Dagur - 29.10.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. október 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Lögreglan á Dalvík:
Leitað að stúlkum
- fundust í góðu yfirlæti
Á sunnudagskvöld var lög-
reglan á Dalvík beðin að svip-
ast um eftir stúlkum sem
höfðu farið akandi frá Akra-
nesi klukkan hálf íimm um
daginn og ætlað að ná Hrís-
eyjarferjunni frá Árskógs-
strönd. Þær höfðu lofað að
láta vita þegar þær kæmu á
leiðarenda en þegar ekkert
hafði til þeirra spurst
skömmu fyrir miðnætti var
haft samband við lögregluna.
Björn Víkingsson, lögregtu-
varðstjóri á Dalvík, sagði að
lögreglan hefði farið að leita að
bílnum og einbeitt sér að þeim
vegarköflum á leiðinni að Ár-
skógssandi þar sem bíllinn hefði
hugsanlega getað farið út af og
ofan í skurð.
„Þær höfðu hringt úr Þela-
merkurskóla og grennslast fyrir
um hvort ferjan gæti beðið eftir
þeim. Hringurinn var því að
þrengjast og við leituðum fram
eftir nóttu. Björgunarsveit
Slysavarnafélagsins á Dalvík
var í viðbragðsstöðu, en eftir
allt þetta umstang fundust þær í
bændagistingu í nágrenninu.
Þær höfðu í einhverju hugs-
unarleysi gleymt að láta vita af
sér,“ sagði Björn. SS
Slippstöðin hf.:
Uppsagnir í gær og á fóstudag
Öllum starfsmönnum í yfír-
stjórn Slippstöðvarinnar var
sagt upp sl. föstudag og í gær
bárust mörgum iðnaðarmönn-
um uppsagnarbréf. Eins og
fram kom í Degi fyrir helgi
samþykkti stjórn stöðvarinn-
ar að segja allt að 40 iðnað-
armönnum upp störfum. Síð-
degis í gær var ekki Ijóst hve
mörgum iðnaðarmönnum yrði
sagt upp að þessu sinni.
Sigurður Ringsted, forstjóri
Slippstöðvarinnar, segir að upp-
sagnir iðnaðarmanna verði því
minni sem fleiri verkefni fáist.
Því sé róið að því öllum árum
að fá verkefni fyrir veturinn. í
yfirstjórn verður hins vegar
fækkað varanlega starfsmönn-.
um.
„Við ætlum að verða minni
um einhvern tíma en ætlunin er
að rísa upp aftur þegar mál
þróast á betri veg,“ segir
Sigurður.
Hjá iðnaðarmönnum verður
flestum málmiðnaðarmönnum
sagt upp, enda sú starfsstétt fjöl-
mennust í stöðinni. Þá verður
sagt upp rafvirkjum og trésmið-
um en lítil verkefni eru fyrir-
sjáanleg hjá þessum starfshóp-
um í vetur. JÓH
Að afloknu stjórnarkjöri í Verkamannasanibandi íslands. Frá vinstri: Björn Grétar Sveinsson, formaður, Jón
Karlsson, varaformaður, og Sævar Frímannsson, formaður Einingar. Mynd: ehb
Þing Verkamannasambands íslands:
Miklar breytingar á stjóm
- Björn Grétar Sveinsson kjörinn formaður og
Jón Karlsson varaformaður
Þingi Verkamannasambands
íslands lauk sl. föstudag með
kosningum og urðu töluverðar
breytingar á skipan fram-
kvæmdastjórnar. Björn Grétar
Sveinsson, verkalýðsfélaginu
Jökli á Höfn í Hornafírði, var
kjörinn formaður í stað Guð-
mundar J. Guðmundssonar og
Jón Karlsson, verkamannafé-
laginu Fram á Sauðárkróki,
tekur við af Karli Steinari>
Guðnasyni sem varaformaður.
Björn Grétar hlaut 112
atkvæði til formannsembættisins
á móti 26 atkvæðum Jóns
Kjartanssonar úr Vestmannaeyj-
um sem einnig var í framboði til
formanns. Hrafnkell A. Jónsson
frá Eskifirði var í mótframboði
gegn Jóni Karlssyni til embættis
varaformanns. Jón hlaut 95
atkvæði, en Hrafnkell 43. í fram-
boði til gjaldkera sambandsins
voru þau Halldór Björnsson úr
Dagsbrún, Elínbjörg Magnús-
dóttir frá Akranesi og Sigurður
T. Sigurðsson úr Hafnarfirði.
Atkvæði milli þeirra féllu þannig
að Halldór hlaut 71, Elínbjörg 56
og Sigurður 12 atkvæði. Karítas
Pálsdóttir var ein í framboði til
ritara sambandsins og einróma
kjörin í það embætti. Auk þess-
ara fjögurra sitja í hinni nýju
framkvæmdastjórn: Guðmundur
J. Guðmundsson, Hervar Gunn-
arsson, Guðmundur Finnsson,
Enn um hellurnar á Ráðhústorgi á Akureyri:
„Vandamálið liggur í hönnun verksins“
- segir Friðrik Bjarnason, verktaki, og svarar ummælum
framkvæmdastjóra Malar og sands í Degi sl. föstudag
„Ég vil mótmæla ummælum
Hólmsteins T. Hólmsteinsson-
ar, framkvæmdastjóra Malar
og sands hf. í Degi er hann
segir, að svo virðist sem þung-
um tækjum hafi verið ekið inn
á hellulögnina áður en búið var
að læsa henni með sandburði
og því hafí hellurnar brotnað á
vissum hluta torgsins á mjög
sérstakan hátt, þ.e. á hornum
þess flatar er snýr inn að miðju
torgsins,“ segir Friðrik Bjarna-
son, verktaki við hellulagningu
á Ráðhústorgi.
