Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 10

Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 6. nóvember 1991 Dagskrá FJÖLMIÐLA i kvöld, miðvikudag, kl. 21.1Ó, er á dagskrá Sjónvarpsins kvikmyndin ismeygilegir töfrar borgarastéttarinnar. Myndin er sköpunarverk spánska meistarans Luis Bunuel, en þetta er ein af þeim sex myndum hans, sem Sjónvarpið hefur verið að sýna á þessu ári. Sjónvarpið Miðvikudagur 6. nóvember 18.00 Töfraglugginn (27). Blandað erlent barnaefni. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Tíðarandinn (1). Þáttur um rokktónlist í umsjón Skúla Helgasonar. 19.30 Staupasteinn (6). (Cheers) 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Skuggsjá. Ágúst Guðmundsson segir frá nýjum kvikmyndum. 20.50 Umræðuþáttur á vegum fréttastofu. Umræður um kjara- og atvinnumál. 21.15 ísmeygilegir töfrar borgarastéttarinnar. (Le charme discret de la bourgeoisie). Frönsk bíómynd frá 1972. Myndin gerist í kvöldverðar- boði hjá nokkrum félögum sem fást við eiturlyfjasölu. Mörkin á milli veruleika og blekkingar eru víða óglögg i myndinni og afleiðingar þess eru oft gamansamar. Aðalhlutverk: Fernando Rey, Paul Frankeur og Delp- hme Seyrig. 23.00 Ellefufréttir og dag- skrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 6. nóvember 16.45 Nágrannar. 17.30 Steini og Olli. 17.35 Svarta Stjarna. 18.00 Tinna. 18.30 Nýmeti. 19.19 19:19. 20.10 Smáskammtalækning- ar. (The Medicine Men). Fróðlegur breskur þáttur þar sem fjallað er um óhefð- bundnar lækningaaðferðir. 20.40 Réttur Rosie O'Neill. (Trials of Rosie O’Neil). Mannlegur framhaldsþáttur um lögfræðinginn Rosie. 21.30 Öldurót. Waterfront Beat). Á örskömmum tíma hafa fasteignir við hafnarbakk- ann í Liverpool margfaldast í verði og fleiri fyrirtæki og einstaklingar setjast þar að. Það veldur lögreglunni áhyggjum því áður fyrr þurfti hún litlar áhyggjur að hafa af þessu svæði. Þess vegna setur hún á stofn nýja deild sem hefur það sérstaka verkefni að gæta laga og reglna á hafnarbakk- anum. Þetta er splunkunýr breskur spennuþáttur frá BBC og verður hann sýndur í átta hlutum. 22.20 Tíska. 22.50 Björtu hliðarnar. 23.20 Stjörnuvíg 5. (Star Trek 5:The Final Front- ier). Myndir sem gerast í framtíð- inni hafa verið vinsælar í gegn um árin og hafa „Star Trek“ myndirnar notið gífur- legra vinsælda. Myndimar segja frá áhöfn geimskipsins „Enterprise” og þeim ævin- týrum sem hún lendir í. Þetta er fimmta myndin í röðinni og er hún uppfull af vel gerðum tæknibrellum. Með aðalhlutverk myndar- innar fer William Shatner en hann er áskrifendum að góðu kunnur út þáttunum Neyðarlínan. Aðalhlutverk: William Shatner, Leonard Nimoy, James Doohan og Walter Koening. Bönnuð börnum. 01.05 Dagskrárlok. Rás 1 Miðvikudagur 6. nóvember MORGUNÚTVARP KL. 06.45-09.00 06.45 Veðurfregnir • Bæn. 07.00 Fréttir. 07.03 Morgunþáttur Rásar 1. Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. Gluggað í blöðin. 7.45 Krítík. 08.00 Fréttir. 08.10 Að utan. 08.15 Veðurfregnir. ÁRDEGISÚTVARP KL. 09.00-12.00 09.00 Fréttir. 09.03 Laufskálinn. Afþreying í tali og tónum. Umsjón: Sigrún Bjömsdóttir. 09.45 Segðu mér sögu. „Emil og Skundi” eftir Guðmund Ólafsson. Höfundur les (5). 10.00 Fréttir. 10.03 Morgunleikfimi með HaUdóru Björnsdóttur. 10.10, Veðurfregnir. 10.20 Samfélagið og við. Umsjón: Ásgeir Eggertsson. 11.00 Fréttir. 11.03 Tónmál. Tónlist miðalda, endurreisn- ar- og barrokktímans. 11.53 Dagbókin. * HÁDEGISÚTVARP KL. 12.00-13.05 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Að utan. 12.20 Hádegisfróttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við- skiptamál. 12.55 Dánarfregnir • Auglýs- ingar. MIÐDEGISÚTVARP KL. 13.05-16.00 13.05 í dagsins önn - Siðferði í opinberu lífi: Fjölmiðlar. Umsjón: Halldór Reynisson. 13.30 Létt tónlist. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan: „Myllan á Barði“ eftir Kazys Boruta. Þráinn Karlsson les þýðingu Jörundar Hilmarssonar (3). 14.30 Miðdegistónlist. 15.00 Fréttir. 15.03 í fáum dráttum. Brot úr lífi og starfi Jóhönnu Bogadóttur myndlistarkonu. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. SÍÐDEGISÚTVARP KL. 16.00-19.00 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrín. Kristín Helgadóttir les ævintýri og barnasögur. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Sinfónía nr. 1 í d-moll ópus 1 eftir Nikolaj Rímskíj- Korsakov. 17.00 Fréttir. 17.03 Vita skaltu. Illugi Jökulsson sér um þáttinn. 17.30 Hér og nú. 17.45 Lög frá ýmsum löndum. 18.00 Fréttir. 18.03 Af öðru fólki. Þáttur Önnu Margrétar Sig- urðardóttur. 18.30 Auglýsingar • Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýs- ingar. KVÖLDÚTVARP KL. 19.00-01.00 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Kviksjá. 20.00 Framvarðasveitin. Samtímatónlist. 21.00 Umferðarfræðsla í grunnskólum. Umsjón: Ásdís Emilsdóttir Petersen. 21.35 Sígild stofutónlist. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Orð kvöldsins • Dagskrá morgundagsins. 22.30 Uglan hennar Mínervu. Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 23.00 Brot úr lífi og starfi Jóns Óskars. Umsjón: Pjetur Hafstein Lár- usson. 24.00 Fréttir. 00.10 Tónmál. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Rás 2 Miðvikudagur 6. nóvember 07.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lífsins. Leifur Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. - Tokyopistill Ingu Dagfinns. 09.03 9-fjögur. Úrvals dægurtónhst í allan dag. Umsjón: Þorgeir Ástvalds- son, Magnús R. Einarsson og Margrét Blöndal. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 9-fjögur. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmála- útvarp og fréttir. Starfsmenn dægurmála- útvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál dagsins. 17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram. Vasaleikhúsið. 17.30 Hér og nú. Fréttaskýringaþáttur Frétta- stofu. Dagskrá heldur áfram með hugleiðingu séra Pálma Matthíassonar. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund- ur í beinni útsendingu. Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Hafstein sitja við símann, sem er 91-686090. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Hljómfall guðanna. Dægurtónlist þriðja heims- ins og Vesturlönd. Umsjón: Ásmundur Jónsson. 20.30 Mislétt milli liða. Andrea Jónsdóttir við spilar- ann. 21.00 Gullskífan: „Beauty and the beast" frá 1981 með Go-Go’s. 22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. 00.10 í háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur ljúfa kvöldtónlist. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7,7.30,8, 8.30,9,10, 11,12,12.20,14,15,16,17,18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 01.00 Tengja. 02.00 Fréttir. 02.05 Tengja. 03.00 í dagsins önn. 03.30 Glefsur. 04.00 Næturlög. 04.30 Veðurfregnir. - Næturlögin halda áfram. 05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 05.05 Landið og miðin. 06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 06.01 Morguntónar. Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 6. nóvember 08.10-08.30 Útvarp Norður- lands. 18.03-19.00 Útvarp Norður- lands. Bylgjan Miðvikudagur 6. nóvember 07.00 Morgunþáttur. Eiríkur Jónsson, Guðrún Þóra og Anna. Fréttir á heila og hálfa tímanum. 09.00 Bjarni Dagur Jónsson. Veðurfregnir kl. 10. 12.00 Hádegisfréttir. 12.15 Kristófer Helgason. íþróttafréttir kl. 13. 14.05 Snorri Sturluson. Veðurfréttir kl. 16. 17.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thorsteinsson og Einar Örn Benediktsson. 17.17 Fréttir. 17.30 Reykjavík síðdegis heldur áfram. 19.30 Fréttir frá fréttastofu Stöðvar 2. 20.00 Örbylgjan. Ólöf Marín. 23.00 Kvöldsögur. 00.00 Eftir miðnætti. Björn Þórir Sigurðsson. Stjarnan Miðvikudagur 6. nóvember 07.30 Morgunland 7:27. 10.30 Sigurður H. Hlöðverss. 14.00 Arnar Bjarnason. 17.00 Felix Bergsson. 19.00 Arnar Albertsson. 22.00 Jóhannes Ágúst. 01.00 Baldur Ásgrímsson. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 6. nóvember 16.00-19.00 Pálmi Guðmunds- son leikur gæðatónlist fyrir alla. Þátturinn Reykjayík síð- degis frá Bylgjunni kl. 17.00- 18.30. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 17.17. Tími tækifæranna kl. 18.30. Þú hringir í síma 27711 og nefnir það sem þú vilt selja eða kaupa. Þetta er ókeypis þjónusta fyrir hlustendur Hljóðbylgjunnar. K 3) U z # Umræður um handboltahöll á Alþingi Þá eru alþingismenn okkar Islendinga komnir aftur til starfa eftir vikufrí, vonandi hressir og endurnærðir, enda báru umræð- ur á Alþingi þess merki sl. mánu- dag, en þá var m.a. rætt um byggingu handboltahallar og byggðamál. Þessar umræður um handboltahöllina eru dálítið skondnar. Búíð var að ákveða að byggja þessa höll í Kópavogi og búið að undirrita samninga þar um. Ekki má heldur gleyma því að það gekk maður undir manns hönd á sínum tíma og beitt var öllum þeim þrýstingi sem mögu- legt var til að fá stuðning annarra þjóða svo að Heimsmeistara- keppnin í handknattleik gæti far- ið fram hér á landið árið 1995. Gefinn var út myndarlegur bækl- ingur á erlendum tungum og þar vitnuðu m.a. forseti íslands, utanríkisráðherra og mennta- málaráðherra þáverandi, einnig þáverandi borgarstjóri í Reykja- vík, auk forystumanna íþrótta- hreyfingarinnar. Forystumenn handknattleiksmála um allan heim stóðust ekki þennan þrýst- ing og samþykktu að keppnin skyldi haldin á íslandi. Nú er komið babb í bátinn og allt í óvissu með hvort þessi mikla keppni verður yfirleitt haldin hér / &ST0RT á landi. Þessa keppni hefði þó aldrei verið hægt að halda á Is- landi ef ekki hefði átt sér stað mikil uppbygging íþróttahúsa vítt og breitt um landið. Enda var meiningin að einn riðill keppn- innar færi fram hér fyrir norðan. # Nýliði í lands- málapólitík Ekki voru umræðurnar um byggðamál á Alþingi sl. mánu- dag síður athyglisverðar. For- sætisráðherra er við sama hey- garðshornið og er með tillögu- flutning i undirbúningi um breytta áherslu f byggðamálum. Ekki er annað að skilja af orðum hans en að hann vilji gera Byggðastofnun að algjörri skýrslugerðarstofnun, sem hef- ur ekkert fé undir höndum, enda talar hann alltaf um bruðl og óráðsíu ef hann nefnir stofnun- ina á nafn. Þá vill hann flytja Byggðastofnun til Akureyrar, sem er af hinu góða, þ.e. ef stofnunin stendur undir nafni í framtíðinni. Formaður stjórnar Byggðastofnunar og flokksbróð- ir forsætisráðherra er ekki mjög hrifinn af hugmyndum Davíðs um hlutverk Byggðastofnunar og sagði í umræðunum sl. mánu- dag að forsætisráðherra væri nýliði í landsmálapólitík og ætti eftir að kynnast byggðamálum af eigin raun.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.