlsruher
Stuttgarter K.
Bochum
Dynamo Dresden
Wattenscheid
15 8-4-3 34:17 20
15 6-7-2 17:11 19
15 7-4-4 26:15 18
15 7-44 25:17 18
15 5-8-2 19:14 18
15 74-4 28:27 18
15 64-5 26:22 16
15 64-5 24:20 16
15 4-8-3 15:15 16
15 6-3-6 25:23 15
15 5-5-5 21:19 15
15 2-11-2 19:19 15
15 5-4-6 20:23 14
15 54-6 18:26 14
15 4-4-7 20:23 12
15 4-4-7 19:28 12
15 5-2-8 11:2112
15 3-5-7 17:25 11
Bor. Mönchengladbach 15 4-3-8 13:23 11
Fortuna Dússeldorf 15 3-4-8 18:27 10
Einar Stefánsson, Þýskalandi