Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 6. nóvember 1991
Miðvikudagur 6. nóvember 1991 - DAGUR - 7
Samkomulag um álver á Keilisnesi mun auðvelda okkur
samninga við erlend iðnfyrirtæki í framtíðinni
- engin spurning að til Eyjaijarðar verður leitað um áframhaldandi uppbyggingu orkufreks iðnaðar. á íslandi
Markaðsskrifstofu Iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar
var komið á fót þann 10. maí 1988. Hlutverk skrifstofunnar
er að afla markaða fyrir raforku til stóriðju eða til útflutnings
auk þess að safna upplýsingum um allt sem varðar markaðs-
möguleika á orku fyrir utan almennan markað Landsvirkjun-
ar. Skrifstofan fylgist einnig með þróun iðngreina er til
greina koma sem stórnotendur innlendrar orku í framtíðinni
og gerir frumathuganir á nýjum orkufrekum iðngreinum.
Hún á samstarf við atvinnufyrirtæki og sveitarfélög um frek-
ari hagkvæmnisathuganir auk þess að Iáta í té alla nauðsyn-
lega aðstoð við samningsgerð ríkisins og Landsvirkjunar um
sölu á orku til stóriðjufyrirtækja eða beina orkusölu til
útlanda.
Dagur átti nýlega viðtal við
Garðar Ingvarsson, framkvæmda-
stjóra og Andrés Svanbjörnsson,
yfirverkfræðing Markaðsskrif-
stofunnar um verkefni sem nú
eru á döfinni, stöðu Norðlend-
inga varðandi orkufrekan iðnað
og almennar horfur í samnings-
málum íslendinga við erlend
stóriðjufyrirtæki á næstunni.
Svör þau er birtast hér eru sam-
eiginleg svör þeirra Garðars og
Andrésar við spurningum
blaðsins.
Margar athuganir á döfínni
- ekki komið að staðarvali
- Eru einhver verkefni á sviði
orkufreks iðnaðar á döfinni sem
SíBA
þakrennur
Varanleg lausn
BLIKKRÁS HF.
Hjalteyrargötu 6,
símar 27770, 26524, fax 27737.
^Hasegawa
®
Plastmodel
VANDAÐARI
MODEL
lJ
PARIS HF
Leikfangamarkaöurinn
Flafnarstræti 96
Sími 27744
Norðlendingar geta vænst að fá
til sín í framtíðinni?
„Eins og fram kom á fundi Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar með
Andrési Svanbjörnssyni, sem
haldinn var á dögunum, er verið
að vinna að ýmsum verkefnum. í
augnablikinu miðast þessar
athuganir við að ná tiltekinni
framleiðslu til íslands. Athugan-
irnar eru á mismunandi stigum en
engin þeirra er komin það langt á
veg að farið sé að huga að stað-
setningu fyrir framleiðslufyrir-
tæki. Áður en slíkar ákvarðanir
eru teknar er nauðsynlegt að
huga bæði að öllum takmarkandi
þáttum og einnig bestu skilyrðum
er hver sá staður, sem til álita
kemur, hefur að bjóða. Sumt af
því sem verið er að athuga hentar
tilteknum aðstæðum betur en
annað. Sem dæmi um það má
nefna að iðnaður sem krefst jarð-
hita verður aldrei staðsettur langt
frá jarðhitasvæði. En þegar horfa
verður eftir ákveðnum stöðum í
því efni er engin spurning um að
leita eftir þeim á landsbyggðinni
og ekki síst á Norðurlandi.“
Samningarnir við Atlantsál
auka möguleika okkar
á fleiri samningum
í framtíðinni
- Hvaða möguleika virðast
íslendingar eiga til þess að fá
erlend fyrirtæki, sem byggja
framleiðslu sína á raforku til þess
að þau telji fsland áhugaverðan
kost til fjárfestinga í náinni
framtíð?
