Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 6. nóvember 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Eins og sagt var frá í Degi í gær, var hattur Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, scldur á uppboði á
bcrrakvöldi UMFS á Dalvík sl. laugardag. Á myndinni eru uppboðshaldararnir Sigurvin Jónsson t.v. og Bryndís
Schram t.h. en á milli þeirra sést er Jón Baldvin afhendir Dagmanni Ingvasyni hattinn góða en Dagmann átti hæsta
boðið í gripinn. Myiul: Bæjarpósturinn
Norðurland:
Tvær stöður héraðs-
dómara verða auglýstar
Þann 1. júlí 1992 taka gildi lög
nr. 92 um aðskilnað dónisvalds
og uniboðsvalds í héraði. Þessi
breyting lýtur að því að hin
eiginlegu dómsmál, þ.e.
ágreiningur í einkamálum og
dómsstörf í refsimálum eru fal-
in sérstökum dómsstólum til
úrlausnar.
í Norðurlandskjördæmi eystra
verður dómsstóll staðsettur á
Akureyri og við hann munu
starfa þrír dómarar. Þar af er
ljóst að Freyr Ófeigsson og Ásgeir
Pétur Ásgeirsson, héraðsdómar-
ar við bæjarfógetaembættið á
Akureyri, verða áfram dómarar,
en þriðja staðan verður auglýst.
Auk þriggja dómara verða tvö
önnur stöðugildi við héraðsdóm-
stól Norðurlands eystra. Á
Dómur fallinn í „hundamálinu1 svokallaða á Dalvík:
Eiganda hundsins gert að greiða um 230
þúsund krónur í skaðabætur og málskostnað
- en hann sigaði hundi sínum á lögregluvarðstjórann á Dalvík,
sem telur sig hafa hlotið af því varanlegan áverka
Dómur er fallinn í bæjarþingi
Dalvíkur í skaðabótamáii er
Björn Víkingsson, lögreglu-
varðstjóri á Dalvík, höfðaði
gegn Gylfa Gunnarssyni, hesta-
tamningamanni á Akureyri.
Skaðabótamál þetta var höfð-
að vegna líkamlegs og andlegs
áverka er lögregluvarðstjórinn
taldi sig hafa orðið fyrir er
hann reyndi að handtaka hinn
stefnda
Dalvík.
við Sæluhúsið á
I dómsskjölum stendur
orðrétt: „Stefnandi kveður mála-
vexti þá, að hann, sem sé lög-
regluvarðstjóri að starfi, hafi ver-
ið að koma heim til sfn af fót-
boltaleik þann 26. ágúst 1990 um
kl. 8.00 að kvöldi þegar eigin-
kona hans tjáði honum að starfs-
Áfengisneysla á Norðurlöndunum:
íslendingar tóku
kipp með bjóraum
- komust úr neðsta sætinu
á kostnað Norðmanna
Samkvæmt upplýsingum frá
Áfengisvarnaráði tóku íslend-
ingar við sér í drykkjunni eftir
að bjórinn var Iögleyfður og
skutust upp úr neðsta sætinu á
lista yfir áfengismagn á mann,
15 ára og eldri, á Norður-
löndunum. íslendingar höfðu
fram að þeim tíma verið býsna
Sigurður
sestur
í þingsaJi
Sigurður Arnórsson, fram-
kvæmdastjóri Súkkulaðiverk-
smiðjunnar Lindu hf. á Akur-
eyri, hefur nú tekið sæti á
Alþingi. Hann skipaði 2. sæti á
lista Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra í síðustu
kosningum til Alþingis og er því
varamaður Sigbjörns Gunnars-
sonar. Sigbjörn er nú á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna og
mun Sigurður sitja í hans stað á
Alþingi næstu tvær vikurnar.
JÓH
öruggir með neðsta sætið en
með bjórnum komust þeir
fram úr Norðmönnum.
