Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 12

Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 12
MfiUR Akureyri, miðvikudagur 6. nóvember 1991 VEITINGAHUSIÐ heimsendingar- þjónusta alla daga Sunnudaga til fimmtudaga kl.12.00-22.30 Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30 Q|erárgötu 20 • s 26690 Alvöru veitingahús Hádegis- tilboð alla daga Bættar samgöngur og aukið samstarf: Fara Dalvíkingar undir embætti bæjarfógetans í Ólafsfírði? Svo kann að fara að í framtíð- inni sæki Dalvíkingar bæjar- fógetaþjónustu til bæjarfógeta- embættisins í Ólafsfirði, en til þessa hafa þeir sótt þessa þjón- ustu til sýslumannsins í Eyja- fjarðarsýslu, sem jafnframt er bæjarfógeti á Akureyri. Dal- víkingar eru ekki sáttir við þá þjónustu sem þeir fá frá Akur- eyri og í Ijósi betri samgangna milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og aukins samstarfs þessara tveggja sveitarfélaga telja þeir ástæðu til að sækja bæjar- fógetaþjónustu til Olafsfjarð- ar. fjörð og Dalvík, og helst einnig Svarfaðardalshrepp og Árskógs- hrepp. að einu fógetasvæði. „Okkur hefur lengi fundist þjón- ustan frá bæjarfógeta á Akureyri heldur slök og vísum til þess að á Dalvík er einungis löglærður maður einu sinni í viku. Ef að við nytum þjónustu fógetans í Ólafs- firði, þá myndi umfang þess embættis stækka verulega og væntanlega yrði svæðið þá það stórt að þyrfti að ráða einn íög- lærðan mann til viðbótar, sem gæti verið staðsettur á Dalvík," sagði Trausti. óþh Einn á „EIskunni“ (eða lieitir báturinn Æskan?). Mynd: Golli Á sameiginlegum fundi bæjarráða Ólafsfjarðar og Dal- víkur í síðustu viku bar þetta mál á góma og kom fram áhugi beggja á að styrkja embætti bæjarfógetans í Ólafsfirði. Trausti Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar Dalvíkur, segir að áhugi sé fyrir því að gera Ólafs- Ófaglært starfsfólk í mjólkursamlögunum á Akureyri og Húsavík boðar verkfall: Staða okkar þannig að semja þyrfltl vun launalækkun í stað launahækkunar - segir Hlífar Karlsson, mjólkursamlagsstjóri KP á Húsavík íslenskur skinnaiðnaður: Eim logar í affallsgeymslu Slökkviliðið á Akureyri var kallað að íslenskum skinna- iðnaði hf. á Gleráreyrum í gærmorgun. Eldur logaði í kassa við verksmiðjuhús og gekk fljótt og vel að slökkva hann. Að sögn slökkviliðsmanns var um samskonar tilfelli að ræða og 23. október sl. er slökkviliðið var kvatt að hús- næði íslenska skinna- iðnaðarins. í>á eins og nú hafði neisti úr hnífum í skinnaverk- unarvél hrokkið í affalls- geymslu og kvcikt eld og var það ekki í fyrsta sinn. Glóð kraumaði í ruslinu og myndaðist töluverður reykur en engar skemmdir urðu af völdum eldsins. SS Árekstur á Akureyri: Þrír bflar skemmdust Allharður árckstur varð á Akureyri síðdegis á mánu- dag. Tveir bílar skullu sam- an á mótum Krossanes- brautar og Óseyrar og kast- aðist annar þeirra á kyrr- stæðan bfl við biðskyldu á Óseyri. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni að nokkrar skemmdír hefðu orðið á bílun- um en engin nteiðsl á fólki. Töluverð hálka var á götum þegar áreksturinn varð. SS Ófaglært starfsfólk í mjólkur- samlögunum á Húsavík og á Akureyri hefur boðað til verk- fallsaðgerða síðar í mánuðin- um hafi samningar ekki tekist en starfsfólkið vill fá samninga um starfsnámskeið og greiðslu námskeiðsálags. Boðað er til verkfalls dagana 15., 18. og 19. þessa mánaðar og ótímabund- ins verkfalls frá 25. nóvember. Verkfallið mun hafa mest áhrif á dreifingu á mjólkurvörum en vinnslu á mjólk verður hægt að halda uppi. Verkalýðsfélagið á Húsavík og Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri, boðaði þetta verkfall Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga var haldinn á Akureyri í lok síðustu viku. Að sögn Guðmundar Sigur- björnssonar, hafnarstjóra á Akureyri, var mest rætt um uppbyggingu mengunarvarna í höfnum, fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf. Einnig voru flutt framsöguerindi um skipu- lag og umhverfi hafna og rætt um tölvukerfið „Lóðsinn“ og þá barnasjúkdóma sem hafa komið upp í því. „Merkilegasta tillagan sem var samþykkt fjallaði um uppbygg- ingu