„í raun og veru er ákaflega
erfitt að segja til um hvérjir þess-
ir möguleikar eru. Peir ráðast af
ólíkum þáttum. Við eigum í
harðri samkeppni um orkusölu til
álframleiðslu við lönd á borð við
Kanada og Venesúela. f minni
framleiðslueiningum eigum við í
samkeppni við lönd þar sem
markaður er fyrir framleiðslu-
vörurnar í löndunum sjálfum.
Pað háir slíkum iðnaði, sem stað-
settur yrði á íslandi, að hér er
enginn heimamarkaður og allt
miðast við útflutning þótt í hlut
eigi fyrirtæki sem við myndum
telja mjög ákjósanlegt að fá hing-
að með framleiðslu sína.
Flutningskostnaður og stað-
setning gagnvart markaðinum
getur skipt verulegu máli þegar
stjórnendur slíkra fyrirtækja Ieita
eftir heppilegum stöðum til þess
að reisa framleiðslufyrirtæki. í
því sambandi má nefna dæmi um
framleiðslu á kísilflögum, sem
nokkuð hefur verið athugað um.
Framleiðsla þeirra þarfnast
mikillar orku ef miðað er við
þann orkuskammt sem þarf til
þess að framleiða hvert tonn. En
ef orkan er athuguð sem hlutfall
af söluverðmæti vörunnar kemur
í Ijós að hlutur hennar er það
lítill að hún hefur enga afgerandi
þýðingu þegar um staðsetningu
slíkrar verksmiðju er að ræða.
Síðasta könnun sem gerð var
um framleiðslu á kísilflögum var
í samvinnu við þýska AEG-fyrir-
tækið, sem rekur framleiðslu á
kísilflögum í Hamborg. Verk-
smiðja þeirra var skoðuð og
einnig varð ljóst í þessari athug-
un að verið var að reisa aðra
verksmiðju í Suður-Þýskalandi
að því er virtist út frá byggða-
sjónarmiðum. Afkastageta þeirr-
ar verksmiðju er talin nema um
tvöfaldri heimsnotkun á kísilflög-
um.
Almennt efnahagsástand í
heiminum, eins og það er á hverj-
um tíma, hefur einnig mikil áhrif
á hvernig þessar framleiðslu-
greinar ganga. Fjárfestingar í
orkufrekum iðnaði ganga sýni-
lega í miklum bylgjum og ráðast
einkum af árferði í viðkomandi
greinum. Þá mun einnig skipta
miklu máli í framtíðinni á hvern
Húsavík. I hverju felst fram-
leiðsla hennar og getur þar verið
um raunhæfan kost að ræða?
„Súrálsverksmiðja er millistig
álvinnslunnar þar sem náttúru-
legt bauxid er tekið til vinnslu.
Tvö tonn af bauxidi þarf til þess
að framleiða eitt tonn af súráli,
sem er hið raunverulega hráefni
við rafgreiningu á áli. Súráls-
framleiðslan er kemísk fram-
leiðsla; suða, felling og eiming á
bauxidi, þar sem aukaefnin eru
skilin frá. Úrgangsefnið sem
bauxidvinnslan skilur eftir sig er
nánast eins mikið og það magn af
súráli sem fæst, þannig að á móti
hverju tonni af súráli, sem fram-
leitt er, fellur til um eitt tonn af
úrgangi sem stundum er kallaður
„rauð Ieðja“ og getur verið
umhverfisvandamál. Tvisvar hef-
ur verið gerð alvarleg athugun á
tíðinni. Allar áætlanir, sem nú er
eru uppi um byggingu slíkra
framleiðslufyrirtækja miðast við
framleiðslu á milljón tonnum af
súráli á ári. Hugmyndir um súr-
álsverksmiðju eru því fyrst raun-
hæfar þegar álframleiðslan hér á
landi væri orðin um 300 þúsund
tonn á ári og ljóst að þau álfram-
leiðslufyrirtæki er hér störfuðu
myndu sjá sér hag í að eiga við-
skipti við slíka verksmiðju.
Stofnkostnaður við súrálsverk-
smiðju, sem áformað er að reisa
á Jamaca, er um 1500 milljónir
bandaríkjadala, sem er um 50%
meiri stofnkostnaður en áætlað
er að álverksmiðjan, sem fyrir-
hugað er að reisa á Keilisnesi
kosti. Auk þess starfa háhita-
svæðin á Islandi best með því að
gefa orkuna frá sér undir ákveðn-
um vinnsluþrýstingi, sem ekki er
Nýlegt álver í Kanada. Aformað er að byggja álverið á Keilisnesi eftir sömu teikningu.
hátt sambandi íslands við Evrópu
verður háttað. Evrópa er eitt af
sölusvæðum okkar fyrir iðnaðar-
afurðir og í því efni skipta samn-
ingar við Evrópska efnahags-
svæðið miklu máli í framtíðinni.
í raun er það fámennur hópur
sem tekur flestar ákvarðanir
varðandi framkvæmdir um bygg-
ingu álvera í heiminum. Hann
telur aðeins um nokkur hundruð
menn og margir þessara manna
þekkjast innbyrðis. Því er fylgst
vel með þeirri samningagerð sem
nú stendur yfir af hálfu íslenskra
stjórnvalda við Atlantsálshópinn.
Ef okkur tekst að ná þessum
samningum þá mun það auðvelda
allar viðræður og samninga varð-
andi nýja fjárfestingarkosti í
framtíðinni. Þetta atriði vegur
mjög þungt í samskiptum okkar
við erlend stóriðjufyrirtæki. í
Evrópu er ekki um auðugan garð
að gresja varðandi ódýra og
umhverfisvæna orku eins og
vatnsorku og jarðhita. Raforku-
framleiðslan þar byggist á
brennslu kolvetnissambanda;
olíu, kola og jarðgass eða þá
kjarnorku og þau verðmæti verða
væntanlega skattlögð af umhverf-
isástæðum á næstunni. Því er lík-
legt að samkeppnisstaða íslands
muni batna verulega frá því sem
verið hefur.“
Súrálsverksmiðja þarfnast
innlends markaðar fyrir
framleiðslu sína
- Nokkuð hefur verið rætt um
byggingu súrálsverksmiðju við
byggingu súrálsverksmiðju hér á
landi. Hin fyrri var fyrir um það
bil fimmtán árum og var svo mikil
andstaða við verkefnið af hálfu
Náttúruverndarráðs að athugun-
um var hætt áður en tókst að
kanna hvort unnt væri að gera
ráðstafanir til þess að losna við
rauðu leðjuna. Húsvíkingarnir,
sem verið hafa að athuga þessi
mál að undanförnu, telja að
mögulegt sé að komast frá þessu
og koma úrganginum fyrir en við
það vakna að sjálfsögðu spurn-
ingar um kostnað. En rétt er að
geta þess að mikil þróun hefur átt
sér stað í meðferð úrgangsefna
frá því á árunum 1975 og 1976 að
þessi möguleiki var fyrst kannað-
ur hér á landi.
Álframleiðsla á íslandi er aðeins
um 90 þúsund tonn á ári í dag og
því yrði að flytja verulegan hluta
súrálsframleiðslu úr landi með
tilheyrandi flutningskostnaði.
Aðstæður breytast hins vegar ef
álframleiðsla eykst og því er fyrst
tímabært að ræða um framleiðslu
á súráli þegar nýtt álver hefur
tekið til starfa. Bygging súráls-
verksmiðju hér á landi yðri auk
þess tilraunastarfsemi þar sem
jarðgufa hefur ekki áður verið
notuð við framleiðslu súráls en
nýting hennar er forsenda þess að
farið var út í þessar athuganir fyr-
ir fimmtán árum síðan. Flutn-
ingskostnaður jarðgufunnar frá
háhitasvæði til hafnarsyæðis mun
verða ráðandi hvað staðsetningu
slíkrar verksmiðju varðar ef af
byggingu hennar verður í fram-
víst að henti þessari starfsemi
vegna þess að erfitt getur orðið
að ná kjörþrýstingi til þess að
sjóða bauxidið við. Aftur á móti
er auðvelt er að stýra þessum
þrýstingi þegar gufan er fram-
leidd með olíukyndingu eða með
öðrum brennsluhætti.
Súrálsbræðsla er ákveðin
úrvinnsla úr
framleiddu súráli
- Nokkuð virðist hafa borið á
því að menn rugli saman súráls-
verksmiðju, sem framleiðir hrá-
efnið súrál úr frumefninu bauxidi
og því sem stundum hefur verið
kallað súrálsbræðsla. í hverju
felst framleiðsla súrálsbræðslu?
„Orðið súrálsbræðsla getur
verið villandi og valdið misskiln-
ingi því þar er um allt annan hlut
en súrálsverksmiðju að ræða. í
súrálsbræðslu fer fram fram-
Ieiðsla á ákveðnum slípiefnum,
sem menn þekkja til dæmis sem
sandpappír. Bauxidið er þá brætt
án rafgreiningar við mikinn hita í
kolbogaofnum þannig að úr því
verða harðir klumpar, sem síðan
eru malaðir niður í breytilegar
kornastærðir. Þar sem þessi
mulningur er mjög harður er
hann vel fallinn til þess að slípa
með honum. Sá iðnaður, sem
stundum er nefndur súrálsbræðsla,
vegna þess að bráðin er að mestu
leyti unnin úr hreinu súráli, felst í
framleiðslu þessara slípiefna en á
ekkert skylt við framleiðslu sjálfs
súrálsins úr bauxidi."
Haldið verður áfram að
undirbúa Eyjafjarðarsvæðið
- Er ástæða til þess að nú verði
unnið af fullum krafti að undir-
búningi fyrir framkvæmdir vegna
orkufreks iðnaðar á Norðurlandi
og er tímabært að huga að
ákveðnu landssvæði og hafnar-
skilyrðum í því sambandi, til
dæmis á Eyjafjarðarsvæðinu?
„Við þessari spurningu er
raunar aðeins til mjög ákveðið
jákvætt svar. Nú þegar er búið að
huga mikið að hafnarskilyrðum
við Eyjafjörð og þeirri vinnu
verður haldið áfram þótt bygg-
ingu álvers Atlantsáls hafi verið
valin annar staður. Sú þekking
sem fengin er af Eyjafjarðar-
svæðinu tapast ekki heldur þarf
að byggja upp þekkingarbanka
og aðlaga hann aðstæðum sem
skapast á hverjum tíma. Mark-
aðsskrifstofan vinnur nú að því
með Héraðsnefnd Eyjafjarðar og
einnig í samvinnu við Iðnþróun-
arfélag Eyjafjarðar. Vonir standa
til að fjárveiting fáist til þess að
vinna úr þeim veðurmælingum
sem gerðar voru á Dysnesi á síð-
ast liðnu ári. Þessar veðurfars-
mælingar eru mun nákvæmari en
fyrri mælingar á svæðinu og eru
forsenda þess að unnt sé að meta
afdrif mengunarefna.
Ekki fer á milli mála að ákveð-
in andstaða hefur verið fyrir
hendi af hálfu heimamanna varð-
andi byggingu stóriðju í Eyjafirði
en vonandi hefur hún fyrst og
fremst verið byggð á hræðslu og
upplýsingaskorti varðandi um-
hverfisspjöll. Menn verða að
sjálfsögðu að átta sig á því að öll
mannleg starfsemi hefur ein-
hverja mengun í för með sér og
að allri þróun fylgja breytingar.
Ef engar breytingar mega verða
þá skapar slíkt ástand stöðnun og
á endanum leiðir það til hnignun-
ar. Í málum sem þessum verða
heimamenn að hafa forystu um
að skapa jákvætt andrúmsloft og
ljóst er að stóriðja í Eyjafirði yrði
byggðunum við fjörðinn til veru-
legs framdráttar. Um það er eng-
in spurning og menn verða að
átta sig á því að allri efnahags-
starfsemi fylgja ákveðnar breyt-
ingar. Mikill áhugi er fyrir því að
takist að hefja uppbyggingu á
Eyjafjarðarsvæðinu innan tíðar
en tíminn verður að leiða í ljós á
hvern hátt sú vinna kemur til
með að þróast."
Spurningin var um Island
eða önnur lönd
- Sýndu forsvarsmenn Atlants-
álsfyrirtækjanna Eyjafirði aldrei
þann áhuga í raun sem vonast
hafði verið eftir?
„Mikils misskilnings hefur gætt
í umræðunni um staðarvalsmálið
því spurningin snérist ætíð í raun
og veru um það hvort tækist að fá
Atlantsálsfyrirtækin til þess að
reisa álver hér á landi eða hvort
það yrði byggt annarsstaðar í ver-
öldinni. Þá staðreynd verða
menn að horfast í augu við. Þeg-
ar verið er að keppa við slíkar
aðstæður þá verða menn að tefla
fram því hagstæðasta sem kostur
er á. Haldið hefur verið fram að
stjórnvöld hefðu átt að tiltaka
einn ákveðinn stað og benda
Atlantsálsmönnum á að þar yrði
álverið reist. Málið er hins vegar
ekki svo einfalt og líklegast er að
forráðamenn Atlantsálshópsins
hefðu þá farið til einhvers annars
staðar í veröldinni. Menn hafa
haft í heitingum og sagt í hita
leiksins að ef þeir fái ekki stór-
Verkfræðingar
Miövikudaginn 6. nóvember kl. 10.30 mun hr. Luis
Olivares, starfsmannastjóri Alþjóöabankans í Evrópu,
halda kynningarerindi í Borgartúni 6, Reykjavík um
stefnu Alþjóðabankans varðandi ráöningu verk-
fræöinga til sérstakra verkefna á vegum bankans.
Fundurinn er opinn öllum starfandi verkfræöingum.
Viöskiptaráðuneytið 4. nóvember 1991.
Garðar Ingvarsson, framkvæmdastjóri t.v.
og Andrés Svanbjörnsson, yfirverkfræðing-
ur Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins
og Landsvirkjunar ræða stóriðjumálin
iðjuna til sín þá muni þeir sjá til
þess að hún komi ekki annars
staðar á landinu. í því sambandi
má spyrja hvað sé að gerast þegar
menn kjósa að iaia á þennan
hátt. Þótt skoða verði slík
ummæli í ljósi 'vonbrigða, sem
menn hafi orðið fyrir, verða
menn að átta sig á því að við
erum öll íslendingar, höfum allt
Island undir og verðum að gera
það besta sem við getum úr því.
Það kom skýrt fram í viðræðum
við forsvarsmenn Atlantsálsfyrir-
tækjanna að þótt ríkisstjórnin
byði einhverja kostnaðarjöfnun
við byggingu álversins gegn því
að það yrði reist úti á landi myndi
það ekki breyta ákvörðun þeirra
um staðsetninguna á Keilisnesi.
Alumaxmenn vildu ekki
fara á stað þar sem þeir
væru óvelkomnir
- Gefur sú andstaða, sem vart
var við gegn byggingu álvers
Atlantsáls í Eyjafirði tilefni til að
velta því fyrir sér hvort hún hafi
skaðað möguleika Eyfirðinga í
staðarvalsmálinu?
„Bygging álversins var fljót-
lega einskorðuð við þrjá staði;
Dysnes við Eyjafjörð, Keilisnes á
Reykjanesströnd og við Reyðar-
fjörð. Forráðamenn fyrirtækj-
anna lögðu ítarlegt mat á alla
þætti þessa máls og komust síðan
að sameiginlegri niðurstöðu um
að áhætta vegna byggingar
álversins væri minnst á Keilis-
nesi. Umhverfisástæður réðu ein-
hverju og einnig komu ákveðnir
huglægir þættir til skjalanna. Það
er alveg ljóst að bréf „þrjátíu og
áttamenninganna“, sem sent var
persónulega til forstjóra þessara
þriggja fyrirtækja hafði áhrif.
Um slíkt þarf ekki að spyrja.
Fulltrúar Alumax hrifust mjög af
Eyjafirði en þeir sögðu
jafnframt, bæði við ráðamenn
hér fyrir sunnan og einnig heima-
menn í Eyjafirði að þeir væru að
leita að stað þar sem þeir væru
velkomnir og þeir myndu ekki
fara inn á svæði þar sem þeir
vissu að andstaða væri gegn þeim
ef þeir ættu annarra kosta völ.
Þarna er á ferðinni fjárfesting
upp á um þúsund milljónir
bandaríkjadala sem ætlað er að
standa til langs tíma og menn
fara ekki með slíka fjárfestingu
til staða þar sem þeir eru óvel-
komnir ef þeim bjóðast aðrir
kostir en vissulega er erfitt að
meta áhrif þessa bréfs á hina
endanlegu ákvarðanatöku.
Stöðugt er unnið að því að
leita eftir samstarfi við erlenda
aðila um orkufrekan iðnað á ís-
landi. Fyrst er að finna aðila, sem
líklegur virðist til samstarfs og
síðan verður að meta hvað hann
hefur að bjóða og hvort það
hentar því umhverfi sem hér er til
staðar. Öll vinna af þessu tagi er
tímafrek auk þess sem að mörgu
er að gæta. íslendingar eiga
gnægð af umhverfisvænni orku í
fallvötnum landsins og heitum
iðrum jarðar. Því er ljóst að þeir
eru ekki úr leik þegar um fram-
leiðslugreinar, er þarfnast mikill-
ar orku er að ræða. En Island
liggur í hafi fjarri meginlöndum
og mörkuðum og mun það ef til
rýra þá möguleika sem orkuforð-
inn annars býður upp á. ÞI
!■
J Kynningarfundur
lí: ur.ía,: 3E -"■*
Miðvikudaginn 6. nóvember kl. 17.15 mun hr. Luis
Olivares, starfsmannastjóri Alþjóöabankans í Evrópu,
halda kynningarerindi í stofu 101, Lögbergi, Háskóla
íslands um stefnu Alþjóðabankans í starfsmanna-
málum. Jafnframt gefur hann yfirlit yfir helstu verk-
efni bankans og starfssvið.
Öllum er áhuga hafa á að kynna sér starfsemi og
störf á vegum Alþjóöabankans er hér með bent á aö
koma til þessa kynningarfundar. Fundurinn er öllum
opinn.
Viðskiptaráðuneytið 4. nóvember 1991.
fpf't Hugmyndasamkeppni
Við leitum að nafni á nýja veislusalinn okkar
Þín tillaga
Nafn:.
Heimilsfang:.
Sími:
Verðlaun vinningshafa eru helgarterð tyrir 2 til
Reykjavíkur (flrnmtudag-sunnudags) gisting á
Hótel Islandi, matur og skemmtun (RlÓ-tríó—
Aftur til framtíðar) á laugardagskvöldi.
Dregið verður í hugmyndasamkeppninni í beinni
útsendingu á Stjörnunni föstud. 8. nóvember.
Sendist til: Greilans, Glerárgötu 20, 600 Akureyri
Matvöruverslunin
auglýsir
Kirnan
Allt í helgarmatinn
á einum stað
Opið kjötborð með fjölda rétta til kl. 22
alla daga vikunnar
Komið og verslið í ykkar verslun
Kirnan í leiðinni heim
Kirnan, Hafnarstræti 20,
sími 25655.
P.S. Munið bláu nóturnar.
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 09.00-22.00.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10.00-22.00.