í töflu sem sýnir áfengissölu á
Norðurlöndunum 1967-1989 kem-
ur fram að Grænlendingar
drekka mest, og hafa reyndar
alltaf gert, og 1989 var neysla
þeirra hátt í 18 lítrar af áfengi á
mann. Danir komu næstir með
um 12 lítra, Finnar ríflega 9, Sví-
ar nálguðust 7 lítra, íslendingar
hoppuðu upp í tæpa 6 en Norð-
menn létu sér nægja um 5 lítra á
mann.
Árið 1967 voru íslendingar,
Finnar og Norðmenn á svipuðu
róli í drykkjunni með nokkuð
undir 5 áfengislítra á mann.
Grænlendingar voru efstir á blaði
en Danir og Svíar voru með um
6-7 lítra hvor þjóð. Fljótlega fóru
leiðir að skiljast. Finnar ruku upp
fyrir Norðmenn 1969, komust
fram úr Svíum 1973 og nálgast nú
Dani óðfluga. Grænlendingar
halda sínu striki en Svíar hafa
frekar látið undan síga. íslend-
ingar og Norömcnn hafa siglt
lygnan sjó í tveimur neðstu sæt-
unum en bjórkippurinn fleytti
Islendingum fram úr Norðmönn-
um. SS
félagi hans hefði óskað eftir
aðstoð strax að Sæluhúsinu á
Dalvík. Kveðst stefnandi hafa
farið rakleiðis á vettvang þar sem
hann hafi hitt fyrir stefnda við
annan mann ásamt hundinum
Búbba af Scheferkyni. í Sæluhús-
inu, sem sé veitingahús á Dalvík,
hafi verið umsátursástand þar
sem stefndi hafi verið drukkinn
og ógnað fólki með hundinum.
Stefnandi hafi fengið stefnda
með hundinn út úr húsinu eftir
nokkurt tiltal, en á bílaplani fyrir
utan Sæluhúsið hafi stefndi sigað
hundinum á stefnanda með þeim
afleiðingum, að hann hafi hlotið
af því varanlegan áverka andlega
sem líkamlegan, auk þess sem
fatnaður hans hafi eyðilagst.“
Stefnandi sundurliðaði kröfu
sína endanlega þannig:
1. Fatatjón kr. 15.000,00.
2. Ófjárhagslegt tjón kr.
485.000,00.
Auk þessa gerði stefandi kröfu
til hins stefnda urn vaxtagreiðslur
sem og greiðslu á málskostnaði.
Stefndi viðurkenndi að fullu
bótaskyldu í málinu og hafði ekki
uppi andmæli gegn lið 1 í kröfu
stefanda. Hann mótmælti hins
vegar lið 2 sem allt of háum og
krafðist lækkunar.
Stefnandi rökstuddi kröfu sína
skv. lið 2 einkum með tvennum
hætti. Annars vegar hafi hann
hlotið varanleg ör eftir meiðsli
þau er hann hlaut, sem séu hon-
um til lýta, einkum þegar um sól-
böð sé að ræða. í öðru lagi rök-
studdi stefnandi kröfuna með því
að hann hafi hlotið varanlegan
andlegan skaða, sem lýsi sér
einkum í því að hann sé hræddur
við hunda, en það sé mjög baga-
legt í hans starfi.
Pann 22. október 1991 kvað
Freyr Ófeigsson, héraðsdómari,
upp eftirfarandi dóm: „Stefndi,
Gylfi Gunnarsson, greiði stefn-
anda, Birni Víkingssyni, kr.
150.000,- ásamt vöxtum samkv.
7. gr. vaxtalaga nr. 25, 1978 frá
26. ágúst 1990 til 24. apríl 1991,
en vöxtum samkv. 10. gr. téðra
laga frá þ.d. til greiðsludags og
leggi vexti við höfuðstól á 12
mánaða fresti, í fyrsta sinn 26.
ágúst 1991, og kr. 78.000.- í máls-
kostnað ásamt framangreindum
dráttarvöxtum frá 15. degi eftir
dómsuppsögn til greiðsludags, er
leggist við höfuðstól málskostn-
aðar á 12 mánaða fresti frá upp-
hafsdegi vaxtanna, allt innan 15
daga frá lögbirtingu dóms þessa
að viðlagðri aðför að lögum.“ ój
Norðurlandi vestra verður hérað-
dómurinn í sýslumannshúsinu á
Sauðárkróki. Við hann mun
starfa einn dómari og verður sú
staða auglýst til umsóknar innan
tíðar, að sögn Önnu Th. Gunn-
arsdóttur í dómsmálaráðuneyt-
inu. óþh
Flugleiðir:
Mimchen nýr
viðkomustaður
næsta sumar
Flugleiðir hefja áætlunarflug
til Múnchen í Þýskalandi
næsta sumar í samræmi við
nýjan loftferðasamning íslands
og Þýskalands. Samningurinn
heimilar flug til 16 borga í
Þýskalandi og mest má fljúga
til þriggja borga samtímis.
Næsta sumar nýta Flugleiðir
þessi réttindi að fullu því þá verð-
ur flogið héðan til Múnchen,
Hamborgar og Frankfurt. Gert
er ráð fyrir að flugið til Múnchen
hefjist um mánaðamótin júní-júlí.
Þaðan er stutt að keyra til Aust-
urríkis, Sviss og Tékkóslóvakíu.
Ákvörðun um flug til Múnchen
er fyrsta skref Flugleiða til sókn-
ar á Evrópumörkuðum eftir að
samningar tókust um Evrópskt
efnahagssvæði og félagið gerir
ráð fyrir að vera búið að festa sig
nokkuð í sessi á markaðnum þeg-
ar samningarnir ganga í gildi,
eins segir í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu.
Akureyri:
Davíðshúsi úthlutað til átta
aðila l.janúar til 30. ágúst ‘92
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar hefur samþykkt úthlutun
á dvalartíma í Davíðshúsi frá
1. janúar til 30. ágúst 1992.
Arthúr Björgvin Bollason,
umsjónarmaður Litrófs í sjón-
varpinu, ríður á vaðið og dvelst í
Davíðshúsi dagana 1. til 15.
janúar. Júlíus Sigurbjörnsson,
lektor, verður þar 1. til 21.
febrúar og Kristján Steingrímur,
inyndlistarmaður, 23. febrúar til
30. mars. Þá tekur Steinunn
Asmundsdóttir, skáldkona, við
og verður við skriftir í Davíðs-
húsi frá 1. apríl til 22. apríl.
Ármann Kr. Einarsson, rithöf-
undur, verður síðan í húsinu frá
24. apríl til 22. maí og hjónin
Sumarliði ísleifsson, sagnfræð-
ingur, og Þóra Sigurðardóttir,
myndlistarmaður, frá 24. maí til
26. júní. Birna Arnbjörnsdóttir,
mannfræðingur, verður síðan í
Davíðshúsi dagana 28. júní til 17.
júlí og Arnaldur Arnarson, gítar-
leikari 19. júlí til 30. ágúst. óþh
Hugmyndirnar um til-
flutninga hjá Gosan:
Engin ákvörðun
á næstu mánuðum
Werner Rasmusson, stjórnar-
formaður Gosan hf., segist
ekki eiga von á að ákvörðun
um tilflutninga á gosdrykkja-
framleiðslu fyrirtækisins til
Akureyrar eða bjórframleiðslu
til Reykjavíkur verði tekin á
næstu mánuðum.
„Þessi ákvörðun liggur í dvala í
augnablikinu," segir Werner.
Sem kunnugt er gerði Akur-
eyrarbær Gosan hf. tilboð um
flutninga á gosdrykkjaframleiðsl-
unni frá Reykjavík til Akureyrar
þannig að öll framleiðsla Gosan
gæti sameinast undir einu þaki
norðan heiða. Werner segir að
horfur í efnahagsmálum hérlend-
is næstu misserin gefi ekki tilefni
til stórra ákvarðana en ljóst sé að
tilflutningur verði kostnaðarsam-
ur. Gosan sé ekki aðþrengt að
sinni hvað varði húsnæði fyrir
gosdrykkjaframleiðsluna í
Reykjavík og því bíði ákvörðun
um flutninga. JÓH