á mengunarvarnabúnaði í höfnum fyrir olíumengun. Þetta hafði verið í umræðunni alllengi en var nú samþykkt," sagði Guð- mundur. eftir að samningafundur með for- ystu Vinnumálasambands sam- vinnufélaga rann út í sandinn í fyrradag. Þar lagði Vinnumála- sambandið fram tilboð sem félög- in sættu sig ekki við og boðuðu því til verkfalls. Ármann Helgason hjá Iðju segir að ekki sé boðaður fundur í deilunni og því búi starfsfólkið sig undir verkfallsátök. Hlífar Karlsson, mjólkursam- lagsstjóri hjá Kaupfélagi Þingey- inga á Húsavík, segir að þessar aðgerðir hafi þau áhrif að ekki sé hægt að dreifa mjólkurvörum í búðir og þar af leiðandi verði mjólk ekki pakkað í neytenda- Höfnum landsins er skipt í þrjá flokka samkvæmt tillögunni og er þá tekið mið af hættu vegna mengunar og staðsetningu. í fyrsta flokki eru fimm hafnir, þær stærstu í hverjum landshluta, og þar verður lögð áhersla á mjög góðan mengunarvarnabúnað. í öðrum flokki eru átta svæðis- hafnir sem hafa minni búnað. „Til að byrja með eru ekki fleiri hafnir en þessar þrettán. Menn munu sameinast um það innan svæðanna að koma sér upp búnaði og það verða þjálfaðir upp menn sem fylgja búnaðinum og fá aðstoð frá heimamönnum við að nota hann,“ sagði Guð- mundur. Sá búnaður sem notaður er gegn olíumengun í höfnum felst í flotgirðingum, hreinsibúnaði og umbúðir. Því verði að framleiða osta ef til þessara aðgerða komi. „Menn eru að fara yfir stöðuna og ráða ráðum sínum en ég hef ekki trú á öðru en menn geri sitt besta til að leysa þetta. Við stöndum hins vegar frammi fyrir verulegum breytingum núna í mjólkurframleiðslunni þegar til stendur að ríkið kaupi sem svarar 5 milljónum lítra af framleiðslu- rétti bænda og í viðbót eru hug- myndir um að mjólkuriðnaður- inn taki við og vinni á eigin ábyrgð 2,7 milljónir lítra. Þetta þýðir í heild fyrir okkar svæði 462 þúsund lítra á þessu verðlagsári sem við fáum minna en ekki neitt dreifiefni. Þessi búnaður er af skornum skammti hér á landi og þótti brýnt að gera markvissar til- íögur um uppbyggingu mengun- arvarna. Guðmundur sagði að lagt hefði verið til að lágmarks- búnaður yrði kominn í allar hafn- ir í fyrsta og öðrum flokki innan tveggja ára og síðan yrði frekari uppbygging metinn í ljósi reynsl- unnar. Hafnasambandið mun væntanlega óska eftir ríkisfram- lagi upp á tæpar 29 milljónir króna til þessa tveggja ára verk- efnis. „Markmiðið með þessum til- lögum var að hafa þetta eins ein- falt og á eins fáum stöðum og menn treystu sér til í byrjun. Sem betur fer er þetta ekki mikið not- aður búnaður en nauðsynlegur samt,“ sagði Guðmundur. SS fyrir. Þetta er jafn mikið og var lagt inn hjá okkur í janúarmán- uði síðastliðnum þannig að við verðum fyrir mikilli tekjuskerð- ingu á næsta ári. Samningsstaða okkar er því þannig að við þyrft- um að semja um launalækkun en ekki Iaunahækkun,“ segir Hlífar. JÓH Skoðunarstöð á Húsavík: Gengiðtíl saimnnga við TrésmiðjunaBorg Gengið verður til samninga við Trésmiðjuna Borg hf. á Húsa- vík um byggingu skoðunar- stöðvar í bænum fyrir Bifreiða- skoðun Islands. Fjórir aðilar buðu í verkið og átti Borg lægsta tilboðið en allir aðilarn- ir buðu yfir kostnaðaráætlun. Framkvæmdir eiga að hefjast nú þegar og á stöðin að afhendast fullbúin í júní á næsta ári. Tilboð Trésmiðjunnar Borgar var tæpar 18,8 milljónir króna. Næsta tilboð átti Fjalar hf. á Húsavík með um 19,8 milljónir þá Norðurvík með 20,7 milljónir og loks Stefán Óskarsson - Rein með 20,8 milljónir. Kostnaðar- áætlun hönnuða var rúmlega 18,6 milljónir króna. Skoðunarstöðina á að byggja við Haukamýri á Húsavík. í stöð- inni verður búnaður til að skoða jafnt fólksbíla sem stærri bíla. Húsið er um 150 fermetrar að stærð en inni í tilboðum er allur búnaður í húsið sem og frágangur á lóð. Skoðunarstöðin á að afhendast 15. júní á næsta ári og verður hún sú sjöunda sem Bif- reiðaskoðun íslands reisir á land- inu. JÓH Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga: Áhersla lögð á uppbyggingu mengunarvarna í höftium - lágmarksbúnaði verði komið í þrettán hafnir á næstu tveimur árum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.