Friðrik segir rétt að hellur hafi
brotnað óeðlilega mikið á vissum
afmörkuðum svæðum torgsins.
Hann telur að ekki sé um að
kenna gallaðri framleiðslu. Þær
hellur er reyndust gallaðar frá
framleiðanda hafi ekki verið not-
aðar. Hluti hellna af stærðinni
20x10 hafi ekki staðist útboðs- og
verklýsingu sem og hellur af
stærðinni 30x30x6. Þá segir Friðrik
að borið hafi á að stærri hellurnar
væru með of gróft neðraborð og
því ekki verið notaðar. Allar
gallaðar hellur voru bættar af
framleiðanda.
„Hólmsteinn vill kenna ófag-
lærðum mönnum um ófarirnar og
segir, að í byrjun verks hafi fag-
lærðir menn unnið verkið, en svo
sé ekki nú í jafn ríkum mæli. Þess-
ar ásakanir Hólmsteins eru til-
hæfulausar með öllu. Þeir sem
unnu hér í upphafi eru ekki fag-
lærðir og þeir sem vinna hér nú
eru ekki faglærðir. Hellulögn er
ekki faggrein. Hins vegar hef ég
sem og flestir þeir er hér vinna
dágóða reynslu af hellulagningu.
Ekki er hægt að kenna starfs-
mönnum um það sem úrskeiðis
hefur farið. Vandamálið liggur í
hönnun verksins og að hellur sem
eru jafnar á kant eru lagðar í
hring. Þetta hefðu tæknimennirn-
ir og arkitektarnir átt að sjá. Sök-
in er þeirra. Ég benti í upphafi
verks á vandamálið. Óeðlileg
spenna er í fletinum á vissum
stöðum er veldur broti,“ sagði
Friðrik Bjarnason. ój
Sigurður Ingvarsson og Björn
Snæbjörnsson. SBG
Loðniikvótinn:
Rúm 187 þúsund
tonn í hlut
íslendinga
Sjávarútvegsráðuneytið gaf á
föstudag út leyfílegan bráða-
birgðakvóta á loðnu. Kvótinn
er í samræmi við tillögu Haf-
rannsóknastofnunar, eða 240
þúsund tonn. Af þessum kvóta
koma 187.200 lestir í hlut
íslands en 52.800 tonn skiptast
jafnt á milli Noregs og
Grænlands.
Þorsteinn Pálsson, sjávar-
útvegsráðherra, fundaði með
hagsmunaaðilum á föstudag og
eftir þann fund var bráðabirgða-
kvótinn gefinn út. Vegna smá-
loðnu á hluta þess svæðis sem
loðnan er nú á hafa allar loðnu-
veiðar verið bannaðar á tveimur
svæðum. Sjávarútvegsráðuneytið
ætlar að senda eftirlitsmenn með
loðnuskipunum til að fylgja þessu
banni eftir en eftir fyrstu viku
nóvembermánaðar munu haf-
rannsóknaskipin tvö halda á ný
til loðnumælinga og eiga nýjar
niðurstöður að liggja fyrir um 25.
nóvember. JÓH
Gunnar H. Jóhannesson:
Athugasemd vegna greinar
um hellulögn á Ráðhústorgi
Miðvikudaginn 23. október
hringdi ój blaðamaður á Degi í
mig og bar undir mig athuga-
semdir verktaka við hellulögn
Ráðhústorgs um gæði á 10x20 cm
hellum sem lagðar voru á Skipa-
götu alls um 50 fm.
Vegna ónákvæmni í framsetn-
ingu á viðtalinu kemur ekki fram
um hvaða galla er verið að ræða í
sambandi við hellurnar.
Við útboð á helluframleiðsl-
unni var einkum lögð áhersla á
eftirtalin atriði.
Brotþol, frostþol, nákvæmni í
stærð og áferð.
Þeir 50 fm af gölluðum hellum
sem rætt var um í viðtalinu
brugðust fyrst og fremst í stærð-
arnákvæmni.
Brot- og frostþol þeirra upp-
fyllir uppgefnar kröfur eins og
aðrar hellur á torginu. Áferð hef-
ur í stórum dráttum verið góð
einkum á 30x30 cm hellunum
sem er langstærsti hluti verksins,
en þar hefur þó lítillega molnað
úr hornum en á því er ekki ein-
hlít skýring svo sem fram kemur í
viðtalinu.
Áður en viðtalið fór fram var
búið að ræða þetta mál við hellu-
framleiðandann og fullt sam-
komulag um úrbætur.
Samtalið við mig gaf á engan
hátt tilefni til að fjalla um þetta
mál á þann hátt sem gert var og
fyrirsögnin gefur mjög villandi
hugmynd um það sem fjallað var
um í viðtalinu.
Ef grein blaðamannsins hefur
því orðið til að lesendur blaðsins
álíti að allar hellur á torginu
standist ekki gæðakröfur er það
alrangt þar sem málið snerist ein-
göngu um stærðarnákvæmni á til-
tölulega fáum fermetrum af alls
2500 fm af hellum.
Gunnar H. Jóhanncsson,
deildarverkfræðingur.
Odýrir frottésloppar
á böm og fullorðna
Bróderuð koddaver og svæfilver.
Blúndudúkar • Ungbarnanærföt.
Jakkapeysur • Kjólar í úrvali.
Sokkabuxur, 3 í pakka.
Verið velkomin
Khbavershm
Sigurbar Gubmundssouarhf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI